Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983
enda vildi hún ekki leggja á sitt
ráð gegn vilja föður síns.
Snemma þótti Stefanía bera af
um dugnað og röskleika. Hún
hafði einnig liprar, iðnar hendur,
og þegar svo áraði í lífi hennar, að
hún þurfti að leita sér og dætrum
sínum lífsviðurværis með starfi
utan stokks, þá varð, eins og oft
gerðist, saumaskapur fyrir valinu.
Fram að árslokum 1941 starfrækti
frú Elísabet Foss „Lífstykkjabúð-
ina“ í Hafnarstræti 11. í sambandi
við búðina var rekin saumastofa,
og þar starfaði Stefanía árum
saman og minntist hún jafnan frú
Foss með hlýhug.
Eftir nokkurra ára hlé setti
Stefanía á stofn eigið fyrirtæki,
„Lífstykkjasöluna" við Frakkastíg
7, og starfrækti hana af atorku og
myndarskap um margra ára skeið,
eða þar til krafta tók að þverra.
Þar, eins og hjá frú Foss, voru
m.a. lífstykki saumuð eftir ein-
staklingsþörfum. Þjónusta af
þessu tagi var þá orðin fágæt ef
ekki einstök hér í borginni. Töldu
margir mikla eftirsjá að henni. í
störfum sínum eignaðist Stefanía
fjölda vina bæði meðal sam-
starfsmanna og viðskiptavina. Það
var þó ekki á þeim vettvangi sem
við kynntumst mannkostum Stef-
aníu bezt, heldur á vettvangi
heimilis- og fjölskyldulífs.
Að vísu hafði kjarnafjölskyldan
leyst stórfjölskylduna af hólmi, er
hér var komið sögu, en allt um það
höguðu atvikin því svo, að um ára-
tuga skeið bjó Stefanía eins og
væri hún í stórfjölskyldu. Var hún
þá í ástríku nábýli eða sambýli við
Maríu dóttur sína og Hallgrím
Dalberg tengdason sinn og börn
þeirra, og það var sem ættmóðirin
í stórfjölskyldunni sem Stefanía
reis hvað hæst. í samræmi við
innsta eðli sitt rækti hún fjöl-
skyldu sína með prýði, ekki ein-
ungis þá nánustu, heldur allan
frændgarðinn, ef svo bar við. Inn-
an fjölskyldunnar skyldu menn
ráða ráðum sínum, þar skyldi var-
izt og búizt til sóknar, þar skyldi
gert að benjum, yrði einhver sár á
vígvelli hins daglega lífs. Þar féllu
hvatningarorð og eggjunar-.
Þannig hélt Stefanía af miklu
örlæti höfðLngleg gestaboð á
heimili sínu, þar sem veizlumenn
voru jafnan frændlið, jafnt ná-
komið sem fjarskylt. Slíkar sam-
verustundir voru henni einkar
kærar og stuðluðu að samgangi
fjölskyldna á milli, sem ella hefði
trauðla orðið. Að sama skapi var
Stefanía ævinlega kærkomin og
sjálfsagður gestur á merkisstund-
um frændfólks síns.
Fátt féll Stefaníu verr en smá-
sálarskapur og hálfvelgjuháttur.
Svo ríkur þáttur var veglyndi í
fari hennar, að manni verður
ósjálfrátt hugsað til Auðar djúp-
úðgu, þá er hún hafði brotið skip
sitt og kom á fund Helga bróður
síns. Hafði hann boðið henni til
sín með helming liðs síns, en hún
svarað reiðulega, að hún vissi
ekki, að hann væri slíkt lítilmenni
og hélt til Bjarnar bróður síns,
sem tók við henni með öllu liðinu.
Einkum í þröngum hópi var
Stefanía hrókur alls fagnaðar.
Henni var gefin kímniblandin
frásagnargáfa, sem að okkar viti
er dæmafá. Frásagnarmáti henn-
ar var dramatískur og minnti á
riddarasögur og ævintýri, málið
hreint og tært. Með hæfilegri stíg-
andi og þögnum reis frásögnin,
þar til hápunkti var náð. Þarínig
gæddi hún jafnvel hversdagslega
atburði lífi og spennu.
Þótt Stefanía hafi náð háum
aldri, var hún heilsugrönn síðari
áratugina og mátti þola langar og
strangar sjúkrahúslegur, en henni
var gefið þrek og skap til þess að
standast þungar raunir. Þegar
staldrað er við að leiðarlokum, má
merkja enn skýrar en áður hin
einstæðu og gagntæku áhrif, sem
hún hafði á samferðafólkið, og í
minninguna sezt keimur af forn-
um landssiðum, fornum dyggðum
— veröld sem var.
