Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 15 ítalskir spámenn, stjörnuspekingar og galdramenn: unum benti til þess. Þá spáðu þeir því allir að Rússar og Bandaríkjamenn myndu hefja afvopnunarviðræður á nýjan leik og að þessu sinni myndi fara að sjást árangur. Þá spáðu margir fundar- manna því að vel athuguðu máli, að veðurlag myndi vera mjög ruglað á árinu, rigna þar sem sólin ætti að skína og öfugt. Þá myndu miklir kuldar með snjó, regni og frosti, herja á þar sem fólk er hlýjunni vanara. Ýmislegt sem þessir sömu menn spáðu fyrir ári síðan stóðst ekki þó svo að sumt hafi gert það. Þess vegna fóru þeir lítið út í gengisspár enda mis- lukkuðust þær spár hrapallega. Þá stóðst ekki, að Vestur-Þjóð- verjar myndu lenda í stríði við Austur-Evrópuland eins og spáð var. Fleira mætti nefna. Við hæfi gæti verið að gefa munkin- um Barbanera Di Foligno síð- asta orðið. Hann er stjörnuspek- ingur í hjáverkum og þykir skarpur. Hann segir: „Enginn þessara spádóma er hundrað prósent öruggur, því almáttugur guð getur breytt gangi allra mála." Tilræði, styrjaldir og náttúruhamfarir hins vegar engin kjarnorkustyrjöld Mílanó, 29. desember. AP. ÍTALSKIR spámenn, stjörnuspek- ingar og galdramenn komu saman til árlegs þings síns í Mflanó fyrir skömmu og tjáðu síðan hverjum þeim er hlýða vildi hvað athyglis- verðast mun gerast á árinu 1984. í þeim boðskap kenndi margra grasa eins og fyrri daginn. Hung- ursneyð, styrjaldir, náttúruhamfar- ir og tilræði við pólitíska leiðtoga og saklausa borgara. í stuttu máli beint framhald af 1983. Samkvæmt hinum forspáu mega einkum tveir stjórnmála- leiðtogar vara sig; Ronald Reag- an forseti Bandaríkjanna, og Moammar Kaddafy, leiðtogi Líbýu. Allir voru þingfulltrúar sammála um það, nokkrir voru Kaddafy má vara sig, segja galdra- mennirnir. Reagan skotinn eða fær slag en lifir. þó ekki vissir hvort Reagan yrði fyrir tilræði eða fengi hreinlega hjartaslag. Allir voru þó vissir um að hann myndi ekki láta líf- ið. Þokukenndari voru spádóm- arnir um hinn umdeilda Kadd- afy. Sumir sögðu að hann myndi einungis hljóta sár á öxl eftir tilræði, hinir voru þess fullvissir að hann myndi hljóta bana af, en það myndi ekki valda neinu telj- andi róti. Galdramaðurinn í Flórens eins og hann kallar sig, spáði því að Yuri Andropov myndi hverfa af sjónarsviðinu á árinu. Hann gat ekki fullyrt hvort hann myndi látast eða víkja vegna heilsubrests eða annarra orsaka. Hann spáði einnig borgarastyrj- öld á Filippseyjum og styrjöld- um víðar, svo sem í Asíu og Latnesku Ameríku. Flestir voru sammála um stríðin í þessum heimshlutum og einn bætti við mikilli ólgu og jafnvel borgara- stríði á Indlandi, auk þess sem þar myndi geisa drepsótt. Ekki var allt svo illt að ekkert boðaði gott. Til dæmis spáðu þingfulltrúar því að stríði írana og fraka myndi ljúka fyrri hluta ársins og ekki myndi koma til kjarnorkustríðs, hvorki á nýja árinu né næstu 3—4 árum að minnsta kosti. Ekkert í stjörn- Andropov hverfur úr sviðsljósinu. Bandaríkjamenn tilkynna formlega úrsögn úr UNESCO: „Harma þessa ákvörð- un Bandaríkiastjórnar“ SameinuAu hinAunum nc ParÍR. 29. rip*u>mher AP ” ” SuneinuAu þjóAunum og Psrís, 29. deuember. AP. JAVIER Perez de Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sagðist f dag harma og hafa stórar áhyggjur af þeirri ákvörðun Bandaríkjamanna að draga sig út úr samstarfi í UNESCO, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, að ári liðnu. Sagði talsmaður de Cuellar, að hann vonaðist eindregið eftir því að Bandaríkjamönnum snerist hugur. Honum var formlega til- kynnt þessi ákvörðun með bréfi frá George P. Shultz, utanríkisráð- herra Bandarikjanna. Bandaríkjamenn leggja til nær þriðjung rekstrarfjár stofnunar- innar, sem hefur aðsetur í París. Svarar framlag þeirra til um 50 milljóna dollara á ári. „Séu Bandaríkjamenn staðráðnir í að draga sig út úr samstarfinu hefur það í för með sér, að starf UNESCO verður aðeins svipur hjá sjón,“ sagði Jean-Pierre Cot, full- trúi Frakka í 161 manns fram- kvæmdastjórn stofnunarinnar. „Það verður að endurskoða allan rekstrargrundvöll stofnunarinnar. Þetta snertir ekki aðeins UNESCO, heldur einnig Frakkland, þar sem stofnunin hefur aðsetur í París. Segja Síberíulægð hafa komið hingað suðureftir Rætt við Hilmar Skagfield, ræðismann íslands í Tallahassee, Flórída, um