Morgunblaðið - 30.12.1983, Side 12

Morgunblaðið - 30.12.1983, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 12 Aðventan — annatími á þingi: 1984 — friðarár í íslenskum þjóðarbúskap? — Þeir sem tala lengst segja oft minnst Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, setur 106. löggjafarþing íslend- inga á sl. hausti. Þingmenn héldu í jólafrí 20. desember sl. Alþingi kemur til starfa á ný 23. janúar nk. ÞINGBREF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON Aðventa á Alþingi Aðventan er sá tími árs sem tengist helzt hugarró og jafnvægi, enda fer þá friðarhátíð í hönd, jól- in. Þessu var þó ekki að heilsa á Alþingi á jólaföstu. Þá færðist fyrst fjör í leikinn, eftir stafalogn margra þingvikna, og nótt var lögð við nýtan dag í návígi marg- málla. Löggjöf, sem kveður á um lágmarkshvíld vinnandi fólks, var lítt virt. Ekki höfðu þó allir erindi sem erfiði frekar en fyrri daginn. Stærsta málið sem þingið af- greiddi á aðventu var að venju fjárlög komandi árs, ásamt skyld- um tekjufrumvörpum ríkissjóðs. Hinsvegar tókst hvorki að af- greiða fjárfestingar- og lánsfjár- áætlun né lánsfjárlög, sem vænt- anlega verða forgangsverkefni á nýju ári. Fjárlögin bera glögg einkenni þeirrar efnahagskreppu, sem ræt- ur á í aflasamdrætti og arfleifð margs konar erfiðleika. Þjóðar- tekjur á mann drógust saman um 4,5% 1982, 3,5% 1983 og spár standa til 4—5% samdráttar 1984. Erlendar skuldir, sem vóru aðeins 17,8% af þjóðarframleiðslu í árs- lok 1973, fyrir tíu árum, eru nú komnar í 60%. Viðskiptajöfnuður út á við, sem var hagstæður 1978, hefur breytzt í viðskiptahalla 1979—1983, samtals yfir tólf þús- und milljónir króna. Viðskiptahalli og erlend skulda- söfnun eru mælikvarði á þjóðar- eyðslu umfram þjóðartekjur. Þessi ógnvekjandi skuldastaða, samfara rýrðum þjóðartekjum, setur mark sitt á fjárlög ársins 1984. Tekjur ríkissjóðs ganga saman að raun- virði, til samræmis við rýrðar þjóðartekjur, og stefnt er í mun minni nýjar lántökur en undan- farin ár. Þannig hefur fjárveit- ingavaldið fimm til sex milljörð- um króna minna úr að spila (á fjárlögum og væntanlegum láns- fjárlögum) 1984 en 1982, en þessi minnkun samsvarar þreföldum framlögum til vegamála í landinu og fimm- til sexföldum framlögum til orkumála. Hér er því ekki um neina smámuni að ræða. En hóf- semi í skattheimtu var nauðsynleg til að létta kreppubyrðar fólks og fyrirtækja. Aflakvóti Annað mál, sem þungt vegur, eru lög um veiðar í fiskveiðiland- helgi Islands. Ekkert er eðlilegra en skiptar skoðanir um jafn við- kvæmt mál, sem snertir atvinnu og afkomu jafn margra, og vegur jafnþungt í þjóðarbúskapnum sem heild. Hinsvegar var óverjandi að láta skeika að sköpuðu þegar und- irstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar á í hlut. Hrun síldarstofnsins, hrun loðnustofnsins og fiskifræði- legar viðvaranir um hrunhættu gjöfulasta nytjafisksins, þorsks, réttlæta fyllilega, að löggjafinn láti málið til sín taka. Það vakti og athygli að sex af sjö sjávarútvegs- nefndarmönnum neðri deildar Al- þingis, þ.