Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 39 Jörundur Jóns- son — Minning Fæddur 30. marz 1908 Dáinn 3. fcbrúar 1984 Jörundur Jónsson vélstjóri frá ólafsfirði andaðist á heimili sínu, Ljósheimum 22 í Reykjavík þann 3. febrúar siðastliðinn. Hann fæddist í Hrísey 30. marz 1908, sonur Þorgerðar Jörundsdóttur og Jóns Bergssonar og fluttist með þeim um þriggja ára aldur til Ólafsfjarðar, þar sem hann ólst upp í tíu systkina hópi. Hann kvæntist 1Ó. nóvember ár- ið 1931 Guðlaugu Gísladóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau tvö börn, Jón Torfa og Þorgerði, og ólu að auki upp Þorfinnu Stefánsdótt- ur, systurdóttur Guðlaugar, frá fimm ára aldri. Barnabörnin eru orðin ellefu og barnabarnabörnin jafn mörg. Jörundur var einn vetur sem unglingur á Alþýðuskólanum á Laugum en varð að byrja innan við fermingu á sjónum að hjálpa til við framfærslu heimilisins, en hann var elstur bræðranna en fjórði í röð systkinanna. Fjórtán ára að aldri réðst hann á „Önnu“ frá Akureyri, var svo á vélbátum heima í nokkur ár en fluttist síðan til Akureyrar þar sem hann var vélstjóri á togaranum Narfa í tíu ár og síðar á Jörundi. Þegar hann hætti á sjónum gerðist hann véla- gæzlumaður hjá KEA í nokkur ár, en fluttist síðar til Reykjavíkur, þar sem börnin voru þá orðin bú- sett. Fyrsta endurminning mín um þennan hjartahlýja bróður okkar tengist sjónum. Þá hefur hann víst verið átján ára, en ég fjög- urra. Þá gerði foráttubrim á stór- straumsflóði og allt í einu náði sjórinn í ökkla á gólfunum heima. Eg man samt ekki neina hræðslu, bara undrun og svo það að Jörund- ur tók mig á háhest og óð með mig í hús lengra frá sjónum. Önnur minning er frá þessum sama vetri, því þá klæddi hann mig í jólafötin og nýju skóna, sem ég man enn. Traust og gleði eru líka hugtök, sem tengjast honum, og engu breytti þó hann gifti sig, því ungu hjónin bjuggu fyrstu árin á efri hæðinni heima, og ég gerði engan greinarmun á hver átti heima hvar. Guðlaug lét mig vita hvað var í matinn og ég mátti alltaf ráða á hvorum staðnum ég borð- aði. Það var mikil gleðistund heima þegar Torfi fæddist, ég var þá tíu ára, en fannst endilega vanta börn í húsið, og sannarlega var það kraftakarl, sem kominn var. Gaman var líka að taka þátt í gleði Jörundar, þegar hann út- skrifaðist úr Vélskólanum í Reykjavík, ég var þá boðin með honum í lokahófið. Þá, eins og svo oft, var fjölskyldan víðs fjarri. Vegna hafnleysis heima urðu sjó- menn að fara vetur eftir vetur á vertíð á Suðurlandi. Sumar kon- urnar fóru oft með sem ráðskonur í verbúðunum en stundum komust þær ekki vegna ungra barna eða ef til vill aldraðra foreldra. Jörundur var hamingjusamur maður, einn af fáum sem var alveg laus við alla streitu. Hann var vel kvæntur og átti miklu barnaláni að fagna, og hann var vinmargur. Á heimilinu heyrðist aldrei styggðaryrði og oft var gestkvæmt og glatt á hjalla. Hann hafði yndi af góðri tónlist og glaðværð og spiiaði á orgel og harmonikku á dansleikjum á yngri árum. Það var aðdáunarvert, hve öll fjölskyldan reyndist honum vel, þegar fór að halla undan fæti með heilsuna, og þess vegna gat hann verið heima til hinztu stundar, þar sem hann fékk hægt andlát. Hjartans þakkir frá okkur systkinunum og systkinabörnun- um fyrir ómetanlegar, hugljúfar minningar. Innilegar samúðar- kveðjur til eiginkonu, barna og fjölskyldu. Margrét Þín náð það hefur svo til sett, að sérhver skyldi læra embætti sitt að iðka rétt og handbjörg sig næra um land og sjó, en liðsemd þá lofaðir þeim að veita, sem treystu þér og síðan sér sinnar atvinnu leita. í Guðs nafni og ótta enn, eftir hans náðarorði, veiðarfærunum vil ég senn varpa frá skipsins borði. Þetta mitt verk, miskunnin merk, minn Herra Jesú, blessi, veiti hann mér, hvað vild hans er, von mín og bón er þessi. (H. Pétursson) Hjörleifur Jóns- son — Minning Fæddur 7. október 1910. Dáinn 31. janúar 1984. Það er vika liðin frá því útför Leifs vinar míns var gerð. Hann lézt aðfaranótt 31. janúar sl. sadd- ur lífdaga. Síðustu tvo áratugina var líf hans endalaust andstreymi. Heilsu hans fór hrakandi, og hann háði vonlausa baráttu við Bakkus, sem að lokum átti sinn þátt í láti hans. En það eru björtu árin öll, sem ég vil muna, og fjölmargra ánægjustunda er mér ljúft að minnast, um ung