Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 9 hlutverki sínu. Bestur þótti mér hann í Kaupmannahöfn sem talsmaður mannlegra kennda, en hann lék einnig Hallgrím vel að leiðarlokum þegar skáldið stend- ur andspænis þjáningu sinni og dauðadómi. Sum hlutverkin eru þannig að það er ekki sanngjarnt að ætlast til persónusköpunar af hálfu leikara. Ég nefni síra Jón Þor- steinsson sem Baldvin Halldórs- son lék. Það hlutverk var of ein- strengt. Sama er að segja um Jón Jónsson Þórhalls Sigurðs- sonar og Jón Ásbjarnarson Jóns S. Gunnarssonar og þannig mætti reyndar lengi telja. Hákon Waage nær aftur á móti að gæða persónu hins for- smáða Ólafs mannlegu svipmóti. Og létt var yfir túlkun þeirra Vilborgar Halldórsdóttur, Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur og Guðrúnar Þ. Stephensen. Einnig mætti nefna góðan leik Árna Tryggvasonar, Margrétar Guð- mundsdóttur og Tinnu Gunn- laugsdóttur. Krakkarnir í leik- ritinu stóðu sig með prýði, ekki síst smástúlkurnar tvær Brynja Gísladóttir og Karen María Jónsdóttir. Ekki skal heldur gleymt leik Hrannars Más Sig- urðssonar í hlutverki hins sjúka íslenska drengs í Algeirsborg. Leikmynd Sigurjóns Jó- hannssonar var Tyrkja-Guddu mikill styrkur, fagmannlega unnið verk sem naut lýsingar Ásmundar Karlssonar. Tónlist Leifs Þórarinssonar var til áhersluauka og líkt og skreyting. Tyrkja-Gudda mun hafa verið endurunnin og töluvert breytt frá því að hún var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu 1952. Að mínu viti hefur leikstjórinn, Benedikt Árnason, unnið afrek með þessri uppfærslu, dregið fram helstu kosti verksins og gert það í alla staði aðgengilegt. Hann hefur lika verið fundvís á þá hluti sem bera dramatískri skáldgáfu höf- undarins vitni. Grunur minn er sá að Tyrkja- Gudda þeirra Jakobs Jónssonar og Benedikts Árnasonar muni verða langlíf. Hér er komið verk sem fer bil beggja alþýðlegrar leikritunar og vilja til drama- tísks skáldskapar. Gallar verks- ins skyggja ekki á kosti þess. Það er að mörgu leyti fróðlegt að ganga til fundar við Guðríði Símonardóttur og Hallgrím Pét- ursson í Þjóðleikhúsinu. Kirkjan gamla varð brennuvörgum að bráð Bad Orb, Vfstur l'V.skalandi. 25. deæmber. AP. ÆVAGÖMUL kirkja í vestur-þýska bænum Bad Orb varð cldhafi að bráð skömmu eftir að jóla- guðsþjónustu þar lauk á jóladag. 500 manns voru við guðsþjónust- una. Kirkjan var frá 14. öld og rómversk-kaþólskir sóttu þar mess- ur allt til jóladags 1983. Talið er víst, að brennuvargar hafi verið á ferðinni, einn eða fleiri, því það sannaðist fáeinum dögum áður, að kveikt væri í leikskóla örskammt frá. Er vanda- lanna nú leitað með logandi ljós. Fjöldi slökkviliðsmanna barðist við eldhafið, en fékk lítið við ráðið. Þrír þeirra slösuðust illa, einn fékk heilar svalir í höfuðið, er þær hrundu ofan á hann. Höfuðkúpu- brotnaði hann illa og er vart hug- að eðlilegt líf. Þá beinbrotnuðu tveir til viðbótar talsvert er brunaslanga fór hamförum vegna of mikils þrýstings. Slóst hún í fé- laganna með umræddum afleið- ingum. Tilraunastöðin á Reykhólum: Mótmæla ákvörð- un um að leggja niður sauðfjárbúið Reykhólmsveit, 28. desember. Fréttaritari Morgunblaðsins hefur haft santband við nokkra aðila og beðið þá að tjá sig um þá ákvörðun stjórnar Kannsóknarstofnunar land- búnaðarins að leggja niður sauð- fjárbú tilraunastöðvarinnar á Reyk- hólum og fara umsagnir þeirra hér á eftir. Valdimar