Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Svéinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið. Að gæta álitsins út á við Frá því var skýrt í Morgun- blaðinu á sunnudag, að Einar Benediktsson, sendi- herra íslands í London, hefði í bréfi til The Times mótmælt fréttum um hundahald í Reykjavík. „Það slæma orð, sem ísland hefur fengið á sig vegna skrifa um hundahald er afar ósanngjarnt," segir sendi- herrann réttilega í bréfi sínu. Orð hans kunna þó að vera léttvæg meðal alls almennings sem lætur stjórnast af ábyrgð- arlausum æsifréttum götu- blaðanna og les ekki bréfa- dálka úrvalsblaðanna. Bréf sendiherrans til The Times er skynsamlegasta og besta leiðin í stöðunni, bréfið hefur áhrif á aðra fjölmiðla. Við sem sitjum hér heima gerum okkur ekki nægilega ljóst hve slíkar and- úðarbylgjur geta breiðst hratt og víða. f bandaríska vikuritinu Time sem hefur heimsút- breiðslu birtist á dögunum rit- dómur um ferðabók. Er það í sjálfu sér ekki í frásögur fær- andi nema af því að undir lok greinarinnar veltir höfundur því fyrir sér í hvaða tilgangi megi ferðast til ókunnra landa. Hann kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að til íslands geti menn farið til að „soga í sig dellu". Að órannsökuðu máli er ógjörningur að segja hvað fyrir ritdómaranum vakir með þessum orðum en þess má minnast að fyrir skömmu birt- ist fréttagrein í Time um hundahald í Reykjavík með neyðarlegri skopmynd. Frá því var sagt í Morgun- blaðinu á sínum tíma að í kringum áramótin efndi breska vikuritið Economist til spurningakeppni meðal les- enda sinna. Þar var meðal ann- ars leitað svara við því hvaða þjóð væri skuldugust miðað við hlutfall af þjóðarframleiðslu. Þarna komst ísland á blað. Ekki er ár liðið síðan íslend- ingar voru framarlega í heims- meistarakeppninni um verð- bólgubikarinn. Vorum við með- al fimm efstu í þessari keppni sem þykir síður en svo eftír- sóknarverð hjá þeim sem annt er um stjórn eigin mála, af- komu sína og almenna stöðu. Þá væri barnaskapur að ætla að það spyrðist ekki út um víða veröld hvernig komið er fyrir þorskstofninum hér við land nú tæpum áratug eftir að við fengum fulla stjórn á ís- landsmiðum og rákum stór- virk, erlend veiðiskip á brott. Á meðan Hjörleifur Guttorms- son var iðnaðarráðherra vann hann markvisst að því að spilla áliti þjóðarinnar meðal þeirra sem mestan áhuga gátu haft á því að kaupa raforku hér á landi. Það er áhyggjuefni að bandarískum ritdómara skuli detta í hug „della“, þegar hann hugsar um ferðalag til íslands. J Við hljótum að líta svo á að hér sé um „afar ósanngjarnt" mat að ræða svo að vitnað sé til orða Einars Benediktssonar, j sendiherra, vegna hundahalds- ! ins — enginn er þó dómari í sjálfs sín sök. Mestu skiptir að við höldum þannig á okkar eig- j in málum að það rýri ekki álit I á okkur út á við og efli sjálfs- j virðingu inn á við. j Óljóst | alvörumál Morgunblaðið sneri sér til Ragnhildar Helgadóttur, j menntamálaráðherra, og I spurði hana álits á tiliögu | þrettán þingmanna um friðar- j fræðslu, en samkvæmt henni á menntamálaráðherra „að hefja undirbúning að frekari fræðslu um friðarmál á dagvistunar- stofnunum, í grunnskólum og framhaldsskólum landsins." Ragnhildur Helgadóttir svar- aði spurningu blaðsins með þessum orðum: „Mér finnst til- lagan óljós og greinargerðin enn óljósari." í