Morgunblaðið - 19.11.1983, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Sighvatur Blöndahl
Litlar breytingar á
gengi í síðustu viku
DOLLARAVERÐ lækkaði um 0,14%
í síðustu viku, en í upphafi hennar
var sölugengi Bandaríkjadollars
skráð 28,140 krónur, en sl. föstudag
hins vegar 28,100 krónur. Frá ára-
mótum hefur dollaraverð hækkað
ura 68,77% í verði, en í ársbyrjun var
sölugengið skráð 16,650 krónur.
BREZKA PUNDIÐ
Brezka pundið hækkaði um
0,06% í verði í síðustu viku, en við
upphaf vikunnar var sölugengi
þess skráð 41,795 krónur, en sl.
föstudag hins vegar 41,820 krónur.
Frá áramótum hefur brezka pund-
ið hækkað um 55,86% í verði, en í
ársbyrjun var sölugengi þess
skráð 26,831 króna.
DANSKA KRÓNAN
Danska krónan hækkaði um
0,19% í verði í síðustu viku, en í
vikubyrjun var sölugengi hennar
skráð 2,9240 krónur, en sl. föstu-
dag hins vegar 2,9296 krónur. Frá
áramótum hefur danska krónan
hækkað um 47,58% í verði, en í
ársbyrjun var sölugengi hennar
skráð 1,9851 króna.
VESTUR-ÞÝZKA MARKIÐ
Vestur-þýzka markið hækkaði
um 0,39% í verði í síðustu viku, en
í vikubyrjun var sölugengi þess
skráð 10,5206 krónur, en sl. föstu-
dag hins vegar 10,5613 krónur. Frá
áramótum hefur vestur-þýzka
markið hækkað um 50,78% í verði,
en í ársbyrjun var sölugengi þess
skráð 7,0046 krónur.
IMJ UIIJ AflUI 'J<( eui )S0J'IUIJ'Aput i<t 'fUI
062
Itil
9tíz
*í ’ J ■■ ■ 86fc *Q l
• wre
K0J UNJ AfIUI J<t fUI JSQJ uiy AJHU J<j fUI
uvDl
• N. 09*01
0Í01
Oi'Ol
06*01 'IAIíU
0011
£861 H38W3AON ll-í 90 AON fr lllO IC UVNUIDIIA NIN00U<tSI9N39
Veruleg aukning á
hagnaði hjá KLM
Flutningar jukust um 9% á 2. ársfjórðungi
HAGNAÐUR hollenzka flugfélags-
ins KLM á 2. ársfjórðungi reiknings-
ársins, sem endaði 30. september sl„
var um 155,9 milljónir hollenzkra
gyllina, en til samanburðar var
hagnaður fyrirtækisins á sama tíma í
fyrra um 105,1 milljón hollenzkra
gyllina. Aukning á hagnaði milli ára
er um 48%.
Hagnaður KLM á hvern hlut í
fyrirtækinu var um 26,48 hollenzk
gyllini, en var á sama tíma í fyrra
26,37 hollenzk gyllini. í þessu sam-
bandi verður þó að hafa í huga, að
heildarfjöldi hluta í KLM var á 2.
ársfjórðungi í ár 5,9 milljónir, en
var til samanburðar á sama tíma í
fyrra 4 milljónir. Hafði fjölgað um
47,5%.
Heildarvelta KLM á 2. ársfjórð-
ungi var um 1,45 milljarðar hol-
lenzkra gyllina, en veltan var um
1,30 milljarðar hollenzkra gyllina
á sama tíma í fyrra. Veltuaukn-
ingin milli ára er liðlega 11,5%.
Heildarflutningar KLM jukust
á umræddu tímabili um liðlega
9%, þegar þeir voru samtals um
806,5 kílómetrar. Þá hækkaði
hleðsluhlutfall félagsins úr 62,7%
í 66,3%. Farþegaflutningar félags-
ins jukust um 1%, en vöruflutn-
ingar hins vegar um 25% milli
ára. Leiguflug minnkaði um 13%
milli ára, en það er ekki stór hluti
Svíþjóð:
Framfærslukostnaður hækkaði
um 0,2% í fyrri hluta októbermánað-
ar sl„ sem jafngildir ura 6,8% hækk-
un frá áramótum. Til samanburðar
hækkaði framfærslukostnaður um
8,2% á sama tímabili í fyrra, sam-
kvæmt upplýsingum sænsku hag-
stofunnar.
af starfsemi KLM, sem er aðallega
í áætlunarflugi.
Ef Iitið er á fyrri helming reikn-
ingsársins jókst hagnaður KLM
um 43%, þegar hann var um 196,4
milljónir hollenzkra gyllina á móti
137,6 milljónum hollenzkra gyll-
ina á sama tima í fyrra.
