Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraidur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsscn. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið. Orsakir hækk- andi orkuverðs Hátt orkuverð hér á landi á að drjúgum hluta rætur í rangri verðstýringu á liðnum áratug. Á tímabilinu 1973—1982 hækkaði orkuverð til notenda í sjö stærstu iðnríkjum heims um 200% til iðnaðar og 100% til heimilisnotkunar, umfram hækkun á vörum og þjónustu. Á sama tíma hækkaði raforkuverð hér á landi tiltölulega lítið og verð á heitu vatni lækkaði veru- lega að raunvirði. Ólafur Davíðsson, hagfræðing- ur, sagði á vetrarfundi SÍR og SÍH, að gjaldskrá Landsvirkjun- ar til almenningsveitna hafi lækkað að raungildi um 40% 1971—1978. Verð á heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur lækk- aði um 45% að raunvirði frá ársbyrjun 1971 til ársloka 1981 og er þá meðtalin niðurfelling söluskatts af heitu vatni 1972. Þessi verðstýring orkunnar, sem fléttaðist saman við vísitölu- brellur stjórnvalda, leiddi til skuldasöfnunar, lánsfjárþarfar og fjármagnskostnaðar, sem setti alvarlegt strik í rekstrar- dæmi orkufyrirtækja. Elías Elíasson, yfirverkfræð- ingur, víkur að þessu atriði á vetrarfundi SÍR, og segir: „Frá árinu 1977 hefur söluverð raforku verið undir kostnaðar- verði, sem hefur leitt til þess að reksturinn hefur ekki skilað neinu fé til nýframkvæmda og hefur því þurft að fjármagna nýjar virkjanir svo til eingöngu með erlendum lánum. Þetta hef- ur valdið óeðiilegri skuldasöfnun og hækkandi vaxtakostnaði, sem aftur kallar á hærra orkuverð. Vaxtakostnaður á selda orkuein- ingu hefur hækkað um 150% frá 1976 til 1982 og er fjármagns- kostnaður nú um 80% alls fram- Ieiðslukostnaðar í kerfi Lands- virkjunar." Elías Elíasson sagði ennfrem- ur, hefði „orkuverð til almenn- ingsveitna verið látið fylgja vísi- tölu byggingarkostnaðar frá 1971, þá hefðu skuldir Lands- virkjunar verið um 100 milljón- um dollara lægri og þar með hefði greiðslubyrði vaxta orðið 450 m.kr. lægri í ár, miðað við núverandi gengi og lánakjör und- anfarinna ára.“ Röng verðstýring innlendrar orku á þessum árum þýddi að orkufyrirtækjum var gert að selja framleiðslu sína undir kostnaðarverði, safna skuldum og kosta nýframkvæmdir alfarið með erlendu lánsfé. Erlendur lánsfjárkostnaður hækkaði jafnt og þétt, bæði með hækkandi vöxtum erlendis og lækkun ís- lenzku krónunnar gagnvart gjaldmiðli lánardrottna. Þetta hlaut að leiða til verðspreng- ingar, fyrr eða síðar, ef fyrirtæk- in áttu í senn að rísa undir þjón- ustuhlutverki sínu inn á við og standa við skuldakvaðir sínar út á við. Almenningur og atvinnu- vegir súpa nú seyðið af þessum syndum fortíðar í verðstýringu orkunnar. Hátolluð aðföng orkufyrir- tækja og óhófleg skattlagning orkunnar segja og til sín í orku- verði og koma endanlega niður á neytendum. Aðalsteinn Guðjohn- sen, formaður SÍR, spurði af þessu tilefni á vetrarfundi SÍR: • „Vita menn, svo dæmi sé tekið, að þegar Orkubú Vestfjarða, sem ríkissjóður á að tveimur fimmtu hlutum, reisir háspennulínu fyrir 30 m.kr., verður fyrirtækið að greiða þessum eiganda sínum 10 m.kr. af