Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Chernenko á fundi í stjórnarráði Kommúnistaflokksins. Hann situr fyrir miðið, en honum á hægri hönd er Andrei Gromyko utanríkisráðherra og á vinstri hönd er Nikolai Tikhonov forsætisráðherra. Chernenko, hinn nýi aðalritari sovéska kommúnistaflokksins: Verður hann aðeins leiðtogi skamma hríð? Er aldurhniginn og heilsuveill Konstantin U. Chernenko, hinn nýi aðalritari kommúnistaflokksins. Konstantin U. Chernenko, hinn nýi aðalritari sovéska kommún- istaflokksins, hefur varið allri ævi sinni til starfa í þágu flokksins og þykir maður sem á óvissutíma get- ur sameinað hina ólíku skoðana- hópa og valdaklíkur flokksins að baki sér. Það er hins vegar fundið Chernenko til foráttu að þótt hann hafi um nokkurt skeið ver- ið í hópi helstu forystumanna Sovétríkjanna þá skortir hann reynslu af því að taka mótandi ákvarðanir um stefnu og starfs- hætti. Með það í huga, og hitt að hann er 72 ára að aldri og hefur verið heilsutæpur, hafa ýmsir fréttaskýrendur orðið til þess að spá því að valdatími hans verði ekki langur og hann muni aðeins gegna starfi aðalritara meðan verið er að „stokka upp spilin" í Kreml á ný. Chernenko hefur setið í stjórnmálaráði flokksins, og gekk þar næstur Yuri Andropov áður en hann féll frá. Hann komst fyrst til verulegra áhrifa á valdatíma Leoníds Bresnjefs, en þeir voru samherjar í þrjá áratugi. Fylgismaður Bresnjefs. Samstarf Chernenkos og Bresnjefs hófst í Moldavíu er sá síðarnefndi var aðalritari kommúnistadeildarinnar þar; Chernenko var þá áróðurs- fulltrúi flokksins. Þegar Bresnj- ef tók við starfi Krúsjefs og varð aðalritari kommúnistaflokksins árið 1965 fól hann Chernenko að veita forstöðu hinni almennu deild flokksins. Árið 1976 varð hann einn af riturum miðstjórn- ar, og hafði þá m.a. eftirlit með innri málefnum flokksins. f júlí í fyrra var upplýst að nýr maður hefði tekið við hinni almennu deild, hinn 75 ára gamli Klaudi Bogolyubow, sem vitað er að hefur verið samverkamaður Chernenkos. í þá 15 mánuði sem Yuri Andropov gegndi starfi aðalrit- ara var Chernenko helsti „hug- myndafræðingur" flokksins, en talið er að Andropo'v hafi þó sjáifur fylgst náið með þeim málaflokk, og ekki látið Chern- enko eftir að túlka hina almennu stefnu flokksins eftirlitslaust. Áður en Andropov var gerður að aðalritara var álitið að þeir Chernenko væru keppinautar um embætti Bresnjefs. Svo virð- ist hins vegar sem þeir hafi náð samkomulagi, og á dögum Andropovs var Chernenko tals- maður þeirrar stefnu hans að draga úr vestrænum áhrifum og auka aga á vinnustöðum og á vettvangi kommúnistaflokksins. Heiisutæpur leiðtogi. Chernenko hefur verið heilsu- tæpur og kann það að ráða því að hann verði ekki lengi í emb- ætti aðalritara. í fyrravor var hann lagður á sjúkrahús vegna lungnabólgu og gat þá m.a. ekki verið viðstaddur hátíðahöldin á Rauða torginu 1. maí. Hann kom ekki fram opinberlega á ný fyrr en á ráðstefnu miðstjórnar flokksins um hugmyndaleg efni í miðjum júní, en þar flutti hann setningarræðu. Hann sást síðan ekkert opin- berlega um sumarið, og vissu menn ekki hvort