á m. Garðar Sigurðsson fulltrúi Alþýðubandalags, lögðu til, að þetta stjórnarfrumvarp yrði lögfest, svo sem gert var. Helztu efnisatriði hinna nýju laga eru þau að sjávarútvegs- ráðherra getur, að fengnum tillög- um Hafrannsóknastofnunar, ákveðið hámark þess afla, sem veiða má úr einstökum fiskistofn- um á ákveðnu tímabili (vertíð). Hann getur ákveðið skiptingu þessa hámarksafla milli ákveð- inna gerða veiðarfæra, gerða fiskiskipa og einstakra skipa, m.a. með hliðsjón af fyrri veiðum þeirra, stærð þeirra og gerð; svo og heimilað flutning á úthlutuðum aflakvóta milli skipa. í greinar- gerð „er sérstaklega áréttað og á það lögð áherzla, að náið samráð verði haft við hagsmunaaðila um framkvæmd ákvæða greinarinnar í heild, svo og einstakra þátta hennar". Þá er skýrt kveðið á um það í lögunum sjálfum að þau gildi aðeins „til ársloka 1984". Gagnrýni sem einkum náði eyra bréfritara, var þríþætt: 1) Stefnt er í stóraukna miðstýringu. 2) Varhugavert er að veita einum manni svo mikið vald, án þess að fyrir liggi nánari skýring á út- færslu og framkvæmd. 3) Hvergi er ýjað að rekstrargrundvelli veiða og vinnslu en töluvert skort- ir á að hann sé í höfn. „Rekstr- argrundvallarræfillinn", eins og einn þingmaður komst að orði, er enn ófundinn. Þessi þrjú atriði vega öll þungt. Engu að síður verður nú, úr því sem komið er, að halda markaða leið; gera það bezta úr tiltækum efnivið og færa sér síðan í nyt lærdóma reynslunnar. Lög og þingsályktanir Meðal laga, sem samþykkt vóru á jólaföstu, eru: ★ Lög um málefni aldraðra, sem kveða á um að styrkja skuli byggingu sveitarfélaga á hjúkr- unardeildum og sjúkradeildum fyrir aldraða úr viðkomandi sjóði með „jafnháu framlagi af mörkuðum tekjustofnum sjóðs- ins og nemur þeirri fjárhæð sem sjóðurinn fær á fjárlögum frá ríkissjóði til þessara verk- efna. Styrkur þessi skal teljast hluti af 85% af framlagi ríkis- sjóðs .. “ ★ Lög um tekjuskatt og eignaskatt, sem m.a. eiga að tryggja að greiðslubyrði tekjuskatts og sjúkratryggingargjalds þyngist ekki milli áranna 1983 og 1984 sem hlutfall af tekjum greiðslu- árs. ★ Lög um gjaldeyris- og viðskipta- mál, sem fela í sér heimild til að „leyfa sparisjóðum að verzla með gjaldeyri", innan þeirra marka sem bankastjórn Seðla- banka Islands ákveður. ★ Lög, sem fela í sér heimild til að fresta greiðslum vegna verð- tryggðra íbúðarlána á allt að 25% af samanlagðri fjárhæð afborgana, verðtryggingar- þátta og vaxta verðtryggðra lána Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna og verðtryggðra íbúðarlána banka er gjaldfalla á tilteknu tímabili — (staðfesting á bráðabirgða- lögum). •k Lög um framlengingu sjúkra- tryggingargjalds, eins og það var álagt 1983. Ennfremur fram- lengingu ýmissa tekjulaga, s.s. um vörugjald, skatt á skrif- stofu- og verzlunarhúsnæði o.fl. Tvær þingsályktanir vóru og samþykktar á síðustu starfsdög- um Alþingis fyrir jól. Hin fyrri var flutt af forseta Sameinaðs þings og formönnum þingflokka. Leiddi hún til kjörs níu manna þingnefndar, sem endurskoða skal gildandi lög um þingsköp Alþing- is. Nefndin er skipuð aðalforsetum þings og þingdeilda og einum full- trúa frá hverjum þingflokki. Fyrir þinginu liggur þingmál um þetta efni, flutt af þingmönnum Alþýðu- flokks, og fjallar