Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 Óháði söfnuðurinn: Baldur Kristjánsson settur inn í embætti á nýársdag — Séra Emil Björnsson lætur af störfum eftir 34 ára þjónustu Á NÝÁRSDAG klukkan þrjú verður guðsþjónusta í kirkju Óháða safnað- arins í Reykjavík. Þar mun séra Emil Björnsson, sem þjónað hefur söfnuðinum í þrjátíu og fjögur ár, setja Baldur Kristjánsson, tilvon- andi prest safnaðarins, inn í emb- ætti. Baldur Kristjánsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Em- U. Organleikari er Jónas Þórir. 1 fréttatilkynningu frá söfnuð- inum segir: „Baldur Kristjánsson er 34 ára gamall Reykvíkingur. Hann hefur lokið prófi í almennri þjóðfélags- fræði og lýkur væntanlega kandí- datsprófi í guðfræði á vori kom- anda. Hann hefur m.a. starfað hjá landbúnaðarráðuneytinu, Banda- lagi starfsmanna rlkis og bæja og við blaðamennsku. Hann er sonur Kristjáns Benediktssonar, borgar- Séra Emil Björnsson Baldur Kristjánsson fulltrúa, og konu hans, Svanlaugar Ermenreksdóttur, kennara. Séra Emil Björnsson kveður nú söfnuð sinn eftir að hafa þjónað honum frá upphafi, eða í 34 ár. Mikið starf hefur alla tíð verið í söfnuðinum og á fyrstu árunum byggði hann sér þá fallegu kirkju sem stendur á mótum Háteigsveg- ar og Stakkahliðar. Hann og kona hans, frú Álfheiður Guðmunds- dóttir, hafa alla tíð verið mjög virk í starfi safnaðarins og hefur frú Alfheiður verið formaður kvenfélagsins frá stofnun þess ár- ið 1950. Séra Emil hefur jafnframt starfað sem fréttastjóri Sjónvarps frá árinu 1967. Safnaðarstjórn vill við þessi tímamót þakka séra Emil Björns- syni og frú Álfheiði áratuga þjón- ustu og býður Baldur jafnframt velkominn til starfa." Nýtt lágmarksverð á hrossaútflutning um áramót: Umsókn um útflutning 150 hryssa á verdi ársins 1983 bíður lega tekin fyrir með formlegum hætti eftir áramót. Folaldsmeri af Svaðastaðastofni í stóði Halldórs Sigurðssonar í Stokkhólma. Halldór hefur sótt um leyfi til að flytja út um fimmtíu hryssur. UMSÓKN um útfiutningsleyfi fyrir 150 hryssur liggur nú fyrir hjá land- búnaðarráðuneytinu, að því er Birna Baldursdóttir og Magnús Friðgeirsson hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga, staðfestu í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær, en Sambandið mun hafa milligöngu um útflutning mer- anna ef af verður. Sótt er um leyfi til útflutningsins nú fyrir áraraót, vegna þess að frá og með 1. janúar mun væntanlega taka gildi lág- marksverð á hrossum til útflutn- ings, sem er verulega mikið hærra en markaðsverð nú. Áður en útflutningsleyfi eru veitt, leitar landbúnaðarráðu- neytið umsagnar Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins og Búnaðar- félags íslands. Framleiðsluráð hefur þegar mælt með útflutn- ingnum, og von mun á umsögn Búnaðarfélagsins í dag eða á morgun. Samkvæmt upplýsing- um er Morgunblaðið fékk í gær, eru um 50 af hinum 150 hryssum frá einu og sama hrossaræktar- búinu; Stokkhólma í Skagafirði, sem er í eigu Halldórs Sigurðs- sonar, en hinar hryssurnar eru í eigu fleiri einstaklinga. Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra, skipaði hinn 18. október sl. nefnd til að ákveða lágmarksverð á undaneldishrossum til útflutn- ings. í nefndina voru skipaðir þeir Steinþór Runólfsson frá ráðuneytinu, Kjartan Georgsson frá Hagsmunafélagi hrossa- bænda og Egill Bjarnason frá Framleiðsluráði landbúnaðarins. Nefndin kom saman hinn 29. nóv- ember og ákveðnir voru þá sam- tals tólf verðflokkar, lágmarks- verð, fyrir stóðhesta og hryssur til útflutnings. Mun þetta lág- marksverð taka gildi nú 1. janúar og Jón Helgason, landbúnaðar- ráðherra, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að ákvörðun nefndarinnar stæði og þyrfti ekki staðfestingu sína eða ráðuneytisins. Hitt væri svo annað mál, að margir hefðu rætt við sig og lýst þeim áhyggj- um sínum að lágmarksverðið væri of hátt. Því gæti verið að það þyrfti að endurskoða, ef í ljós kæmi að hrossin seldust ekki á nýja verðinu. Málin hefðu verið rædd óformlega og yrðu væntan- Magnús Friðgeirsson hjá Sam- bandinu tjáði Morgunblaðinu einnig í gær, að fulltrúar hrossa- útflytjenda hefðu þegar hitt ráð- herra vegna málsins og ákveðið væri að fram færu viðræður við fulltrúa landbúnaðarráðu- neytisins innan skamms. Gunnar Bjarnason, ráðunautur um útflutning hrossa, sagði í samtali við Mbl. í gær að fráleitt væri að unnt væri að selja hryss- ur út á hinu nýja lágmarksverði, sem væri 50 til 60% hærra en verðið nú. Yrði þetta lágmarks- verð á