þessari upphæð vegna tolla og aðflutningsgjalda?" • „Og vita menn að af þeim 3,46 krónum á kílówattstund, sem raforka til heimilisnota kostar hér í Reykjavík, fara um 1,50 krónur til Landsvirkjunar, rösk- lega ein króna til ríkissjóðs, RÁRIK og Orkubús Vestfjarða — og afgangurinn, rúmir 90 aur- ar, til rafmagnsveitunnar sjálfr- ar til reksturs og framkvæmda?" Hér að framan hafa tveir höf- uðþættir hækkandi orkuverðs verið tíundaðir, stóraukinn fjár- magnskostnaður, sem rætur á í rangri verðstýringu stjórnvalda á sl. áratug, og óhófleg skatt- lagning aðfanga og orku. Almenn verðþróun í landinu hefur að sjálfsögðu einnig sagt til sín í orkubúskapnum. Dreifingarkostnaður, þ.e. dreifikerfið, í stóru og strjálbýlu landi, vegur og þungt í kostnað- ardæmi og verðlagningu orkunn- ar. Fleiri þættir koma og við sögu, þó erfiðara sé fyrir leikmenn að glöggva sig á þeim. Þar skal fyrst til nefna virkjunarkostnað. Gild- ir sú gullvæga regla í virkjana- gerð á íslandi að fá sem mesta orku fyrir sem minnstan kostn- að? Og hvað um yfirbyggingu orkufyrirtækjanna, Orkustofn- unar, Landsvirkjunar og Raf- magnsveitna ríkisins? Má þar ná fram sömu þjónustu með minni tilkostnaði? Aðhaldskröfur um vinnuhagræðingu og arðsemis- fjárfestingu eiga ekki síður við í orkubúskap fslendinga en öðrum undirstöðuþáttum samfélagsins. Þeir kostnaðarþættir orku- búskaparins, sem safnað var í skuldalón opinberrar verðstýr- ingar á liðnum verðbólguáratug, hafa nú sprengt stífluna, sem ekki þoldi lengur álagið. Það er eðlilegt að fólk, sem ekki þekkir málavexti, eigi erfitt með að átta sig á því, hvað hefur gerzt í verð- þróun orkunnar. Það verður því að teljast eðlilegt að gerð verði hlutlaus úttekt á verðþáttum orkunnar og niðurstöður tíund- aðar almenningi. Stjórnvöld eiga að sinna upplýsingaskyldum við almenning. / „Það næsta ég man að ég var á kafi í sjó“ — segir Svavar Aðalsteinsson, sem var á flekanum þegar krananum hvolfdi „Vlö fórum tveir á flekanum út aö stöplinum. Annar okkar fór upp á hann, en ég var áfram á flekanum og var aö vinna við stöpulinn niöri viö sjávarflötinn. Hinir voru hífðir út í miöstöpulinn til að ná í eitthvert dót sem var þar. Þeir voru svo á leiöinni til baka yfir í þennan stöpul, sem viö vorum að vinna við, þegar ég verð var viö einhvern hávaða, sem ég geri mér nú ekki grein við hvað var. Mér er litið svona til hliðar og þá sé ég aö karfan með þeim í er að fara í sjóinn," sagði Svavar Aðalsteinsson, sem var á flekanum, sem kranabóman hvolfdi. „Þá kemur hugsunin um það að reyna að komast til þeirra, ég vissi ekkert hvað var að gerast og það næsta sem ég man er að ég er á kafi í sjó. Ég finn að það kemur eitthvað ofan á mig þegar ég er kominn á kaf. Þegar mér skýtur upp þá náði ég að synda að flekanum, en það voru ekki nema nokkrir metrar að honum. Ég komst ekki upp á hann strax. Ég ætlaði að reyna að komast út til þeirra og reyndi að ýta flekan- um í þá áttina, en hann var fastur í kaðli, sem lá frá honum og í land og var fastur undir bómunni. Þá reyndi ég að losa flekann með því að ýta honum í áttina að landi, en það tókst ekki heldur, svo ég reyndi að