hjón með barna- hópinn sinn, sem ég passaði og sagði sögur forðum. Um heim- sóknirnar á æskuheimili mitt, þegar setið var yfir kaffibolla hjá „Möggu stóru". í minningu minni var hugur hans alltaf opinn fyrir því, sem fallegt var og listrænt. Jafnan var hann léttur og spaug- samur, ætíð stutt í hlátur, enda fljótur að sjá hið broslega í tilver- unni. Ritað mál var honum hug- leikið, og hafði hann óblandna ánægju af að vitna í kveðskap við ólíklegustu tækifæri. Ég get seint fullþakkað það, sem hann gerði fyrir mig og mína. Leifi var mjög barngóður, og hændust börnin að honum hvar sem hann var. Um það getur und- irrituð bezt vitnað. Sælar eru minningarnar frá sumrunum í sumarbústaðnum í hrauninu við Hólmsá, þar sem allur frænd- systkinahópurinn dvaldist vikum saman í sátt og samlyndi. Þá stóð ekki á honum að benda okkur krökkunum á fegurð umhverfisins og kenna okkur að sjá út „hallir" og „álfaborgir" í hrauninu. Hann elskaði blómin og öll dýr. Hver lít- ill afleggjari varð að stóru og fal- legu blómi í umsjá hans. Þessi fátæklegu orð eru aðeins brot af þeim góðu minningum, sem ég á um Leifa. Nú, þegar hann er kvaddur að sinni, fylgja honum góðar óskir og þakkir þeirra, sem vel vissu hve ljúfur vinur hann var. „Margs er aö minnast margt er að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast. Margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð." Stykkishólmur: Minningarathöfn um skip- verja á Haferninum Stykkishólmi, 6. febrúar. LAUGARDAGINN 4. þ.m. fór fram í Félagsheimilinu í Stykkishólmi minningarathöfn um Kristrúnu Á. Óskarsdóttur er fórst með mb. Haf- crni í fiskiróðri við Bjarneyjar á Breiðafirði 31. okt. sl. Einnig var minnst félaga hennar sem þá fórust líka, þeirra Péturs Jack og Ingólfs Kristinssonar. Hófst athöfnin með því að leikið var sorgarlag. Jóhanna Guð- mundsdóttir lék á orgel og Daði Þór Einarsson á básúnu. Þá flutti séra Gísli Kolbeins minningarræðu og kirkjukórinn söng undir stjórn Jóhönnu Guð- mundsdóttur. Félagsheimilið var þéttsetið og margir komu langan veg að til að vera við þessa minningarathöfn sem var bæði hátíðleg og alvöru- þrungin. Fréttaritari. Unna f ATHYGLl skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Móðir okkar, ELÍN EINARSDÓTTIR, fyrrum hjúkrunarkona, andaöist 3. febrúar. Útförin hefur fariö fram. Þökkum auösýnda samúð. Helga M. Thors, Jón E. Gunnlaugsson. t Eiginmaöur minn, STEINGRÍMUR EINARSSON fró LAgholti, Framnesvegi 59, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni miövikudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélag fslands. Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna, Þuríöur Ágústa Simonardóttir. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir, amma og langamma, JÓNÍNA PÁLSDÓTTIR, er andaöist 6. febrúar á sjúkradeild Hrafnistu, veröur jarösungin frá kirkju Fíladelfíusafnaöarins, Hátúni 2A, miövikudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna, Páll Júlíus Einarsson. + Frænka okkar og einlæg vinkona, UNNUR BRYNJÓLFSDÓTTIR, Barónsstíg 13, andaöist á heimili sínu laugardaginn 11. febrúar. Jaröarförin ákveöin síöar. Anna Sigriöur Gunnarsdóttir, Brynjólfur Harald Gunnarsson, Guðmundur Gísli Gunnarsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Kristján Þór Gunnarsson, Edda Guömundsdóttir, Pétur Jónsson. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vinarhug og samúö viö andlát og jaröarför, BRYNDÍSAR ELÍASDÓTTUR, Reynihvammi 34, Kópavogi. Kristján Þór, Kristrún Kristófersdóttir, Kristján Ólafsson og aörir vandamenn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR, Ásgarði 33. Þórdís Árnadóttir, Árni Magnússon, Móeiöur Þorláksdóttir, Jensína Magnúsdóttir, Hjörleifur Þóröarson, Hersteinn Magnússon, Sigrlöur Skúladóttir og barnabörn. + Þökkum innilega fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jarðarför hjartkærrar eiginkonu. móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu, UNNAR GUOFINNU JÓNSDÓTTUR, Grenimel 15. Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarfólki á deild 11B Landspítalanum fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. Hólmgeir Jónsson, Eyvör M. Hólmgeirsdóttir, Steingrímur Helgason, Aöalbjörg Hólmgeirsdóttir, Lárus Guögeirsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.