Gíslason, formaður Búnaðarsambands Vestfjarða, hefur eftirfarandi að segja: „Stjórn Búnaðarsambands Vest- fjarða mótmælir þessum ráða- gerðum að leggja niður sauð- fjárbúið á Reykhólum. Tilrauna- stöðin á Reykhólum á að þjóna landbúnaði á Vestfjörðum og bendir stjórnin á, að landbúnaður þar standi höllum fæti vegna slæms árferðis, sauðfjársjúkdóma og framleiðsluskerðinga. Það er því eindregin ósk bænda þar að sú þjónusta verði efld en ekki dregið úr henni, þannig að starfsemi til- raunastöðvarinnar á Reykhólum styrki byggðina á Vestfjörðum enn frekar en verið hefur. Land- búnaður á Vestfjörðum byggir að stórum hluta á sauðfjárrækt. Því er ekki óeðlilegt að þar fari fram tilraunir í þeirri búgrein. Gott samstarf hefur verið á milli til- raunastöðvarinnar á Reykhólum og Búnaðarsambandsins og hefur tilraunastjórinn á Reykhólum komið á Búnaðarsambandsfundi og sagt frá því, sem þar er að ger- ast.“ Þórarinn Sveinsson, ráðunautur Búnaðarsambands Vestfjarða, hefur eftirfarandi að segja: „Ég tel það fráleita ákvörðun hjá stjórn RALA að leggja niður sauðfjárbúið á Reykhólum vegna þess að ull og gærur eru að verða stærri hlutinn í verðmætum sauðfjárafurða. Ég tel að Reyk- hólaféð búi yfir miklum verðmæt- um í ullar- og skinngæðum. Það hefur komið í ljós að þegar notað hefur verið sæði frá sauðfjársæð- ingastöðvum, þá hafa illhærur aukist og ullin orðið gulari en á vestfirska fénu yfirleitt." Þórður Jónsson, bóndi í Árbæ og formaður Sauðfjárræktarfélags Reykhólahrepps, hefur eftirfar- andi að segja: „Að mínu áliti er hvíta féð á Reykhólum mjög verðmætur fjár- stofn. Búið er að ná fram miklum ullar- og gærugæðum, sem er mjög mikilvægt fyrir sauðfjár- ræktina í landinu. Ef sú staða kemur upp, að farið verður að greiða umtalsvert meira fyrir ull og gærur af slíku fé, er mjög mik- ilvægt að bændur geti fengið fé af þessum stofni til kynbóta. Ég tel það því mikið hagsmunamál sauð- fjárbænda að rekstur tilrauna- stöðvarinnar á Reykhólum verði tryggður áfram, svo hægt verði að halda áfram þeirri kynbótastarf- semi, sem unnið hefur verið ötul- lega að fram að þessu." Jónas Samúelsson, ráðsmaður sauðfjárbúsins á Reykhólum, seg- ir: „Ég er búinn að vinna hjá til- raunastöðinni á Reykhólum frá 1969 og er nýbúinn að byggja íbúð- arhús yfir mig og fjölskylduna. Ég sé ekki í svip að hér sé nokkra atvinnu að fá og það sýnir sig sjálft, að ég er algjör strandaglóp- ur ef sauðfjárbúið verður lagt niður." Þá barst eftirfarandi greinar- gerð frá Jóhanni T. Bjarnasyni, fyrir hönd Fjórðungssambands Vestfjarða: „Hjá Fjórðungssambandi Vest- fjarða er ekki fyrir fagþekking til að meta árangur starfsemi til- raunastöðvarinnar á Reykhólum. Verður því að vísa til álits og þekkingar sérfróðra manna, til dæmis dr. Stefáns Aðalsteinsson- ar, varðandi árangur af sauðfjár- ræktun. Það er hins vegar álit Fjórðungssambandsins, að það muni hafa mjög neikvæð áhrif á byggðaþróun í Austur-Barða- strandarsýslu ef tilraunastöðin á Reykhólum yrði lögð niður eða starfsemi hennar mjög raskað frá því sem nú er. Það er reyndar einnig að segja um mörg önnur byggðasvæði á Vestfjörðum. 1 því sambandi má benda á að árabilin 1971 — 1982 hefur fækkað ársstörf- um í landbúnaði úr 968 í 500 eða um 48,4%. Forráðamenn Fjórð- ungssambands Vestfjarða leggjast því eindregið gegn hvers konar áformum eða ákvörðunum af opinberri hálfu, sem geta veikt stöðu landbúnaðar á Vestfjörð- um.