snúa flekanum við og við það fór hann yfir bómuna. Ég gat spyrnt í bómuna og komst upp með því móti upp á flekann. Þá voru þeir búnir að skera á kaðalinn í landi og ég gat spyrnt mér frá bómunni og farið út að stöplinum til þeirra. Maðurinn sem var upp á stöplin- um var búinn að príla niður og ann- ar þeirra sem var í sjónum náði í lappirnar á honum og gat vegið sig upp og náð taki á planka og bolta sem stóð út úr þilinu. Þeir komust báðir upp á flekann, þegar ég kom með hann og við komumst á honum til baka í land. Það var kaðall sem var strengdur milli stöpulsins og lands og við handlönguðum okkur eftir honum,“ sagði Svavar. — Þér hefur ekkert orðið meint af volkinu? „Nei, nei, mér varð ekki meint af þessu. Ég fékk eitthvert högg á höndina, ég veit ekki frá hverju, en það er bara mar. Ég er að vísu hálf- máttlaus ennþá í hendinni og hálf- sofinn. Ég veit ekki hvort það var bóman eða flekinn, sem orsakaði þetta, en bóman hvolfir flekanum þegar ég fer í sjóinn. Þeir segja, sem horfðu á, að bóman hafi komi niður á milli mín og stöpulsins. Ég hef sennilega verið búinn að ýta mér frá stöplinum eftir að ég sá þá í sjónum, annars get ég ekkert fullyrt um það, þetta gerðist svo skyndilega. Mér skildist á manninum, sem sá þetta, að hann hefði haldið að bóman hefði farið í mig, hún fór svo nálægt," sagði Svavar að lokum. Gunnar Sigurðsson, sem var uppi á öðrum stöplinum er slysið varð. Kraninn og flckinn í baksýn, sem kranabóman féll á og mennirnir björguðust upp á. Kraninn á hvolfi. Morgunblaóió/RAX. „Gat rétt honum aðra löppinau „ÉG VAR UPPI á stöplinum að bíða eftir mönnunum í körfunni til að taka á móti þeim og tækjunum sem þeir voru með og höfðu verið að sækja yfir á hinn stöpulinn. Ég sneri baki í kran- ann og sá því ekki hvað gerðist þar, en skyndilega húrruðu mennirinir í körf- unni í sjóinn og bóma kranans á eft- ir,“ sagði Gunnar Sigurðsson, sem var uppi á stöplinum þegar óhappið varð. „Ég klifraði niður að sjávarborð- inu til að hjálpa þeim. Einn þeirra var að sökkva, því hann var svo þungur á sér, vegna þess að hann var með smíðasvuntu á sér, fulla af verkfærum. Ég hélt mér í teinana á uppslættinum um stöpulinn og gat rétt honum aðra löppina, sem hann gat haldið sér í. Hann var búinn að súpa talsverðan sjó og orðinn þrek- aður þegar þeir komu með flekann og náðu honum upp á hann. Það munaði ekki miklu að illa færi,“ sagði Gunnar Sigurðsson, ennfrem- ur. Landsfundur Alþýðubandalagsins: Kjaftæði að þúsundir bíði eftir að komast í flokkinn Stefánsson — Harðar — sagði Ásmundur Landsfundarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins sem Mbl. ræddi við í gær voru á einu máli um það að Vilborg Harðardóttir yrði ein í kjöri til varaformanns Alþýðu- bandalagsins á morgun, sunnudag. Steingrímur Sigfússon, sem nefndur hefur verið sem hugsanlegur frambjóð- andi, lýsti því yfir í gær, að hann gæfi ekki kost á sér. Hjörleifur Guttormsson hafði nokkru fyrr á fundinum lýst því yfir í ræðu að hann teldi rétt að flokk- urinn kysi konu sem varaformann við hlið Svavars Gestssonar. Forustumenn í verkalýðsstétt á landsfundinum sátu langan fund síðdegis í