Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984 Aðalfundur Samvmnubankans: 70,5% aukning innlána árið 1983 100% aukning hlutafjár med útgáfu jöfnunarhlutabréfa Kristleifur Jónsson bankastjóri heldur rieóu sína á aðalfundinum. AÐALFIINDUR Samvinnubankans fyrir starfsárið 198.1 var haldinn að llótel Sogu laugardaginn 24. mars sl. Fundarstjóri var kjörinn Hörður Zóphaníasson, skólastjóri, en fundar- ritari Margeir Daníclsson, hagfræð- ingur. Formaður bankaráðs, Erlendur Einarsson, forstjóri, flutti að venju mjög ítarlega skýrslu um starfsemi bankans á sl. ári auk þess sem hann rakti þróun efnahags- og pen- ingamála á árinu 1983. Kom þar meðal annars fram, að áframhald hefði orðið á þeim sam- drætti í þjóðarbúskapnum, sem hófst á árinu 1982 og ætti einkum rætur að rekja til minnkandi fram- leiðslu sjávarafurða. Með sama áframhaldi stefndi i ennþá meiri samdrátt en á erfiðleikatímabilinu 1967/1968 og hefði mönnum þá þótt nóg um. Allar aðstæður væru nú mun erfiðari en árin þar á eftir. Hins vegar taldi hann, að efna- hagsaðgerðirnar á sl. ári hefðu skil- að skjótum árangri í baráttunni við verðbólguna og stuðlað að meiri stöðugleika í allri efnahagsstarf- semi. Tekjusamdrátturinn á liðnu ári hefði óumflýjanlega komið þungt niður á láglaunafólkinu. Því hefði að undanförnu verið unnið að iausn þeirra mála, þótt alltaf mætti betur gera. Erlendur kvað það trú sína og von, að hægt væri að tryggja hinum verr settu þjóðfélagsþegnum viðun- andi kjör ef allir samningsaðilar í þjóðfélaginu leggðust á eitt þar um. Hvað stöðu atvinnuveganna varð- aði virtist einsýnt, að undirstöðu- atvinnuvegirnir, sjávarútvegur og landbúnaður, ættu erfiða tíma framundan, en starfsskilyrði iðnað- ar hefðu aftur á móti snúist til betri vegar. Ljóst væri hinsvegar, að næg atvinna og batnandi lífskjör hér á landi yrðu ekki tryggð á komandi tímum nema með aukinni iðnvæð- ingu og framleiðslu. Til þess að svo mætti verða þyrfti að skapa iðnað- inum betri starfsskilyrði en áður. Þróun peningamála kvað formað- ur hafa mótast af áframhaldandi rýrnun lausafjárstöðu innláns- stofnana og miklum greiðsluhalla ríkissjóðs. Miðað við þann tekju- samdrátt, sem orðið hefði í þjóðfé- laginu mætti þróun inn- og útlána samt teljast viðunandi. Þá taldi hann, að vaxtalækkan- irnar á sl. ári hefðu tvímælalaust bætt greiðslustöðu atvinnuvega og einstaklinga. Nú væri í fyrsta sinn um árabil hægt að tala um jákvæða raunvexti, og hlyti slík þróun þegar frammí sækti að efla sparnað og stuðla að auknu jafnvægi á láns- fjármarkaði. Þessu næst vék formaður að starfsemi Samvinnubankans. Miðað við allar aðstæður hefði rekstur bankans á árinu 1983 geng- ið vel, þótt ýmsar ytri aðstæður hefðu haft neikvæð áhrif á þróun innlána. Staðreyndin væri sú, að bankinn stæði á krossgötum og miklir umbrotatímar væru fram- undan. Þjónustusvið bankans hefði aukist og í garð væri að ganga alls- herjar tæknivæðing á sviði tölvu- mála. Heildarvelta Fjármagnsstreymið gegnum bankann eða heildarveltan nam á árinu 29,1 milljarði kr. og jókst um 73,3%. Færslu- og afgreiðslufjöldi var 3,1 milljón og hafði vaxið um 7,6%. Viðskiptareikningar