Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984
81
Morgunbltðia/Arnór.
Ráðstefnusalurinn var oft þéttsetinn á meðan úrslitakeppnin fór fram.
Guðbrandur — Ármann 13—7
Jón — Runólfur 12—8
Fyrri hálfleikur var rólegur í
leik Þórarins og bræðranna frá
Siglufirði og var staðan 15—24
fyrir Þórarin í hálfleik. Þetta
var lægsta punktaskor í einum
hálfleik í úrslitakeppninni enda
féllu ein 7 spil og 3 eða 4 gáfu
einn punkt. Aftur á móti féll
ekkert spil í þeim síðari og allt
var í háalofti og endaði leikurinn
92—52, fyrir Þórarin.
Sveit Jóns Hjaltasonar átti í
höggi við Runólf og þar gekk á
ýmsu. Runólfur hafði yfir í hálf-
leik, 36—30, en fjórum spilum
síðar var staðan orðin 62—36,
fyrir Jón. Runólfur og hans
menn náðu svo að jafna leikinn
verulega í síðustu spilunum og
töpuðu aðeins 8—12.
6. umferð
Guðbrandur — Sigfús 12—8
Þórarinn — Sigurður 20—1-2
Jón — Ásgrímur 20—+5
Runólfur — Ármann 20—0
Það mátti segja að þessi um-
ferð hafi farið eftir bókinni.
Sveit Jóns malaði Ásgrím, norð-
anmenn byrjuðu mótið vel en
virtist vera komin þreyta í liðið.
Þórarinn vann Sigurð með mikl-
um mun og stefndi á annað sætið
í mótinu þar sem fyrsta sætið
virtist upptekið nema eitthvað
mjög óvænt gerðist. Sveit Run-
ólfs gaf ekkert eftir og vann sinn
leik, 20—0.
Staðan fyrir lokaumferðina:
Jón Hjaltason 95
Þórarinn Sigþórsson 81
Runólfur Pálsson 73
Guðbrandur Sigurbergsson 65
Ásgrímur Sigurbjörnsson 54
Sigurður Vilhjálmsson 45
Ármann J. Lárusson 37
Sigfús Þórðarson 21
7. umferð
Sigfús — Ármann 20—+5
Þórarinn — Guðbrandur 12—8
Jón — Sigurður 20—+3
Runólfur — Ásgrímur 20—0
Þórarinn varð að vinna 13—7 í
sínum leik til að vera öruggur í
öðru sæti og ef Runólfur átti að
eiga möguleika varð hann að
vinna stórt. Þórarinn vann að-
eins 12—8 eftir að hafa verið
undir í hálfleik og Runólfur náði
sér í 20 stig og þar með annað
sætið í mótinu því þeir höfðu
unnið leikinn við Þórarin í
þriðju umferð, 12—8, og voru
jafnir þeim að stigum.
Lokastaðan í mótinu
Jón Hjaltason 115
Runólfur Pálsson 93
Þórarinn Sigþórsson 93
Guðbrandur Sigurbergsson 73
Ásgrímur Sigurbjörnsson 54
Sigurður Vilhjálmsson 42
Sigfús Þórðarson 41
Ármann J. Lárusson 32
Mótið fór mjög vel fram í alla
staði. Mikill áhorfendafjöldi
fylgdist með mótinu allan tím-
ann. Nokkuð bar á ölvun meðal
áhorfenda, einkum á skírdag,
sem er mjög hvimleitt fyrir þá
sem koma til að fylgjast með
góðum bridge.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
enson og skýringaþulur í ráð-
stefnusal Jakob R. Möller.
Ólöglegt
myndbandaefni
Sífellt berast upplýsingar um aö ákveðnar mynd-
bandaleigur leigi út ólöglegt myndbandaefni sem
félagsmenn í Samtökum rétthafa myndbanda á
íslandi hafa rétt á. Efni þetta hefur ekki verið feng-
ið hjá rétthöfum hérlendis og eru myndböndin því
ekki merkt viðkomandi innlendum rétthafa.