Elskusemi og ræktarsemi Stef-
aníu kvíslaðist um okkar fjöl-
skyldu, þegar er til hennar var
stofnað, og átti sér naumast nokk-
ur takmörk. Fyrir það stöndum
við í ævarandi þakkarskuld við
„Stebbu frænku", eins og hún var
einatt kölluð.
Stefanía Erlendsóttir var trúuð
kona og vissi, að ekki er allur
veruleiki af sama heimi. Þótt hún
hafi nú fellt segl sín, er ekki að
óttast, að hún fái ekki hæga land-
töku.
Blessuð sé minning Stefaníu
Ólafíu Erlendsdóttur.
Signý Sen,
Jón Júlíusson.
Nú er hún Stefanía, hún Stebba
frænka, eins og við börnin, frænd-
ur hennar og frænkur, vorum vön
að kalla hana, farin frá okkur.
Hún kvaddi okkur í svartasta
skammdeginu, þegar jólin, sú há-
tíð, er menn koma saman til þess
að gleðja aðra, eins og hún gerði
svo ríkulega, voru í þann mund að
ganga í garð. Nú er hún horfin í
aldanna skaut, í faðm eilífðarinn-
ar, eins og árið gerir innan
skamms í samræmi við lögmálið
um framrás tímans. í æskuheimi
undirritaðs var hún sjálf sem
lögmál, stöðugt og óbreytanlegt,
eins konar góður máttur, sem
maður vissi af. Hún var einn
þeirra manna, sem láta sér meira
annt um aðra en sjálfa sig, og við
börnin fundum, að við myndum
alltaf geta leitað til hennar ef á
bjátaði og að hún yrði þá óspör á
alla þá hjálp og hlýju, er hún
mætti veita.
En það sem einkenndi hana
öðru fremur • var ekki eingöngu
óvenjulegt örlæti og megnasta
fyrirlitning á hvers konar kot-
ungsskap. Hún var líka sérstak-
lega stórbrotinn persónuleiki.
Hún hefði þolað samanburð við
helstu kvenskörunga Sturlunga-
aldar hvað varðar stolt, skap og
tilfinningahita. Allir, sem kynnt-
ust henni, hljóta að hafa fundið
skaphita hennar, sem samfara var
einstakri hjartahlýju. Skapgerð
hennar var stórbrotin, en jafn-
framt sérstaklega næm og fínofin
og bar hún skyn á öll blæbrigði
mannlegra samskipta. Jafnvel á
efri árum sínum tók hún virkan
þátt í mannlífinu í kringum sig
með þeim skilningi á mannlegri
náttúru, og þeirri fórnfýsi og
höfðingsskap, sem einkenndu
hana.
Við minnumst Stebbu frænku
með trega og söknuði, ekki vegna
þess að hún hafi orðið að hverfa
frá óloknu lífsstarfi — vegna þess
að hún átti að baki mikið og gott
lífsstarf — heldur vegna þess að
með henni er horfin af sjónarsvið-
inu einstök og litrík persóna, sem
yljaði upp kaldan hversdagsleika
mannlífsins með að því er virtist
endalausum hæfileika sínum til
þess að elska, hjálpa og miðla öðr-
um af hjartahlýju sinni og þeim
gæðum, er hún átti yfir að ráða.
Við söknum hennar sárt — vegna
þess sem hún var.
Erlendur Jónsson
Án efa munu aðrir minnast
starfa Stefaníu Erlendsdóttur og
ætta þeirra, sem stóðu að henni,
en eins stórs þáttar í lífi hennar
vil ég minnast og þakka.
Stefanía og systkini voru fædd
og uppalin á Breiðabólsstöðum á
Álftanesi. Þegar þau voru að alast
upp var Álftanes meiri sveit en nú
og líf þar tengt landbúnaði og sjó-
sókn. . Faðir þeirra, Erlendur
hreppstjóri Björnsson, var stór-
bóndi en um leið formaður á
opnum skipum sem sóttur var sjór
á frá vörum á Álftanesi og í Leiru.
Störf voru margháttuð á slíkum
útvegsbændaheimilum og fyrir
hinu stóra Breiðabólsstaðaheimili
varð húsmóðirin, María Sveins-
dóttir, oft að standa ein í fjarveru
bóndans og þá að stjórna stórum
barnahópi til margháttaðra
starfa. I slíkum tilfellum verður
húsmóðurinni oft mikil stoð að
dætrum. í barnahópi þeirra Maríu
og Erlends voru þær Oddný (síðar
Sen) og Stefanía.
