Morgunblaðið - 22.01.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.01.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR1984 29 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON tekna. En það sem umfram er samið hverju sinni þarf að sækja sem lán utan (og þau kosta sitt) eða eyðist í verð- bólgu (gengislækkun og smækk- un krónunnar). Það þarf ekki síður að sækja á kostnað rekstr- aröryggis (og um leið atvinnu- öryggis) og samkeppnisstöðu ís- lenzkrar framleiðslu. Ekki mun skorta kröfugerð — og þá máske fyrst og fremst frá þeim sem fjarst standa framleiðsl- unni. Fjármálaráðherra mun vænt- anlegga leggja áherzlu á af- greiðslu lánsfjárlaga og fjár- festingaráætlunar, sem ekki vannst tími til að afgreiða, sam- hliða fjárlögum, í atinu og önn- unum fyrir Jólin. Alþingi hefur ekki gert hreint fyrir sínum dyrum, hvað ríkisbúskapinn varðar, fyrr en þessi mál eru frá, auk þess sem þau eru hag- stjórnartæki ásamt fjárlögun- um. Fjármálaráðherra mun jafn- framt fylgja fram skattafrum- vörpum, sem fyrir liggja, og eiga m.a. að ýta undir innlend- an sparnað og stýringu hans til þátttöku í atvinnulífinu. Frum- vörp þessu eru stefnumarkandi í þá átt að efla atvinnulíf og gera það óháðara erlendu fjár- magni. Þessi frumvörp spanna miklu stærra mál en í fljótu bragði sýnist. Þau eru í stuttu máli viðleitni til að snúa vörn í sókn í brauðstriti þjóðarinnar. Félagsmálaráðherra mun og væntanlega leggja áherzlu á af- greiðslu stjórnarfrumvarps um húsnæðismál þegar á fyrstu vikum þings. Húsnæðismál vóru hornreka á liðnu kjörtímabili. Sú hreyfing sem á þeim var hjá fyrri stjórnvöldum var frekar aftur á bak en áfram. Þessi málaflokkur tengist og kjara- vettvangi, þar sem veðurspá er óljós. Það má því búast við að hann hafi einhvern forgang í þingstörfum. Síðast en ekki sízt skal nefna frumvörp til stjórnarskrár- og kosningalaga, sem fjórir flokk- ar standa efnislega að og draga eiga úr misvægi atkvæða eftir búsetu. Þetta er mannréttinda- mál, sem ekki verður komizt hjá að afgreiða skjótt og skilmerki- lega. Það er ekki eftir sem af er, segir máltækið. Þau mál, sem hér hefur lausl- ega verið ýjað að, koma senni- lega til kasta Alþingis þegar á fyrstu starfsvikum. Annars er líklegt að Alþingi fari hægt af stað, það er eðli þess og vani, og vaxi ekki verulega ásmegin fyrr en sól hækkar meir á lofti. Sá mikli vandi, sem grúfir yfir þjóðarbúskapnum, knýr þó á um meðhöndlan, og vonandi ber þingið gæfu tií samstöðu við björgunarstörfin. Stjórn og stjórnarandstaða eru lýðræðis- leg fyrirbrigði sem góð eru til síns brúks (að vísu misgóð eins og gengur) en þegar býður þjóð- arsómi þarf að tvinna þau sam- an í haldreipi, líftaug, í þágu heildarinnar. Þetta tókst á Al- þingi árið eitt þúsund. Það er kominn tími til að fá hliðstæðu þess atburðar í þjóðarsöguna! Nemendahljómsveit Tónlistarskóla FÍH. Standandi frá vinstri: Rúnar Gunn- arsson, Magnús Sigurðsson, Jón Borgar Loftsson og Hjalti Gíslason. Sitj- andi: Davíð Guðmundsson og Ari Haraldsson. Djamm-session Jazz- klúbbs Reykjavíkur í dag Nýstofnaður Jazzklúbbur Reykja- víkur tekur til starfa með djamm- sessjón á sunnudaginn, 22. janúar, kl. 3. Leikið verður í veitingastaðn- um Kvosinni í byggingu Nýja bíós. Nemendahljómsveit frá Jazz- deild Tónlistarskóla Félags ís- lenskra hljómlistarmanna hefur djammið, og verður sá háttur á framvegis að hljómsveitir úr þess- um nemendahópi byrja hverja sessjón Jazzklúbbsins. A sunnudaginn verða tvær hljómsveitir aðrar á dagskrá. Hjá Kristjáni Magnússyni og félögum leikur fyrirliðinn á píanó, Þorleif- ur Gíslason á tenór-saxófón, Árni Scheving á bassa og Sveinn óli Jónsson á trommur. Þriðja hljómvseitin er tríó, þar sem Guðmundur R. Einarsson leikur á trommur, Guðmundur Ingólfsson á píanó og Skúli Sverr- isson á bassa. Au\ún þjónusta í aóalbanka ogíöllumútibúum: Gialdeyris - J afgieiösla Við önnumst nú alla algengustu gjaldeyrisþjónustu: Kaup og sölu á ferðamannagjaldeyri, sölu námsmannagjaldeyris, stofnun innlendra gjaldeyrisreikninga og útgáfu VISA greiðslukorta. Iðnaðaibankinn Reykjavík: Aðalbanki, Lækjargötu 12 Breiðholtsútibú, Drafnarfelli 16-18 Laugarnesútibú, Dalbraut 1 Grensásútibú, Háaleitisbraut 58-60 Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3 Garðabær: v/Bæjarbraut Hafnarfjörður: Strandgötu 1 Selfoss: Austurvegi 38 Akureyrí: Geislagötu 14 Að þessu sinni skipa Nemenda- hljómsveit Tónlistarskóla FÍH þeir Ari Haraldsson á tenór-saxó- fón, Magnús Sigurðsson á bassa, Hjalti Gíslason á trompet, Rúnar Gunnarsson á baritón-saxófón, Jón Borgar Loftsson á trommur og Davíð Guðmundsson á gítar. Auk þessara fyrirframákveðnu hljómsveita er ætlunin að hafa sama hátt á og forðum í Breiðfirð- ingabúð, að hver sem vill komast í djammið hafi með sér hljóðfæri, og verði þeir fleiri en rúmast á einni sessjón, verður skráð á bið- lista fyrir þá næstu. Askriftarsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.