Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 30
39o Frumvörp um lyfsölu og ónæmisaðgerðir Mismunandi skemmtanaskattur kvikmyndahúsa Fimm stjórnarfrumvörp Matthías Bjarnason heilbrigðis- ráðherra mælti sl. mánudag fyrir stjórnarfrumvarpi að lyfjalögum. Þá mælti ráðherra einnig fyrir frumvarpi um ónæmisaðgerðir. Loks flutti Matthías sem sam- gönguráðherra framsögu fyrir frumvarpi að siglingalögum. Þá hefur veri lagt fram stjórnar- frumvarp um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenzkum skipum sem og stjórnarfrumvarp um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélvarða á íslenzkum skipum. Greiðslugeta Reykvíkinga. Efri deild Alþingis afgreiddi sl. mánudag frumvarp, sem nú geng- ur til neðri deildar um niðurfell- ingu skemmtanaskatts af kvik- myndasýningum kvikmyndahúsa í smærri sveitarfélögum. Frum- varpsgreinin var samþykkt að Matthías Bjarnason mælti fyrir þremur stjórnarfrumvörpum sl. mánudag. viðhöfðu nafnakalli með 14:1 at- kvæði. Stefán Benediktsson (BJ) greiddi einn atkvæði gegn frumvarpinu. Hann gerði svohljóðandi grein fyrir atkvæði sínu: „Þar sem ég ekki með nokkru móti fæ séð að Reykvíkingar hafi frekar efni á því að borga skemmtanaskatt en aðrir landsmenn, þá lýsi ég mig andvígan þessari lagasetningu. Stefnumörkun í skólamálum Kristín H. Tryggvadóttir (A) hef- ur flutt tillögu til þingsályktunar sem felur menntamálaráðherra, verði hún samþykkt, að skipa 11 manna nefnd til að „móta stefnu í málum grunnskólans og fram- haldsskólans fram til aldamóta". Samtök kennara tilnefni 5, sam- tök foreldra 2, en Alþingi kjósi 4 nefndarmenn. Nefndin fjalli um eftirtalda þætti: Innra starf skól- ans, skólahúsnæði, námsgögn og búnað, skólasöfn, skólatíma, j námsefni, menntun kennara, rétt- indi til kennslu, tengsl við at- vinnulífið, samstarf við heimilin, skólaskipan í strjálbýli og þétt- býli, tengsl grunnskóla við fram- haldsskóla o.fl. Leiguaðstoð við láglaunafólk Stefán Benediktsson (BJ) hefur lagt fram tillögu til þingsályktun- ar, sem felur ríkisstjórninni, verði hún samþykkt, að semja laga- frumvarp um leiguaðstoð við lág- launafólk. „Hugsunin að baki þessari tillögu", segir í greinar- gerð, „er sú að leiguaðstoð við fólk með lágar heimilistekjur verði lögfest mannréttindi". Gnmnskólar: Kostnaður 1100 m.kr. Áætlaður kostnaður menntamála- ráðuneytis vegna grunnskóla á þessu skólaári er 970 m.kr., þar af um 555 m.kr. í föst laun. Kostnaður dreifíst misjafnt á mánuði ársins en verður að jafnaði um 80 m.kr. Kostnaður sveitarfélaga vegna grunnskóla verður sennilega 250—300 m.kr. í ár. Kostnaður ríkis- ins við forskóla 1984 er áætlaður um 31 m.kr. Þessar upplýsingar komu fram í svari Ragnhildar Helgadóttur, menntamálaráðherra, við fyrirspurn frá Pálma Jónssyni (S). Menntamálaráðherra svaraði því til aðspurð um, hvort þátttaka í atvinnulífi sé metin í verklegu námi, samanber 42. grein grunnskólalaga, að þetta ákvæði hafi enn ekki komið til fram- kvæmda og sé „sennilega óframkvæmanlegt í því formi, sem það er við ríkjandi aðstæður í fræðsluskrifstofum". raðauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar I kennsla___________________| Stýrimannaskólinn í Reykjavík Endurmenntunar- námskeiö fyrir skipstjórnarmenn Endurmenntunarnámskeiö 1984 verður hald- iö í eftirtöldum greinum: Sundköfun: Frá 21. maí til 2. júní — 10 kennsludagar. — Bókleg og verkleg kennsla. Þátttökugjald er kr. 6.000,-. Þátttakendur geta haft meö sér eigin búninga. Þeir veröa aö leggja fram læknisvottorð um aö þeir full- nægi öllum kröfum sem eru gerðar til heil- brigöis og líkamsbyggingar vegna köfunar. Frá 25. maí — 2. júní: 1. Siglingar í ratsjársamlíki — (Radar Sim- ulator) og ratsjárútsetningar. 