Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
Ur heimi
kvikmyndanna
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Flestum mun hafa ofboðið
ósvífni kapalkerfiseigendanna í
Breiðholtinu sem sýndu hina um-
töluðu mynd The Day After í
hundruðum heimilistækja fáein-
um dögum áður en myndin var
frumsýnd í Bióhöllinni. Tjón eig-
enda sýningarréttar myndarinnar
hérlendis (Bíóhallarinnar) er
geysilegt og þá ekki ólíklegt að
ríkiskassinn hafi tapað á þessum
eina glæp hátt á annað hundrað
þúsund krónum.
Þetta er e'itt af mörgum dæm-
um um hliðstæð brot en nú hafa
eigendur Bíóhallarinnar ákveðið
að iáta sverfa til stáls og reyna að
koma lögum yfir þessa afbrota-
menn nútímans.
Bandaríkjamenn standa nú á
öndinni yfir hugsanlegum yfirtök-
um ástralska blaðakóngsins Rup-
ert Murdochs á Warner Com-
munications, en það er einn
stærsti risinn i skemmtiiðnaðin-
um þar vestra. Á auk Warner.
Bros Warner Books og fleiri
bókaútgáfur, Mad magazine, At-
ari, New York Cosmos, fótbolta-
klúbbinn fræga, svo nokkuð sé
nefnt. Murdoch hefur þegar söls-
að undir sig nokkur stærstu blöð
Vesturheims eins og New York
Post, New York Magazine og Vill-
age Voice.
Menn eru farnir að velta því
fyrir sér hverjir séu líklegastir
Oskarsverðlaunahafar fyrir
frammistöðu sína á tjaldinu á síð-
asta ári. Þessir eru taldir koma
sterklega til greina: Sam Shepard,
The Right Stuff; Al Pacino, Scar-
face; Tom Conti, Reuben, Reuben;
Ben Kingsley, Betrayal og Micha-
el Caine fyrir Educating Rita. Þá
er Jack Nicholson talinn munu
hljóta hnossið fyrir besta leik í
aukahlutverki í einni vinsælustu
myndinni þar vestra í dag, Terms
of Endearment. Af kvenfólkinu er
Meryl Streep sigurstrangleg
vegna frábærs leiks í Silkwood,
sem jafnframt er ein mest sótta
myndin um þessar mundir.
Nú standa yfir sýningar á
myndinni Njósnabrellur (undirr.
mmihi
Heillakarlinn Jack Nicholson ku vfst stela senunni frá þeim Shirley
MacLaine (er með honum á myndinni) og Debru Winger, í einni af bestu
og vinsælustu mynd Bandaríkjamanna um þessar mundir, Terms of
Endearment.
Þeir eru margir sem telja að Meryl
Streep hafi aldrei verið betri en í
hlutverki rannsóknarblaðakon-
unnar Karen Silkwood í sam-
nefndri mynd Mike Nichols.
hefur ekki enn haft tækifæri til
að líta hana augum), en hún ætti
að snerta þjóðernisrembing okkar
dulítið, þar sem hún fjallar um
afreksmann einn ágætan sem var
Vestur-íslendingur í aðra ættina.
William Stephenson, en svo
nefndist maðurinn, gat sér góðan
orðstír í fyrri heimsstyrjöldinni
bæði á láði og í lofti. Milli stríðs-
áranna græddist honum svo mikið
fé m.a. fyrir að finna upp tæki til
að símsenda myndir.
I byrjun seinna stríðs fékk
Winston Churchill Stephenson
það erfiða hlutverk að koma á
laggirnar njósnahring sem safn-
aði m.a. upplýsingum um stríðs-
undirbúning Hitlers.
Stephenson varð síðan yfirmað-
ur leyniþjónustu Breta víða um
lönd í stríðinu og átti drjúgan
þátt i sigri bandamanna. Dulnefni
hans var Intrepid = ódeigur.