hryssum að veruleika, væri hrossasala úr landi úr sögunni um ófyrirsjáanlega framtíð. Þá vildi Gunnar einnig gagnrýna það, að nefndinni sem ákvað lág- marksverðið, hefði verið ætlað að hafa samráð við bæði hrossaút- flytjendur og ráðunaut um hrossaútflutning. Hvorugt hefði verið gert og væri það brot á starfsreglum nefndarinnar. í fundargerð nefndarinnar um lágmarksverð hrossa til útflutn- ings frá 29. nóvember kom meðal annars fram að meðalverð hryssa árið 1983 er 21.620 krónur, en lág- marksverð frá fyrsta janúar 1984 verður 30 þúsund krónur í tveim- ur neðstu verðflokkum og 45 þús- und í þriðja lægsta verðflokki. Dr. Gunnar Ingi Birgisson Varði doktors- ritgerð í verkfræði GUNNAR Ingi Birgisson verkfræd- ingur lauk doktorsprófi frá Univer- sity of Missouri-Rolla, Bandaríkjun- um í apríl síðastliðnum. Doktorsverkefni hans er á sviði jarðvegsverkfræði og fjallar um rannsóknir á íslensku hrauni sem undirstöðuefni, sérstaklega voru könnuð áhrif álags á hraunfyll- ingu í blautu og þurru ástandi. Ritgerðin er á ensku og nefnist: Investigation of dry and wet strength of Icelandic lava-gravels. Gunnar Ingi er fæddur í Reykjavík 30. sept. 1947. Hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla íslands 1977. M.Sc. prófi í jarðvegsverkfræði frá Heriot-Watt University, Edin- borg, Skotlandi. Hann hefur stundað framhaldsnám og rann- sóknir í jarðvegsverkfræði frá 1980 við háskólann í Missouri- Rolla. Hann starfar nú við eigið verk- taka- og ráðgjafarfyrirtæki í Reykjavík, og kennir jarðtækni við Háskóla íslands. Gunnar er sonur Auðbjargar Brynjólfsdóttur og Birgis Guð- mundssonar, Reykjavík. Kona Gunnars Inga er Vigdís Karlsdótt- ir og eiga þau tvær dætur. Bílasala Guöfinns: Hefur ekki fengið lóð BÍLASÖLU Guðfinns hefur ekki ver- ið úthlutað lóð við Umferðarmiðstöð- ina, eins og frá hefur verið skýrt í Mbl., en úthlutun var til athugunar, en ekki reyndist unnt að úthluta lóð- inni, þar sem hún var of lítil. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Gunnari Eydal, skrifstofustjóra borgarinnar, er lóðaúthlutun til bílasölunnar til athugunar, en ekki hefur enn fundist hentug lóð fyrir starfsem- ina. Flugleiðaþota á Kennedy-flugvelli: Nokkrir farþegar fóru út um neyðarrennu NOKKRIR farþegar urðu óttaslegn- ir er eldur steig úr einum hreyfli Flugleiðaþotu í New York við flug- tak á þriðjudagskvöldið og yfirgáfu þotuna um ncyöarrennu. að því er Sæmundur Guðvinsson, fréttafull- trúi Flugleiða hf., tjáði blaðamanni Morgunblaðsins í gær. Sæm undur sagði enga hættu hafa verið á ferð- um og aðeins fáir hinna 242ja far- þega hefðu farið úr vélinni, sem hélt af stað til íslands eftir að búið var að koma fyrir nýrri neyðarrennu við dyr þotunnar, í stað þeirrar sem not- uð var. Málsatvik voru þau, að sögn Sæmundar, að mjög kalt var í veðri í New York þennan dag eins og víðar í Bandaríkjunum undan- farið. Hreyfill númer þrjú á DC-8 þotunni varð því seinn í gang, og safnaðist olía inn á hann, svo þeg- ar hann hrökk í gang stóðu eld- glæringar aftur úr honum. Nokkr- ir farþeganna, sem sátu næst hreyflinum urðu þá óttaslegnir og stóðu á fætur og hlupu að dyrum vélarinnar. Flugfreyja hefði þá ákveðið að hindra fólkið ekki í að fara frá borði, þótt þá þegar væri eldurinn slökknaður og ljóst að engin hætta var á ferðum. Starfsmenn Kennedy-flugvallar tóku síðan á móti fólkinu úti og tjáðu því að engin hætta væri á ferðum og hélt vélin síðan í loftið nokkru síðar, svo sem áður grein- ir. Hæsti hjúskapar- aldur á Islandi SAMKVÆMT upplýsingum Þjóð- skjalasafnsins áttu þau Siguröur Magnússon og Ingibjörg Daða- dóttir 75 ára brúðkaupsafmæli, en ekki 74ra eins og sagði í blaðinu nú í desember. í Þjóðskjalasafninu liggur prestþjónustubók Dómkirkjunn- ar og þar hefur Jóhann Þorkels- son, dómkirkjuprestur, fært eft- irfarandi: „Hinn 19. desember 1908 voru gefin saman í hjóna- band Sigurður Magnússon, nemi í trésmíði, og Ingibjörg Daða- dóttir.“ Svaramenn voru Sigurð- ur Thoroddsen og Skafti Þórar- insson og fór vígslan fram í heimahúsi. Þess má geta að Sig- urður Thoroddsen er verkfræð- ingurinn, faðir dr. Gunnars heit- ins Thoroddsen, en Ingibjörg var í vist hjá Sigurði. Eins og áður sagði í frétt Morgunblaðsins í gær er Sigurð- ur nú 103ja ára, verður 104ra í apríl, en Ingibjörg 99 ára, verður 100 ára í maí næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- skjalasafnsins mun einsdæmi að fólk hafi náð svo háum hjúskap- araldri á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.