Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983
13
enginn þrjú fyrrum sjálfstæð
smáríki, hinum megin Eystra-
salts: Eistland, Lettland og Lithá-
en? Þau eiga reynslusögu, sem
lærdóma má draga af.
Allir hugsandi menn þrá frið og
heilbrigð samskipti þjóða og ein-
staklinga. Allir hugsandi menn
gera sér grein fyrir þeim hættum
sem voðavopn nútímans geta leitt
yfir mannkyn. Hitt er og vert að
muna vel, að sameinuð eru lýð-
ræðisríkin sterk en sundruð veik.
Stöðvun vopnaframleiðslu og síð-
an afvopnun í áföngum þjónar því
aðeins tilgangi að gagnkvæm sé og
fylgt eftir með raunhæfu eftirliti.
Að slíku samkomulagi ber að
stefna af einurð og festu.
Það má heldur ekki gleymast
nú, þegar margs konar erfiðleikar
berja að heimadyrum, að á fáu er
íslenzkri þjóð fremur þörf nú en
friði í þjóðarbúskapnum, meðan
hún réttir úr kút aðsteðjandi erf-
iðleika. Það er gott og blessað að
flytja út frið, en ekki sakar, að
hann sé jafnframt til staðar
heimafyrir. Raunar er það mál
málanna að árið 1984 verði friðar-
ár á heimavettvangi.
Orðsins list
Þingmenn settu meiriháttar
málþóf á svið í önnum síðustu
starfsdaga Alþingis 1983. Þeir,
sem töluðu lengst, sögðu oft
minnst. Það var erfitt að gera sér
í hugarlund, þá hlýtt var á orðfær-
ið, að orðsins list hafi verið kveikj-
an að listferli mannkyns, — og
höfuðprýði þingskörunga fyrr á
tíð — og til skamms tíma.
Þingmenn mættu að ósekju
leggja meiri rækt við málflutning
sinn, að efni, stíl og framsetningu.
Það væri illt til þess að vita ef
máisnilld heyrði fortíð til í þing-
sögunni. Þeir eru allt of fáir sem
fara á kostum í ræðustól þingsins,
núorðið. Þar er hinsvegar ekki
einsdæmi að þingmaður teygi lop-
ann tímum saman, eftir að sam-
þingmenn, aðrir en forseti, eru
flúnir af hólmi.
í þessu málþófi miðju hófu ýms-
ir sjálfskipaðir „málverndar-
menn“ herför að iðnaðarráðherra,
Sverri Hermannssyni, vegna þess
að hann kýs að skrifa z þar sem á
við samkvæmt eldri ritreglum.
Hér skal ekki fjallað um þennan
bókstaf, sem gerður var „útlægur"
úr stafrófinu. Hitt má gjarnan
koma fram, að Sverrir Hermanns-
son er í hópi þeirra þingmanna
sem fer mýkstum og nærfærnust-
um höndum um móðurmálið — og
leggur hvað mesta rækt við mál-
far sitt. Málsnilldin stæði því bet-
ur að vígi á Alþingi ef þingmenn
réðu yfir tungutaki, líku iðnaðar-
ráðherrans.
Megi þingárið 1984, eða Alþing-
istíðindi þess árs, geyma þingræð-
ur, þar sem gæði og innihald
skipta meira máli en magn og
lengd.
á síðustu og verstu tímum stéttar-
félaga og kjarabaráttu, skuli sá
hluti félagsmanna sem vísast hef-
ur vit til annars ætla að nota
rangfærslur í dagblöðum til að
grafa undan eigin stéttarfélagi.
Væri þeim sýnu nær að ýta aðeins
á „kjaramálavagninn" í stað þess
að „hanga aftan í“ og hrópa þaðan
óhróðri að þeim sem ævinlega
hafa orðið að draga þann vagn.
Að lokum óska ég þeim
HM-mönnum sem og öðrum félög-
um í St.Rv. árs og friðar með
þeirri einlægu von að með viðræð-
um innan félagsins megi eyða tor-
tryggni og auka þá samstöðu sem
ein dugar til varnar þeirri atlögu
sem nú er gerð að launafólki í
landinu.
Á 3ja dag jóla 1983.
Haraldur Hannesson er formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar.
Sumir
versla dýrt-
aðrir versla hjá okkur
Reykturlax Graflax
aðeins rnr .00
595
Nýr Iaxl/l225A
Aligæs335
Aliönd 385
Aligrágæs335
VORUKYNNING:
CátieÍkb kartöf lu f lögur
Á KYNNINGARVERÐI!
Hangikjöt £&
Frampartar , d m T ^ •
úrbeínaðir Urbeinuð læri JNVlíl
18958 278-58 kjötið Jfe
Leyft verö 245.10 Leyft verö347.00 * ■/\
London
Lamb
Uppskrift fylgir
NýttSvína EgUs opwajw-l/k
læri 1 /:q.00 1"
.eyft verð pr. kg. ^ Uliar laugardag frá kl. 9- 12.
223.0° 110.00 .10-30% afsláttur á öli
Utimarkaður 1 Starmýri °9 g°si •'^ssum
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2