Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 Móöir okkar, t MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólvallagötu 12, Kallavík, lést 28. desember. Guörún Einarsdóttir, Gunnar Einarsson, Ingimar Einarsson. t Eiginmaður minn, EINAR ÁGÚSTSSON, stórkaupmaöur, Safamýri 65, Raykjavík, andaðist i Landspítalanum 24. þ.m. Sigríöur Einarsdóttir. t Eiginmaður minn og taöir minn, HARALDUR SVEINN KRISTJÁNSSON, Sauóafslli, andaöist i Landspitalanum 29. desember. Finndís Finnbogadóttir, Hörður Haraldsaon. t Móöursvstir mín, HJÖROÍS BALDVINS, Hóvallagötu 49, andaöist í Borgarspítalanum 27. desember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd fjöldskyldunnar, Maia Sigurðardóttir. t Móöir mín og tengdamóöir, STEFANÍA ERLENDSDÓTTIR, Hofsvallagötu 60, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 30. desember kl. 13.30. Fyrir hönd aöstandenda, María og Hallgrímur Dalberg. t Sonur minn og bróöir, HALLUR FRIORIK PÁLSSON, Borgarnesi, sem andaöist 22. þ.m. veröur jarösunginn frá Borgarneskirkju, laugardaginn 31. desember kl. 13.30. Ferö veröur frá Umferöarmiöstööinni kl. 10.30 f.h. Jakobína Hallsdóttir, Vigdís Pólsdóttir. t Hjartans þakkir til vina og vandamanna fyrir veitta samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur okkar, FRANS ÁGÚSTAR ARASONAR. Guö gefi ykkur gleöilegt nýtt ár. Sveinbjörg Guðmundsdóttir og börnin. t Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö og hlýhug vegna andláts móöur og tengdamóöur okkar, GUÐRÚNAR ÞORBJÖRNSDÓTTUR, Ásvallagötu 51. Stefanía Runólfsdóttir, Þóra og Karl Maack. t Innilegar þakkir til allra þeirra er auösýnt hafa okkur hlýhug og samúö vegna andláts HELGA KAJ RASMUSSEN, bakarameistara. Börn. tengdabörn og barnabörn. Minning: Haraldur Pálsson trésmíðameistari Fæddur 7. júlí 1924 Dáinn 18. desember 1983 Þegar góður drengur og besti vinur manns kveður þetta líf skyndilega þá vakna minningar frá liðnum dögum. Og hugurinn reikar norður yfir fjöllin til æsku- stöðvanna heima í Siglufirði. Fyrstu kynni mín við Harald Pálsson urðu á ísi lögðum tjörnum sem nú eru horfnar en voru norð- arlega á Eyrinni. Þar hópuðust forðum saman krakkar og ungl- ingar á skauta. f þeim hópi var Haraldur, lítill, hnellinn drengur sem réð yfir frábærri leikni á skautum. Hann naut þess líka langt fram eftir aldri að skreppa á skauta. Aðaláhugamál hans var skíða- íþróttin og veitti hún honum marga ánægjustund. Fjórtán ára að aldri hóf hann kennslu á skíð- um norður í Fljótum. Sama vetur vann hann sinn fyrsta sigur í göngu á landsmóti. Upp frá því var hann einn af litríkustu skíða- mönnum þessa lands allt til hinstu stundar. Ég sem þessar línur skrifa hef átt Harald Pálsson að vini frá því við vorum börn að aldri. Sjaldan bar skugga á vináttu okkar þótt við værum ekki alltaf sammála. Hann var ákveðinn í skoðunum og staðfastur en skilningsgóður ef aðrir lögðu gott til. Ég á margar góðar minningar frá skíðaferðum með Haraldi. Við gengum saman drengir fyrstu spor okkar á skíðum. Og þegar hann bað mig að koma með sér á skíði þann örlagaríka sunnudag, 18. desember síðastliðinn, kom mér síst í hug að ég myndi einmitt þá ganga með honum síðustu spor hans á skíðum í þessu lífi. Við Helga þökkum kærum vini tryggð og sanna vináttu og allar ánægjustundirnar sem við áttum saman. Við biðjum Guð að styrkja og blessa alla ástvini hans. Einar Ólafsson Skíðaferðinni er lokið. Þeirri för, sem hófst á hvítum snæbreið- um milli siglfirskra fjalla, lauk á heiðbjörtum skammdegisaftni eft- ir hressandi göngu í Fossvogsdal. — Með syni sínum og vini þeirra beggja naut Haraldur Pálsson síð- ustu stundanna í veröld vor manna. Hann var „á snöggu auga- bragði" kvaddur á brott til ann- arrar ferðar, þeirrar sem enginn fær undan vikist að fara. Hann hélt af stað á kvöldi sem var frem- ur siglfirskt en sunnlenskt, — góð- ur skíðasnjór á jörðu, hægur and- vari, bjart af tungli. Slíkt um- hverfi hæfði Haraldi Pálssyni vel. Og það er eins og betra sé að kveðja þegar vitað er að lokasviðið í lífsleik hans var