Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
Alþingi í skugga aflabrests:
„Rekstrargrundvallarræfillinn“
Þungavigtarfyrirbæri í þjóðarbúskapnum
Þorskurinn er þungavigtarfyrirbæri í þjóðarframleiðslu, þjóðartekjum og lífskjönim íslendinga. Sá harði gjaldeyrir sem
við greiðum innfluttar nauðsynjar með, innflutta fjárfestingu, erlendar skuldir og utanferðir, svo fátt eitt sé nefnt, er að
bróðurparti frá honum kominn. Hann hefur og sett það strik í reikning þjóðlífsins sem verður helzti höfuðverkur
landsfeðra þá þing það hefur störf sem kemur úr „fríi“ á morgun.
Hver verða
verkefni
Alþingis
fyrstu þing-
vikurnar
Alþingi sem hefur störf á
morgun kemur saman við ríkj-
andi óvissu í efnahags-, at-
vinnu- og kjaramálum. Þing-
störfin munu væntanlega
mótast af þessum vanda sem
rætur á í aflasamdrætti með til-
heyrandi áhrifum á atvinnu
fólks og þjóðartekjur, sem og
framvindu í samningum aðila
vinnumarkaðarins.
Alþingi fslendinga kemur
saman til starfa á morgun,
mánudag, eftir drjúglangt jóla-
frí.
Flestir þingmenn, einkum
strjálbýlisþingmenn, hafa að
hluta til varið þessu „fríi“
heima í kjördæmum sínum,
bæði til að gera umbjóðendum
grein fyrir þingstörfum það sem
af er vetri, hver frá sínum sjón-
arhóli séð, og heyra grasrót-
arhljóðið, ef nota má það ný-
tízkulega orð.
Ráðherrar hafa væntanlega
notað tímann vel til að fara
ofan í sauma á viðfangsefnum,
sumum stórum og vandmeð-
förnum, bæði n;eð svokölluðum
hagsmunaaðilum og sérhæfðu
starfsliði ráðuneyta, og til að
samræma sjónarmið og styrkja
samstöðu stjórnarþingmanna
og flokka. Ekki hefur af veitt að
kortleggja stefnuna, hvern veg
sigla skuli ýmsum örlagamálum
fram hjá skerjum sundurlyndis
— í meðförum Alþingis — og
heilum í höfn.
Alþingi kemur að þessu sinni
saman í skugga mikillar óvissu.
Óvissuþættirnir snerta einkum
efnahags-, atvinnu- og kjara-
mál.
Það hefur að vísu tekizt að
keyra verðbólguna niður, og það
er vel. Óvissan í framvindu
kjarasamninga setur hinsvegar
stórt spurningarmerki aftan við
þá staðhæfingu. Það er mjög
auðvelt að glutra niður þeim
árangri, kveða upp verðbólgu-
drauginn og magna hann meira
en nokkru sinni. Og satt bezt að
segja hefur okkur íslendingum
tekizt slíkur gjörningur oftar og
„betur" en flestum öðrum.
Það tókst að koma á kvótalög-
um síðla aðventu. Útfærslan er
hinsvegar hulin almannasjón-
um, ef hún liggur þá fyrir, og
uggur er víða í útvegi af þeim
sökum. Og svo er það „rekstr-
argrundvallarræfillinn", eins og
Skúli Alexandersson, alþingis-
maður, komst svo hnyttilega að
orði; hann er enn ófundinn.
Aflasamdráttur sá sem við
blasir 1984 eykur ekki líkur á að
hann finnist, né ófrágengnir
kjarasamningar. Sterkar líkur
benda og til aukins atvinnuleys-
is ef fer sem horfir um afla-
brögð.
Sjávarútvegsdæmið vegur ef-
laust þyngst í hugum manna,
þegar hugsað er til þingstarfa
sem fram undan eru. Úr því
dæmi fær þjóðin þrjá fjórðu út-
flutningsverðmæta sinna og
gjaldeyristekna. Þjóðartekjur,
sem lífskjörum ráða í raun, eru
að drýgstum hluta sjávarfang.
Það er hægt að gera kjarasamn-
inga út fyrir ramma þjóðar-
Kynningarfundur
Rósarkrossreglunnar
Rósarkrossreglan heldur kynn-
ingarfund fyrir almenning þriðju-
daginn 24. janúar nk. Fundurinn
verður haldinn í Bolholti 4, 4. hæð,
og hefst klukkan 20:30. Fluttur
verður fyrirlestur og fólki gefinn
kostur á að bera fram fyrirspurnir.
Rósarkrossreglan er hreyfing
með mannræktarsjónarmið að
leiðarljósi, og vill stuðla að bættu
heilbrigði, hamingju og friði
mannkynsins. Rósarkrossmenn
leggja áherslu á, að hamingja
framtíðarinnar veltur á, hvað við
gerum hér og nú fyrir aðra, sem og
fyrir okkur sjálf.
í öðru lagi er markmið reglunn-
ar að gera mönnum kleift að lifa
hreinu, heilbrigðu og óspilltu lífi.
Vera frjáls og óbundnir af þján-
ingum, sem komast má hjá með
þekkingu Karma-lögmálsins.
Starfsemi reglunnar byggist á
fræðslu, námi og rannsóknum á
þeim efnum, er taka til lögmála
náttúrunnar og hins guðlega.
Markmiðið er að gera félagsmenn
þess umkomna að veita hjálp,
meiri en ella, þeim sem þarfnast
eða óska hjálpar og aðstoðar.
Allir félagar eru skuldbundnir
til að inna af hendi óeigingjarna
þjónustu, án nokkurrar vonar um
annan ábata en að uppskera auk-
inn eigin þroska, og að vinna að
undirbúningi sjálfra sín fyrir há-
leit ætlunarverk. — Þá gefst föst-
um félögum kotur á heimanámi.
Námsefnið er m.a. á ensku,
dönsku, sænsku, þýsku og
frönsku.
Þeir sem óska nánari upplýs-
inga varðandi þetta nám, geta
snúið sér beint til Rósarkrossregl-
unnar.
(FrétUtilkynning)
Ný vöruafgreiðsla
Þeim sem senda okkur vörur úr Reykjavík skal bent
á, aö viö önnumst alla flutninga sjálfir. Frá 1. janúar
1984 flyst vöruafgreiðsla okkar af Vöruflutninga-
miöstööinni á afgreiöslu
Landflutninga hf.
Skútuvogi 8,104 Reykjavík.
Sími 84600.
Önnumst einnig vöruflutninga fyrir aöra aöila á leiö-
inni
Reykjavík — Borgarnes
Daglegar feröir eru frá okkur á flesta bæi í Borgar-
firöi og á sunnanverðu Snæfellsnesi.
KAUPFELAG BORGFIRÐINGA
Borgarnesi.