gær og ákváðu þar m.a. að bjóða ekki fram til vara- formanns, en leggja þess í stað megin- áherslu á að þeirra maður verði kosinn ritari flokksins. Ekki var ákveðið hver sá frambjoðandi verður. Hilmar Ing- ólfsson Garðabæ býður sig fram til gjaldkera, en í gær gekk undirskrifta- listi meðal fundarmanna til stuðnings Ásmundi Ásmundssyni, Kópavogi, í gjaldkerastarfið. Hátt í 50 ræður voru fluttar á fundin- um í gær. Bar þar mest á umræðum kvenna um kvennapólitík og jafnrétt- ismál. Konurnar komu tvívegis tvær í einu í ræðustól og fluttu mál sitt á víxl, sögðu þær þann hátt á hafðan til að sýna að þær stæðu saman. Þá var ekki minna áberandi í málflutningi manna hræðsla við það breiða bil sem menn voru sammála um að sé orðið á milli verkalýðshreyfingarinnar og Alþýðu- bandalagsins. Björn Arnórsson fjallaði m.a. um þetta og sagðist harma það að í öllu því pappírsflóði sem gengi yfir fundarmenn skyldi ekki vera eitt ein- asta skjal sem væri stefnumótandi í kjaramálum. Hann deildi einnig hart á Svavar Gestsson fyrir málflutning hans varðandi kjaramál í setningarræðu í fyrradag og sló í brýnu milli þeirra á meðan Björn flutti mál sitt. Björn var ekki einn um að deila á setningarræðu formannsins, annar fundarmaður las nokkur slagorð úr ræðunni við mikinn hlátur fundarmanna. Þá urðu snörp orðaskipti í lok fund- arins í gærkvöldi vegna frumvarps til nýrra laga Alþýðubandalagsins. Ragn- ar Arnalds hafði fyrr um daginn lýst sig andvígan skipulagsbreytingunum, hann notaði það orð að með þeim gæti flokkurinn lent í grautargerð miðju ís- lenskra stjórnmála. Svavar Gestsson og Steingrímur Sigfússon lýstu sig mjög fylgjandi tillögunum, en þær gera m.a. ráð fyrir breytingu á félagaformi, þannig að svæðisbundin félög verði Iögð niður, en í staðinn opnaður möguleiki á stofnun ýmissa sérhópa í kringum ákveðin málefni, svo sem sérstakan hóp deilur vegna tillagna i herstöðvaandstæðinga o.s.frv. Þá er og gert ráð fyrir ákveðinni kvótaskiptingu í stofnanir og stjórnir flokksins, þannig að konur skipi a.m.k. 40% sæta og karl- ar 40%. Mönnum sýndist sitt hvað um þá hugmynd einnig. í málflutningi kom m.a. fram, að menn óttast að með breytingu á félaga- formi bjóði flokkurinn upp á sérfram- boð. Bent var á hversu skammt hefði verið í sérstakt framboð verkaiýðs- manna fyrir síðustu kosningar og töldu menn að breytingin yrði til þess að óánægjuöflin innan verkalýðsarms flokksins fengju þar kjörið tækifæri til stofnunar sérfélags og sérframboðs í framhaldi af því. Einnig bentu menn á hrakfarir Alþýðuflokks, varðandi stofn- un Bandalags jafnaðarmanna. Höfðu menn á orði, að ef tillögurnar yrðu sam- þykktar yrðu þingflokkar Alþýðubanda lagsins fleiri en einn eftir næstu kosn- ingar. Ásmundur Stefánsson v»ar mjög harðorður og lýsti sig algjörlega and- vígan breytingunum. Tillögurnar voru til umfjöllunar á fundi verkalýðsleið- toganna stuttu áður og byggði Ásmund- ur málflutning sinn á niðurstöðum um- fjöllunar þeirra. Þá beindi hann spjót- um sínum að flokksformanninum og sagði m.a. að vandamátið í skipulagi í skipulagsmálum flokksins væri fyrst og fremst það, að miðstjórnin væri ekki