hann væri las- inn eða í löngu orlofi, eins og títt er um marga hina eldri félaga í stjórnmálaráðinu. Um haustið birtist hann á ný og tók þá á móti fjölmörgum sendinefndum kommúnistaflokka, setti ýmsar samkomur og ráðstefnur og greinar eftir hann um stefnumál flokksins birtust í blöðum. Chernenko er kominn af rússnesku bændafólki, og fædd- ur í borginni Krasnoyarsk í Síb- eríu 24. september árið 1911. Hann var því sex ára gamall þegar bolsévikar rændu völdum í Rússlandi og hin mikla umbylt- ing í nafni kommúnisma hófst. Hann varð formaður Koms- omol, æskulýðssamtaka komm- únista, í heimahéraði sínu árið 1929, þá 18 ára að aldri, og gekk í kommúnistaflokkinn 1931. Áratug síðar var hann orðinn aðalritari flokksdeildarinnar í héraðinu. Chernenko stundaði nám í flokksskóla í Moskvu og lauk þaðan prófi 1945. Fram- haldsnám stundaði hann við Kishinev uppeldisstofnunina og var brautskráður þaðan 1953. Að þessu námi loknu hófst vegferð hans til eiginlegra valda og met- orða innan kommúnistaflokks- ins. Greið leið til valda. Árið 1966, þegar Chernenko hafði verið forstöðumaður hinn- ar almennu deildar flokksins í eitt ár, varð hann félagi án at- kvæðisréttar í miðstjórn. Full- gildur miðstjórnarmaður varð hann 1971, sextugur að aldri; einn af riturum miðstjórnar 1976, eins og fyrr sagði; félagi án atkvæðisréttar í stjórnmálaráð- inu 1977 og ári síðar félagi þar með full réttindi. Fyrir fimm árum fylgdi Chernenko Bresnjef, þáverandi forseta Sovétríkjanna og aðalrit- ara, til Vínar á fund með Jimmy Carter, þáverandi forseta Bandaríkjanna. Að sögn banda- rískra embættismanna sem fylgdust með fundinum virtist hann ekki gegna þýðingarmiklu hlutverki í viðræðunum. Að svo komnu er ekki unnt að segja neitt um það hvaða áhrif skipun Chernenkos í embætti að- alritara mun hafa, og hvort hann muni einnig taka við for- setaembættinu, sem Andropov gegndi, eða láta það eftir ein- hverjum yngri manni úr stjórn- málaráðinu. Flestir fréttaskýr- endur hallast þó að því að ekki sé að vænta stefnubreytinga í Kreml á næstunni og Chernenko muni fylgja jafn ósveigjanlegri stefnu í utanríkismálum og fyrirrennari hans. Picasso- myndum stolið Amstcrdam, 13. febrúar. AI*. TUTTUGU ætimyndum eftir spánska listmálarann Pablo Pic- asso var stolið í nótt úr listasafni í Amsterdam. Voru myndirnar skornar úr römmunum, sem voru utan um þær. Verðmæti mynda þessara er talið nema 200.000 gyllinum (tæpum 2 millj. ísl. kr.), en allt voru þetta mynd- ir, sem Picasso hafði gert á síð- ustu fimm árum ævi sinnar. Samkvæmt frásögn hollenzku lögreglunnar skildu þjófarnir ekki eftir sig nein þau vegsum- merki, sem að haldi geta komið við að hafa hendur í hári þeirra. Grænland: Skömmtun með færeysku fyrirkomulagi Kaupmannahöfn, 13. febrúar. Frá Niels Jörgen Kruun, Grænlandsfréttaritara Mbl. ÞEGAR grænlenska lands- þingið kemur saman í mars mun verða ákveðið hvort áfengisskömmtun með nýju sniði verður tekin upp í land- inu. Grænlendingar hafa áð- ur kynnst áfengisskömmtun, en þá var sá háttur hafður á, að hver fullorðinn mátti kaupa áfengi, sem svaraði til 72 ölflaskna á mánuði. Hverjum