Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 32
 Fréttirfráfýrstu hendi! TIL DAGLEGRA NOTA FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. og snæld- hafebotni? Bjórinn urnar á Smyglvarningur, sem kastað var í sjóinn í mynni Reyðarfjarðar, finnst ekki þrátt fyrir mikla leit ÞREMIIR sfldartunnum með nær tvö hundruð myndbandsspólum, áteknum og óáteknum, og 6—7 kössum af bjór, var varpað í sjóinn frá vb. Þorra SU frá Káskrúðsfirði í mynni Reyðarfjarðar að morgni Þor- láksmessu. Belgur var við tunnurnar og var ætlunin að þær yrðu sóttar síðar. Þær hafa hins vegar ekki fundist og þykir nú líklegast, að þær hafi sokkið með varningnum, enda var norðanrok þennan morgun og báturinn á fullri ferð. Rannsókn málsins stendur yfir hjá sýslumanns- embættinu á Eskifirði og liggja fyrir játningar a.m.k. eins skipverja á Þorra og manns á Fáskrúðsfirði. Samkvæmt upplýsingum Mbl. var Þorri að koma frá Grimsby í ! Englandi og átti að tollskoða bát- inn á Eskifirði. Myndsnældunum og bjórnum hafði verið pakkað inn og komið fyrir i tunnunum og var ætlunin að skilja þær eftir við færi, svo hægt væri að sækja þær síðar. Skipstjórinn á bátnum, sem var grunlaus um smyglvarning- inn, var í brúnni á leið inn til Eskifjarðar en umræddur skip- verji fékk tvo félaga sína um borð til að aðstoða sig við að kasta tunnunum aftur af í sjóinn á leið inn fjörðinn. Þegar tollskoðun var lokið á Eskifirði var Þorra siglt til heima- hafnar á Fáskrúðsfirði. Þegar far- ið var að leita að tunnunum fund- ust þær ekki og hafa ekki fundist enn, þrátt fyrir vandlega leit. Fljótlega komust yfirvöld í málið. Skipverjinn á Þorra mun hafa borið við yfirheyrslur, að ókunnur maður í Grimsby hafi fengið sér pakka ætlaðan nafngreindum manni á Fáskrúðsfirði. Af hálfu skipverjans liggur fyrir játning í málinu í þá veru, sem að framan greinir, en hann og manninn í landi, eiganda góssins, greinir talsvert á um magn bjórkassanna og myndsnældanna. Bjarni Stefánsson, sýslufulltrúi á Eskifirði, staðfesti í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöld, að rannsókn þessa máls stæði yfir og að játningar lægju fyrir um full- framið tollalagabrot. Hann færð- ist að öðru leyti undan að ræða málið, sagði það fara venjulega leið til ríkissaksóknara þegar rannsókninni væri lokið. Skelfiskurinn selfluttur á milli bifreiða. Valt með 17 tonn af skelfiski Borgarnesi, 29. desember. Gámaflutningabifreið frá Eim- skip valt út af veginum í Kolbeins- staðahreppi í fyrrakvöld. Á bflnum voru 17 tonn af skelfiski sem átti að fara í skip í Reykjavík. Bíllinn var í samfloti við ann- an Eimskipsbíl sem einnig var með skelfisk. Lögðu þeir af stað úr Stykkishólmi á þriðjudags- kvöldið og höfðu verið sólar- hring á leiðinni þegar óhappið varð vegna ófærðar á Heydal. Nokkur snjór var á veginum þar sem bíllinn valt útaf og hálka. { nótt komu bílar frá Eimskip og tóku skelfiskinn og fluttu «uður en bíllinn var skilinn eftir. — HBj. Morifunblaðið/Kristján örn. Glatt á hjalla Það var glatt á hjalla í Tónabæ í gærkvöldi er þar var haldin jólaskemmtun þroskaheftra á höfuðborgarsvæðinu á vegum Styrktarfélags vangefinna. „FJÁRVEITING til vetrarviðhalds á vegum fyrir árið 1983 var 108,7 milljón- ir króna, en í nóvemberlok var búið að verja 117,8 milljónum til þessara