Morgunblaðið - 22.01.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
43
Jóna Jónsdóttir Ekkju-
fellsseli - Kveðja
Þú sefur — grasið grær á leiði þínu,
í grennd við blettinn, sem þér helgur var,
og fjöllin halda vörð í veldi sínu:
í værð um eilífð skaltu hvíla þar.
(S.J.J.)
Um áramót hvarflar hugurinn
oft til liðinna stunda og horfinna
vina og samferðamanna. Um sl.
áramót dvaldi hugur minn gjarn-
an við minningar, sem tengdar eru
ágætri vinkonu og velgerðarkonu
minni frá unglingsárunum, Jónu
Jónsdóttur í Ekkjufellsseli í Fell-
um. Jóna í Ekkjufellsseli eins og
hún var venjulega kölluð hafði
vistaskipti nokkrum dögum áður
en ljóssins hátíð gekk í garð í
þessum dimma jarðheimi okkar
mannanna barna. Ég er þess full-
viss að þá hefur þessi aldna vin-
kona mín fæðst inn í annan og
bjartari heim og uppskorið þar
eins og hún sáði á langri ævibraut.
Ég heyrði vitran mann einu sinni
segja að dýrðlegasta stund jarð-
nesks æviskeiðs göfugs manns eða
konu, væri dánarstundin.
í þessu tilefni minntist hann
andláts góðrar, aldraðrar alþýðu-
konu, sem hann hafði verið við-
staddur. Hann gat þess í leiðinni
að þessi kona hefði unnið öll sín
störf með stakri þjónustulund, en
aldrei hugsað um laun eða viður-
kenningu fyrir þjónustustörf sín
eða sóst eftir metorðum í þjóðfé-
laginu. Þessi lýsing finnst mér
mjög vel eiga við Jónu heitna.
Hún var ein af þessum góðu,
hjartahlýju og skylduræknu al-
þýðukonum, sem í engu mátti
vamm sitt vita. Nú á tímum vel-
megunar og efnishyggju, á yngra
fólk sjálfsagt erfitt með að skilja
þessa manngerð. En við stöndum í
þakkarskuld við þessa verklúnu
kynslóð, sem með bjartsýni og
kjarki byggði upp atvinnuvegi
landsins og bjó í haginn fyrir
okkur nútíma fólk.
Kynni mín af heimilinu í Ekkju-
fellsseli hófust fyrir 37 árum. Þá
stundaði ég nám við Eiðaskóla
ásamt tveimur elstu dætrum
þeirra Ekkjufellsselshjóna. í helg-
arfríi var ég fyrst boðin heim í
Ekkjufellssel með annari systur-
inni. Þessi heimsókn er mér enn í
fersku minni og síðan hefi ég allt-
af verið velkomin þangað og verið
fagnað eins og ég væri ein af börn-
um þeirra Jónu og eftirlifandi
manns hennar, Einars Sigur-
björnssonar. Nú slær ævintýra-
Ijóma á margar glaðværar stund-
ir, sem ég átti með þessari ágætu
fjölskyldu. Að koma f Ekkju-
fellssel var alltaf ánægjulegt.
Hjónin bæði mannkosta fólk,
nokkuð ólík, en bættu hvort annað
upp á margan hátt. Bæði voru þau
höfðngjar heim að sækja og fljót
var Jóna að töfra fram veisluborð
án fyrirvara ef gest bar að garði.
Gamall einstæðingur, sem víða
hafði verið og var um tíma vinnu-
maður í Ekkjufellsseli, sagðist
mega segja að Jóna í Ekkjufells-
seli væri sú allra besta matmóðir,
sem hann hefði átt og geta sjálf-
sagt margir tekið undir þessi orð
hans. Þó veitingarnar væru höfð-
inglegar var viðmót og vinskapur
fjölskyldunnar mér dýrmætari.
Börn þeirra hjóna eru fimm.
Elst er Sigurbjörg húsmæðra-
kennari, búsett í Reykjavík, ekkja
og á tvo uppkomna syni. Margrét
húsmóðir f Egilsstaðakauptúni,
gift Magnúsi Þórðarsyni, eiga þau
eina dóttur. Guðrún, sem látin er
fyrir 16 árum, átti einn son. Bald-
ur byggingatæknifræðingur
kvæntur Svölu Eggertsdóttur,
búsettur í Fellnabæ. Yngst er
Bryndfs starfsstúlka við Vonar-
land, Egilsstöðum er hún búsett
heima í Ekkjufellsseli. Þá ólu þau
Ekkjufellsselshjón upp dótturson
sinn Einar ólafsson, son Guðrún-
ar.