“ — Sveinn Bjarni Arason stjórnarformaður RALA: „Erum að færa áherslu frá sauðfjárrækt yfir á grasrækt“ „VIÐ erum með þessu að leggja meiri áherslu á jarðræktartilraunir því við teljum að það sé brýnasta verkefnið í landbúnaðinum að efla fóðurframleiðslu og túnræktun," sagði Bjarni Arason ráðunautur í Borgarnesi, formaður stjórnar Kannsóknastofnunar landbúnaðar- ins, í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður af hverju stofnun- in hefði ákveðið að leggja niður fjár- búskap á tilraunastöðinni á Reyk- hólum, en það mál hefur verið nokk- uð til umfjöllunar hér í blaðinu að undanförnu. „Tilraunastöðin á Reykhólum var upphaflega stofnuð sem til- raunastöð í jarðrækt," sagði Bjarni. „Það er ekkert launung- armál að fjárveitingar til rann- sóknarstarfsemi í landbúnaðinum hafa verið skornar ákaflega mikið við nögl síðari árin og þá sérstak- lega til rekstrar tilraunastöðv- anna. Alltaf hefur gengið verr og verr að fá nauðsynlegt fjármagn til að standa undir auknum rekstrarkostnaði þeirra. Það hef- ur verið lögð tiltölulega mikil áhersla á tilraunir í sauðfjárrækt á undanförnum árum en tilraunir í grasrækt hafa frekar orðið út- undan á verkefnalista tilrauna- stöðvanna. Með því að leggja al- mennan búskap niður á Reykhóla- stöðinni erum við að færa áherslu frá sauðfjárrækt yfir á grasrækt. En með því erum við á engan hátt að gera lítið úr þeim athyglis- verðu tilraunum sem gerðar hafa verið í sauðfjárrækt á Reykhólum og þeim árangri sem þar hefur náðst í þá átt að rækta fjárstofn með verðmæta eiginleika. Einnig má geta þess að stjórn Búnaðar- sambands Vestfjarða hefur lagt mikla áherslu á að meiri rækt Reykhólastofn- inum verður hald- ið í hreinræktun verði lögð við grasræktartilraunir á Vestfjörðum en gert hefur verið undanfarið." — Hvað verður gert við féð þeg- ar hætt verður fjárbúskap á Reykhólastöðinni? „Ekki er búið að ganga endan- lega frá því máli og get ég því ekki skýrt frá því hver niðurstaða þess verður, en lögð verður áhersla á að varðveita stofninn." — Verður stofninum ekki stefnt í voða vegna hættu á blöndun ef féð verður flutt af tilraunastöð- inni á Reykhólum? „Við leggjum áherslu á að stofninum verði haldið í hrein- ræktun og það verður gert, þó ekki sé búið að ganga frá því hver verði endanlegur samastaður Reykhólastofnsins." — Hvað á mikill sparnaður að verða við flutning fjárins frá Reykhólum? „Við ætlumst ekki til að dregið verði úr framlögum til tilrauna- stöðvarinnar á Reykhólum. Við viljum að til þess verði veitt jafn- miklu fé og áður, en við ráðum því þó ekki. Stöðin er á B-lið fjárlaga og er sérstaklega skammtað fé á fjárlögum." — Væri ekki hægt að ná þeim sparnaði sem um er talað annars staðar með minni áhættu? „Spurningin er alls ekki sú, því eins og ég sagði áðan fær Reyk- hólastöðin sérstaka fjárveitingu. Hins vegar er alltaf hægt að spara í rekstri sem þessum og er- um við alltaf opnir fyrir ábend- ingum af því tagi enda reynum við ávallt að haga starfi okkar á þann hátt að það komi að sem mestu gagni fyrir landbúnaðinn á hverj- um tíma. Ekki er rétt að vera að tala um sparnað í þessu sambandi því fjárveitingarvaldið úthlutar hverri tilraunastöð beint og við reynum síðan að haga starfsem- inni á hverri stöð fyrir sig á þann hátt sem við teljum að komi land- búnaðinum að sem bestum notum í nútíð og framtíð. Okkur finnst hins vegar að fjárveitingarvaldið hafi gefið tilraunastarfseminni