voru í árslok orðnir 74.199 og fjölgaði um 3.972. Starfsmenn við bankastörf voru 183 í árslok, þar af 29 í hlutastarfi. Útibú Bankinn opnaði á árinu sitt 18. útibú að Höfðabakka 9 í Reykjavík og er það þriðja útibú hans í höfuð- staðnum. Áfram var haldið byggingar- framkvæmdum við nýja bankahús- ið í Vík í Mýrdal og hafa þær gengið samkvæmt áætlun. Fyrirhugað er að taka hið nýja húsnæði í notkun síðari hluta þessa árs. Að síðustu fór fram lokafrágang- ur hins nýja bankahúsnæðis á Akranesi, sem tekið var í notkun í byrjun febrúar á liðnu ári. Ný þjónustusvið Hinn 15. apríl sl. gerðist Sam- vinnubankinn stofnaðili að VISA Islandi, sem er sameignarfyrirtæki 5 banka og 13 sparisjóða. Tilgangur félagsins er að annast útgáfu og af- greiðslu YISA-greiðslukorta til notkunar innanlands og utan í nafni aðildarbanka og sparisjóða og á ábyrgð þeirra. Óhætt er að fullyrða, að nú hafi opnast nýr vettvangur fyrir greiðslumiðlun hér á landi. Undir- tektir almennings og fyrirtækja hafa undantekningarlaust verið mjög jákvæðar. Gefa þær vísbend- ingu um hvers vænta megi í þeim efnum, þegar tölvuvæðingin innan bankakerfisins og fyrirtækja kemst á það stig, sem víða þekkist erlend- is. Merkum áfanga á leið til bættrar þjónustu var einnig náð í desember sl. er Samvinnubankinn tók upp gjaldeyrisviðskipti í samræmi við breyttar gjaldeyrisreglur. Nokkuð vantar þó á, að full gjaldeyrisrétt- indi hafi náðst. Líta verður svo á, að þetta sé fyrsta skrefið í þá átt. Skýrsla bankastjóra Kristleifur Jónsson gerði fyrst grein fyrir þeim samningi sem gerður hefði verið milli Reiknistofu bankanna og fyrirtækisins Einar J. Skúlason hf. um tækjakaup bank- anna vegna „beinlínutengingar" bankaafgreiðslna á Reykjavfkur- svæðinu. Hin háþróaða tölvuteng- ing hefði mikla hagræðingu i för með sér jafnt fyrir viðskiptavini sem starfsfólk. Nokkurn tíma tæki að þjálfa starfsfólk í þessum nýju starfsháttum auk þess sem annar undirbúningur væri tímafrekur. Búast mætti við að „beintengingin" færi fram á bilinu mars—október 1985. Bankastjóri gerði síðan að um- talsefni þær reglur sem giltu um bindiskyldu innlána í Seðlabankan- um og þær breytingar sem þar kynnu að verða á m.a. með aukinni þátttöku viðskiptabankanna í af- urðalánakerfinu. Næði það fram að ganga kynni innlánsbindingin að verða aftur virkt hagstjórnartæki til jöfnunar á sveiflum á peninga- markaðinum. Bankastjóri lagði síðan fram endurskoðaða reikninga bankans og Stofnlánadeildar og skýrði einstaka þætti þeirra. Innlán Heildarinnlán í Samvinnubank- anum námu 1.319,6 millj. kr. í árs- lok 1983 og höfðu aukist um 70,5%, samanborið við 55,9% árið áður. Innlán i árslok skiptust þannig, að spariinnlán námu 1.141,8 millj. kr. eða 86,5% af heildarinnistæðum og höfðu hækkað á árinu um 72,6%. Veltiinnlán eða innistæður á tékka- reikningum reyndust 177,8 millj. kr. og jukust um 58,1%. Útlán Heildarútlán bankans í árslok 1983 voru 1.058,6 millj. kr. og höfðu þau hækkað um 448,6 millj. kr. eða 73,5%. Samsvarandi aukning árið áður var 59,1%. Skipting útlána eftir útlánaform- um var sem hér segir í árslok 1983: Víxillán 4,6%, yfirdráttarlán 6,1%, alm. verðbréfalán 