Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 s,5<ztmkitíemt þessu, hötum viS osz&kab útbrot hjá H5-ára. gamalli Konu." ... að reyna að gera það sem þú getur ekki JJJ AfO- U S Pit Off.—aM riahts rasaryad c1984 Los Angetes Times Syndicale Á hann að miðast við „sóknarað- gerðir“ eða varnaraðgerðir? Ófætt barn á rétt til lífsins Lesandi skrifar 24. janúar: „Kæri Velvakandi. Það hefur dregist vegna anna að skrifa þér og þakka Huldu Jensdóttur fyrir góða grein hennar í Mbl. fyrir nokkru þar sem hún ræddi m.a. um algjöran og sjálfsagðan rétt ófædda barnsins til lífsins. Einnig sagði „skólanemi" margt gott um sama málefni í grein fyrir skömmu en var þó ekki eins fast- ur og Hulda á þeirri skoðun að mannsfóstrinu bæri fullkomin lífsvernd. Sumum finnst of langt gengið þegar enn er verið að tala máli ófædda barnsins. „Á að fjarg- viðrast yfir því þó að frumu- kekki í legi konu sé eytt?“ Já, menn hafa víst jafnvel spurt hvort nokkur syrgi það þó að hann missi botnlangann. „Kona sem vill fá fóstureyðingu þarf að taka mjög erfiða ákvörðun. Á sí- fellt að vera að fordæma hana? Hví ekki að fara að óskum henn- ar? Þarfnast hún ekki samúð- ar?“ Það sýnir hvað hjörtu okkar geta orðið hörð þegar manns- fóstri er líkt við frumukökk eða botnlanga. Læknar vita að frjóvgað egg er sjálfstæður ein- staklingur, ekki kökkur í líkama móðurinnar. Botnlangi verður ekki að barni með líf frá Guði og eilífa ábyrgð. Og það er ekki af fordæm- ingarhug, að bent er á að ófædda bamið á rétt til lífsins eins og ég sem skrifa og þú sem lest. Við erum þvert á móti að vara við hörmulegum verknaði. Það er kristileg skylda. Kain sagði: „Á ég að gæta bróður míns?“ En frelsarinn kenndi okkur að nauðstaddur maður væri náungi okkar sem okkur bæri að hjálpa? Vissulega ber að létta undir með þungaðri konu sem er illa á vegi stödd — en án þess að granda barninu sem hún gengur með. Yfirvöld hafa líka sýnt við- leitni til þess. Hins vegar heim- ila lög að barnið sé drepið fyrir fæðingu sína og það er óhæfa. Ekki má rugla saman „fjöl- skylduáætlunum“ og fóstureyð- ingu. Því miður valda sumar „frjóvgunarvarnir" fóstureyð- ingu, t.d. spírallinn og ýmsar töflur. Slíkt ætti engin kona að nota. Raunverulegar getnaðar- varnir koma í veg fyrir að nýtt líf kvikni en deyða ekki líf sem er komið til sögunnar. Mannslíf- ið er heilagt. Sumir tala um „rétt til að fæð- ast velkominn í heiminn". Eigin- lega er þetta tal um „óvelkomna barnið" fjarstæða. Ef kona eign- ast barn má hún reiða sig á að því verður fagnað: Vilji hún ekki eiga það sjálf ætti hún að minn- ast allra barnlausu hjónanna sem þrá dag og nótt að eignast barn, elska það og annast, jafn- vel barn sem önnur kona hefur fætt. Sá sem talar um „óvel- komna barnið" ætti að skoða hug sinn vel. Er það heill barnsins sem hann ber fyrir brjósti? Til eru þeir sem benda á að fóstureyðingar verði ekki stöðv- aðar þó að þær verði bannaðar. Já, eflaust er það rétt en þær verða ekki framkvæmdar í jafn- ríkum mæli og nú. Aðrir segja: „Þetta kemur niður á fátæklingum en þeir ríku verða sér alltaf úti um aðgerðina erlendis." Því má svara að ríkt fólk hefur alltaf haft ráð á að svala fýsnum sínum, góðum og illum. Þó á ekki að „styrkja fá- tæka“ til að fremja ódæði og deyða mannslíf. Kona nokkur sagði í þessu sambandi: „Já, þær halda áfram að fá fóstureyð- ingar. Nauðganir halda líka áfram, þrátt fyrir bann í lögum. En á þá að segja að nauðgun sé ekki lögbrot? Eða ættum við að nota skattana okkar til að kaupa skrautbúið hótelherbergi handa nauðgaranum svo að hann geti framið glæpi sína í fallegu um- hverfi — af því að „hann heldur áfram hvort sem er“?