hluta, svo þá þegar vorum við komnir rösklega 9 milljónir fram yfir fjár- veitinguna," sagði Hjörleifur Ólafsson vegaeftirlitsmaður hjá Vegagerðinni um kostnað við vetrarviðhald Vegagerðarinnar á því ári sem nú er að líða. í Reykjavík hefur kostnaður vegna vetrarviðhalds á götum far- ið enn meira fram úr áætlun, um miðjan desember var talan komin upp i 24,2 milljónir króna, en fjár- veiting hljóðaði upp á 11 milljónir. Að sögn Inga Ú. Magnússonar gatnamálastjóra munaði þar einn- Skreiðarsalan til Nígeríu: Skuldir Nígeríumanna nema um 770 milljónum SKULDIR Nígeríumanna við íslend- inga vegna skreiðarsölu til Nígeríu nema nú um 770 milljónum ís- lenzkra króna (27.750.000 dollurum) samkvæmt upplýsingum Seðlabanka fslands. Þetta miðast við hið opin- bera verð, en talsverður afsláttur hefur verið gefinn á þessu ári frá því, þannig að í raun getur skuldin reynzt lægri. Hvað framleiðendur varðar, er 1 skuldin gagnvart þeim ekki jafn há vegna fyrirgreiðslu bankanna og því er hér að sumu leyti um skuld Nígeríumanna við fslenzka banka að ræða. Talið er að skreið- arbirgðir í landinu séu um 100.000 pakkar, en verðmæti þessara birgða er óljóst. Að undanförnu hefur verið veittur um 20% af- sláttur á skreið seldri til Nígeríu, en ekki er ljóst hvort svo verður á næsta ári. Það getur oltið á efna- hagsstefnu Nígeríumanna á næsta ári. Greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði vegna skreiðar hafa dregizt nokk- uð frá því, sem áður var ákveðið. Áætlað hafði verið að þeim yrði lokið fyrir jól, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins bíða margir enn eftir þessari greiðslu. Ólafur Björnsson, stjórnarfor- maður Skreiðarsamlagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að þetta hefði valdið mönnum mikl- um vanda. Sagði ólafur að alls hefði átt að deila út um 150 millj- ónum króna af því, sem skreiðar- framleiðendur hefðu lagt í skreið- ardeild sjóðsins, en ekki væri ljóst hve margir biðu enn þessara greiðslna, þeim til verulegra vand- ræða. ig mestu um fyrri hluta ársins, frá janúar fram á vor, en haustið hef- ur verið þokkalegt hvað snjó varð- ar, en töluvert hefur þurft að salta vegna hálku. I nóvemberlok í fyrra hafði ver- ið varið 86,5 milljónum króna til vetrarviðhalds á vegum Vegagerð- arinnar á núgildandi verðlagi, en að meðaltali hefur verið varið 96 milljónum i snjómokstur, hálku- varnir og annað vetrarviðhald á sl. 10 árum. Eins og áður sagði var kostnaður þessa árs 117,8 milljón- ir í nóvemberlok. Sagði Hjörleifur að tímabilið frá janúar og fram á vor hefði ver- ið mjög erfitt, en haustið nú og það sem af er vetrar nokkuð þokkalegt. í júlílok hafði 90,6 milljónum króna verið ráðstafað til vetrarviðhalds, en frá haust- byrjun og fram í nóvemberlok 27,2 milljónum. Vestfirðir reyndust kostnaðar- samastir í ár, með 31,8 milljónir af þessum 117,8 milljónum, en kostn- aður við aðra landshluta var sem hér segir: Suðurland 6,7 milljónir, Reykjanes ásamt Hellisheiði 13 milljónir, Vesturland 16 milljónir, Norðurland vestra 10,3 milljónir, Norðurland eystra 17,6 milljónir og Austurland 17,5 milljónir. I sameiginlegan kostnað, kaup á snjómoksturstækjum og fleira var varið 4,9 milljónum. Snjómokstur kostar meira en áætlað var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.