Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 83 Einar örn í þungum þönkum í Southern Studios. „Já, þaö er ætlunin. Viö erum núna aö reyna aö undirbúa jaröveg- inn eins og kostur er. Þetta er helj- arinnar mikiö ferðalag fyrir okkur. Viö förum m.a. til Berlínar, Parísar, Hollands og e.t.v. niöur til Italiu, auk þess sem viö efnum til tónleika í Bretlandi. Sennilega veröa þetta 15—20 tónieikar í allt. Þetta er mik- ið og gott tækifæri fyrir okkur, en viö veröum aö fjármagna feröalagiö sjálf. Viö viljum bara sýna aö þetta er hægt. Það er enginn dauöur fyrr en hann er kominn í gröfina." — Þú og þið hin stefniö þá aö heimsfrægð? „Nei, ekki ég. Ég er alveg búinn aö leggja þá hugmynd til hliöar aö tónlistin veröi minn eini miöill. Ég næ engum árangri með því aö halda mig viö hana eina. Ég ætla t.d. aö reyna fyrir mér á sviöi útvarps eftir aö ég hef lokið náminu, en þaö eru líka aörir möguleikar til. Úr því þú minnist á þetta vil ég endilega und- irstrika, aö mér þykir spaugilegt aö vera kallaöur listamaöur eins og sagt var í DV. Þaö er skrýtiö aö maöur megi ekki fara úr landi án þess aö veröa þá skyndilega lista- maöur. Ekki var ég álitinn lista- maður hér heima. Svo þegar ég fer út, þá er ég allt í einu listamaöur. Hégóma íslensku þjóöarinnar eru engin takmörk sett. Þaö sama gildir um aöra meðlimi Kukls, þeir vilja ekki aö þeir séu kallaöir listamenn. Þaö er eins og veriö sé aö afskrifa okkur líkt og í minningargrein." Einar hefur í nógu aö snúast, auk hlutdeildar sinnar í Kuklinu. Þessa dagana er hann aö vinna aö verk- efni sem nefnist P.P. Djöfuls ég í samvinnu viö þá B.aga Ólafsson, fyrrum bassaleikara Purrks Pilln- ikks, Kristin Árnason, gítarleikara, og Sigtrygg Baldursson, trommara. „Þetta er í rauninni ekki neitt einka-verkefni mitt eins og látiö hef- ur verið iiggja aö. Ég hef náö aö semja eitt laganna á væntanlega plötu þessa hóps sjálfur, en hitt eru sameiginieg hugverk. Þetta er hin hliðin á tónlistarlífi mínu og kannski sú, sem fólk á erfiðast meö aö sætta sig viö,“ segir Einar. Vonleysi — Telurðu þig hafa lært eitthvaö af dvölinni í London? Lítur þú t.d. tónlistarlífiö hér heima öörum aug- um en áöur? „Já, ég held ég hafi lært heilmikið á þessari dvöl. Ég var mikiö einn um tíma og þá gafst mér tími til þess aö hugsa málin vel. Ekki svo aö skilja, ég er ekkert á leiðinni aö skilja viö island. Ég held ég myndi alltaf vilja vera hér. Tónlistin hér er einn af þeim þáttum, sem toga í mig. Þaö eru allir aö segja, aö hér sé allt dautt, en ég er ekki sammála því. Þaö hefur einhver örvænting gripið um sig, en ef svo er á fólk aö standa upp og gera eitthvaö í málinu. Ekki bara mæna á næsta mann meö vonleysisglampa i augum. Það er alltaf veriö aö horfa aftur til áranna 1980—1981 og á meöan svo er er ekki von aö vel fari. Þaö þýöir ekk- ert aö lifa í þeirri „nostalgíu". Úr því viö erum aö tala um þetta get ég alveg