Myndbandaefni þetta er m.a. leigt föstum við-
skiptavinum og þá notað svokaliað „möppukerfi".
Möppurnar hafa aö geyma lista yfir hið ólöglega
efni og eftir að viðskiptavinurinn hefur valiö sér
efni er myndbandiö sótt bak við afgreiðsluborð
eða í bakherbergi.
Séu þessar upplýsingar réttar er hér um vítavert
brot að ræða þar sem viökomandi myndbanda-
leiga er vísvitandi að leigja út efni án heimildar.
Samtök rétthafa myndbanda á (slandi hafa því
ákveðið að veita kr. 2.000,- þóknum þeim aðilum
sem sannað geta á fullnægjandi hátt brot af þessu
tagi og kr. 4.000,- vegna mynda sem ósýndar eru
í kvikmyndahúsum og viðkomandi kvikmyndahús
hefur rétt á. Nánari upplýsingar í síma 29888 milli
kl. 14 og 17 alla virka daga.
Þess má einnig geta að ofangreint myndbandaefni
hefur jafnvel veriö tekiö á leigu með þessum hætti
og síðan sýnt í myndbandakerfum fjölbýlishúsa.
Slíkt er að sjálfsögðu ólöglegt eins og sýning á
miklu af því efni sem þar er sýnt, en öll slík kerfi
eru ólögleg samkvæmt núgildandi lögum.
Samtök rétthafa myndbanda á íslandi
a
£
Gódan daginn!
ínágrenni Mósel og Rínar
Verð pr. mann m/bíl frákr. 1 vika 2 vikur 3 vikur
8 m. /' 3ja svh. húsi og bíll í H fl. 7 m. i 3ja svh. húsi og bíll í H fl. 6 m. /' 3ja svh. húsi og bíll í H fl. 11.080 11.420 11.880 13.480 14.170 15.090 15.880 16.920 18.290
5 m. í 2ja svh. húsi og bíll í F fl. 4 m. í 2ja svh. húsi og bíll í F fl. 11.930 12.740 15.180 16.810 18.430 20.880
4m. í 1 svh. íbúð og bíll í F fl. 3 m. í 1 svh. íbúð og bíll í B fl. 2 m. í 1 svh. íbúð og bíll í B fl. 12.380 12.880 14.980 16.080 17.080 21.280 19.780 21.280 27.580
2 /77. /' stúdíóíbúð og bíll í B fl. 13.360 18.040 22.720
Börn 2-11 ára fá kr. 4.700 - í afslátt.
Börn 0-1 árs greiða kr. 1.000,-
ERT PÚ EKKI SAMFERÐA?
Síminn er 26900.
Daun Eifel er aðeins um 2ja stunda akstur frá Luxemborg og þar er allt sem þarf til að
gera sumarleyfið ánægjulegt. Frábær húsakynni, fagurt umhverfi, einstök veðurblíða;
úrvals þjónustumiðstöð með veitingahúsi, bjórstofu, sauna, sundlaug, tennis, squash,
reiðskóla, hestaleigu, barnaklúbb, billjard og minigolfi.
J næsta nágrenni eru svo m.a. dýragarður, þar sem sjá má ýmsar fágætar
dýrátegundir í náttúrlegu umhverfi, Europark skemmtigarðurinn, vötn,
þar sem stunda má alls konar vatnaíþróttir og hinir rómuðu dalir
við Mósel og Rín, þar sem vínviðurinn vex um allar hlíðar
og mannlífið í þorpum og bæjum er óviðjafnanlega skemmtilegt.
Nú er um að gera að bregða léttum strigaskó á betri fótinn og hafa
samband við Úrval í hvelli. Brottför er alla miðvikudaga í sumar.
QOTT FOLK