Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 36
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 Á Finnsstööum Egilsstööum. HJÁ HALLBIRNI bónda Jóhannssyni á Finnsstöðum í Eiðaþinghá bar fyrsta ær- in 27. mars. En það er fleira óvanalegt í húsdýra- haldi Hallbjarnar bónda á Finnsstöðum. Fyrir nokkru fannst hreindýrskálfur fastur í girðingu á landareigninni. Eftir að hann hafði verið leystur úr prísund- inni var hann færður til fjárhúsa til hressingar og þar hefur hann síðan unað hag sínum hið besta í félagsskap ánna á Finnsstöðum og sýnir ekkert fararsnið. Þegar forskólanemendum á Egilsstöð- um bárust þessi tíðindi héldu þeir þegar út í Finnsstaði með kennurum sínum til að skoða undrin. Og þar reyndist þá margt fleira að skoða — sem vakti áhuga þessara ungu nemenda. Þar gaf að líta nýfæddan kálf og sprellfjörugan hvolp sem lék ótrauður listir sínar og virtist kætast mjög og færast allur í aukana við Forskólakrakkarnir vildu ólmir fá að halda á lömbum komu krakkanna. snemmbæranna á Finnsstöðum. — Ólafur Hér færð ÞÚ svarið Fjárfestingahandbókin Fjárfestinga handbókin svarar öllum spurningum stórum og smáum um ☆ Hagkvæmni og arðsemi fjárfestinga ☆ Ávöxtun sparifjár ☆ Möguleika í verðbréfa viðskiptum ☆ Skattameðhöndlun Bók sem ALLIR geta haft gagn af FJÁRFESTINGAHANDBÓKIN ER BÓK SEM ÞÚ NOTAR Fjárfestingarfélag íslands „Geimfaraball" í Gerðubergi Medúsu-félagið gengst fyrir „geimfaraballi" í Gerðubergi klukkan 16 í dag, sunnudag 29. apríl. Samkoma þessi er ætluð krökkum og verða búningar hann- aðir á staðnum úr álpappír. Æski- legt er að viðkomandi hafi með sér álpappír. Dans verður stiginn til klukkan 18. Veizlukaffi og hlutavelta KVENNADEILI) Skagfirðingafé- lagsins í Reykjavík verður með veislukaffi og hlutaveltu í Drangey, Síðumúla 35, þann 1. maí nk., kl. 14. Þetta hefur verið árlegur fjár- öflunardagur kvennadeildarinnar sl. 20 ár og rennur allur ágóði til líknar- og menningarmála bæði heima í héraði og hér syðra. (Úr frt-tlalilkyiinin^ii.) Tónleikar í Norræna húsinu Þriðjudaginn 1. maí nk. halda þær Elísabet F. Eiríksdóttir söngkona og Lára S. Rafnsdóttir píanóleikari tónleika í Norræna húsinu, og hefj- ast þeir kl. 20.30. Elísabet F. Eiríksdóttir stund- aði nám í söngskólanum í Reykja- vík og einnig á Ítalíu og í Vínar- borg. Hún hefur komið fram m.a. með Sinfóníuhljómsveit íslands og tekið þátt í uppfærslum í Þjóð- leikshúsinu og hjá íslensku óper- unni þar sem hún fer nú með hlut- verk Bertu í Rakaranum í Sevilla. Lára S. Rafnsdóttir stundaði nám á ísafirði, í Reykjavík og í London og Köln. Hún hefur komið fram í fjölda tónleika hérlendis sem erlendis. Þær Elísabet og Lára starfa nú báðar við Söngskólann í Reykja- vík. Á efnisskránni á þriðjudag eru sönglög eftir Jón Ásgeirsson, Jór- unni Viðar, Grieg, Sibelius, Mahl- er, Strauss og Brahms. (Kréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.