ekki ólíkt þeim sem honum höfðu löngum verið kærust. Haraldur Pálsson var Siglfirð- ingur. Hann fæddist að vísu á Sauðárkróki 7. júlí 1924 en fluttist fjögurra ára með fjölskyldu sinni til Siglufjarðar. Foreldrar hans voru hjónin Guðbjörg Eiríksdóttir og Páll S. Jónsson, trésmíðameist- ari og lengi byggingafulltrúi og bæjarverkstjóri á Siglufirði, hið ágætasta fólk. Tvö systkini átti Haraldur og voru bæði yngri en hann, Olgu, sem gift er og búsett í Hafnarfirði, og Sverri, sem lést ungur. Auk þeirra átti hann syst- ur sem dó í frumbernsku. — Har- aldur ólst upp með foreldrum sín- um og systkinum á Siglufirði. Hann var raunar löngum í sveit á sumrin eins og þá var títt en innan við fermingu hóf hann þó sumar- störf heima og reyndist snemma dugmikill og úrræðagóður. Hann lauk námi í húsasmíði um tvítugt, setti þá þegar á laggirnar eigið verkstæði ásamt vini sínum, As- grími Stefánssyni, en fluttist til Reykjavíkur 1951 og átti þar heima síðan. Hann stundaði jafn- an trésmíðar og stjórnaði gerð fjölmargra húsa. Haraldur Pálsson kvæntist í október 1948 Eyrúnu Maríusdótt- ur úr Reykjavík. Börn þeirra eru fjögur: Sverrir, dó ungur; Eyþór, verkfræðingur í Boston, kvæntur Andreu Gosselin; Guðbjörg, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, gift Matthíasi Gunnarssyni prent- ara og eiga þau tvö börn; Harald- ur, hefur löngum starfað með föð- ur sínum að trésmíðum. Eyrún og Haraldur slitu samvistir fyrir nokkrum árum en vinátta þeirra stóð til hinstu stundar Haralds. Ungur varð Haraldur skíðamað- ur góður og óvenju fjölhæfur í þeirri íþróttagrein. Hann hélt til Svíþjóðar til náms og þjálfunar skömmu eftir heimsstyrjöldina og fór síðan marga ferðina til út- landa og urðu sumar frægðarfarir. Hann tók þátt í skíðamótum heima og erlendis í tæpa hálfa öld og var tíðum sigursæll enda af- reksmaður og náði að verða ís- landsmeistari bæði í norrænni tvíkeppni og Alpagreinum. Hann naut skíðaferða og raunar hvers konar útivistar og féll því í valinn á þeim vettvangi sem hann unni. Um árabil var Haraldur skíða- kennari víða um land. Hann hafði gaman af að segja fólki til og fjöl- hæfni hans gerði honum kleift að temja ýmsum nokkra leikni þó að námskeið væru stutt. Haraldur Pálsson var vinur minn frá því ég var barn að aldri og góðvinur konu minnar var hann í rúm 30 ár. Og hann var góður vinur sem við eigum mikla þökk að gjalda. Þó að stundum liði langt milli funda rofnuðu aldrei tengslin við Halla Páls. Og alltaf var jafngaman að hitta hann. Hann var sagnasjór, sagði afar vel frá og naut þess að rekja liðna atburði. Ævi hans var ekki ætíð dans á rósum en þó var beiskja fjarri honum. Hann var að vísu lítt gefinn fyrir að láta hlut sinn, sat oft við sinn keip meðan sætt var. En mér virtist hann tíðum stunda þrætubókarlistina sem íþrótt en ekki af stærilæti. Æskuheimili Haralds Pálssonar er mér í fersku minni. Þar átti ég ungur marga góða og glaða stund. Við Sverrir heitinn vorum á líku reki, Haraldur nokkru eldri sem fyrr segir. Hann hafði töluverð mannaforráð þegar í æsku þvl að allmargir voru á líkum aldri og við Sverrir í nágrenninu. Fyrir því liði fór Halli Páls. Aldrei varð þurrð á viðfangsefnum. „Margt eitt kvöld og margan dag“ áttum við saman. Auðvitað voru skíðin aðalatriðið. Hver okkar gömlu vinanna man ekki refaleik þar sem Halli stýrði og skipulagði? Hann varð, eins og áður sagði, snemma afreksmaður á skíðum, göngumaður góður og stökkmaður. Og hann varð ásamt Ásgrími Stefánssyni fyrrnefndum einn leiknasti svigmaður Siglfirð- inga eftir að þeir tóku að æfa þá grein og kölluðu slalom. — En hann kunni líka að nota sumrin og kenndi okkur að meta umhverfið og njóta þess. Nokkur strjál minn- ingabrot festi ég á þetta blað: — Þreyttir sveinar þera timbur, nagla og smíðatól upp bratta hlíð. Kofi er reistur í botni Hvanneyr- arskálar. Það var gott sumar sjö ára snáða. — Og enn fyrr: Harald- ur og vinur hans, Finnur Jónsson, nú Grímseyingur, fara með okkur Sverri á reiðhjólum sínum upp í Skarðsveg sem þá nær að vísu ekki langt