einkum um til- lögur til þingsályktunar, umræður utan dagskrár og fyrirspurnir. Þessir þingþættir hafa vaxið mjög að umfangi liðin ár og þrengt að meginverkefni Alþingis, löggjaf- arstarfinu. Síðari þingsályktunin kveður á um starfshóp löggæzlu- og toll- gæzlumanna, sem „samræmi og skipuieggi auknar aðgerðir gegn ólöglegum innflutningi og dreif- ingu ávana- og fíkniefna og athugi rannsóknaraðferðir í fíkniefna- málum“. Niðurstöðum starfshóps- ins „skal skila til dómsmálaráðu- neytis eigi síðar en 1. marz nk.“. Flutningsmenn tillögunnar vóru úr öllum þingflokkum, en fyrsti flutningsmaður Jóhanna Sigurð- ardóttir (A). í greinargerð er fjall- að um „hrikalegar afleiðingar stóraukinnar fíkniefnaneyzlu" og bent á, að „frá 1979 til 1982 hafi um 250—260 mál verið tekin fyrir að meðaltali á ári“ hjá fíkniefna- dómstólnum. Þar segir og „að 20—30% þeirra, sem leita sér lækninga hjá SÁÁ, geri það vegna langvarandi ofnotkunar á kanna- bisefnum og öðrum sterkum eit- urlyfjum". Vitnað er til rits, sem heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt- ið gaf út f júní 1983 um kannanir á kannabisneyzlu íslendinga (skyndikönnun í skólum landsins), sem sýndu, að rúmlega 22%, eða 222 af 1001 sem könnunin náði til, neyttu kannabis. „Allir sem gerst þekkja til,“ segir í greinargerð- inni, „eru sammála um að fíkni- efnaneyzla fari hraðvaxandi hér- lendis og að afleiðingarnar geti orðið ógnvekjandi og stórkostleg- ar fyrir fjölda einstaklinga og þjóðfélagið f heild, ef ekki verður brugðizt við með skjótum hætti." Þegar hlutleysið var hernumið í önnum aðventu, þegar ýmis nærtæk mál strönduðu á skerjum tímaleysis, gáfu þingmenn sér tóm til að fjalla um frið og afvopnun, enda fjalla nokkrar tillögur til þingsályktunar um það efni. Þing- flokkur sjálfstæðismanna lagði snemma þings fram tillögu, sem varðar gagnkvæma afvopnun og raunhæft eftirlit með því að sam- komulag þar um, sem stefnt er að, verði haldið. Þingmenn úr öðrum flokkum fylgdu í kjölfarið, þó lausar sé um hnúta búið í þeirra tillögugerð. Mikilvægt er að þing- heimur leggist á eitt um að sam- ræma þessar tillögur. Einhuga, raunhæf afstaða af hálfu Alþingis skiptir miklu máli. Á fjórða áratugnum var mikið andóf í ríkjum lýðræðis og þing- ræðis gegn vígbúnaði. Þetta andóf beindist einhliða gegn heimaaðil- um, enda undir róið af Öxulríkjun- um. Enginn vafi er á því að væru- kærð lýðræðisríkja þá flýtti fyrir síðari heimsstyrjöldinni og öllu því, sem hún leiddi yfir lönd og lýði; og varð þess valdandi, að lýð- ræðið í veröldinni komst nálægt fjörbrotum. Hefðu Bandaríkin ekki hlaupið undir bagga, eins og i fyrri heimsstyrjöldinni (1914— 1918), benda sterkar líkur til að lýðræðið í Evrópu hefði beðið lægri hlut. Jafnsterkar líkur benda til hins, að hefðu lýðræðis- þjóðir heims búið að viðlíka sam- tökum þá og nú, þar sem Atl- antshafsbandalagið er, hefði mátt sigla fram hjá þeim ógnum öllum, sem yfir gengu. Það voru veikleik- inn og varnarleysið sem buðu hættunni heim. Svo gleymið er fólk á gengna tíð að enn heyrast raddir um hlutleysi sem leið til að tryggja öryggis- hagsmuni þjóðarinnar í viðsjálum heimi. Danmörk, ísland og