Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 21
mi jííiia .n auoAauxivaiM .aiaAjaviuuHOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984 Unnið að brettasmíðinni í Trésmiðju Þórðar. Morgunblmðií/Sigurgeir. Vestmannaeyjar: Trésmiðja Þórðar smíðar 3.000 bretti fyrir Eimskip Ve.stmannaeyjum, 3. apríl. Farprestur Þjóðkirkjunnar: Sr. Guðmundur Örn Ragnars- son, Raufar- höfn, skipaður BISKUP íslands hefur skipað séra Guðmund Örn Ragnarsson sókn- arprest á Raufarhöfn til að gegna öðru farprestsembætti Þjóðkirkj- unnar frá 1. maí n.k. Jafnframt hef- ur biskup íslands auglýst Raufar- hafnarprestakall laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 10. maí n.k. Séra Guðmundur Örn er 37 ára, fæddur í Reykjavík, sonur Ragn- ars Kjartanssonar myndhöggvara og Kristínar Guðmundsdóttur bankafulltrúa. Hann lauk prent- námi árið 1967, stúdentsprófi 1972 og guðfræðiprófi vorið 1978. Sama haust vígðist hann til Raufarhafn- arprestakalls og hefur gegnt því síðan. Kona hans er Jónína Lára Einarsdóttir, grafíklistamaður, og eiga þau þrjú börn. Þetta farprestsembætti er nýtt og varð til er annað prestsembætt- ið í Vestmannaeyjum var lagt niður og gert að embætti far- prests. Fyrir er annað embætti farprests, sem séra Ingólfur Guð- mundssonar þjónar. 17 erlend skip að veiðum við landið SAUTJÁN erlend fiskiskip eru nú að veiðum við landið, 3 belgískir togar- ar og 14 færeyskir línubátar, að því er Sigurður Árnason hjá Landhelg- isgæslunni tjáði blm. Mbl. í gær. Belgísku togararnir, sem reynd- ar hafa verið hér við land meira og minna í allan vetur, hafa verið að veiðum í Meðallandsbugt. Hafa þeir fengið lítinn afla, 2—4 tonn á sólarhring og þá aðallega ýsu, keilu og löngu. Færeyskum bátunum tók að fjölga mjög fyrir um 10 dögum og eru nú 14. Hafa þeir haldið sig á svæðinu frá Stokksnesi og vestur undir Alviðru. Afli þeirra hefur verið 4—7 tonn á dag, mestmegnis sömu fisktegundir og Belgarnir hafa verið að fá. TRESMIÐJA Þórðar í Vestmanna- eyjum hefur undanfarnar vikur unnið að smíði 3.000 vörubretta fyrir Eimskipafélag fslands. Vegna þessa verkefnis varð trésmiðjan að fjölga starfsmönnum um tvo sem eingöngu hafa unnið við þessar brettasmíðar. Hófst framleiðslan um miðjan mars og hefur trésmiðj- an síðan sent frá sér tvo vöruvagna af fullsmíðuðum brettum í viku hverri. Efnið í brettin er innflutt frá Portúgal og vegna þessa nýja verkefnis keypti Trésmiðja Þórðar sérstaka loftnaglabyssu af svissneskri gerð. Þess má geta að í þessi 3.000 bretti fara 176m3 af ósamsettu efni en rúmmetr- arnir eru orðnir tæplega 800 þegar brettin fara fullsmíðuð frá trésmiðjunni. Það var sl. haust sem Eimskip leitaði tilboða í 10.000 vörubretti og var Trésmiðja Þórðar eini innlendi aðilinn sem fékk hluta af þessu verkefni en afgangurinn er fluttur inn af umboðsmönnum erlendra trésmiðja. Þórður Karlsson, einn þriggja Þórða sem eiga og reka Trésmiðju Þórðar, sagði í samtali við blm. Mbl. að tilboð þeirra hefði reynst fyllilega samkeppnisfært gagn- vart hinni erlendu smíði ef tillit væri tekið til