Morgunblaðið - 22.01.1984, Page 46

Morgunblaðið - 22.01.1984, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 Litiö inn á æf- ingn Studenta- leikhússins á Jakobi og meist- aranum, eftir tékkneska skáld- ið Milan Kund- era Leikstjórinn, Sigurður Páls- son, fylgist af alúö með öllu sem gerist á sviðinu og held- ur á sér hita með sykurmola. tíma og því verður að koma þannig fyrir, að hver einstakur þáttur fléttunnar haldi sér án þess þó að heildin gliðni. Það er mjög áhugavert að finna lausnir á þeim vandamálum sem sviðs- setning á svona verki hefur í för með sér. Það, sem mér finnst athyglis- vert við Stúdentaleikhúsið, er að það sækir sinn kraft í vissa landamærastöðu í leiklistinni, m.a. vegna þess að hér koma saman atvinnu- og áhugaleikar- ar. Slíkt hefur auðvitað bæði kosti og galla, getur verið veik- leiki en veldur jafnframt vissri sérstöðu. Sem dæmi get ég nefnt leikmyndina. Fólk, sem hefur áhuga á leikmyndagerð, getur ekki lært hana hér heima og fær ekki tækifæri til þess að spreyta sig hjá atvinnuleikhúsunum. En hér bjóðast slík tækifæri og ég er mjög ánægður með það hvern- ig til hefur tekist með þann þátt í þessari sýningu. Leikmyndin „Leikrit um ást, girnd og heimspekilegar spurningar“ Stúdentaleikhúsið lætur ekki deigan síga og er ekk- ert lát á starfsemi þess nú íánuðum. Á fimmtudaginn kemur, þann 26. þ.m., frumsýnir það eina viðamestu leiksýningu sína til þessa, Jakob og meistar- ann, eftir tékkneska höfundinn Milan Kundera, þýtt af Friðrik Rafnssyni. Þrátt fyrir kulda, sem teygði klær sínar inn í húsið, var æft af miklum krafti er blm. leit inn í Tjarnarbæ á dögunum, fylgdist með „rennslinu", sem mun vera eitt heitið yfir æfingu á fagmáli, og spjallaði að því loknu við leik- stjórann, Sigurð Pálsson, í „fæðuöflunarrými", þ.e. mat- arhléi. Leikendur í Jakobi og meistar- anum eru tæplega tuttugu tals- ins en alls koma hátt á fjórða tug vaskra manna og kvenna við sögu sýningarinnar. Aðalhlut- verkin eru í höndum tveggja ungra atvinnuleikara, Helga Björnssonar (Jakob) og Arnórs Benónýssonar (meistarinn). Helgi útskrifaðist frá Leiklist- arskóla íslands í vor sem leið og hefur víða komið við síðan, m.a. leikur hann í kvikmyndinni At- ómstöðinni, sem frumsýnd verð- ur innan tíðar, og hjá Alþýðu- leikhúsinu á sýningum, sem nú eru að hefja göngu sína á Hótel Loftleiðum. Arnór lék einnig í Atómstöðinni, en í annarri upp- færslu, hjá Leikfélagi Akureyr- ar. Þá hefur hann talsvert feng- ist við leikstjórn, nú síðast leikstýrði hann dagskránni Draumar í höfðinu hjá Stúd- entaleikhúsinu. Um leikmynd og búninga sér Guðný Richards og tónlistin í verkinu er flutt af fiðluleikaran- um Eyjólfi Alfreðssyni. „Þaö er vel við hæfi að sýna þetta verk á því herrans ári 1984,“ segir leikstjórinn, Sigurð- ur Pálsson, „því meðferðin, sem höfundur þess mátti sæta í heimalandi sínu, gæti verið tek- in úr samnefndri bók. Eftir inn- rás Rússa í Tékkóslóvakíu 1968 var honum gert ókleift að lifa og starfa í Prag. Hann var stimpl- aður einn þeirra menntamanna sem hvað mesta hlutdeild áttu í „vorinu í Prag" og viðbrögð yfir- valda voru á þá lund að hann var settur á svartan lista. Honum var ekki misþyrmt eða hótað öllu illu, heldur var skapað algert tómarúm í kringum hann. Nafn- ið hans tekið úr símaskránni og öllum, sem þekktu hann, skipað að láta sem hann væri ekki til. Einnig voru bækur hans fjar- lægðar úr almenningsbókasöfn- um og verslunum og Kundera var því í raun og veru ekki til í Tékkóslóvakíu eftir ’68. Árið 1975 varð ástandið honum um megn og hann hélt ásamt konu sinni í útlegö til Frakklands. Þar býr hann enn og er orðinn franskur ríkisborgari. Það sem ég held að hafi haldið Kundera uppi er kímnigáfan," segir Sig- urður, „þessi örvæntingarhúmor, sem getur haldið lífinu í þeim sem eru ofsóttir og er t.d. mjög sterkur meðal gyðinga." í formála að Jakobi og meist- aranum segir höfundurinn líka á einum stað: „Ætti ég að gera sjálfum mér skil, myndi ég segj- ast vera gleðimaður sem er fang- inn í heimi sem hefur orðið stjórnmálum og hugmynda- stefnum að bráð.