Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 85. tbl. 71. árg.____________________________________MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984______________________________ Prentsmiðja Morgunblaðsins Loftárásír Rússa á óbreytta borgara Nýju Delhi, 10. aprfl. AP. VESTRÆNIR diplómatar segja Sovétmenn hafa grandað að minnsta kosti 65 Afgönum, aóal- lega óbreyttum borgurum, í síöustu viku með loftárásum og jarð- sprengjunetum við borgirnar Istal- ef, Karaz E Mir og Guldara. Marg- ir eru sagðir hafa særst og fregn- irnar hafa verið á þá leið að Sovét- mennina hafi einu gilt hvort það voru óbreyttir borgarar eða frels- issveitarmenn sem urðu fyrir barð- inu á þeim. Það voru bæði MIG-þotur og þyrlur sem tóku þátt í árásunum á umræddar borgir. Jarðsprengj- urnar lögðu Rússarnir á þjóðveg- inn milli Shomali-héraðs og höf- uðborgarinnar Kabúl. 18 manns létu þar lífið er áætlunarbifreið full af fólki ók á jarðsprengju. Ekki var ljóst hvað vakti fyrir Rússum með aðgerðum þessum, því sæmilega kyrrt hefur verið í landinu upp á síðkastið og frels- isliðar hófu viðræður við Sov- étmenn í Panjesherdal í síðustu viku um vopnahlé. Hefur varla verið hleypt þar af skoti síðan. Vestrænir diplómatar telja að aðgerðir Rússa geti orðið til að skærur blossi upp á ný. Oskarsverðlaun Símamynd AP Frá vinstri: James Brooks leikstjóri, Shirley Mclane og Jack Nicholson með Óskarsverðlaunagripi sína fyrir hlutdeild að kvikmyndinni „Terms of endearment“. Sjá nánar um Óskarshátíðina í Los Angeles á blaðsíðu 22. Giftingarveislan tók óvænta stefinu Bkkleigh, Knglandi. 10. aprfl. AP. ÞAU SUZY Hancock og Nigel Dunn munu trúlega muna giftingar- veislu sína æði lengi. Slíkt er að vísu venjan, en þau hjónaleysin hafa meiri ástæðu en flestir aðrir og skal nú frá greint hvers vegna. Veislan var í fullum gangi í risastóru tjaldi í smáþorpinu Bickleigh, flestir þorpsbúar mættir auk fleiri gesta. Skyndilega varð uppi fótur og fit, er þriggja ára gamall rádýrssteggur ruddist með óhljóðum og brambolti inn í tjaldið og á eftir honum streymdu nokkrir tugir ærðra hunda og flokkur veiðimanna á hestbaki í einkennisbúningum samkvæmt venju, þenjandi lúðra og æpandi hástöfum í hita leiksins. Atvikið átti sér stað er gest- irnir, allir með tölu, voru að lyfta glösum til heiðurs brúð- hjónunum og misstu margir úr glösum sínum. En nú tók leikur að æsast, veiðimenn gerðu sig líklega til að vinna á dýrinu inni í tjaldinu , en það var ekk- ert á því og hljóp til og frá innan um gestaskarann með hundana á hælunum, sveifl- andi hornum sínum djarflega á báða bóga. Loks var dýrið kró- að af, en er veiðimennirnir hugðust Ijúka leiknum kom bróðir brúðgumans á vettvang, vopnaður haglabyssu, og hót- aði hann að skjóta veiðistjór- ann ef hann kæmi ekki kyrrð á flokk sinn og léti dýrið afskiptalau^t. Er veiðimenn- irnir horfðust I augu við tví- hleypuna, rann mesti móður- inn af þeim og snautuðu þeir burt eftir að hafa beðist afsök- unar. Var dýrinu svo hleypt út er veiðihópurinn hafði horfið af landareigninni og veislan hélt áfram sem ekkert hefði í skorist. Forkosningar í Pennsylvaníu: Könnun spáði Mondale sigri Philadelphia, Pennsylvaníu, 10. aprfl. AP. ^ KJÓSENDUR Demókrataflokksins í Pennsylvaníu gengu í dag til forkosn- inga um hver skuli hreppa útnefningu flokksins sem forsetaefni. Ekki átti að loka kjörstöðum fyrr en klukkan tvö að nóttu að íslenskum tíma og því útilokað aö birta tölur. Hins vegar var búist við því að afar mjótt yrði á mununum og þeir Gary Hart og Walter Möndale hvorugur tilbúinn til spá sjálfum sér sigri. Þeir Hart og Mondale gátu þess báðir að erfitt væri að átta sig á stöðunni og gera sér of miklar vonir, en skoðanakönnun sem gerð var í morgun benti til þess að Mondale hefði nauma forystu, 43 prósent, Hart hefði 33 prósent og þriðji keppinauturinn, Jesse Jackson, 16 prósent. 8 prósent reyndust óákveðin og bindur Hart miklar vonir við þá kjósendur. Þá er jafnan gert ráð fyrir skekkjum í könnunum sem þessum og menn muna að í síðustu forkosningum skeikaði illa í skoðanakönnunum og Mondale reyndist hafa meiri stuðning en þær bentu til. Fyrir Pennsylvaníu-kosn- ingarnar hafði Mondale náð fylgi 906,8 kjörmanna, Hart hafði 555 og séra Jackson 147,2. I ríkinu var keppt um 172 kjörmenn. Fastir liðir eins og venju- lega í Beirút Beírút, 10. aprfl. AP. Líbanskir stjórnarhermenn og kristnir falangistar annars vegar, og shitar hins vegar, skipust á skotum við „grænu línuna“ í Beir- út í dag og hófust átökin aðeins 15 klukkustundum eftir að full- trúar hinna stríðandi fylkinga höfðu undirritað drög að sáttmála sem fullyrt var hástöfum að væri „hyrjunin á varanlegum friði“. Fljótlega eftir undirritunina fjör- uðu bardagar út, en það stóð ekki lengi. Talsverð sprengjuhríð var í Beirút meðan harðast var bar- ist og sprungu sprengjur beggja vegna „grænu línunnar". All- margir særðust, en ekki var vit- að um dauðsföll. Ekki var held- ur vitað til þess að byrjað væri að framkvæma ákvæði hins nýja sáttmála. Innihald hans hefur ekki verið birt formlega, en ýmsir sem sitja í embætt- ismannastólum segja eitt helsta atriðið vera að hinar striðandi fylkingar færi sig frá „grænu línunni", a.m.k. svo langt að ekki sé lengur kallfæri á milli. Þanmg ætti að draga úr vopna- hlésbrotum. Geimferju- menn kræktu í Solar Max Cape Caaaveral. 10. aprfl. AP. GEIMFARARNIR um borð í handarísku geimskutlunni Uhall- anger náðu hinum bilaða gervi- hnetti, Solar Max, í fyrstu tilraun í dag, eftir að hafa mistekist verkið á sunnudaginn. Notuðu þeir griptöng utan á ferjunni til að krækja í tunglið og gekk það að óskum. Þetta var í fyrsta skipti sem geimferja nær biluðu gervi- tungli og tekur það innanborðs til viðgerða, en það var ein af upprunalegu hugmyndunum með smíði geimferjanna. Geimfararnir munu nú freista þess að gera við Solar Max og senda það svo á sporbraut um jörðu á ný.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.