Morgunblaðið - 11.04.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984
23
„Ég ætla að spyrja kött-
inn, hvað honum finnst“
Wall Street Journal gerir hunda-
málum Reykvíkinga góö skil
f bandaríska bladinu Wall
Street Journal frá 4. aprfl sl. er
löng frétt á forsíðu um hundamál-
in í Reykjavík og framhald á henni
inni í blaðinu. Fréttin eða greinin
öllu heldur er skrifuð í léttum dúr
og að því leyti ólík mörgu öðru,
sem birst hefur um íslensk hunda-
mál í erlendum blöðum, að sjón-
armiðum beggja, hundaeigenda og
þeirra, sem eru á móti hundahaldi,
eru gerð góð og hlutlæg skil. Hér á
eftir verður stiklað á stóru í grein-
inni og aðeins örfárra atriða getið.
Greinin hefst með því að segja
frá Halldóru Aradóttur, 21 árs
gamalli stúlku, sem stundar nám
í píanóleik en hefur það jafn-
framt á samviskunni að hafa
skotið undan dæmdum útlaga.
Er þar um að ræða tíkina Perlu,
sem hafði komið upp um sig með
gelti og einn nágrannanna þá
ekki verið seinn á sér að klaga til
lögreglunnar. Halldóra vildi þó
heldur sitja tvo daga í fangelsi
en borga sekt. Mannsins besti
vin er nefnilega óvinur númer
eitt í Reykjavík segir i greininni.
Fleiri hundaeigenda er getið í
greininni og hremminga þeirra
en einnig sagt frá rökum þeirra,
sem eru andvígir hundahaldi.
Minnst er á sullaveikina og aðra
sjúkdóma og þess getið, að göt-
urnar í Reykjavík eru lausar við
hundaskítinn, sem er algengur
annars staðar, bæði austan hafs
og vestan.
Greinarhöfundur segir, að síð-
an herferðin hafi hafist gegn
hundunum hafi bréfunum rignt
yfir utanríkisráðuneytið og
borgarstjórn Reykjavíkur hvað-
anæva að úr heiminum. Eru þar
hundavinir að mótmæla „ofsókn-
um gegn hundum" og segir að
hundavinir hatist aðeins við eina
þjóð meira en íslendinga: Kín-
verja, sem drápu 200.000 hunda í
Peking og átu suma. Það, sem
gerir þó illt verra, er að sjálfur
fjármálaráðherrann á hund og
hefur hótað að sigla heldur af
landi brott en láta hann af
hendi.
Embættismönnum og laganna
vörðum, sem greinarhöfundur
ræðir við, ber saman um að þessi
mál séu erfið viðureignar og að
það skilji allir, líka þeir sem eru
á móti hundahaldi. Þrátt fyrir
það verði þeir að myndast við að
halda uppi lögunum og þess
vegna hafi 60 hundaeigendur
verið kærðir á síðasta ári. Tveir
þriðju þeirra hafi fallist á að
láta hundinn af hendi við fólk,
sem býr þar sem hundahald er
leyft, en þriðjungur hundanna
verið skotinn. Aðeins fáir kjósi
að fara heldur í fangelsi en að
beygja sig fyrir lögunum en tek-
ið er fram, að fangelsin í Reykja-
vík séu svo sem ekkert Sing Sing.
Ekki er ólíklegt, segir í grein-
inni, að hundabanninu verði af-
létt til reynslu í tvö ár en síðan
efnt til nýrrar atkvæðagreiðslu
um hundahaldið. Hundaeigend-
ur eru ekkert hrifnir af því síð-
arnefnda. „Ef kosið væri um
hvort banna ætti reiðhjól í borg-
inni, myndu margir verða því
sammála," segir Jón Kristjáns-
son, líffræðingur, sem sjálfur á
hund, og Davíð Oddsson, borgar-
stjóri í Reykjavík, viðurkennir,
að þetta gæti valdið enn meiri
erfiðleikum síðar. Ef hundahald
yrði leyft myndu margir fá sér
hund og ekki láta hann mótþróa-
laust af hendi aftur.
Hvað hann sjálfan varðar seg-
ist Davíð Oddsson ætla að ráðsk-
ast við fjölskylduna áður en
hann afræður að fá sér hund.
„Ég ætla að spyrja köttinn,
hvað honum finnist," segir
Davíð.
