Morgunblaðið - 22.01.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
Dr. Jakob Jónsson frá Hrauni áttræður:
Sýning í Kristalsal
um þrjú leikskáld úr
sömu fjölskyldunni
í TILEFNI áttræðisafmælis dr. Jak-
obs Jónssonar frá Hrauni hefur ver-
ió sett upp sýning í Kristalsal l>jóó-
leikhússins fyrir leikhúsgesti. Á sýn-
ingunni eru Ijósmyndir úr ýmsum
uppfærslum á leikritum dr. Jakobs
og leikritum eftir börn hans, Svövu
Jakobsdóttur og Jökul Jakobsson.
Þar eru ennfremur gamlar leikskrár
og ýmis handrit aó leikritum dr. Jak-
obs, aó því er segir í frétt frá Þjóó-
leikhúsinu. Þar segir ennfremur:
öldinni að þrír leikritahöfunda'r
komi úr einni og sömu fjölskyld-
unni — og að verk eftir þá alla séu
á fjölunum samtímis í borginni,
en Þjóðleikhúsið sýnir um þessar
mundir Tyrkja-Guddu, eftir dr.
Jakob, og Lokaæfingu, eftir Svövu,
meðan Leikfélag Reykjavíkur er
með sýningar á Hart í bak, eftir
Jökul.
Myndin er frá opnun sýningar-
innar.
Það er líkast til einsdæmi í ver-
Fríkirkjan í Reykjavík:
Átta predikan-
ir úr Jobsbók
Tilboð óskast —
Tilboð óskast
Á NÆSTUNNI mun safnaðarprestur
Fríkirkjunnar í Reykjavík flytja 8
prédikanir út frá textum í Jobsbók í
Gamla testamentinu, einhverju dýr-
legasta ljóði heimsbókmenntanna
samanlagðra. Þessi mikli ljóðabálkur
Gunnar Björnsson, fríkirkjuprestur.
fjallar um vandamál þjáningarinnar.
Þar segir frá Job, góðum og grand-
vörum manni, sem verður fyrir gífur-
legu andstreymi: Eigum hans er stol-
ið, vinnufólkið drepið og börn hans
farast í ofviðri. Sjálfur verður Job
hræðilegum sjúkdómi að bráð. Allt
þetta mótlæti ber gamli maðurinn af
karlmannlegu æðruleysi. Það er
fyrst, þegar vinir hans þrír koma í
heimsókn og hanga yfir honum í viku
og gera sig enda líklega til að dvelja í
aðra viku, það er þá fyrst, sem Job
lýkur sundur munni og bölvar fæð-
ingardegi sínum.
Af hverju deyr ungur maður úr
krabbameini, en gamlir og vankaðir
menn virðast ætla að verða eilífir á
elliheimilunum? Af hverju aka
þrælmenni um á kádiljákum meðan
lítil börn deyja úr hungri? Vinir Jobs
stinga upp á sínum svörum við slík-
um spurningum, en Guð þegir.
Kannski lætur Guð það vera að út-
skýra hlutina, af því að hann veit, að
Job þarf I rauninni ekki á neinni
skýringu að halda. Þótt Job vissi
ástæðu mótlætis síns, þyrfti hann
eftir sem áður að horfa á auð sæti
barna sinna við morgunverðarborðið,
hann þyrfti áfram að burðast með
sjúkdóm sinn. I stað þess að útskýra,
birtir Guð Job auglit sitt og Job seg-
ir: „Ég þekkti þig af afspurn, en nú
hefur auga mitt litið þig.“
Það er greinilegt, að i islenska
skammdeginu þurfum við á trú og
trausti að halda. Við þurfum að
þreyja þorrann og góuna með ein-
hverjum ráðum.
Fyrsta prédikunin, „Hann endur-
nýjar trú mína“, verður haldin
sunnudaginn 22. janúar í guðsþjón-
ustu kl. 14.00, en hin síðasta á páska-
dag, 22. apríl. Ég vona, að áhuga-
menn um lif í trú sæki guðsþjónust-
urnar.
Gunnar Björnsson
fríkirkjuprestur.
Félag___________
járniðnaðarmanna
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveöiö hefur veriö aö viöhafa allsherjar-
atkvæöagreiöslu viö kjör stjórnar og trún-
aöarmannaráös Félags járniönaöarmanna
fyrir næsta starfsár,
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaö-
armannaráös skal skila til kjörstjórnar fé-
lagsins í skrifstofu þess aö Suöurlands-
braut 30, 4. hæö ásamt meömælum
a.m.k. 85 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga aö vera um 7 menn í stjórn
félagsins og auk þess um 14 menn til
viðbótar í trúnaöarmannaráö og 7 vara-
menn þeirra.
Frestur til aö skila tillögum um skipan
stjórnar og trúnaöarmannaráös rennur út
kl. 18.00 þriöjudaginn 31. janúar nk.
Stjórn Félags járniðnaöarmanna
Tilboö óskast í Ford Bronco II, árgerö 1984 (XLT) og Ford Bronco 1982
Bifreiöirnar veröa á útboöi þriöjudaginn 24. janúar nk. í bifreiöasal Sölu varnar-
liöseigna, Grensásvegi 9, kl. 12—15. Bifreiðarnar veröa enn fremur til sýnis
mánudaginn 23. janúar á sama stað.
Sala varnarliöseigna.
Vidskiptamenn
Sportmarkaðarins
athugið
Hinn 8. nóv. sl. urðu eigendaskipti á Sportmarkaðnum sf., Grensásvegi
50. Var sérstaklega samið um að allar skuldbindingar fyrri eigenda
væru nýjum eigendum óviðkomandi vegna þessa og er þeim sem af-
hentu Sportmarkaðnum vörur í umboðssölu fyrir áðurgreint tímabil og
hafa ekki enn fengið greiðslu bent á að snúa sér til Guðmundar Hjart-
arsonar, Engihjalla 11, Kópavogi, sími 42873.
Fyrir hönd Sportmarkadarins
Sigurdur Jónsson.