Jólaglaðningur kvikmyndahús-
anna hefur gengið einkar vel í
neytendur, með örfáum undan-
tekningum. Nánari athugun á
þessum málum yrði fullviðkvæm
fyrir okkar litlu borg svo við skul-
um líta til New York og sjá hvaða
myndir hafa gert það best þar í
jólahrotunni (og vona að enginn
móðgist!).
Einu öruggu metaðsóknar-
myndirnar eru Terms of Endear-
ment og nýjasta Clint Eastwood
— Dirty Harry-myndin, Sudden
Impact. Þær, sem allt bendir til
að virðist ætla að lenda á sömu
braut, eru Silkwood (en málið hef-
ur verið til umræðu eftir áramót-
in eftir dóm hæstaréttar Banda-
ríkjanna), Yentl, frumraun
Barbra Streisand sem leikstjóra;
Scarface, endurgerð þeirrar
frægu myndar, leikstýrt af Brian
De Palma með Pacino í titilhlut-
verki og svo svarta hrossið í hópn-
um, Uncommon Valor, hasar-
mynd með Gene Hackman og hef-
ur orðið að þola allnokkrar nafn-
breytingar, en slíkt boðar mikla
óvissu um velgengni vestur þar.
Myndir sem enn ganga vel frá
því fyrr á síðasta ári eru m.a. The
Big Chill, Return of the Jedi, Nev-
er Say Never Again og The Right
Stuff.
Spursmál er hvort þær spjari
sig, Two of a Kind, en það er nýja
myndin með John Travolta og
Oliviu Newton-John, Christine,
sem byggð er á metsölubók Steph-
en Kings og nýjasta mynd Mel
Brooks, To Be or Not to Be. Sama
máli gegnir um Star 80, nýjasta
verk Bob Fosse — gagnrýnendur
eru ánægöir en áhorfendur láta
standa á sér.
Vonbrigðum hafa valdið D.C.
Cab, Gorky’s Park, The Man Who
Loved Women (en svo er að sjá
Laugarasbio:
VIDEO-
DROME
Myndbönd hafa átt mikilli vel-
gengni að fagna hér á landi sem
annars staðar og ekki er séð fyrir
endann á þeirri þróun. En fyrir
einu og hálfu ári fékk kvikmynda-
gerðarmaðurinn David Cronen-
berg þá hugmynd að stríða „vídeó-
idjótum" eins og hann kallar þá.
Stríðni er kannski ekki rétta orð-
ið, en engu að síður gerði hann
myndina Videodrome sem er ekki
geðslegasta lýsing á fyrirbærinu
sjónvarp plús vídeóspóla. —
Laugarásbíó sýnir myndina á
næstunni.
David Cronenberg
Kanadamaðurinn David Cron-
enberg hefur gert fjórar kvik-
myndir í fullri lengd. Fyrstu tvær
voru frekar ódýrar hryllings-
myndir, „Rabid“ og „The Brood".
En með sinni þriðju mynd vakti
David verulega athygli. Sú mynd
heitir „Scanners" og er flestum
eflaust enn í fersku minni.
„Scanners" tryggði David fjár-
hagslega framtíð. Næsta verkefni
hans var „Videodrome" sem Laug-
arásbíó tekur fljótlega til sýninga
hvað á hverju. Sú mynd hlaut ekki
eins góða aðsókn og Scanners.
Engu að síður var David Cronen-
berg, en hann er um þessar mund-
Max (leikinn af James Woods) verður hluti af ógnvekjandi myndbanda-
kerfi, videodrome.
ir einn virtasti hrollvekjumeistari
kvikmyndanna, fenginn til að
leikstýra enn einni myndinni sem
gerð er eftir bók kennarans fyrr-
verandi, Stephen King, The Dead
Zone. Hún var frumsýnd skömmu
fyrir jólin og hlaut einstaklega
góða dóma.
Aðalhlutverkin í „Videodrome"
eru í höndum James Wood (hann
lék meðal annars í Holocaust og
Laukakrinum), Sonja Smits og
Deborah Harry, sem flestir
þekkja undir nafninu Blondie.