sagt þér, aö þaö fer rosalega í taugarnar á mér hvernig margir tónlistarmenn haga sér. Ég man t.d. aö ég lenti í þvi á tónleikum vítt og breitt, aö menn komu til mín og vildu aö ég „reddaöi“ þessu og hinu. Ef ég hratt þeim frá mér og sagöist ekki vera kominn til þess aö ræöa slikt var ég bara svikari viö málstaöinn. Hvaöa málstaö fékk ég aldrei að vita. Þá var óg bara orðinn einhver poppstjarna, sem engan vildi sjá eöa heyra. Ég er búinn aö sjá, aö íslenskir tónlistarmenn og kannski fleiri eru latt og sjálfumglatt pakk, það er staðreynd sem ekki verður haggaö.“ — SSv. Vinsældalistarnir Vínsældalisti Járn- síðunnar og H-100 1 ( 1) SHAME-LOVE TRAP/Astaire 2 ( 4) T0 BE 0R NOT T0 BE/Mel Brooks 3 ( 2) LET THE MUSIC PLAY/Shannon 4 ( 5) BORN T0 DANCE/Astaire 5 (-) MISS BE BLIND - IT'S A MiRACLE/Culture Club 6 ( 3) SOMEBODY'S WATCHING ME/Rockwell 7 (-) TONIGHT/Kool And The Gang 8 (-) BREAKING DOWN/Julia & Co 9 ( 9) NEW DIMENSION/lmagination 10 ( 6) STREET DANCE/Break Machine Vinsældalisti Járnsíö- unnar og Tónabæjar 1 AUTOMATIC/Pointer Sisters 2 JUMP/Van Halen 3 WHAT DOI DO/Galaxy 4 SOMEBODY’S WATCHING ME/Rockwell 5 NEW M00N ON MONDAY/Duran Duran 6 0N THE FLOOR/Tom Look And The Party People 7 ADULT EDUCATION/Hall og Oates 8 YOUR LOVEIS KING/Sade 9 TO BE OR NOT TO BE/Mel Brooks 10 POLITICS OF DANCING/Reflex Bretland — Litlar plötur 1 ( 1) HELLO/Lionel Richie (5) 2 ( 2) A LOVE WORTH WAITING FOR/ Shakin' Stevens (3) 3 ( 4) YOU TAKE ME UP/Thompson Twins (3) 4 ( 5) PEOPLE ARE PEOPLE/ Depeche Mode (3) 5 ( 3) ROBERT DE NIRO'S WAITING/Bananarama (4) 6 (15) GLAD IT'S ALL OVER/Captain Sensible (2) 7 ( 7) IT'S A MIRACLE/Culture Club (4) 8 ( 6) IT'S RAINING MEN/Weather Girls (5) 9 (14) NELSON MANDELA/Special AKA (2) 10 (-) AGAINST ALL ODDS/Phil Collins (1) 11 ( 8) WHAT DO I DO/Galaxy (5) 12 (11) PRETTY YOUNG THING/Michael Jackson(3) 13 (18) AIN'T NOBODY/Rufus And Chaka Chan (2) 14 (16) LUCKY STAR/Madonna (2) 15 (10) YOUR LOVEIS KING/Sade (5) 16 (12) CHERRY OH BABY/UB 40 (3) 17 (-) WOOD BEEZ/Scritti Politti (1) 18 (-) IWANT TO BREAK FREE/Queen (1) 19 (13) STREET DANCE/Break Machine (8) 20 (-) THE CATERPILLAR/Cure (1) Bandaríkin — Litlar plötur 1 ( 1) FOOTLOOSE/Kenny Loggins 2 ( 4) AGAINST ALL ODDS/Phil Collins 3 ( 2) SOMEBODY'S WATCHING ME/ Rockwell 4 ( 7) EAT IT/Weird Al Yankovic 5 ( 6) HERE COMES THE RAIN/Eurythmics 6 ( 3) JUMP/Van Halen 7 (10) HOLD ME NOW/Thompson Twins 8 ( 8) AUTOMATIC/Pointer Sisters 9 (11) MISS ME BLIND/Culture Club 10 (13) HELLO/Lionel Richie Frá tónleikum Egósins í Höllinni 1. mars. Járnsiöan/ Friðþjófur „Þetta er eins og að losna úr álögum“ Egó, þriöja og jafnframt nýjasta plata samnefndrar hljómsveítar, kom út á föstudag, nokkuð óvænt aö sumra mati og fyrr en menn höföu e.t.v. átt von á. Þessi plata Egó er um margt sórstök og þá kannski ekki síst fyrir þá sök, að þeir Bergþór Morthens og Rúnar Erlingsson eru skráöir