2. Skipagerö — Hreyfistöðugleiki (dýna- mískur stööugleiki), kröfur IMO um stöö- ugleika. Kornflutningar. Kynntar reglur SOLAS og meðferö á hættulegum farmi. 3. Ratsjá og fiskleitartæki — m.a. ný ratsjá Kelvin-Hughes-1600. 4. Lóran — Gervitunglamóttakari (Satel- lite). 5. Stórflutningar — Skipspappírar (Shipp- ing). 6. Tölvunotkun um borö í skipum og sjáv- arútvegi. 7. Veiöarfæri — Vörpur, vörpugerö. Fiskurinn og lífið í sjónum umhverfis landiö. Ástand sjávar, straumar viö ísland. 8. Heilsufræði — Skyndihjálp. Lyfjareglugerö, lyfjakista. — Slysadeild Borgarspítalans (væntanlega). 9. Eldvarnir — Slysavarnir. (Reykköfun, slökkvitæki, slökkviæfing, fluglínutæki, björgun meö þyrlu.) 10. Enska — Lesin bók sem fjallar sérstak- lega um viöskipti skipa (Wave Length). Kenndar veröa 4 std. á dag. Enska er valfag meö öllum greinum nema sund- köfun, eldvörnum, heilsufræöi og tölvu- notkun. Þátttökugjald kr. 4.000,- fyrir greinar frá 1,—10. ~ Væntanlegir þátttakendur tilkynni þaö til Stýrimannaskólans bréflega eöa í síma 13194 virka daga frá kl. 8—12, og tilkynnist þátttaka fyrir 7. maí nk. Skólastjóri. tilboö — útboö Útboö Hveragerðishreppur óskar hér með eftir til- boðum í uppsetningu girðingar í kringum hverasvæöiö í Hverageröi. Giröingin veröur 775 metrar aö lengd og tveggja metra há. Giröingarefnið er framleitt af Heras fence systems Hollandi. Verkinu skal vera lokið fyrir 15. júní 1984. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Hvera- geröishrepps gegn 500 kr. skilatryggingu, og skal þeim skilaö á sama staö eigi síöar en þriöjudaginn 24. apríl kl. 10.00 og verða til- boöin þá opnuö aö viðstöddum þeim bjóö- endum sem þess óska. Sveitarstjórinn í Hveragerði. ORKUBÚ VESTFJARÐA Útboö Orkubú Vestfjaröa óskar eftir tilboðum í strengingu leiðara fyrir 66KV háspennulínu frá Mjólkárvirkjun til Tálknafjaröar. Útboösgögn: Strenging. Orkubúiö leggur til efni frá birgöastöövum á ísafiröi og Bíldudal. Í verkinu felst auk strengingar leiöara, uppsetning einangrara, jaröbindingar o.fl. Verkiö skal hefjast 16. júlí 1984 og Ijúka 8. okt. 1984. Lengd línunnar er 45 km og fjöldi mastra 503. Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Orkubús- ins á ísafiröi frá og meö fimmtudeginum 12. apríl 1984 og kosta kr. 400,00. Tilboö veröa opnuö, fimmtudaginn 3. maí 1984 kl. 11.00, á skrifstofu Orkubúsins á ísa- firöi aö viðstöddum þeim bjóöendum er þess óska og skulu þau hafa borist tæknideild Orkubúsins fyrir þann tíma. ORKUBÚ VESTFJARÐA Útboö Orkubú Vestfjaröa óskar eftir tilboöum í byggingu 19KV háspennulínu frá Hrútatungu til Boröeyrar. Útboðsgögn: 19KV háspennulína, Hrútatunga — Boröeyri. Orkubú Vestfjarða leggur til efni frá birgða- stöövum á Boröeyri og í Hrútatungu. Verkiö skal hefjast 1. okt. 1984 og Ijúka 1. des. 1984. Lengd línunnar er um 9,5 km og fjöldi mastra 110. Tilboð veröa opnuð á skrifstofu Orkubúsins á ísafirði, fimmtudaginn 3. maí 1984 aö viö- stöddum þeim bjóðendum er þess óska og skulu þau hafa borist tæknideild Orkubúsins fyrir þann tíma. Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Orkubús- ins á ísafiröi, frá og meö fimmtudeginum 12. apríl 1984 og kosta kr. 400,00. Lager- og skrif- stofuhúsnæöi óskast til leigu undir heildverslun, 100—150 fm, á Stór-Reykjavíkursvæöinu. Tilboð sendist Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „L — 500“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.