Söguþráður
Max Renn er forstjóri lítillar
sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjun-
um — Rásar 83 — sem sækist eft-
ir ýmsu sérkennilegu efni. Það er
gert til þess að skera sig úr meðal
annarra sjónvarpsstöðva og vekja
athygli á þann hátt. Þess vegna
vílar Renn ekki fyrir sér að láta
taka upp efni í heimildarleysi, t.d.
efni sem virðist langt að komiö
um gervihnetti.
Meðal girnilegs efnis af þessu
tagi er þáttur um pyntingar og
slíkt sem talinn er að komið sé frá
Malajsíu. Það tekur um 50 sek-
úndur fyrir geislann að ná frá
sendistöð til viðtækis, sem tekur
þáttinn upp. Nánari athugun leið-
ir þó í ljós að þátturinn er alls
ekki svo langt að kominn. Hann er
frá Pittsburg, sem er borg austan
til í Bandaríkjunum.
Max hefur mikinn hug á að
rannsaka þetta mál nánar, því að
þátturinn er mjög sérkennilegur.
Hann kemst í kynni við þá sem
standa að honum og verður fyrir
sérkennilegri reynslu. Sérstökum
hjálmi er komið fyrir á höfði hans
og honum sagt að hann muni
verða fyrir ofskynjunum. Síðan
ætlar viðkomandi maður, Barry
Convex að nafni, að taka segulrit-
anir af áhrifum þeim sem Max
verður fyrir, til nánari skilgrein-
ingar og könnunar. En þessi til-
raun dregur langan dilk á eftir
sér ...
sem stjarna Burt Reynolds fari nú
ískyggilega lækkandi), The Keep
og A Christmas Story.
Mér var að berast í hendur ár-
bók Variety, sem inniheldur
marga forvitnilega lista að venju.
Við skulum kíkja nánar á nokkra
þeirra. Sá frægasti er listinn yfir
vinsælustu myndir allra tima i
N-Ameríku; þá bíða menn með
óþreyju listans yfir vinsælustu
myndir síðasta árs. Og sá þriðji er
listi yfir þær myndir sem mest er
lagt í og eru í framleiðslu i dag.
Sæbjörn
Vinsælustu myndir
allra tíma í N-Ameríku
(um áramót 1983—’84)
E.T.
STJÖRNUSTRÍÐ I (Star Wars)
SrTJÖRNUSTRÍÐ III (Return of
the Jedi)
STJÖRNUSTRÍÐ II (The Empire
Strikes Back)
ÓKINDIN (Jaws)
LEITIN AÐ TÝNDA EJÁRSJÓÐN-
UM (Raiders of the Lost Ark)
GREASE
TOOTSIE
THE EXORCIST
GUÐFAÐIRINN (The Godfather)
CLOSE ENCOUNTERS ...
SUPERMAN
THE SOUND OF MUSIC
THE STING
Á HVERFANDA HVELI (Gone
With the Wind)
SATURDAY NIGHT FEVER
DELTA-KLÍKAN (National
Lampoon’s Animal House)
NINE TO FIVE
ROCKY III
SUPERMAN II
SÍÐSUMAR (On Golden Pond)
KRAMER GEGN KRAMER
REYKUR OG BÓFI (Smokey and
the Bandit)
GAUKSHREIÐRIÐ (One Flew
Over the Cuckoo’s Nest)
STIR CRAZY
AMERICAN GRAFFITI
STAR TREK
ROCKY
ÓKINDIN II (Jaws II)
FORINGI OG FYRIRMAÐUR (An
Officer and a Gentleman)
20 best sóttu myndirnar
í N-Ameríku 1983
Fyrst kemur nafn myndarinnar (innan sviga íslenskt heiti hennar
ef því er til að dreifa), siðan leikstjóri og dreifingaraðili. Tölurnar
eru innkoma myndarinnar um áramót, í milljónum dala:
1. Return of the Jedi — Stjörnustríð III, 20th-Fox 165,5 millj.
2. Tootsie, Sidney Pollack, Columbia 94,6 millj.
3. Trading Places, John Landis, Paramount 40,6 millj.
4. War Games, John Badham, MGM/UA 36,6 millj.
5. Superman III, Richard Lester, Warner Bros 36,4 millj.
6. Flashdance Adrien Lyne, Paramount 36,2 millj.
7. Staying Alive, Sylvester Stallone, Paramount 33,6. millj.
8. Octopussy, John Glenn, MGM/UA 33,2 millj.
9. Mr. Mom, Stanley Dragoti, 20th-Fox 31,5 millj.
10. 48 Hrs, Walter Hill, Paramount 30,3 millj.