upp fyrir Skarðdal. Á leið- inni niður hitna bremsurnar svo að úr rýkur og við leggjumst á bakkann við Grísará í heitu sól- skini og blæjalogni. Það er sigl- firsk sumarblíða. — Og enn sumarkvöld: Haraldur er úr grasi vaxinn og sendiboði hjá hafnar- stjóranum, Guðmundi Hafliða- syni. Hann fer gjarnan á hraðbáti um fjörðinn. Og hvað er meira ævintýri ungum dreng en að þjóta um sléttan sjóinn milli síldarbáta og flutningaskipa frá ýmsum þjóðum? — Slíkur galdramaður var Halli Páls að hann gat gætt umhverfi og athafnir þeim töfrum sem hverfa ekki heldur búa í vit- und okkar, eru partur af okkur æ síðan. Seint gleymi ég skammdegis- morgni einum 1946. Ég er nýkom- inn frá Akureyri heim í jólaleyfi. Síminn hringir. Faðir minn svar- ar. Ég skynja af raddblæ hans að ótíðindi hafa gerst. Sverrir Páls- son er látinn. Sextán ára er hann í val fallinn, mannsefnið góða orðið harmsefni. Og nú, einmitt þegar „dagurinn flýgur lágt við lönd“, hverfur bróðir hans til þeirra landa þar sem engin köld klaka- hönd stýfir vængi. — Sverrir bar ungur af um íþróttir allar og var, þegar hann lést, einn efnilegasti skíðamaður Siglfirðinga þó að vart væri af barnsaldri. Ég hygg fráfall hans hafi orðið Haraldi reiðarslag þótt hann stæðist högg- ið án þess að bogna eins og fjöl- skyldan raunar öll. Síðan átti hann eftir að sjá á bak öðrum Sverri og stóðst þá eldraunina einnig. Honum var ekki fisjað saman enda átti hann til traustra stofna að telja. Og nú er sá sem styrkastur stóð fallinn. Ástvinum hans öllum vottum við hjónin samúð og biðj- um þeim blessunar Guðs. Fyrir sjónum skammsýnna manna er för Haralds Pálssonar lokið. Hann spennir ekki framar á sig skíðin og hverfur á vit þeirrar fegurðar sem hvít víðernin búa yf- ir. Hann leggur ekki lengur skíða- slóðir sem aðrir njóta að fara. Hann kemur ekki oftar þreyttur en glaður úr drengilegum kapp- leik. Hann hefur haldið á vit hinna albjörtu töfra og þangað fylgja bænir vorar honum. Olafur Haukur Árnason Þegar ég frétti af andláti Har- aldar E. Pálssonar vinar míns síð- la sunnudagsins 18. desember sl. kom mér ekki á óvart að hann skyldi hafa verið á skíðum þennan síðasta dag sem hann lifði, svo stóran þátt átti skíðaíþróttin í lífi hans öllu. Nú var ein skíðavertíðin enn að hefjast og þótt Haraldur gengi ekki heill til skógar síðustu árin, lét hann það ekki aftra sér frá því að skreppa á skíði þegar tækifæri gafst. Við fráfall þessa þrekmikla íþróttamanns verður manni hugs- að til kynna okkar og samskipta, gömlu góðu áranna á Siglufirði og síðan hér sunnanlands. Þrátt fyrir nokkurn aidursmun, sem gætir meira á yngri árum, minnist ég fyrstu skíðaáranna á Siglufirði og leiðsagnar Haraldar. Foreldrar okkar byggðu húsið Hólaveg 6, tvílyft timburhús, og var Páll fað- ir Haraldar byggingarmeistarinn, en þar bjuggu fjölskyldur okkar frá árinu 1934. í kjallara þess húss voru skíðin geymd og þar voru málin rædd. A þeim tíma voru góð skíði illfáanleg og skíðaáburður ófáanlegur. Þá var gott fyrir okkur yngri strákana að þekkja mann eins og Harald sem sigldi til útlanda til skíðaiðkana og var til- búinn að gefa okkur stroku undir skíðin svona við og við. Já, það fór ekki hjá því að við bræðurnir lit- um oft löngunaraugum í áburð- arskápana þeirra bræðra Harald- ar og Sverris. Þessir tímar á Hóla- veginum eru ógleymanlegir, þar sem Haraldur var hinn virki leið- togi á skíðunum, alltaf boðinn og búinn til að leggja þeim yngri lið og leiðbeina þeim. Haraldur var í fjölda mörg ár einn fremsti skíðamaður landsins og um árabil var hann besti göngumaður Siglfirðinga. Reynd- ar var Haraldur nær jafnvígur á allar greinar skíðaíþróttarinnar, göngu, stökk og svig, þótt telja verði að gangan hafi verið hans sérgrein. Verður ekki í fljótu bragði komið auga á marga jafn- ingja Haraldar að þessu leyti hér á landi þegar litið er til baka. Hann tók íþrótt sína alvarlega og stundaði hana af kostgæfni. Við dáðumst að þrautseigju hans og ósérhlífni við æfingar á Siglufirði,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.