kuldakastið „Þad hefur verið óskaplega kalt,“ sagði Hilmar Skagfield, ræðismaður íslands í Tallahassee, Flórída, er Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Veðurfræðingarnir kalla þetta Síberíulægð, sem komið hafi hingað suður- eftir,“ bætti hann við. „Frostið fór niður í 12 stig á Celsíus, þannig að það hefur kreppt að mörgum. Það var mikið frost hér í tvo daga og síðan rauk hitinn í 22 stig í gær. Ekki var þó öllu lokið með þessari hitaaukn- ingu því í nótt varð frostið svo aftur 12 gráður. Þetta er ákaflega óvenjulegur kuldi hér um slóðir og tjónið á appelsínu- og tómatauppskerunni nemur nú þegar milljónum dollara í syðri hluta ríkisins. Er jafnvel talað um 500 milljónir dollara í því efni. Kuldinn í suðurhluta rikisins varð reyndar ekki næstum eins mikill, en þess ber að gæta að hús þar um slóðir eru flestöll óupphituð, þannig að víða hefur verið kalt á heimilum. Ávextirnir þola heldur ekki að hitastigið fari niður undir frostmark. Reyndar er ástandið litlu betra í Lousiana og Suður-Texas hjá ávaxta- og grænmetisbændum þar um slóðir. Svona veður hefur ekki komið hér síðan 1962 og fór þá kuldinn niður að svipuðu marki. Hér hefur enginn snjór fallið, en ísing hefur verið mikil á þjóðvegum og orðið hefur að loka mörgum þeirra af þeim sökum. Við sluppum þó betur en íbúar margra annarra ríkja. í Montana voru mestu kuldar, sem þar hafa komið í 105 ár. Venjulega er svona 8—10 stiga hiti á Celcíus á morgnana á þess- um árstíma og hitinn fer síðan í 18—20 gráður þegar heitast er á daginn. Ég hef átt heima hérna í 33 ár og frostið nú svo og kulda- skeiðið 1962 er það versta sem ég minnist. Veturinn 1958 snjóaði reyndar talsvert hérna — fyrsti snjórinn í 80 ár — en kuldinn varð ekki nándar nærri eins mikill og nú.“ Veður víða um heim Akurayri +3 skýjaó Amaterdam 10 skýjað Aþena 17 heióskfrt Berlín 10 heióskirt BrUsael 10 skýjaó Bueno* Airea 30 skýjaó Chicago +7 skýjaó Dublin 10 heióskirt Frankfurt 9 heióskfrt Genf 8 heióskfrt Havana 31 heióskfrt Hong Kong 11 skýjaó JerOsalem 16 heióskirt Jóhanneaarborg 23 heióskfrt Kairó 22 heióskirt Kaupmannahöfn 9 heióskirt Liaaabon 15 heióskirt London 9 akýjað Loa Angeles 20 heióskírt Mataga 15 skýjaó Mexíkóborg 23 heióskirt Miami 26 skýjaó Montreal 0 snjókoma Moskva 0 skýjaó New York 13 heiósklrt París 8 skýjaó Peking 3 heiðskfrt Perth 28 skýjað Reykjavík +3 snjókoma Rio de Janeiro 33 skýjaó Róm 16 heióskfrt San Francisco 15 skýjaó Seoul +4 heióskfrt Stokkhólmur 4 heióskfrt Sydney 24 heióskírt Tókýó 9 skýjaó Vancouver +1 skýjaó Vínarborg 9 heióskírt Varsjá 10 skýjaó Þórshöfn 7 alskýjað P0ÚCOK3 iuuMíki AMERÍKA PORTSMOUTH/NORFOLK City o( Hartlepool 19. jan. Bakkafoss 30. jan. City of Hartlepool 8. febr. Bakkafoss 19. feb. NEW YORK City of Hartlepool 18 lan. Bakkafoss 29. jan. City of Hartlepool 7. febr. Bakkafoss 18. feb. HALIFAX City of Hartlepool 22. jan. City of Hartlepool 10. feb. BRETLAND/MEGINLAND IMMINGHAM Eyrarfoss 2. jan. Alafoss 8. jan. Eyrarfoss 15. jan. Alafoss 22. jan. FELIXSTOWE Eyrarfoss 2. jan. Álafoss 9. jan. Eyrafoss 16. jan. Álafoss 23. jan. ANTVERPEN Eyrarfoss 3. jan. Álafoss 10. jan. Eyrarfoss 17. jan. Álafoss 24. jan. ROTTERDAM Eyrarfoss 4. jan. Álafoss 11. jan. Eyrarfoss 18. jan. Álafoss ' 25. jan. HAMBORG Eyrarfoss 5. jan. Álafoss 12. jan. Eyrarfoss 19. jan. Álafoss 26. jan. WESTON POINT Helgey 27. des. Skeiösfoss 16. jan. LISSABON Skeiösfoss 10. jan. LEIXOES Skeiösfoss 11. jan. BILBAO Skeiösfoss 12.jan. NORDURLÖND/- EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 6. jan. Mánafoss 13.jan. Dettifoss 20. jan. KRISTIANSAND Mánafoss 2. jan. Dettifoss 9. jan. Mánafoss 16. jan. Dettifoss 23. jan. MOSS Mánafoss 3. jan. Dettifoss 6. jan. Mánafoss 17. jan. Dettifoss 20. jan. HORSENS Dettifoss 11. jan. Dettifoss 25. jan. GAUTABORG Mánafoss 4. jan. Dettifoss 11. jan. Mánafoss 18. jan. Dettifoss 25. jan. KAUPMANNAHÖFN Mánafoss 5. jan. Dettifoss 12. jan. Mánafoss 19. jan. Dettifoss 26.jan. HELSINGJABORG Mánafoss 6. jan. Dettifoss 13. jan. Mánafoss 20. jan. Dettifoss 27. jan. HELSINKI írafoss 5. jan. GDYNIA írafoss 7. jan. ÞÓRSHÖFN Dettifoss 19. jan. VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -fram ogtil baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ÍSAFIRÐI alla þriðjudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.