Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRlL 1984
57
Nýtt tímarit
— Magasín 5
NÝTT mánaóarrit, „Magasín 5“, hóf
gðngu sína nýlega. Meðal efnis (
fyrsta blaðinu eru greinarnar
„Stofnun hcimilis,, og „Vcldi hús-
mæðranna“, sagt er frá mótshaldi
Ásatrúarmanna, fjallað um sambúð-
arslit, tísku, veiðiskap og fleira.
Ritstjóri blaðsins er Steingrim-
ur Steingrímsson en blaðamaður
Gunnar Bender. Þeir hafa áður
gefið út Sportveiðiblaðið. Efni
blaðsins er að mestu aðkeypt og
mun verða það framvegis, að því
er segir í fréttatilkynningu frá út-
gáfunni, íslenska tímaritinu.
Blaðið var sett í Leturvali,
prentað í Hólaprenti en forsíðu-
mynd litgreind í Prentmyndaþjón-
ustunni.
Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma. Frystihúsið í baksýn.
MorgunblaAiA FriAþjófur.
„EINN þátturinn í rekstri Þormóðs
ramma er, að ákveðið hefur verið að
gera úttekt á húsi fyrirtækisins,
Hvanneyri, sem eitt sinn var rekið
sem hótel. Með því opnast hugsan-
lega möguleikar á því að koma þar
upp verbúð, sem ef til vill gæti orðið
þörf fyrir í framtíðinni. Það hefur
verið jöfn og stöðug vinna hjá okkur
og með endurvakningu Sigló hf.
aukast atvinnumöguleikar í bænum
talsvert. Það er hins vegar ólíklegt
að þörf verði á aðkomufólki hér til
vinnu, en Ijóst er að meiri möguleik-
ar eru nú til þess en áður aö veita
skólafólki vinnu hér í sumar,“ sagði
Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma í Siglufirði, f sam-
tali við Morgunblaðið.
Einar sagði ennfremur, að þrátt
fyrir naumt skammtaðan kvóta
hefði verið jöfn og góð vinna hjá
fyrirtækinu að undanförnu og
fyrirsjáanlegt væri að svo yrði
frameftir árinu. Togarar fyrir-
tækisins hefðu fengið 2.100 lestir
hvor i sinn hlut, en það dygði ekki
til þess að vera hagkvæmt bæði
fyrir veiðar og vinnslu. Því væri
verið að athuga möguleika á sam-
nýtingu kvóta heimaskipanna,
sem hann minnti að væri um 9.500
lestir. Aukinn rækjuafli staðar-
báta lofaði góðu um atvinnu i
bænum og það yrði síðan að koma
í ljós á hvorn staðinn fólk sækti
heldur, vinnslan hjá Sigló væri
rétt að hefjast. Það væri hins veg-
ar mikil nauðsyn að þessum
stærstu fyrirtækjum bæjarins
yrði séð fyrir nægjanlegu hráefni
út allt árið. Það yrði ánægjulegt
að geta veitt skólafólki meiri
vinnu í sumar en verið hefði eins
og útlit væri nú fyrir.
Hann sagðist vonast til þess, að
Þormóður rammi næði því að sýna
góðan rekstur við núverandi að-
stæður. Þetta væri heppileg
rekstrarstærð svo þetta ætti að
geta gengið. Hann væri bjartsýnn
á að reksturinn yrði í það minnsta
ekki verri en hjá öðrum fyrirtækj-
um af svipaðri stærð og við svip-
aðar aðstæður. Nú væri unnið að
því að ná sem beztri nýtingu, bæði
á húseignum fyrirtækisins og hrá-
efni. í því skyni væri verið að
koma upp aðstöðu til hausaþurrk-
unar í gamla frystihúsinu. Þar
væri um verulega verðmætasköp-
un að ræða, miklu hagkvæmara
væri að flytja hausana út herta en
að bræða þá og hann hefði trú á
því að Nígeríumarkaðurinn
opnaðist aftur. Reynslan væri vú
að hausarnir gengju bezt þar. Þá
mætti ekki gleyma því, að hausa-
þurrkunin skapaði líka aukna at-
vinnu.
- HG
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
fllgtgttttftlgftift
Jöfn og góð vinna
hjá Þormóði ramma