orðum menntamálaráð- herra felst réttmætur áfellis- dómur yfir þessari tillögu. Með henni er á óljósan hátt verið að hreyfa alvörumáli. Hvað svo sem hugmyndum um friðar- fræðslu líður, en þær eru mjög á reiki hjá tillögumönnum eins og fram hefur komið, er mikið áhyggjuefni hvernig þingmenn hreyfa hverju alvörumálinu á eftir öðru án þess að hafa fyrst gert það upp við sig að því er virðist hvaða tilgangi mál- flutningurinn þjónar. Hér að ofan er að því vikið hvernig samsafn mála, stórra og smárra, hefur haft áhrif á álit íslensku þjóðarinnar út á við. Til lengdar hefur það einn- ig orðið til þess að spilla áliti alþingis meðal almennings, kjósenda, að þingmenn rjúka til og flytja lítt ígrundaðar til- lögur um hitt og þetta, oft og tíðum vegna þess að þeir mis- skilja strauma í almennings- álitinu. Óljósa tillagan með enn óljósari greinargerð um friðarfræðslu er nýjasta dæm- ið um þetta. Séð austur eftir Suðurlandsvegi í áttina að Eyjafjallajökli. Brúin yfir Markarfljót við enda vegarins til vinstri, Dímon þar sunnudagsins. Miklar skemmdir af flóðum á Suöurlandi: Varnargarðar oi sundur á mörgi — óvíst hvenær hægt verður að opna aftur fyrir almenna umferð „ÞAÐ GENGUR hiegt að gera við veg- inn enda er vatnið svo mikið, að engin leið er að loka skörðunum fyrr en gert hefur verið við varnargarðana. Hvort það tekst í kvöld eða nótt get ég ekki sagt um ennþá," sagði Jóhann Smári Lárusson, verkstjóri hjá Vegagerðinni á Hvolsvelli, í samtaii við blaðamann Mbl. síðdegis í gær. Þá voru starfs- menn Vegagerðarinnar og ýmsir fleiri að vinna að því að ryðja upp nýjum varnargörðum ofan brúarinnar yfir Markarfljót, þar sem miklar vega- skemmdir urðu í vatnavöxtunum að- faranótt sunnudagsins. Víða á Suður- og Suðausturlandi urðu vegaskemmd- ir vegna flóðanna en mest tjón líkast til á Suðurlandsvegi austan Hvolsvall- ar. Jóhann Smári sagði að allsendis væri óvíst hvenær hægt yrði að opna veginn aftur fyrir almennri umferð. „Fyrst þarf að gera við varnargarðana og þessa stundina er verið að aka í þá grjóti með sjö vörubílum. Þarna eru fleiri stórvirk tæki í notkun og væntanlega á þeim eftir að fjölga í kvöld," sagði hann. „Garðarnir eru illa farnir, einkum þrír þeirra, og ég gæti trúað að allt að 150 metrar væru farnir úr þeim með grjóti og öllu saman. Þegar fljótinu hefur verið beint í réttan farveg verður hægt að komast á milli á stærri bílum og jeppum — að minnsta kosti inn í Fljótshlíð í birt- unni. Ég ráðlegg engum að fara þetta í myrkri enda er jakaburður- inn svo mikill." Hann sagði að þegar Markarfljóti hefði verið komið undir brúna aftur neðan við Dímon væri þó ekki nema hálfur sigur unninn, því þá myndi vatn vaxa mikið við Seljaland. Það gætu því liðið einhverjir dagar áður en ástandið yrði eðlilegt aftur. Það var klakastífla í Markar- fljóti, sem var upphaf skemmdanna á varnargörðunum og veginum austan við Leifsstaði. Vatnið fór m.a. í gamlan farveg, svokallaðan Álafarveg, og í gegnum veginn á nokkrum stöðum, skv. uppiýsingum Sveins ísleifssonar, lögregluvarð- stjóra á Hvolsvelli. „Flóðið sjatnaði Nokkrar vegaskemmdir urðu einnig á Suðausturlandi. Þessi mynd var tekin síðdegis á sunnudag í Papafirði, þar sem rofnað höfðu tvö skörð í veginn milli Hafnar og Djúpavogs. MorgunblaðiO/Friðþjófur Unnið að viðgerður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.