alltof lítinn gaum og sérstaklega tilraunastöðvunum." — Dr. Stefán Aðalsteinsson, búfjárfræðingur, lætur að því liggja í viðtali við Morgunblaðið nýlega að barist sé gegn Reyk- hólafénu af því nú sé lögð áhersla á ræktun lágfætts fjár, sem hann telur að sé röng stefna, en Reyk- hólaféð falli ekki inn í það munst- ur og gjaldi þess. „Þessu hafna ég algerlega. Með þessari ákvörðun okkar erum við ekki á neinn hátt að taka afstöðu til þeirra deilna sem eru meðal sauðfjárræktarmanna um stefnur og markmið í sauðfjárræktinni enda vil ég í þessu sambandi taka það fram að við viljum að þessi stofn varðveitist og ræktun hans haldi áfram." „Ég vil leggja áherslu á það,“ sagði Bjarni Arason að lokum, „að ekki er verið að leggja niður starf- semi tilraunastöðvarinnar á Reykhólum, heldur er aðeins verið að færa frá sauðfjárrækt yfir til grasræktar og fóðurframleiðslu sem við teljum að komi að meira gagni fyrir landbúnaðinn á Vest- fjörðum." S‘-azB Staðgreiðsla í boði Höfum kaupanda aö góöri sérhæö, t.d. í Háaleiti eöa Hvassaleiti. Há útborgun eöa staögreiösla í boöi Við Espigerðí Glæsileg 4ra—5 herb. 130 fm ibúö á 7. hæö í lyftuhúsi. Ný eldhúsinnr. Verö 2,4 millj. Við Álfaskeið Hf. 5 herb. góö 135 fm íbúö á 1. hæö. Bilskúrsréttur. Verd 1,9—2,0 millj. í Hólahverfi m. bílskúr 5 herb. 4ra—5 herb. 110 fm ibúö á 1. hæö. Bílskúr. Við Vesturberg 4ra hrb. mjög góö 110 fm ibúö á 3. hæö. Verö 1650 þúe. Við Hörpugötu 3ja herb. falleg íbúö á 1. hæö. Sérinng. Verö 1350 þús. Við Asparfell 2ja herb. góö íbúö á 7. hæö. Glæsilegt útsýni. Góö sameign Verö 1250 þús. VANTAR - KÓPAVOGUR 4ra herb. eöa rúmgóöa 3ja herb. ibúö i Kópavogi t.d. viö Fannborg, Furugrund eöa nágrenni. Góöar greiöslur i boöi. 25 EicnflmióLunm TtiSf/j? ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SlMI 27711 Sölustjóri Sverrir Kristinsson Þorieifur Guómundsson sölumaður Unnsteinn Beck hrl., sími 12320 Þórólfur Halldórsson lögfr. Kvöldsimi sölumanns 30483. Einbýlishús Arnarnesí 225 fm fallegt vandaö einbýlishús á sunnanveröu Arnarnesi. 3 svefnherb.. stórar stofur. Innb. bílskúr. Mjög falleg- ur garöur. Húsiö er til afh. aö hausti 1984. Teikningar og nánari uppl. á skrifst. (ekki i sima). Raöhús í Hvömmunum Hf. 140—180 fm raöhús sem afh. fullfrá- gengin aö utan en fokheld aö innan. Frágengin lóö. Teikn. og uppl. á skrifst. 3-íbúðir í sama húsi á Melunum Vorum aö fá til sölu 2 þriggja og 1 tveggja herb. ibúö í sama húsi á Melun- um. Ibúöirnar seljast saman eöa hver fyrir sig. Nánari uppl. á skrifst. í Þingholtunum 5—6 herb. 136 fm falleg efri hæö og ris. A hæöinni eru þrjár stofur og eldhús. í risi 2 svefnherb., sjónvarpsstofa og baðherb íbúóin er mikiö endurnýjuó. Veró 2,2 millj. Á Ártúnsholti 4ra—5 herb. 110 fm fokheld íbúö á 1. hæö ásamt 25 fm hobbý-herb. í kjall- ara. Innb. 28 fm bilskúr Veró 1600 þúe. Til afh. strax. Teikn. á skrifst. Við Krummahóla 3ja herb. 92 fm góö ibúö á 1. hæð (jaröhæö). Fokhelt bílskyli Verö 1600 þús. Við Rofabæ 3ja herb. 85 fm góö íbúö á 2. hæó Laus fljótlega. Veró 1500 þúe. Við Meðalholt 3ja herb. 75 fm íbúö á 1. hæö ásamt ibúóarherb. i kjallara Veró 1350 þús. Við Asparfell 2ja herb. 65 fm góö ibúó á 6. hæö. Þvottaherb. á hæóinni. Veró 1200 þús. FASTEIGNA MARKAÐURINN Óðinsgötu 4, símar 11540 — 21700. Jón Guómundsson, sölustj., Leó E. Löve lögfr., Ragnar Tómasson hdl. Höfóar til „fólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.