Morgunblaðið - 22.01.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
37
magnara. Jói sagðist hins vegar allt-
af hafa átt trommusett. „Þaö er ekki
haegt að vera í hljómsveit og eiga
ekkert til aö spila á.“ Orð aö sönnu.
Nýir menn,
ný tónlist
— Nú hefur Q4U nónast skipt
um tónlist með vissu millibili, nán-
ast kúvent í hvert skipti, er þetta
hljómsveit harðsvíraðra tœkifær-
issinna?
„Viö höfum kannski ekki alveg
skipt um tónlist, en hún hefur vissu-
lega tekiö heilmiklum breytingum á
þeim þremur árum, sem hljómsveitin
hefur starfaö." Enn var þaö Gunnþór
sem svaraði. Ellý var líka að stússa
viö kaffihitun og annaö slíkt og mátti
ekki meira en svo vera aö þvi aö
spjalla framan af. „Viö erum búin aö
þjóta í gegnum alls kyns tímabil á
þessum tíma. Maöur hlær alltaf
meira og meira aö því, sem viö gerö-
um fyrst, en samt var þaö kannski
skemmtilegasta tímabiliö. Þá vorum
viö ný og fersk og laus viö aö þurfa
að sneiða hjá endurtekningum. Því
er ekki hægt aö neita, aö núna erum
viö alltaf aö reyna aö foröast endur-
tekningu eins og allir reyndar. Þaö
veröur bara alltaf erfiöara og erfið-
ara því stundum hefur maöur óneit-
anlega á tilfinningunni, aö búiö sé aö
gera þetta allt saman milljón sinnum
áöur."
— Hvernig tónlist er það þá,
sem Q4U kemur fram með loksins
þegar ftokkurinn aetlar aö efna til
tónleika á ný?
„Þetta er diskó." Þaö var Jói, sem
varð fyrstur til aö svara. „Kannski
ekki diskó," sagöi Gunnþór, „en
eitthvaö i þá áttina. Viö viljum ekki
að Q4U veröi eitthvert diskóband."
Upp úr þessu þróaöist spjalliö inn
á aörar og e.t.v. frjálslegri brautir um
stund. Menn kepptust viö aö úthúöa
rás 2, sögöu hana flytja sömu niöur-
suöutónlistina og áöur heföi heyrst í
gamla gufuradíóinu. Munurinn væri
bara sá, aö núna glymdi þessi tónlist
á báðum rásunum. „Maöur er eigin-
lega farinn aö fagna þvi aö hafa þó
alltént rás 1, áöur kvartaði maöur og
kveinaöi yfir fábreytninni," sagöi
Gunnþór.
Plata meö vorinu
— Stendur ekkert til að gefa út
aöra plötu?
„Jú, þaö er nú takmarkið aö gefa
út aöra plötu meö vorinu. Hvenær
þaö veröur nákvæmlega er erfitt aö
segja til um. Viö viljum gefa okkur
góöan tíma, viljum ekki flana aö
neinu núna. Höfum gengiö í gegnum
svo mörg flipp og látum okkur þau
aö kenningu verða. Reynum þaö
a.m.k.
— Er ekki hætta á að hljóm-
sveitin leysist upp úr því menn
hafa ekkert almenniiegt fyrir stafni,
eru t.d. ekkert að spila?
„Nei, ekki úr þessu. Stefnan er sú,
aö koma heldur ekki fram á tónleik-
um fyrr en viö höfum náð aö flytja
nákvæmlega þaö á sviöi, sem viö
erum aö gera á plötu. Þaö hefur vilj-
aö loöa við Q4U að klúöra „sándinu"
alla tíö. Viljum þvo þann stimpil af
okkur í eitt skipti fyrir öll. Þetta
„sándpróblem" var draugur, sem
fæddist um leið og hljómsveitin og
hefur fylgt henni æ síöan." Eigendur
þessara ummæla voru þau fjögur í
sameiningu.
— Eitt í lokin. Úr því enga pen-
inga er upp úr þessu að hafa, tómir
erfíðleikar fylgja þessu og skuldir
hlaðast upp, hvers vegna er sveit
eins og Q4U aö basla áfram?