11. National Lampoon’s Vacation, H. Ramis, Warner Bros 29,5 millj.
12. Risky Business, P. Brickman, WB 28,5 millj.
13. The Verdict, Sidney Lumet, 20th-Fox 26,7 millj.
14. Jaws 3-D, J. Alves, Universal 26,4 millj.
15. Never Say Never Again — Aldrei að segja aldrei aftur,
Irwing Kershner, WB 25,0 millj.
16. Terms of Endearment, J.L. Brooks, Paramount 25,01 millj.
17. The Toy, Richard Donner, Columbia 24,5 millj.
18. Gandhi, Richard Attenborough, Columbia 24,3 millj.
19. Dark Crystal, J. Henson, Universal 23,4 millj.
20. Sudden Impact, Clint Eastwood, WB 23,0 millj.
(Ath.: Margar þessara mynda eiga eftir að bæta við aðsóknina.)
Dýrustu myndirnar í fram-
leiðslu um síðustu áramót
Fyrst er nafn myndarinnar, síðan framleiðandi/dreifingaraöili og aö
lokum áætlaður framleiðslukostnaður myndarinnar:
„Dune“ (DeLaurentiis/U) ....................... $40,000,000+
„The Cotton Club“"(Evans/Orion) .................... 40,000,000+
„Greystoke, Legend Of Tarzan" (WB) ................ 40,000,000
„Once Upon A Time In America" (Wishbone/Ladd/WB) 38,000,000
„Supergirl" (Salkinds/WB) ......................... 30,000,000
„A Woman For All Time“ (Sovinfilm/Poseidon Par) .... 30,000,000+
„Ghostbusters" (Columbia) ......................... 29,000,000
„The Bounty" (DeLaurentiis/Orion) ................. 28,000,000
„Rhinestone" (20th-Fox) ........................... 28,000,000
„Indiana Jones & The Temple of Doom“
(Lucasfilm/Par) ................................... 27,000,000
„The Never-Ending Story" (Neue Constantin/WB) ..... 27,000,000
„The Black Cauldron" (Disney/Buena Vista) ......... 25,000,000
„2010: Odyssey 11“ (MGM-UA) ........................ 25,00,000
„Stick“ (U) ....................................... 22,000,000
„Ladyhawke" (WB/20th) ............................. 21,000,000
„Return To Oz“ (Disney/BV) ........................ 20,000,000
„Streets Of Fire“ (RKO/U) ......................... 19,500,000
„The Natural" (Tri-Star) ........................ 19,000,000
„A Passage To India" (Thorn EMI/Col) .............. 17,500,000
„Cannonball 11“ (Golden Harvest/WB) ............... 17,000,000
„Buckaroo Banzai" (Sherwood/20th) ................. 17,000,000
„Baby“ (Disney/Buena Vista) ....................... 16,000,000
„Star Trek III: The Search For Spock" (Par) ........ 16,000,000
„Sheena, Queen Of The Jungle" (Col/Thorn EMI) ...... 16,000,000
„Swing Shift" (WB) ................................ 16,000,000
„Conan II, King Of Thieves“ (DeLaurentiis/U) ....... 16,000,000
„The Last Starfighter" (Lorimar/U) ................ 15,000,000
„Amadeus" (Zaentz/Orion) .......................... 15,000,000
„The Little Drummer Girl“ (WB) .................... 15,000,000
„Sahara" (Cannon/MGM-UA) .......................... 15,000,000
„The Killing Fields" (Goldcrest/WB) ............... 15,000,000
„The Muppets Take Manhattan" (Tri-Star) ........... 14,000,000
„The Lonely Guy“ (U) .............................. 14,000,000