þess að skipafélag- ið tekur við brettum þeim sem eru samansett erlendis fob í er- lendri höfn og flytur sjálft til lands. Þetta gerir innlendum framleiðendur mjög erfitt fyrir í samkeppninni við erlenda fram- leiðendur og nánast vonlaust að keppa á þessum grundvelli, að sögn Þórðar Karlssonar. Inn- lendir framleiðendur verða að flytja allt efni inn og greiða af því flutningsgjöld. Notkun vörubretta í flutning- um hefur stórlega aukist á und- anförnum árum og fyrirsjáanleg er enn frekari aukning, t.d. í flutningi á fiskafurðum. Það er því mikið í húfi fyrir íslenska framleiðendur á þessu sviði að smíði vörubretta verði í sem mestum mæli fengin þeim í hendur. — hkj. MorgunblaÓið/Sigrún. Gunnar Davíðsson tekur fyrstu skóflustunguna að fyrsta verkamannabústaðnum í Hveragerði. Verkamanna- bústaðir byggðir HvuragerAi, 3. apríl. ÁKVEÐIÐ hefur verið að byggja verkamannabústaði í Hveragerði og tók Gunnar Davíðsson kaupmaður fyrstu skóflustunguna fyrir hinu nýja húsi nú fyrir nokkrum dögum. Húsið á að rísa aö Heiðmörk 10—16 og verða í því fjórar jafn stórar íbúð- ir, allar 82 m2 hver. Verkið var boðið út. Tilboð voru opnuð þ. 10. janúar sl. og lægsta tilboði tekið, en það kom frá Sæ- mundi Gíslasyni, byggingameist- ara í Hveragerði. Byggingatíminn miðast við marsmánuð 1984 til 1. maí ’85. íbúðunum 'skal skila full- búnum með fullfrágenginni lóð. Byggingarkostnaður er áætlaður 5,5 milljónir króna á núverandi verðlagi. Ibúðirnar verða auglýst- ar til sölu fljótlega. 1 Hveragerði hafa löngum verið skiptar skoðanir um ágæti fjölbýl- ishúsa, en nú munu þær trúlega sanna kosti sína og galla. Hér í bæ hefur til margra ára verið skortur á leiguhúsnæði, en nokkuð mörg eiguleg hús eru á söluskrá hér í Hveragerði. — Sigrún. Lestunar- áætlun Skip Sambandsíns munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Jan ............. 16/4 Jan ........... 30/4 Jan ............. 14/5 Jan ........... 28/5 ROTTERDAM: Jan ............. 17/4 Jan ............ 1/5 Jan ........... 15/5 Jan ........... 29/5 ANTWERPEN: Jan ............. 18/4 Jan ............ 2/5 Jan ........... 16/5 Jan ........... 30/5 HAMBORG: Jan ........... 19/4 Jan ............ 4/5 Jan............ 18/5 Jan ............ 1/6 HELSINKI/TURKU: Hvassafell .... 26/4 Hvassafell .... 23/5 LARVIK: Francop ..... 23/4 Francop ........ 7/5 Francop ....... 21/5 GAUTABORG: Francop ....... 24/4 Francop ........ 8/5 Francop ....... 22/5 KAUPMANNAHÖFN: Francop ....... 25/4 Francop ........ 9/5 Francop ....... 23/5 SVENDBORG: Francop ....... 12/4 Francop ....... 26/4 Francop ....... 10/5 Francop ....... 24/5 ÁRHUS: Francop ....... 13/4 Francop ....... 27/4 Francop ....... 11/5 Francop ....... 25/5 FALKENBERG: Helgafell ..... 12/4 Mælifell ....... 1/5 Helgafell ..... 11/5 GLOUCESTER MASS.: Jökulfell ..... 13/4 Skaftafell .... 24/4 HALIFAX, KANADA: Skaftafell .... 25/4 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 LITGREINING MEQ, CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AO VANDADRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.