„Þaö er þráinn og ekkert annaö
en þráinn, sem heldur okkur gang-
andi," sagöi Gunnþór. „Þaö eru svo
margir, sem vildu hafa óskaö þess
aö viö værum löngu hætt, en viö
ætlum ekki aö láta undan óskum
slíks fólks. Þaö er nefnilega alltaf
svo, aö um leið og hljómsveitir detta
úr sviðsljósinu hrynja „vinirnir" úr
hópnum eins og lýs af höföi. Viö vilj-
um sanna þaö fyrir okkur, og þá ekki
síöur þessum „vinum", að við getum
spjaraö okkur án þeirra. Bíöiö bara
og sjáiö. Þetta veröur „devastating"
loks þegar við mætum á sviö aö
nýju.“
Vinsældalisti Járnsíöunnar
og Tónabæjar:
Snákabandalagió
heldur enn lífi
Tónabæjarfólkið
valdi engan lista (
síöustu viku. Öllu
liöinu var nefnilega
boöið í bíó. Hins
vegar mætti liöið
galvaskt til leiks í
þessari viku og
valdi þá sameigin-
legan lista Járnsíð-
unnar og Tónabæj-
ar í 10. sinn. Við
skulum ekki dvelja
lengur við formál-
ann heldur vinda
oss rakleiöis í nýj-
ustu tölur:
1 ( -) New Dim-
ension/IMAGINAT-
ION
2 ( 6) Owner of a
Lonely Heart/YES
(3)
3 ( -) Where Is My
Man/EARTHA KITT
4 ( -) Talking in
Your Sleep/ROM-
ANTICS
5 ( -) That’s All/
GENESIS
6 ( 8) Union of
The Snake/DURAN
DURAN (8)
7 ( 1) Say It Isn’t
So/HALL OG
OATES (4)
8 ( 4) That Was
Then But This Is
Now/ABC (3)
9 ( 3) Love of the
Common People/
PAUL YOUNG (3)
10 ( 2) Hold Me
Now/THOMPSON
TWINS (2)
Fjögur ný lög
komust inn á listann
aö þessu sinni. Þau,
sem duttu út, voru
Heart and Soul meö
Huey Lewis, A Matt-
er of Time meö
BARA-Flokknum,
Promises, Promises
meö Naked Eyes og
It’s a Jungle out
There meö Bone
Symphony. Tvö þau
fyrsttöldu geröu
stuttan stans, en
Naked Eyes náöu 4
vikum á listanum og
Beinasinfónían 5
vikum.
Þaö markverö-
asta viö þennan lista
er auövitaö þaö, aö
Duran Duran jafnaöi
met þeirra félaga
Paul McCartney og
Michael Jackson
meö áttundu vikunni
sinni á listanum. Lifi
snákabandalagiö!
Simon Le Bon, söngvari Duran Duran.
„Á vængjum söngsins“:
Tónleikar á Austfjörðum
Sigrún Gestsdóttir, söngkona, Einar
Jóhannesson, klarinettleikari, og
David Knowles, píanóleikari, halda
tónleika í Austfjörðum undir yfir-
skriftinni „A vængjum söngsins”,
mánudaginn 23. og þriðjudaginn 24.
janúar nk.
■ Fyrri tónleikarnir verða á Seyð- Neskaupstað og spila fyrir nem-
isfirði mánudaginn 23. janúar og endur.
hefjast kl. 20.30, og á þriðjudag
verða tónleikar á Neskaupstað kl. Á efnisskránni eru verk eftir ís-
21.00. Auk þess munu tónlistar- lensk tónskáld, Mozart, Schumann
mennirnir heimsækja tónlistar- og Schubert, m.a. Der Hirt auf
skóla á Reyðarfirði, Eskifirði og dem Felsen.
Okkur er það einstök ánægja að geta nú boðið viðskipta-
vinum okkar upp á almenna gjaldeyrisþjónustu s.s.:
• stofnun inniendra gjaldeyrisreikninga
• afgreiðslu ferðamanna- og námsmannagjaldeyris
• útgáfu Eurocard kreditkorta
auk allrar almennrar bankaþjónustu.
VŒZIUNRRBRNKINN
Bankastræti og Húsi verslunarinnar.