Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND GUÐJÓNSSON
Stjórnarkreppu afstýrt
í Japan, a.m.k. í bili
NýJega tókst Yasuhiro N'akas-
one að mynda meirihlutastjóm í
Japan þrátt fyrir að hafa tapað
meirihlutanum í þingkosningum
fyrr í mánuðinum. Ovissutímabili í
japönskum stjórnmálum er þvf
lokið, að minnsta kosti í bili. En
Nakasone bjargaði málunum að
margra viti klókindalega því hart
var að honum sótt að segja af sér
embætti forsætisráðherra ef ekki
leiðtogaembættinu í frjálslynda
(lokknum. Segja má, að hann hafi
góða reynslu í því hvernig snúa
eigi sér út úr ógöngum á borð við
þær sem hann kom sér í, því
keimlíkt mál skaut upp kollinum
fyrir fáum árum. Og með því að
bjarga málunum í „horn“ þykir
hann að mörgu leyti hafa styrkt
stöðu sína talsvert þó svo að meiri-
hlutinn sem hann hefur á þinginu
sé dálítið fallvaltur.
Hvað sameiginlegt?
Kosningarnar sem þær síð-
ustu í Japan eru sagðar
líkjast hvað mest þeim er voru
árið 1979. Þá hét forsætisráð-
herrann Masayoshi Ohira og
hafði hann ekki setið lengi í
embættinu. Hann tók áhættu og
tapaði þingmeirihluta. Ohira var
leiðtogi frjálslynda flokksins og
er meirihlutinn glataðist ætlaði
allt vitlaust að verða innan
flokksins. Ýmsir flokksbræður
Ohira kröfðust þess að hann
segði af sér og hleypti öðrum að.
Stjórnarandstöðuflokkarnir,
sem ekki hafa komist til valda
síðan árið 1955, þóttust sjá hag
sinn vænkast og töldu sig geta
myndað samsteypustjórn. Fram-
haldið var 40 daga „stríð" við
innanflokksöfl ekki síður en
stjórnarrandstöðuna, því marg-
ar fylkingar skipa frjálslynda
flokkinn og lítið hefur mátt
koma upp á í gegnum árin til að
allt fari þar í bál og brand.
Loks tókst þó Ohira að mynda
stjórn, en traust var hún ekki.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit
stjórnarandstöðunnar var það
m.a. linka hennar sem kom í veg
fyrir gullið tækifæri hennar til
að losna við frjálslynda flokkinn
úr stjórn. Ohira tókst nefnilega
alls ekki að stilla til friðar í
flokki sínum.
Tanaka ... enn voldugur.
Jú, það var Nakasone
Það þykir kaldhæðnislegt að
einn þeirra sem hvað mest gagn-
rýndi Ohira á sínum tíma og
hvað harðast gekk að honum að
segja af sér embætti var Yasu-
hiro Nakasone, sem nú stendur í
nákvæmlega sömu sporunum,
þ.e.a.s flokkurinn hefur tapað
fylgi undir formennsku hans, en
hann neitar að gefa sig þrátt
fyrir þrýsting.
Talið er að Nakasone hafi lært
á máli Ohira hvernig ekki eigi að
taka á málunum þegar slíkir erf-
iðleikar steðja að. Þó var Nakas-
one heppinn, hann hefði varla
náð aftur þingmeirihlutá nema
með því að gera bandalag við
nokkra óháða þingmenn. Til
allrar hamingju fyrir Nakasone
voru það fyrrverandi meðlimir
frjálslynda flokksins sem klufu
sig frá honum er mútuhneyksli
Tanaka kom upp um árið. Um-
ræddir þingmenn voru því til-
búnir til sátta gegn ákveðnum
loforðum og komu þeir ýmsu til
leiðar gegn stuðningi sínum,
enda voru þeir í aðstöðu til að
gera kröfur. Einn þeirra fékk
meira að segja ráðuneyti, innan-
ríkisráðuneytið.
Kosningaslagurinn 1979 gekk
út á skattamál. Ohira vildi
skattahækkun, en ekki voru allir
ánægðir með það eins og úrslit
kosninganna bera vitni um.
Ýmsir flokkadrættir og hrossa-
kaup, auk lélegrar stjórnar-
andstöðu urðu til þess að Ohira
hélt velli þrátt fyrir allt. Fyrrum
forsætisráðherrar, Fukuda og
Miki, börðust ákaft við hlið Nak-
asones fyrir því að koma Ohira
frá. En maður er nefndur Kaku-
ei Tanaka, enn einn fyrrum for-
sætisráðherra. Sá hinn sami og
neyddist til að draga sig í hlé
eftir að hafa orðið uppvís að
mútuþægni. En þrátt fyrir það
er Tanaka geysilega voldugt afl í
japönskum stjórnmálum. Nakas-
one gekk í bandalag við Tanaka
og sá síðarnefndi var stuðnings-
maður Ohira. Hann stóð því af
sér veðrið 1979. En nú stóð Nak-
asone frammi fyrir vanda, því
eina leið hans til nýs meirihluta
var að draga úr áhrifum Tanaka.
