Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 öðru en að giftast og eignast börn. Þær vilja helst ekki fara að heiman til lengri tíma. Ykkar stúlkur eru aftur á móti ekki hræddar við það — þær eru sjálfstæðari." — Þannig að keppninni verður haldið áfram hér eins og annars staðar? „Já, mikil ósköp. Sigur Heigu hefur undirstrikað það enn betur en áður. Hún er ekki aðeins nátt- úrubarn með hæfileika á þessu sviði, hún er stekur persónuleiki og ég held að hún sé mjög góð fyrir „Face Of the 80’s“-keppn- ina.“ — Sástu allar 170 stúlkurnar, sem gáfu kost á sér? „Nei, Vikan og Katrín önnuðust forvalið. Áður fyrr fékk ég allar myndirnar sendar til New York en ég er hætt því núna. Mér fannst svo lítið gagn í því að vera að skoða myndir, þær sögðu mér ekki nóg um stúlkurnar. En myndirnar af bandarísku stúlkunum skoðuð- um við allar sjálf. Drottin minn, það fór í það heil helgi! Við vorum að, fjölskyldan, frá föstudags- kvöldi til sunnudagskvölds." — Og hvað fær svo sigurvegar- inn í nóvember í sinn hlut? „Ja, ég get í rauninni ekki sagt þér neitt nema það, sem hinir sig- urvegararnir hafa fengið. Þær eru stjörnur. Annette Stei og René Simonsen, svo ég nefni aðeins tvær, eru þessa dagana að ganga frá mjög stórum samningum við stórfyrirtæki í Bandaríkjunum og Evrópu. Sigurvegarinn í keppn- inni verður ekki bara módel - hún verður súpermódel.“ - ÓV MoríUI* Hótel Sogu s\itakeppn»nn‘ andl't iMeósteö.f _ ríkjunum einum. Úr þeim skara er á endanum valin ein stúlka, sem nær samstundis verður heimsfræg fyrirsæta og moldrík. Keppnin hefur einnig náð til ís- lands og í miðri vikunni var til- kynnt hver verður fulltrúi íslands í úrslitakeppninni, sem fram fer í New York í nóvember næstkom- andi. Sigurvegarinn varð sextán ára stúlka, Helga Melsteð. Hún var valin úr hópi nærri 200 stúlkna, sem bent var á til þátt- töku í keppninni, sem haldin er hér á vegum Vikunnar og Katrín- ar Pálsdóttur, fréttamanns, um- boðsmanns Ford Models á íslandi. — Ég var að lesa grein í amer- ísku blaði um Ford Models og fjöl- skylduna. Þar var haft eftir móður þinni, að hún væri eina manneskj- an í fjölskyldunni, sem gæti séð á augabragði hvort stúlka gæti orð- ið gott módel. Hvað með ykkur hin? „Ah, sú grein. Við ræddum þetta einmitt heilmikið í fjöl- skyldunni þegar blaðið kom út og sögðum við mömmu: Ja, ef þér finnst þetta, hvað erum við þá að flækjast hér? Gætum við ekki alveg eins farið að gera eitthvað annað? Hún sagði þá að þetta hefði bara hrokkið út úr sér óhugsað. Auðvitað er þetta rangt. Við höfum öll þennan hæfileika — mér liggur við að segja að þetta sé í blóðinu. Við ólumst upp við þetta og erum öll góð í þessu starfi. Það var til dæmis ég, sem fann René Simonsen og fleiri af okkar fræg- ustu og bestu fyrirsætum." — ... og Helgu Melsteð. Tel- urðu að hún geti orðið „toppmód- el“? „Mér fannst ég komast strax í mjög gott samband við hana. Ég er mjög ánægð með hana, mér líð- ur vel innra með mér vegna henn- ar. Ætli þetta sé ekki mín aðferð til að segja já án þess að segja það. Ég get þó sagt, að ég held að fólk hér og víðar eigi eftir að sjá mikið af Helgu Melsteð á næstu árum.“ — Hér á landi er þeirri kenn- ingu talsvert haldið á lofti, að ís- lenskar konur séu fegurstu konur heims. Hvað finnst þér? „Ég held að norrænar konur séu fallegastar — nei annars, norræn- ar konur verða bestu fyrirsæturn- ar. Það eru afskaplega fallegar konur til dæmis í Malaysíu og á Filipseyjum. Norrænar konur verða svo fallegar á ljósmyndum. Þær eru hávaxnar, með fallegt hár, andlitin vel mótuð, nefið yfir- leitt lítið ... þær hafa svo margt við sig! En þetta er ekki síður spurning um persónuleika. ís- lenskar konur, norrænar konur, eru ævintýragjarnar og ekki hræddar við að stjórna sínu eigin lífi. í t.d. S—Afríku, Ástralíu og víðar hef ég hitt glæsilegar stúlk- ur, sem hugsa á annan hátt. Þær stefna í rauninni ekki að miklu Ford: Norrænar konur ævmtýragjarnar og ekki hræddar. í leit að andliti 9. áratugarins: Norrænar konur verða bestu fyrir- sætumar — rætt við Lacey Ford um fyrirsætukeppni, kvenlega fegurð og fleira Ford Models heitir stærsta fyrirsætuumboðsfyrirtæki í heimi. Á þess vegum starfa frægustu fyrirsætur Bandaríkj- anna — stúlkur, sem hafa milljón dollara í árslaun og þaðan af meira. Fyrir nokkrum árum fann Lacey Ford, yngsta dóttir Ford- hjónanna Eileen og Jerry, upp á því að efna til alþjóðlegrar sam- keppni um „andlit níunda áratug- arins“ — „Face Of the 80’s“ — í því skyni að hafa upp á nýjum og efnilegum fyrirsætum. Keppnin er haldin árlega í 20—30 löndum og þúsundir stúlkna bjóða sig fram — þar af um tíu þúsund í Banda- Það var Lacey Ford, sem annaðist hið endanlega val og tilkynnti úr- slitin. — En hvað er er svo sérstakt við Helgu Melsteð, Lacey Ford? „Það er margt, eiginlega allt. Hún er hávaxin með glitrandi augu og ótrúlegt bros. Hún er áhugasöm og lífleg — eftir því tekur maður strax þegar maður hittir hana. Hún er mjög falleg stúlka. Ég er mjög ánægð með hana og varð strax mjög hrifin af henni. Eg held að hún eigi góða möguleika."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.