Oddný fór ung til náms og
starfa hérlendis og erlendis, svo
Stefanía verður meiri hjálparhella
móður sinnar.
Þessa varð ég mjög var vorið
1932 er ég dvaldi á Breiðabóls-
stöðum í 4 vikur og las undir stúd-
entspróf með syni Erlends, Gutt-
ormi, síðar hæstaréttarlögmanni.
Þá var Srefanía gift og búsett í
Reykjavík en dvaldi oft langdvöl-
um að vor- og sumarlagi hjá for-
eldrum sínum og veitti móður
sinni aðstoð. Þegar ég kynntist
Stefaníu átti hún heimili með eig-
inmanni sínum, Geir, við Njarð-
argötu og dætrum þeirra þremur.
Þetta mun hafa verið um 1929
að við Guttormur bróðir hennar
tókum þann hátt að lesa saman
hvor hjá öðrum og mér finnst nú
eftir á oftar hjá honum, heima hjá
Stefaníu, því að þó eigi sé langt
frá Reykjavík út á Álftanes, var
bílaeign og samgöngum ekki svo
háttað að þeir sem framhalds-
skóla sóttu í Reykjavík þaðan
gætu farið daglega milli heimilis
og skóla, svo að fá varð inni í
leiguherbergi eða hjá fjölskyldu-
vini.
27
Meðan Jón Vestdal, síðar efna-
verkfræðingur, stundaði nám í
MR (lauk stúdentsprófi 1928) og
Guttormur, sem hóf nám í MR
1926, voru þeir bræður báðir til
heimilis hjá systur sinni, Stefaníu.
Húsaskjól var ekki aðeins veitt
þessum skólasveinum heldur einn-
ig félögum þeirra, bæði þeim sem
lásu með þeim og komu í heim-
sókn til að slá í slag, tefla eða bara
masa. Frá 1929 — 32 var Guttorm-
ur, sem lauk stúdentsprófi 1932,
einn í fóstri hjá systur sinni, en
naut athvarfs áfram hjá henni, er
hann nam lögfræði, en þá var ég
fluttur frá Reykjavík.
Þetta athvarf, sem við félagar
þeirra bræðra Stefaníu áttum inn-
an heimilis hennar, var hlýlegt og
ljúft. Hvort sem komið var seint
eða snemma, var viðmótið hin
sama glaðværa ljúfmennska — og
margs bitans og sopans var neytt
af sísvöngum námssveinum. Slík-
ar konur, ekki aðeins veitular á
húsnæði, mat og drykk, heldur
umburðarlyndar við ágenga gesti,
sem áttu til að sitja lengi, halda
vöku fyrir heimilisfólki, láta hátt í
tali og söng og jafnvel takast tök-
um, eiga stóran þátt í góðum
endurminningum frá skólaárum
og mega sannarlega teljast mót-
endur hrifnæmra sála og líkama á
gelgjuskeiði.
Eg veit að fleiri en ég hugsa
hlýtt til Stefaníu og þakka henni
ljúft viðmót á vistlegu heimili
hennar. Þau hjón hafa vart búið
við mikil efni og það á fyrstu árum
heimskreppu en aldrei heyrðust
þau barma sér eða kvarta. Varð ég
þess var, að Stefanía hafði nokk-
urt umstang af lántökum og yfir-
færslum fjár til Jóns bróður síns,
sem stundaði dýrt nám í Þýska-
landi, en í öllum þessum önnum,
umstangi og ónæði var Stefaná
glöð, svo að enginn gat í hennar
nærveru verið hryggur eða fúll til
lengdar. Ég leyfi mér fyrir hönd
þessa stóra námssveinahóps sem
naut svo mikils góðs frá Stefaníu
og heimilis hennar að votta við
andlát hennar þessa umsögn, sem
léttvægt þakklæti fyrir allt það
sem hún veitti hverjum og einum.
Dætrum Stefaníu Erlendsdótt-
ur, eiginmönnum þeirra og niðjum
skal að lokum tjáð samhryggð við
fráfall mætrar konu.