Veður
víða um heim
Akurayri 0 skýjað
Amsterdam 10 skýjaó
Aþes 20 ekýjaó
Barcelona 13 rigning
Berlín 12 skýjaó
BrUssel 11 skýjaó
Buenos Aires 28 heióakfrt
Chicago 11 skýjaó
Oubiin 12 heióskfrt
Feneyjar 16 skýjaó
Frankfurt 9 regn
Genf 12 heióekirt
Hetsinki 8 heióskírt
Hong Kong 22 skýjaó
Jerúsalem 15 skýjað
Jóhannesarborg 15 heióskfrt
Kairó 24 hsfóskirt
Kaupmannahöfn 7 heióskírt
La* Palmas 29 léttskýjaó
Lissabon 20 heióskirt
London 11 skýjaó
Los Angeies 23 haióskfrt
Malaga 20 skýjsó
Mallorca 13 þokumóóa
Mexíkóborg 30 hsióskirt
Miami 28 skýjaó
Montreal 5 hsiðskfrt
Moskva 11 heíóskfrt
New York 15 heióskirt
Ostó 5 skýjaó
París 12 skýjaó
Peking 17 heióakfrt
Perth 30 heióskfrt
Reykjavik 2 tnjóól
Ríó d* Janeiró 29 skýjeó
Róm 20 skýjaó
San Francisco 14 regn
Kirkpatrick um tundurduflin við strönd Nicaragua:
Áhyggjur vegna
gagnrýni frá
bandamönnum
London, 10. aprfi. AF. •
JEANE Kirkpatrick, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagði í dag í viðtali við breska blaðið Daily Telegraph að gagnrýni sú sem
Bandaríkjamcnn hefðu sætt vegna sprengiduflanna, sem þeir eru sakaðir um
að hafa komið fyrir utan við strönd Nicaragua, sýndi að menn áttuðu sig ekki
á þeirri ógn sem Bandaríkjunum gæti
í Karíbahafi.
Sérstaklega lét hún i ljós
áhyggjur yfir þeirri gagnrýni sem
Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir
frá samherjum sínum, þ.á m.
bresku ríkisstjórninni.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur ekki viðurkennt að banda-
rískir aðilar hafi komið duflunum
fyrir, en böndin hafa þó mjög
beinst að bandarísku leyniþjón-
ustunni CIA.
Stjórn Nicaragua hefur beðið
Alþjóðadómstólinn í Haag að hafa
afskipti af málinu, en Bandaríkja-
stjórn hefur lýst því yfir að hún
muni ekkert mark taka á úrskurði
stafað af atburðum í Mið-Ameríku og
hans í þessu efni; um sé að ræða
svið utan lögsögu dómstólsins.
Tundurduflamálið hefur verið
mjög til umræðu á Bandaríkja-
þingi og er talið líklegt að það
muni koma í veg fyrir að sam-
þykkt verði fjárveiting til stuðn-
ings andstæðingum herstjórnar-
innar í Nicaragua.
Þegar hafa sjö skip skemmst við
það að rekast á tundurdufl fyrir
utan strönd Nicaragua; í tveimur
tilvikum, þar sem um var að ræða
sovéskt og japanskt skip, urðu slys
á mönnum.
Sovétmenn:
Saka Bandaríkja-
menn um að brjóta
ólympíusáttmálann
Moskvu, 10. aprfl. AP.
SOVÉSKA blaðið Sovietsky Sport
sagði í dag að bandaríska ólympíu-
nefndin hefði brotið gegn ólympíu-
sáttmálanum með því að óska eftir
brottvikningu bandarísks fulltrúa í
alþjóðaólympíunefndinni, en sá
hafði lagst gegn því að fulltrúar
útvarpsstöðvanna Radio Liberty og
Radio Free Europe fengju að fylgj-
ast með vetrarólympíuleikjunum í
Sarajevo og útvarpa frá þeim.
I gær sendi sovéska ólympíu-
nefndin frá sér sams konar ásökun
og krafðist þess að tafarlaust yrði
haldinn fundur í alþjóðaólymp-
íunefndinni til að ræða brottvikn-
ingskröfuna.
Sovétmenn segja að alkunna sé
að útvarpsstöðvarnar tvær séu
reknar af bandarisku leyniþjón-
ustunni og eigi því ekki heima á
ólympíuleikum.
6 ára ryðvarnarábyrgð
Escort selur sig
sjálfur
Það er staðreynd, að við höfum selt hátt í
200 Ford Escort LX frá lokum janúar nánast
án þess að auglýsa. Þessi einstöku bílakaup
hafa spurst manna á meðal. Escortinn selur sig sjálfur.
Nokkrir bílar lausir úr aukasendingu í þessum mánuði.
Esxort LX sérbúinn fyrir Norðurlönd
Frábært verð aðeins 297.000 kr.
Innifalið í verði aukabúnaður að verðmætum
um 30.000 kr. Gerðu samanburð á verði og gæðum
við hvaða bíl sem er.
Escort - mest seldi bíll heims undanfarin ár
Sveinn Egilsson
Skeifan 17 — Sími: 85100