“ Kundera styðst við skáldsögu Diderots, Jacques le fatalist, eða Jakob ör- lagatrúar í leikritinu um Jakob og meistarann og um það segir hann í formálanum: „Hjá Dider- ot segja fimm sögumenn sögur og grípur hver fram í fyrir öðr- um: Höfundurinn sjálfur (sem ræðir við lesandann), Meistarinn (sem ræðir við Jakob), Jakob (sem ræðir við meistara sinn), húsfreyjan (sem ræðir við áheyrendur sína) og markgreif- inn af örk. Samræðan (snilld- arvel úr garði gerð) er öllum sög- unum sameiginleg. En sögumenn segja frá sögunum um leið og þeir ræða saman — samræðurn- ar eru inni í samræðum — og fyrir vikið verður skáldsagan öll eitt risavaxið og hávært samtal. Skáldsaga Diderots er sprengfull af ósvífnu og óhömdu frelsi og kynhrifum, sem ekki leita skjóls í viðkvæmni ... í Jakobi örlagatrúar felst róttæk- asta afneitun heimsbókmennt- anna á blekkingunni við raunsæ- ið og á fagurfræði svonefndrar sálskoðandi skáldsögu." Að lok- um segir Kundera að Jakob og meistarinn sé þó engin „yfir- færsla á skáldsögu Diderots," heldur „mitt eigið leikrit, mitt eigið tilbrigði við Diderot, eða allt eins, þar eð aðdáun var hvati verksins, til heiðurs Diderot." Jakob og meistarinn er eina leikrit Kunderas til þessa og kveðst hann hafa skrifað það ánægjunnar vegna „og ef til vill í óljósri von um aö einhvern tím- ann yrði hægt að setja það á svið i tékknesku leikhúsi, undii nafni, sem yrði fengiö aö láni.“ í stað undirskriftar dreifði Kund- era því tilvisunum í önnur verk sín um texta leikritsins En aldr- ei varð af sýningum á Jakobi og meistaranum I heimalandinu. Svo fór aö höfundurinn kom þeim úr landi og hefur verkið nú verið sýnt m.a. í París og Genf við afar góðar undirtektir. „Þetta leikrit er mjög skemmtilega uppbyggt," segir Sigurður Pálsson, er talið berst að uppfærslu Stúdentaleikhúss- ins. „Það felur í sér frjálslega meðferð því í því fléttast saman fleiri en ein saga, rúm, tími og staður. Margir atburðir gerast á sama Jakob (Helgi Björnsson) og meistarinn (Arnór Benónýs- son) í mikilli sennu yfir höf- uðsvöröum besta vinar meistarans, sem leikinn er af Kjartani Bergmundssyni. virðist kannski ekki vera ýkja flókin við fyrstu sýn, enda á hún ekki að gera það, heldur þjóna sýningunni og öllum þáttum hennar. Frásagnartækni í leik- ritum er nokkuð, sem ég hef mikinn áhuga á og ég er mjög ánægður með það hvernig leik- myndin styður við bakið á þeirri frásagnartækni, sem notuð er í sýningunni. Leikritið fjallar meira og minna um ástir og mislukkaðar girndir, svo og ýmsar heimspeki- legar spurningar eins og þá, hvort nokkur ráði gerðum sín- um. Svo fjallar það auðvitað um húsbónda og þjón, eins og svo ótalmargar sögur í vestrænni menningu, allt frá Don Kíkóta og Sankó Pansa til Vladimirs og Astragons í Beðið eftir Godot. Eins og öll góð leikrit fjallar það líka um leikrit. Öll marktæk list fjallar að einhverju marki um listina, sem kemur engan veginn í veg fyrir að hún geti þjónað öllum mögulegum til- gangi þó að hún fjalli um sjálfa sig í leiðinni," segir Sigurður. En hann er annar tveggja höfunda, sem Þjóðleikhúsið hefur ráðið til leikritasmíðar nú nýverið og þykir því tilheyra að spyrja hvernig það verk leggist í hann. „Mjög vel,“ segir hann. „Ég er að velja milli tveggja hugmynda og þróa væntanlega aðra þeirra áfram. Síðan er þaö leikhússins aö skera úr um hvort þaö tekur verkið til sýningar þegar þar að kemur. En ég held að þetta fyrir- komulag sé nokkuð sem allir geta verið ánægðir með.“ Að lokum kemst Sigurður auð- vitað ekki hjá því að svara spurningunni „Er Jakob og meistarinn að þínu mati skemmtilegt verk?“ „í hreinskilni sagt, þá finnst mér það,“ segir Sigurður, „eins og landabruggarar á norðaust- urhorninu segja: „Það er fótur í því.““ HHS.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.