Jóna var mjög vel gerð kona
bæði skarpgreind og vel verki far-
in. Hún vann verk sín í hljóði og
var alltaf viðbúin, ef einhver ann-
aðhvort af fjölskyldunni eða
kunningjunum þurftu á hjálp eða
hollráðum að halda. Viðmót henn-
ar var rólegt og tiginmannlegt svo
öllum leið vel í návist hennar og
ekki síst ungdómnum, sem oft var
í kringum hana.
Jóna stundaði nám við Kvenna-
skólann í Reykjavík, þegar hún
var ung. Þótti það góð menntun í
þá daga. Að loknu námi var hún
barnakennari í nokkur ár í Jök-
uldalshreppi eða þar til hún gekk í
hjónaband. Ef Jóna hefði verið
ung núna, hygg ég að hún hefði
gengið menntaveginn og vel hefði
hún verið fallin til forustu f hverri
þeirri stöðu eða stétt, sem hún
hafði valið sér, sökum mannkosta,
vits, og allrar framgöngu. Ég man
ekki til að ég hafi nokkru sinni
heyrt Jónu hallmælt eða háðsyrði
falla í hennar garð. Það segir sína
sögu hvaða vinsælda og virðingar
hún naut meðal samferðamanna
sinna. Jóna var aldrei rík af ver-
aldlegum auðæfum, en hún var rík
af innra auði, þar var hún fremst
meðal jafningja og af þeim auðæf-
um miðlaði hún óspart til þeirra
sem á þurftu að halda í hret-
viðrum lífsins.
Nú er löngum farsælum starfs-
degi lokið og margs að minnast,
bæði sorgar og gleði, sem á vegin-
um urðu, en öllu var tekið með
jafnaðargeði. Eiginmaðurinn og
afkomendurnir eiga góðar minn-
ingar um hina látnu eins og við
allir heimilisvinirnir í Ekkju-
fellsseli eigum líka.
Ég sendi fjölskyldunni mfnar
dýpstu samúðarkveðjur og þakka
Jónu alla þá ástúð og vináttu, sem
ég varð aðnjótandi gegnum árin
og bið henni guðsblessunar á nýju
tilverustigi.
Guðrún I. Jónsdóttir
Mrtsölubkk) á hverjum degi!
*SSnVMI//n£’/7
1
HIN MARGEFTIRSPURÐA
SV-328 TÖLVA MEÐ 80 KB MINNI OG
VÖNDUÐUSTU GERÐ AF LYKLABORÐI:
VERÐ KR: 17.625.-
SV-318 TÖLVA MEÐ 32 KB MINNI OG
INNBYGGÐUM STÝRIPINNA:
VERÐ KR: 11.640.-
SV-101 QUICKSHOT STÝRIPINNI f/ SPECTRA VIDEO,
ATARI COMMODORE, SPECTRUM OG FL.
VERÐ KR: 495.-
MEÐ HVERRI SPECTRA-VIDEO TÖLVU FYLGIR
SPECTRA HOME ECONOMIST -
BÓKHALDSKERFI FYRIR HEIMILIÐ,
INTROUDUCTION TO BASIC - KENNSLUFORRIT í BASIC
OG TVEIR SPENNANDI LEIKIR.
STÝRIKERFIÐ CP/M 2,2 ER FÁANLEGT OG
CP/M PLUS (v.3). VERÐUR FÁANLEGT.
GÍFURLEGT ÚRVAL AF ALLSKYNS NOTENDAFORRITUM
ER TIL Á MARKAÐNUM FYRIR CP/M STÝRIKERFIÐ
ENDA ER ÞAÐ LANG MEST NOTAÐA STÝRIKERFIÐ
FYRIR LÍTIL VIÐSKIPTATÖLVUKERFI.
fKTV Bókabúö
l^Braga
TÖLVUDEILD V/HLEMM SÍMI: 29311
Karhu Multigrade jskíöin
eru „uppfinning aldarinnar“
FYRIR GALVASKA
FYRIR FJALLAGARPA
Þyngd 650 gr. Verð
kr. 3.759,-
Ný Karhu Multigrade
stálkantaskiöin slá f
gegn. Kr. 3.796,-
Breidd 62—52—57.
Stærðir 190—220 cm
FYRIR ALLA VENJULEGA
Multigrade 52 mm.
Stærðir 180—215 cm.
Kr. 2.410 -
** r
diunuF
Glæsibæ, simi 82922.