nægilega virkt tæki. Breytingarnar væru eingöngu til þess að sundra flokknum — stilla upp andstæðum hópum. „Það er kjaftæði að þúsundir bíði í röðum eftir að komast inn í flokkinn," sagði hann og vitnaði þar til setningarræðu formannsins. Nokkuð var rætt um atvinnumál og áberandi var hversu margar skriflegar tillögur komu fram um hin ýmsu mál Einn ræðumanna, Guðmundur B. Þor- geirsson, kvaðst hafa áhyggjur af hversu fyrirliggjandi tillögur væru yfir höfuð harðorðar. Hann sagði ansi mikla breytingu á orðna frá því hann sat síð- asta fund flokksins á sama stað. Þá hefði verið lögð fram neyðaráætlun til fjögurra ára og menn mættu minnast þess að ástand þjóðmála væri nú mjög erfitt. Þá sagði hann það koma sér spánskt fyrir sjónir að sjá í tillögu- bunkanum annars vegar lagt til að sparnað ætti að auka og hins vegar að stofna skyldi tvö ný ráðuneyti, þ.e. efnahags- og umhverfismálaráðuneyti. I gærkvöldi störfuðu umræðuhópar. Fundinum verður framhaldið í dag en honum lýkur annað kvöld, sunnu- dagskvöld. Á morgun fara fram kosn- ingar nýrrar forustu flokksins og mið- stjórnar. Listasafn ASÍ: Yfirlits- sýning á verkum Jóhanns Briem I DAG verður opnuð í Listasafni Al- þýðusambands Island, yfirlitssýning á verkum Jóhanns Briem, og spanna málverkin fimmtíu ára listferil mál- arans. Sýningin er haldin í tilefni þess að í vikunni kom út bók um Jóhann og list hans, sem bókaforlag- ið Lögberg og Listasafn ASÍ gefa út. Á sýningunni í Listasafninu eru 39 olíumálverk, og eru þau ýmist í opinberri eigu eða í eigu einstakl- inga. Meðal málverkanna eru flest kunnustu málverk Jóhanns, sem tvímælalaust er í hópi kunnustu listmálara núlifandi. Hagvangur hf.: Niðurstöður í skoðana- könnun um stóriðju Telur þú aö aukning á stóriðju frá því sem nú er muni efla íslenskt atvinnulíf? Karlar KonUr Já 69,8 58,5 Nei 22,5 25,7 Veit ekki 7,6 15,8 % Já 64,1 Nei 24,1 Veit ekki 11,8 Telur þú að aukning á stóriðju frá því sem nú er hafi í för með sér óhagkvæmar fjárfestingar? % Já 50,8 Nei 27,5 Veit ekki 21,7 Karlar Konur Já 47,3 54,8 Nei 35,8 19,3 Veit ekki 17,3 25,9 Telur þú að aukning á stóriðju frá því sem nú er stuðli að hagkvæm- ari nýtingu á okkar eigin orku? % Já 65,5 Nei 18,5 Veit ekki 15,9 Karlar Konur Já 67,8 63,4 Nei 19,2 17,9 Veit ekki 12,9 18,7 Telur þú að aukning á stóriðju frá því sem nú er geri okkur of háða erlendum aðilum? Karlar Konur Já 42,2 57,3 Nei 48,4 30,1 Veit ekki 9,4 12,7 Telur þú að aukning á stóriðju frá því orkuverði til almennings? sem nú er stuðli að hærra % Karlar Konur Já 38,0 Já 33,8 42,7 Nei 46,5 Nei 55,8 36,7 Veit ekki 15,5 Veit ekki 10,4 20,5 auknum gjaldeyristekjum? Já % 75,8 Nei 8,8 Veit ekki 15,4 Telur þú að aukning á stóriðju frá því sem nú er: Muni efla íslenskt Já Nei Veit ekki atvinnulíf Hafi í för með sér óhag- 64,1 24,1 11,8 kvæmar fjárfestingar Stuöli að hagkvæmari nýt- 50,8 27,5 21,7 ingu á okkar eigin orku Geri okkur of háða 65,5 18,5 15,9 erlendum aðilum Stuðli að hærra orku- 49,3 39,4 11,2 verði til almennings Skapi möguleika á auknum 38,0 46,5 15,5 gjaldeyristekjum 75,8 8,8 15,4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.