Þorsteinn Einarsson
Minning:
Bjarni S. Jónsson
bifreiðastjóri
Fæddur 28. mars 1913
Dáinn 21. desember 1983
Vetrarsólstöður eru það tím-
anna tákn sem okkur Islendingum
verður ætíð hugstætt. Þá er veldi
myrkursins mest og dagsbirtan
aldrei styttri. En nú breytir jörðin
afstöðu sinni í hinni eilífu hring-
rás. Sólin hækkar á lofti, skamm-
degisskuggarnir styttast og kon-
ungur ljóssins tekur völdin. Það
var óvenju gott veður síðustu
skammdegisdagana fyrir jólin,
logn og heiðskírt, lítið frost og
sumarfæri á götum borgarinnar.
Þess vegna hefur verið óvenju
bjart og milt yfir stystu dögum
ársins og létt yfir jólaannríkinu,
sem þá var efst á baugi, hvort sem
litast var um utanhúss eða innan.
Rétt eftir miðnætti á miðvikudag í
síðustu viku var Bjarni sendur í
ökuferð í gegnum stöðina. Hann
lauk þeirri ferð með farþegana, en
það mun hafa orðið hans síðasta
ökuferð, því seinna um nóttina
fannst hann látinn í bifreið sinni.
Þannig lauk ævi þessa hljóðláta og
fyrirferðarlitla samferðamanns,
sem í nær fjörutíu ár samfleytt
hafði starfað sem leigubifreiða-
stjóri á BSR. Engum sem til
þekkti gat dulist, að hann gekk
ekki heill til skógar, en hann var
einn af þeim mönnum sem ekki
bera erfiðleika sína á torg, heldur
byrgði hann þá innra með sér, en
lét hörkuna, þrautseigjuna og
æðruleysið bera sig uppi.
Bjarni verður bæði mér og öðr-
um sem lengi störfuðum með hon-
um hugstæður samferðamaður og
kemur þar fleira en eitt til. Síst
skyldi því gleymt hvað hann hafði
fastmótaðar skoðanir og lét sig
ekki í orðahnippingum, þó fast
væri deilt. Hann var einn af þeim
mönnum sem ráðast aldrei á garð-
inn þar sem hann er lægstur. Þeir
sem minna máttu sín áttu öruggt
athvarf í skjóli hans. Lífsmáti
Bjarna var mótaður eftir þeim ei-
lífu sannindum sem felast í þess-
um Ijóðlínum Davíðs Stefánsson-
ar:
„Enginn er gegn né góður,
sem glepur sinn minnsta bróður."
Ef hann taldi sig órétti beittan,
gat hann verið harðskeyttur og
óvæginn í málflutningi, en aldrei
ódrengilegur. Undirferli, baknag
og ódrengskap þoldi hann ekki og
kvað fast að orði þegar hann
dæmdi slíka eiginleika. Eg tel mér
það til ávinnings þegar hann
deildi á mig í ýmsum efnum og
það er skylda hvers hugsandi
manns að hlusta eftir gagnrýni og
taka hana til greina og ekki síst
þegar hún er töluð af munni þess
manns, sem með sanni hafði til-
einkað sér sígilda gamla máls-
háttinn „Sá er vinur, sem til
vamms segir“. Ég man sérstaklega
eftir einum fundi, sem haldinn var
innan samtaka okkar á BSR. Þá
mætti Bjarni eins og oftar. En það
leyndi sér ekki þegar hann gekk í
salinn, að hann vissi hvað hann
viidi. Svipurinn og fasið sögðu
sína sögu. Að fundi loknum, þegar
allt hafði skipast að hans skapi,
var handtakið hlýtt og þétt, þegar
hann kvaddi mig og aðra með
hamingjuósk um velheppnaðan
fund.
Bjarni var mjög vanafastur, t.d.
sat hann alltaf í sama sæti á stöð-
inni þegar hann beið eftir ökuferð,
en þegar hann kom inn ætlaðist
hann ekki til að staðið væri upp
fyrir sér, en það var orðið að vana
að flestir gerðu það þegar þannig
stóð á. Oft sat hann fálátur í sæti
sínu og það leyndi sér ekki síðustu
árin að þrekið var að bila. Bjarni
var góður skákmaður og tefldi
stundum á stöðinni sjálfum sér og
öðrum til ánægju, annars held ég
að frístundir hans frá starfinu
hafi verið fáar.
Á ævinni safnaði hann aldrei
veraldarauði og mun hafa látið
stærsta hlutann til annarra af því
sem til skiptanna kom.
Við leigubifreiðastjórar erum
sjálfráðir hvernig við högum
okkar vinnutíma. Bjarni hafði það
að venju að byrja seint að degin-
um, en keyra fram eftir nóttu.