Þá fór Nakasone ekki eins að
og Ohira. Ohira þrjóskaðist við
og barði höfðinu við stein. Viður-
kenndi ekki mistök. En það gerði
Nakasone, hann viðurkenndi
strax fyrir þingheimi og alþjóð
að sér hefði orðið á í messunni,
einkum hvað varðaði „Tanaka-
stefnuna" í japönskum stjórn-
málum. Þá friðmæltist hann við
foringja hinna ýmsu fylkinga
flokksins, þar á meðal þá Miki og
Fukuda, sem hlupu upp til handa
og fóta „samkvæmt venju" er
Nakasone tapaði meirihlutanum.
Útkoman var sú stjórn sem nú er
sest að störfum. Um 21 ráðu-
neyti er að ræða. 6 þeirra féllu í
skaut fylgismanna Tanaka, 4 í
hlut fylgismanna Suzuki fyrrum
forsætisráðherra, 4 í hlut fylg-
ismanna Nakasone og 4 í hlut
stuðningsmanna Fukuda. 2 féllu
í hlut stuðningsmanna Toshio
Komoto efnahagsráðgjafa
stjórnvalda og eitt í hlut óháðra.
Engar skýringar
Nakasone sat fyrir svörum á
fréttamannafundi eftir kosn-
ingarnar margumtöluðu. Sóttu
fjölmiðlamennirnir að honum
fyrir að hafa krafist afsagnar
Ohira 1979 en þráast svo sjálfur
við í sömu aðstöðu. „Aðstæður
eru eru ekki hinar sömu,“ sagði
Nakasone. Hvernig þá? spurði
þá einn fréttamaður. En svar
fékk hann ekkert. En það er ekki
víst að almenningur í Japan vilji
nein svör nú, fyrir mestu mun
þykja að stjórnarkreppu hefur
verið afstýrt. Að minnsta kosti í
bili- (Byggt á AP o.fl.)
Cudmundur Cudjónsson er blada-
iliaður v/Morgunblaðid.
Horft bœnaraugum
Undanfarna daga hefur Hjálparstofnun kirkjunnar geng-
ist fyrir fjársöfnun til handa bágstöddum í Afríku, þar
sem óvenju langvinnir þurrkar hafa leitt til hungurs
milljóna manna. Þetta litla barn frá Chad ber sultarins
greinileg merki, þar sem það horfir bænaraugum inn í
linsu ljósmyndarans.
Agca bað páfann
um fyrirgefningu
Róm, 29. desember. AP.
MEHMET Ali Agca, sá er gerði til-
raun til að ráða páfa af dögum þann
13. maí 1981, bað páfa um að fyrir-
gefa sér er þeir hittust á 20 mínútna
löngum fundi í Ribibbia-fangelsinu
Starfsmaður
sendiráðs
Jórdana myrt-
ur f Madrid
Madrid, 29. desember. AP.
ÓÞEKKTUR byssubófi skaut í dag á
starfsmann jórdanska sendiráðsins í
Madrid og særði hann til ólífis. Ann-
ar starfsmaður sendiráðsins særðist
■ skotárásinni. Báðir voru á leið frá
sendiráösbyggingunni í bifreið.
Að sögn lögreglumanns, sem
var önnum kafinn við að skrifa
sektarmiða á nærliggjandi bif-
reiðir er skotárásin var gerð, líkt-
ist árásarmaðurinn araba í útliti.
Hins vegar gat hann ekki lýst hon-
um frekar. Lðgregla leitar árás-
armannsins ákaft.
í Róm, þar sem Agca afplánar lífs-
tíðarfangelsi. Keraur þetta fram á
myndum, sem ítalska sjónvarpið
tók af fundinum fyrir Vatíkanið.
Skýrði dagblaðið Corriera Della
Sera í Milanó frá þessu í dag.
Að sögn blaðsins hefur það í
höndum allt það, sem heyra
mátti af samtali páfa og Agca.
Samkvæmt afritinu af textanum
var það fyrsta sem Agca sagði, að
biðja páfa fyrirgefningar á fram-
ferði sínu. Eftir það lækkuðu báð-
ir róminn, þannig að mjög erfitt
var að greina orðaskil, þar sem
bæði myndavélin og hljóðneminn
voru utan klefans sjálfs. Gæði
hljóðupptökunnar eru því lítil.
Þó mátti heyra svar páfa, lík-
ast til við spurningu Agca um
heilsufar hans heilagleika, þar
sem hann sagðist vera nokkuð vel
á sig kominn, a.m.k. nægilega
hress til að sinna starfi sínu.
Páfi skýrði fréttamönnum frá
því eftir fund hans og Agca, að
hann hefði fyrirgefið tilræð-
ismanninum, en neitaði að láta
uppi hvað þeim fór annars á
milli.
Miklir kuldar hafa verið i Bandarfkjunum að undanlornu og ávaxtaeknir liggja undir
skemmdum. Á myndinni má sjá einn bónda slökkva á olíukynditæki, sem hann
notaði til að halda hita á appelsínutrjám sínum.