Morgunblaðið - 22.01.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.01.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 21 Sigurður Þorvaldsson á Sleitustöðum tíræður Bæ, Höfðaströnd, 17. janúar. Merkismaður hér í Skagafirði á nú 100 ára afmæli 23. þessa mánaö- ar. Hann er Sigurður Þorvaldsson, fyrrverandi hreppstjóri á Sleitustöö- um í Hólahreppi. Hann er fæddur á Miöhúsum í Álftaneshreppi á Mýr- um. Sigurður gekk til Flensborg- arskóla 1904 og tók kennarapróf þaðan 1905. Þá fór hann í lýðhá- skólann í Askov 1907 til 1908 og tók kennaranámskeið þaðan 1908. Á kennaraháskóla var hann í Kaupmannahöfn 1908 og 1909, en kennari við Hvítárbakkaskóla í Borgarfirði var hann 1905 til 1907. Við barna- og unglingaskólann á ísafirði kenndi hann frá 1910 til 1916, en 1914 kvæntist hann Guð- rúnu Sigurðardóttur frá Víðivöll- um í Skagafirði, og keypti um það leyti stórbýlið Sleitustaði í Hóla- hreppi og fór að búa þar. Hélt hann þó áfram kennslu með bú- skapnum, til dæmis í Óslandshlíð og Hólahreppi, en einnig á Hest- eyri við Isafjarðardjúp og Hey- dalsá í Strandasýslu 1939 til 1944, og á Skagaströnd í Húnavatns- sýslu 1944 til 1953, en þessi kenn- araár hans stjórnaði kona hans að töluverðu leyti stórbúinu á Sleitu- stöðum. Hreppstjóri varð hann 1928 í Hólahreppi en hætti því 1978 eða eftir 50 ár. í fjöldamörg ár var hann í hreppsnefnd og formaður búnaðarfélags hrepps- ins. Vegna glöggskyggni hans á tölur voru honum falin ýmiss kon- ar endurskoðunarstörf, þar á með- al endurskoðun reikninga Kaupfé- lags Austur-Skagfirðinga í 16 ár. Sigurður var, og er enn, 100 ára, einn af þeim mönnum, sem tekið er eftir. Hár maður, beinn í baki, skemmtinn og skýr í tali. Fram- kvæmdamaður var hann mikill, til dæmis byggði hann líklega fyrstu vatnsaflsstöðina í Skagafirði til heimilisnota. Hann hætti þó of snemma búskap að manni finnst, eða 1960, eftir 46 ára búskap og þá tóku börn hans við jörðinni. Fáir ferðamenn fara svo um Skaga- fjörð að þeir kannist ekki við Sleitustaði og margir ókunnugir, sem fara um vegi, rugla saman Sleitustöðum og Hólum í Hjalta- dal vegna þess hve myndarlegt er þar heim að sjá. Sigurður og Guðrún, sem hann hefur nú misst, eignuðust 12 börn, en misstu fjögur ung. Afkomendur munu nú vera 63. Hann dvelur nú sem stendur á Sjúkrahúsi Sauð- árkróks, en er sem fyrr beinn og hressilegur, hann sér og hreyrir mjög sæmilega en er farinn að tapa minni. Það má geta þess, að Sigurður stjórnaði mikið til uþp- greftri í snjóflóðunum á Sviðningi í Kolbeinsdal 23.12. 1925, en þá fórust fjórar manneskjur. — Björn Glæsileg boröstofuborð og stólar Stök borð - stakir stólar eða samstætt - Spurningin er bara hvað þú vilt? Þetta er sýnishorn af úrvalinu. Sumt er til - sumt er á leiðinni, svo getur líka þurft að panta eitthvað. ÞÚ GENGUR AÐ GÆÐUNUM VÍSUM. - OG GÓÐUM GREIÐSLUSKILMÁLUM. Sérverslun með listræna húsmuni Borgartúni 29 Sími 20640 LA BARCA LA ROTONDA IL COLONNATO

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.