Þá kom fram í upplýsingum
sænsku hagstofunnar, að inn-
flutningsverð var um 16% hærra í
september sl. en á sama tíma í
fyrra. Útflutningsverð hækkaði
hins vegar minna, eða um 14,1%
milli ára. Framleiðsluverð í iðnaði
hækkaði á sama tíma um 12,7%.
Minnkandi hækkun
á framfærslukostnaði
Áframhaldandi aukning
á Norður-Atlantshafinu
Flugleiðir:
Rekstur félagsins réttum megin við strikið í ár
„AUKNINGIN í Norður-Atlants-
hafsfluginu á þessu ári verður vænt-
anlega á bilinu 22—23%, en það er
nokkurn veginn í samræmi við
okkar áætlanir,** sagði Sigfús
Erlingsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Flugleiða, í samtali
við Morgunblaðið, en Sigfús tók við
þessu starfi í september sl„ en hafði
áður starfað sem svæðisstjóri félags-
ins í Vesturheimi, með aðsetri í New
York.
„Á síðasta ári fluttum við sam-
tals um 183 þúsund farþega á
þessari flugleið, en þar af voru um
22.300 farþegar á flugleiðinni milli
Keflavíkur og Luxemborgar. í
októberlok sl. höfðum við flutt
samtals um 206 þúsund farþega á
Norður-Atlantshafinu, þar af um
19.900 milli Keflavíkur og Lux-
emborgar. Aukningin frá sama
tíma árið á undan er um 22,8%.
Útkoman er hins vegar ekki
jafn góð á öðrum leiðum félagsins.
í Evrópufluginu hefur orðið um
7% samdráttur, það sem af er ár-
inu, en alls hafa verið fluttir um
120 þúsund farþegar á móti um
129 þúsund farþegum á sama tíma
í fyrra. í innanlandsfluginu hefur
síðan orðið um 9% samdráttur
það sem af er ársins," sagði Sig-
fús.
Um ástæður þessa samdráttar á
Evrópuleiðum og innanlands sagði
Sigfús, að þar kæmi fyrst og
fremst til bágt efnahagsástand, en
auk þess hefði veðurfar gert
Flugleiðum mikla skráveifu í upp-
hafi ársins, þegar ekki var hægt
að fljúga vikum saman vegna ill-
viðris.
Sigfús sagðist gera ráð fyrir að
samdrátturinn í flugi á Evrópu-
leiðum og innanlands þegar upp
yrði staðið í árslok yrði svipaður
því sem er þegar orðið, eða 7% á
Evrópuleiðum og 9% í innan-
iandsfluginu. „Við munum vænt-
anlega flytja um 143 þúsund far-
þega á Evrópuleiðum og um 221,5
þúsund innanlands."
Aðspurður um sætaframboð í
vetur sagði Sigfús, að það yrði
mjög svipað á Evrópuleiðum, en
um einhvern samdrátt yrði að
ræða í innaniandsfluginu. „Við
munum hins vegar auka sæta-
framboðið á Norður-Atlantshaf-
inu um 35% í vetur. Þar kemur
annars vegar til, að bætt verður
við einni ferð, auk þess sem við
munum fljúga DC-8 þotu með 249
sætum í vetur, en á liðnum vetri
var vélin búin 208 sætum og vöru-
flutningarými."
Sigfús sagði að bókanir í vetur
væru góðar, betri en menn hefðu
átt von á. „Við gerum því fyllilega
ráð fyrir að verða með góða nýt-
ingu í vetur. Annars er mikið starf
okkar á liðnum misserum að skila
sér í auknum mæli. Við höfum
lagt mikla áherzlu á kynningar-
málin undanfarið og aukningin
hefur ekki látið á sér standa. Það
hefur hins vegar orðið veruleg
fækkun farþega á flugleiðinni frá
Sigfús Erlingsson, framkvæmda-
stjóri markaðssviós Flugleiða.
íslandi til Bandaríkjanna og kem-
ur þar sérstaklega til hátt gengi
dollarans, sem gerir ferðalög ís-
lendinga vestur mjög óhagkvæm."
Um afkomuna á þessu ári sagði
Sigfús, að allt benti til þess að
Flugleiðir yrðu réttum megin við
strikið í fyrsta sinn um árabil.
„Aðalástæðurnar fyrir þessum
bætta hag eru aðallega tvær. Ann-
ars vegar er það verulega lækk-
andi eldsneytisverð og hins vegar
mun betri nýting í Norður-
Atlantshafsfluginu. Þá er afkom-