Noreg- ur höfðu öll lýst yfir „ævarandi hlutleysi" áður en síðari heims- styrjöldin gekk í garð. Þessi ríki sættu öll hernámi. Það var engin tilviljun að þau gerðust síðar stofnaðilar Atlantshafsbanda- lagsins. Hvern veg virða kjarnakafbátar Sovétríkjanna hlutleysi Svíþjóðar á líðandi stund? Það dugar skammt að kalla Eystrasalt „haf friðarins", ef „hlutleysið" vegur ekki þyngra í raun. Og man nú Starfsmannafélag Reykjavíkur borgar og háskólamenn þess — eftir Harald Hannesson Rétt í þann mund að samninga- menn BSRB og ríkisins slíðruðu sverðin vegna friðarhátíðar jól- anna notaði stjórn hins nýja fé- lags HM-manna tækifærið og skaut föstum skotum að stéttarfé- lagi sínu St.Rv. í Mbl. 23. des. sl. Það er ekki vegna þess að ég telji að dagblöðin séu réttur og þaðan af síður æskilegur vett- vangur til skoðanaskipta um inn- anfélagsmál, að ég svara þessu á sama stað, heldur miklu fremur hitt, að ekki virðist ætla að takast að fá þá umræðu á öðrum vett- vangi. Það er þó staðreynd að þegar eftir stofnun félags HM-manna var haft samband við formann bráðabirgðastjórnar þess og þeim boðið til viðræðna um kjaramál sín, en þannig stóð þá á, að verið var að samræma kjarasamninga BHM við ríkið samningum St.Rv. við Reykjavíkurborg eins og síðar verður að vikið. Áhugi fyrir því virtist þó nánast enginn. Innan stjórnar St.Rv. var hins- vegar fagnað stofnun félags HM-manna og þá að sjálfsögðu vegna þess að talið var að það myndi auka styrk félagsins, ef þessir aðilar fengjust til sam- starfs um kjara- og félagsmál St.Rv. almennt. En það er kunnara en frá þurfi að segja að þessir aðilar hafa tekið mjög lítinn þátt í þessum störfum þrátt fyrir að formaður St.Rv. hef- ur oftast verið úr þeirra röðum allt frá stofnun félagsins. Hvað varðar tvígreiðslu félags- gjalda HM-manna þá er því til að svara að þær eru ekkert einsdæmi, því flestir félagsmenn St.Rv. eru í öðrum félögum og greiða þangað félagsgjöld. Má þar nefna bruna- verði, vagnstjóra, fóstrur, sjúkra- liða, ganga-, bað- og dyraverði í skólum, meinatækna, röntgen- tækna, vélfræðinga o.fl. Auk þessa eru svo margir í vinnustaðafélög- um t.d. hjá hita-, rafmagns- og vatnsveitum. Ef litið er á þá fullyrðingu þeirra HM-manna, sem er að Haraldur Hannesson sjálfsögðu kveikjan að þessu svari, að St.Rv. sinni lítið málefnum þeirra, þá er þess fyrst að geta að HM-menn hafa og hafa lengi haft algjöra sérstöðu innan St.Rv. og er engum um að kenna öðrum en þeim sjálfum ef þeir nýta sér hana ekki til fulls. Þessi sérstaða er í því fólgin að þeir hafa eins og aðrir félagar í St.Rv. verkfallsrétt vegna aðal- kjarasamninga. Síðan þegar ríkið hefur samið við BHM sem ekki hefur verk- fallsrétt er „farið yfir“ samninga þeirra og þá reynt að ná til HM-manna í St.Rv. öllu sem þar hefur fengist án þess þó að skerða í nokkru þá samninga sem gerðir voru við Reykjavíkurborg. Líklega myndi þó einhvers staðar heyrast hljóð úr horni ef sama aðferð væri notuð t.d. við iðnaðarmenn, sem þó væri engu ósanngjarnari sam- kvæmt því sem um getur í marg- nefndum aðalkjarasamningi. Það er illt til þess að vita, ef nú

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.