Þessi vinnutími er betri að því
leyti, að þá er umferðin minni,
taxtinn hærri og oft meira að
gera.
Þegar Bjarni var upp á sitt
besta var hann karlmenni að
burðum, þéttvaxinn, hraustlegur
og svo handsterkur að af bar og
kunnugir sögðu, að hann mundi
seint eða aldrei sleppa því taki
sem hann hefði einu sinni náð ef
til þess kæmi að hann þyrfti á því
að halda. Bjarni bjó yfir fyndni og
léttum húmor, sem hann sjaldan
lét í ljósi, en léti hann þessa hæfi-
leika njóta sín gat hann fært það
skoplega í skemmtilegan búning.
Smá atvik og orðatiltektir geta
verið efniviður í góðlátlegt grín
hjá þeim, sem kunna með það að
fara.
Fyrir tuttugu árum giftist
Bjarni konu frá Ventspils í Lett-
landi, Anitu að nafni. Anita kom
hingað frá Þýskalandi 1949. En til
Þýskalands flúði hún frá Lett-
landi, áður en Rússarnir hertóku
Eystrasaltslöndin. Anita er mikil
myndarkona, talar ágæta íslensku
og bjó manni sínum fallegt heim-
ili, þar sem Bjarni átti hvíld og
frið frá annríki líðandi stundar.
Þau lifðu í ástríku hjónabandi og
var sambúð þeirra hin besta. An-
ita segir að Bjarni hafi verið mjög
góður heimilisfaðir og sér frábær
eiginmaður. Áður hafði Bjarni
verið í sambúð og átt með þeirri
konu fjögur börn. Þau eru í ald-
ursröð: Sigurjón, bifvélavirki,
vinnur hjá Bifreiðaeftirliti ríkis-
ins, giftur Gyðu Halldórsdóttur.
Þau eiga heima í Asparfelli 4.
Þórður, verslunarmaður, giftur
Önnu Jónsdóttur. Býr í næstu íbúð
við Anitu í Þórufelli 18. Guðmund-
ur, verslunarmaður, giftur Mar-
gréti Matthíasdóttur. þau búa á
Marbakkabraut 36, Kópavogi.
Hafdís, gift Ihonny de Santos,
búsett á Ítalíu. Barnabörnin eru
orðin níu að tölu.
í mörg ár bjuggu þau Bjárni og
Anita á Hlíðarenda við Reykja-
nesbraut, þar höfðu þau húsnæði
hjá knattspyrnufélaginu Val, en
sáu jafnframt um félagsheimilið.
Á þeim árum varð Bjarni sextugur
og í tilefni dagsins bauð hann
okkur starfsbræðrum á BSR
ásamt vinum og vandamönnum í
stórveislu, þar sem borð voru
hlaðin gómsætum veitingum. Það
leyndi sér ekki að Bjarni naut þess
að bjóða gesti velkomna og þakka
fyrir sig að veislu lokinni. Þarna
sá ég nýja hlið á Bjarna. Mynd-
arskapurinn og gestrisnin réðu
ríkjum. Svipurinn hlýr og viðmót-
ið vermdi.
Áður hafði ég komist í kynni við
reisn og myndarskap þeirra hjóna.
Þá bjuggu þau vestur í bæ. Ég var
að fara heim að kvöldlagi, hættur
vinnu. Þá var ég kallaður upp og
beðinn að koma heim til þeirra,
sem ég gerði og sá ekki eftir. Þar
beið mín og annarra hlaðið veislu-
borð, sem gaman var að njóta. Þá
fann ég vel að ég naut vináttu
Bjarna, þó hann flíkaði þvi ekki í
daglegri umgengni. Leiðir skilur,
margar minningar streyma fram
úr fylgsnum hugans, þó ekki verði
þær skráðar á blað. Ég tel mig
standa í þakkarskuld við látinn fé-
laga, sem hvorki brást mér né öðr-
um þegar á reyndi. Ég flyt kveðju
og þakkir frá bifreiðastjórunum á
BSR fyrir gott samstarf á liðnum
árum.
Ég bið algóðan Guð að veita eig-
inkonu hans og börnum huggun og
þrek í þungri raun. Megi birtan og
kærleikinn frá fæðingarhátíð
frelsarans og geislar frá skini
hækkandi sólar signa leið hans
inn á þá eilífðarbraut sem kallað
hefur hann frá jarðnesku lífi til
æðri starfa. Hafi hann þökk fyrir
langa samfylgd.
Jakob Þorsteinsson