fyrir allri tónlistinni, en Bubbi Morthens hins vegar fyrir textunum. Á fyrri plötunum tveimur, Breyttir tímar og f mynd, átti Bubbi sjálfur meg- inhluta efnisíns, þótt Bergþór kæmi verulega viö sögu á þeirrí síðarnefndu. Þessi þriðja plata Egósins var tekin upp í Hljóörita í mars. Sáu þeir Bergþór og Rúnar um yfirstjórn verksins en Sigurður Bjóla Garö- arsson var upptökumaöur. Auk Egó-mannanna þriggja koma þeir Ásgeir Óskarsson og Pétur Hjalte- sted mikiö viö sögu á plötunni. Ás- geir leikur á trommur, Pétur á hljómborð. Hijótt um Egóiö Lítiö hefur heyrst til Egósins á undanförnum mánuöum. Svo hefur virst um langa hríö, sem sveitin væri aö leysast upp, en alltaf hefur hún þó hangið saman. Trommuleikara- skortur hefur hrjáö hana um langt skeiö og hún notast viö „session"- menn og fyrr á þessu ári hætti hljómborösleikari flokksins. „Sess- ion“-maður tók einnig stööu hans. För Bubba Morthens til Banda- ríkjanna hefur aö vonum vakiö mikla athygli. Hann hélt út sl. sunnudag meö Danny Pollock sér viö hliö. Komu þau tíöindi verulega á óvart þvi allt fram til þess vissu menn ekki annað en þeir Rúnar, Bergþór og Pétur ætluðu með honum út. Járn- síöan hitti þá Rúnar og Bergþór aö máli í vikunni og spuröi þá spjörun- um úr. „Margt af þessu efni er búiö aö vera í deiglunni frá því á síöasta sumri," sögöu þeir Rúnar og Berg- þór er Járnsíðan ræddi viö þá í vik- unni. „Viö settum niöur lög og laga- brot þegar viö fengum góöar hug- myndir og síöan kom Bubbi meö textana ofan á á eftir.“ — Hvernig gekk að fá Bubba til aö samþykkja, aö þið ættuö allt efni plötunnar aö textunum undanskild- um? „Þaö gekk alveg áfallalaust. - segja þeir Bergþór og Rúnar í Egó í stuttu spjalli um nýjustu plötu sveitarinnar Bubbi var lika búinn aö vera mjög upptekinn viö sólóferil sinn og haföi kannski ekki nægan tíma til aö semja lög á þessa plötu." — Er þetta ekki ný reynsla fyrir ykkur tvo innan þessarar hljóm- sveitar? „Nei, ekki er þaö nú,“ svaraöi Bergþór. „Ég átti t.d. eiginlega allt efniö meö Bubba á i mynd. Mesta breytingin núna liggur auðvitað í því aö hann sér eingöngu um textana.“ — Af hverju hættuö þiö viö að taka plötuna upp í Englandi eins og stóö til? „Þaö kom einfaldlega til af því aö viö vorum ekki fyililega sáttir viö þaö, sem upp á var boðið.“ — Var ekkert niðurdrepandi aö rölta rétt eina ferðina inn í Hljóðrita? Heföi sveitin ekki haft gott af því aö skipta um umhverfi og fara í nýtt hljóöver? „Það kann aö vera, en þaö var góöur „fílingur" í okkur þegar viö tókum plötuna upp og ég held aö hann skili sér vel á henni. „Sándið" er t.d. aö okkar mati allt annaö og betra en áöur og laust viö þennan fræga Hljóðrita-blæ.“ — Eigiö þiö sjálfir einhver uppá- haldslög á plötunni? „Viö erum afar ánægöir meö heildarútkomuna en gerum ekki upp á milli einstakra laga á plötunni þar sem hún er í okkar augum heilsteypt verk.