11,8%, vísitölu- bundin lán 53,1%, afurðalán 23,4% og önnur útlán 1,0%. Stofnlánadeild Samvinnufélaga Á árinu 1983, sem var 12. starfsár deildarinnar, úthlutaði hún 11 lán- um að upphæð 39,5 millj. kr. sam- anborið við 13 lánveitingar að upp- hæð 33,6 millj. kr. árið á undan. Tekjuafgangur varð 2,3 millj. kr. og eigið fé þar með orðið 12,1 millj. kr. Staðan gagnvart Seðlabanka í árslok 1983 var innistæða bank- ans á viðskiptareikningi í Seðla- banka 5,0 millj. kr., en á móti skuld- aði bankinn skammtímavíxil að upphæö 60,0 millj. kr. Lausafjár- staðan hafði þar með versnað um 34,9 millj. kr. á árinu 1983. Inneign á bundnum reikningi vegna bindiskyldu var í árslok orðin 369,2 millj. kr. og hafði hækkað um 73,2% frá fyrra ári. Afurðalán og önnur lán endur- seld bankanum námu í árslok 188,7 millj. kr. Rekstur og hagur bankans Tekjuafgangur til ráðstöfunar að meðtöldum hagnaöi Stofnlánadeild- ar var 10,5 millj. kr. samanborið við 7.1 millj. kr. árið 1982.1 þessu sam- bandi ber að taka tillit til nýrra uppgjörsreglna, sem hafa í för með sér breytta viðmiðun milli ára. Hlutafé var í árslok orðið 28,1 millj. kr. eftir að gefin höfðu verið út jöfnunarhlutabréf að upphæð 14.1 millj. kr. sem jafngilti nær 100% aukningu hlutafjár. Vo«an, 4. Mril. SAMBAND sveitarfélaga á Suður- nesjum hefur nýlega samþykkt til- lögu hreppsnefndar Hafnarhrepps að skipa þriggja manna nefnd til að kanna hvort ástæða sé fyrir stjórn sambandsins að beita sér fyrir stofnun fyrirtækisins á Suð- Varasjóðir og annað eigið fé nam í árslok 112,2 millj. kr. og hækkaði um 158,5% að stærstum hluta vegna endurmats á fastafjármun- um. Samtals nam eigið fé Sam- vinnubankans og Stofnlánadeildar í árslok 140,3 millj. kr. og hafði auk- ist um 82,9 millj. kr. Aðalfundurinn samþykkti að greiða 5% arð á allt innborgað hlutafé og jöfnunarhlutabréf. Útgáfa jöfnunar- hlutabréfa Samþykkt var tillaga frá banka- ráði þess efnis, að gefin verði út á árinu 1984 jöfnunarhlutabréf að upphæð 28,1 millj. kr., sem jafn- gildir 100% aukningu á hlutafjár- eign hluthafa. Nýtt hlutafjárútboð Aðalfundurinn samþykkti jafn- framt heimild til bankaráðs að auka hlutafé bankans um allt að 60,0 millj. kr. Hluthafar skulu hafa forkaupsrétt til þessa hlutafjár- auka til 31.12.1984. Stjórnarkjör Endurkjörnir voru í bankaráð þeir Erlendur Einarsson, forstjóri, Hjörtur Hjartar, framkv.stj. og Vilhjálmur Jónsson, framkv.stj. Til vara voru kjörnir Haiigrímur Sig- urðsson, framkv.stj., Hjalti Páls- son, framkv.stj. og Ingólfur ólafs- son, kfstj. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Geir Geirsson, lögg. endurskoðandi og Magnús Krist- jánsson, fyrrv.kfstj., en Ásgeir G. Jóhannesson, forstjóri, er skipaður af ráðherra. urnesjum til laxeldis og ef til vill fleiri fiskitegunda í stórum stíl á Reykjanesi. Nefndina skipa: Þórarinn St. Sigurðsson, Höfnum, Eðvarð Júlf- usson, Grindavík, og Sæmundur Þórðarson, Vatnsleysuströnd. E.G. Frá aðalfundi Samvinnubankans. (FrétUitilkynning frá Samvinnubankanum.) Samband sveitarfélaga á Suðumesjum: Kanna stofnun lax eldisfyrirtækis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.