“ Ég óttast að „ráðgjafar" hvetji stúlkur og konur beinlínis til fóstureyðinga. Stundum ráð- leggja foreldrar ófrískum dætr- um sínum að láta eyða fóstrinu. Ef til vill segir stúlkan: „Ég er fegin að þau fengu mig til að fá fóstureyðingu svo að ég þurfi ekki sjálf að taka ákvörðun." En er þetta heiðarlegt? Er það ekki sjálfsblekking að skýla sér á bak við aðra og segja að þeir hafi átt hugmyndina? Er stúlk- an ekki að skjóta sér undan ábyrgð sem manneskja? Ung stúlka sem verður þunguð í ótíma skal minnast þess að enginn getur neytt hana til að láta granda fóstrinu gegn vilja hennar. Hún á vissulega að heiðra foreldra sína og aðra sem settir eru yfir hana — nema þeir ætlist til einhvers sem er ólög- legt eða ósiðferðilegt og á móti vilja Guðs samkvæmt heilagri ritningu. Þar eru mörkin. Ræður þetta viðhorf þegar stúlkum eða konum eru gefin ráð í þessum alvarlegu málum — og þegar þær þiggja ráð? Það er Dulce Domum Guðríður Guðmundsdóttir hringdi frá Bolungarvík og hafði eftirfarandi að segja: — í Velvakanda 3. febrúar síð- astliðinn óskar Pálína Gísladóttir eftir aðstoð við að rifja upp kvæði eftir Guðmund Guðmundsson skólaskáld. Þetta kvæði heitir „Dulce Domum" og er að finna í ljóðasafni Guðmundar. Hér fyrir vestan er þetta kvæði mjög oft sungið við lag, sem ég veit ekki hver samdi, en tónlistarkennari hér á staðnum skrifaði upp nót- urnar að því. Það má segja að þetta lag sé orðið einskonar þjóð- lag hér og er sungið á flestöllum samkomum. Þá taka allir undir, bæði ungir og aldnir. Pálína Gísladóttir man fimm fyrstu erindin rétt að öðru leyti en því að í næstsíðustu línu þriðja erindis á að vera: „Þá glóðu glit- klædd túnin“ en ekki blómin. Alls eru þetta 13 erindi og eru hin átta síðari þannig: Nóturnar sem Guðríður sendi okkur. Hún sendi athugasemd með nótunum og sagði að fimmta lína hvers erindis væri tvítekin. En glöggt ég man hve grét ég, er gamla bæinn minn í rústir lagðan lét ég, — er leit ég hinsta sinn þann stað þar mamma mín mig hafði látið hvíla við hlýju brjóstin sín. Ég vildi bæinn vanda, þar var ei sparað til; þar sérðu stofu standa með stórt og fallegt þil, og gluggann glampar á, svo fagran, feikistóran, þar forðum þaut í skjá. Nú er ég orðinn þreyttur og ellin þyngir spor. Hve orðinn er ég breyttur og óðum dvínar þor, — það skyggir, vinur, skjótt! að kumli köldu geng ég, úr kroppnum dregur þrótt. Hér skulu fjöll mér skýla og skyggja á grafarsvörð; ég hirði ekk’ um að hvíla í „helgri" vígðri jörð, — ég blunda’ei betur þar, þó klukkan „dinglum dangli* á degi útfarar. Og þegar ég var ungur og æskufjörsins naut, um bratta kletta og klungur ég komst sem slétta laut, og elfur djúpar óð. Og þyngstu björgin bar ég, er bæinn minn ég hlóð. Og sterkur enn hann stendur, þótt storma dynji sköll; þar haldast enn í hendur hin himingnæfu fjöll og harðbrýnd halda vörð um blettinn eina, er ann ég á okkar fósturjörð. En hérna skulu heima mín hvíla lúin bein, og hér skal sál mín sveima við sjálfs mín bautastein: þann bæ, sem ég hef byggt, því guð og himin hérna mitt hjarta finnur tryggt. En húskveðjuna halda hinn hái fossinn skal, er geislar gylltir tjalda minn gamla fjallasal og annað allt er hljótt, og fjallablærinn bliði mér býður góða nótt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.