“ Samkeppni — Hvaö kom til aö platan var send svona fljótt á markað, eruö þiö kannski í haröri samkeppni viö Bubba? „Samkeppni og ekki samkeppni. Þaö er í raun engin ástæöa til þess aö biöa meö þessa plötu. Hún var tekin upp í mars og er fullunnin. Þaö er ástæöulaust aö senda hana á markað síöar og láta fóik fá gamalt efni í hendurnar." — Eruð þiö ekki hræddir um aö þessi plata kynni aö hafa orðið und- ir í baráttunni viö sólóplötu Bubba, sem von er á, ef hún heföi komiö út löngu á eftir henni? „Nei í sjálfu sér ekki. Viö erum þeirrar skoöunar, aö plöturnar styöji hvor aöra ef eitthvaö er.“ — Hvernig var aö vinna meö mönnum eins og Ásgeiri og Pétri? „Það var frábært. Viö höfum reyndar unniö meö þeim áður og vonumst eftir því að samstarfiö haldi áfram ef vilji er fyrir slíku af beggja hálfu. Asgeir er óumræöi- lega besti alhliöa trommuleikari landsins og þótt Tíminn segöi Pétur vera „óþekktan" á hann að baki langa sögu sem afbragös hljóm- borösleikari. — Nú er þessi nýja plata Egó tví- mælalaust „þyngri“ en fyrri plöturn- ar. Eruð þiö ekki hræddir um aö hún naí ekki sölu vegna þess aö „hit“- lögin vantar? „Viö tókum þá ákvöröun að leggja frekar upp úr sterkum heild- arsvip en aö láta „hit“-lög ráöa ferö- inni. Viö vorum meö tvö slík í poka- horninu en ákváöum að nota þau ekki. Annars eru lög á plötunni, sem vafalítiö eiga eftir aö hljóma í út- varpi.“ Úr álögum — Er þetta svanasöngur Egó á hljómplötu? „Nei, alls ekki. Viö litum á þetta sem upphaf nýs tímabils. Þetta er eins og að losna úr álögurn." — Egó lifir sumsé áfram þótt Bubbi komi ekki aftur? „Já, tvímælalaust. Viö höldum nafninu hvaö sem um Bubba verö- ur, en viö gerum þó ráö fyrir því núna aö hann haldi áfram meö okkur.“ — Ef hann kemur ekki aftur? „Þá höldum viö samt áfram og aukum á Egóiö.“ — Eruö þiö vongóöir um aö þaö takist? „Við höfum satt aö segja ekki velt því svo mjög fyrir okkur, en úr því þú minnist á þaö er reyndar ekki um auöugan garö aö gresja. Þaö fara ekki margir í skóna hans Bubba.“ — Hvernig ætliö þiö að fylgja plötunni eftir ef Bubbi snýr ekki aft- ur? „Það er nokkuö, sem við höfum hreinlega ekki náö aö hugsa út í ennþá. Þaö veröa einhver ráð meö þaö.“ — Nú hafiö þiö vissulega áunniö ykkur vissan og um leiö stærri sess innan Egó með þessari plötu. Haldiö þiö þessum sess þótt Bubbi komi aftur? „Já, án nokkurs vafa. Viö sjáum ekki neina ástæöu til aö þaö breyt- ist nokkuö." — Ein spurning í lokin. Af hverju fóruö þið ekki út meö Bubba eins og til stóö? „Þaö var einfaldlega enginn grundvöllur fyrir slíku eins og málin stóöu. Hugmyndir okkar samrýmd- ust ekki alveg hans hugmyndum. Við „filum“ það fínt aö vakna á morgnana, fara út og fá okkur snjómelónur og setjast síöan niöur og semja lög.“ — SSv. „ ... aö vakna á morgnana, fara út og fá okkur snjómelónur." Beggi og Rúnar í Egóinu gera alvöru úr draumum sínum og fá sér snjómelónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.