manni var þá úthlutað örk með 72 merkjum og fékkst ein ölflaska fyrir hvert merki, ein vínflaska fyrir sex o.s.frv. Þannig var þetta í nokkur ár og olli gífur- legu svartamarkaðsbraski með skömmtunarseðlana. Þegar hvert merki var farið. að seljast á tíu kr. danskar var áfengisverslunin gef- in frjáls. Frjálsræðið hefur haft það í för með sér, að áfengisneyslan hefur stóraukist á Grænlandi og nú finnst landsfeðrunum kominn tími til að gripa í taumana með einhverjum hætti. Agnethe David- sen, sem fer með félagsmál í landsstjórninni, hefur þess vegna kynnt sér þessi mál í Færeyjum en þar gildir það, að sá, sem ekki geldur keisaranum það sem keis- arans er, má ekki kaupa áfengi. Líst Grænlendingum vel á þetta fyrirkomulag og telja sig geta slegið með því tvær flugur í einu höggi, bætt skattaskilin og minnk- að drykkjuna. Pólland: Þingið framleng- ir kjörtímabil sitt Geimskutlan gæti bjarg- að gervihnöttunum Varsjá, 13. febrúar. AP. PÓLSKA þjóðþingið, þar sem kommúnislar eru alls ráðandi, samþykkti í dag að fresta fyrirhug- uðum þingkosningum í landinu. Er ástæðan talin ótti stjórnvalda við, að kosningarnar geti snúizt upp í mótmælaaðgerðir gegn þeirri kúg- un, sem Samstaða, samtök hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Póllandi, hefur mátt þola. V firstandandi kjörtímabili þingsins, þar sem 460 þingmenn sitja, á að Ijúka 23. marz nk., en þingið samkþykkti með 383 atkvæðum að framlengja kjörtima- bilið að minnsta kosti út þetta ár. Fjórir þingmenn sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna. Þingkosningar eiga að fara fram í Póllandi á fjögurra ára fresti og fóru fram þar síðast í marz 1980, fjórum mánuðum áð- ur en Samstaða var stofnuð. Kazimierz Barcikowski, sem sæti á í stjórnmálanefnd komm- únistaflokksins, hefur réttlætt frestun kosninganna þannig; „Það alvarlega ástand, sem ríkti í Pollandi og við höfum ekki yfir- stigið enn, réttlætir ákvörðun okkar." Þingið samþykkti einnig með 382 atkvæðum kosningalög, þar sem núgildandi fyrirkomulag er látið halda sér á þann veg, að þeim frambjóðendum, sem stjórnin hefur lagt blessun sína yfir, er tryggð kosning. Ilousion. 13. febrúar. Al*. UNNT ætti að vera að nota geimskutl- una ('hallenger til þess að bjarga fjar- skiptahnöttunum tveimur, sem nú eru á sporbaug umhverfis jörðu án þess að koma þar nokkrum manni að gagni. Hins vegar kann kostnaðurinn við slíka tilraun að verða það mikill, að hún svari ekki kostnaði. Gervihnettirnir báru nöfnin Vestar VI og Palaba-B og var annar þeirra eign fyrirtæksins Western Union en hinn áttu Indónesíumenn. Ekki tókst að koma þeim þá á rétt- an sporbaug, eftir að þeim hafði verið skotið frá geimskutlunni Challenger. Á fundi með fréttamönnum um helgina komst James Abrahamson svo að orði, en hann stjórnar þeim tilraunum, er gerðar eru með geim- skutluna, að sú hugmynd að nota geimskutluna til þess að bjarga gervihnöttunum, væri vissulega spennandi verkefni til þess að glíma við. Ef eigendur gervihnattanna eða vátryggjendur biðja okkur, munum við vissulega kanna málið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.