Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 10
58 MORGUNBLAÐIE), SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 Gísli Guðmundsson við vinnuborð sitt. Á myndinni má sjá þau sextíu eintök Almanaksins sem gefín voru út og uppi í hillum og ofan í skúffunum á borðinu eru spjöldin með öllum þeim nöfnum sem fínnast í Almanakinu, um 28.000 talsins. um frumbyggjana í Kanada Rætt við Gísla Guðmundsson, sem nú er að ljúka fjögurra ára vinnu við gerð nafna- skrár við Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar „ÚTGEFANIíl þessa almanaks vill styðja að því, að þessum söguatrið- um sé haldið á lopti. í því skyni hefur hann gert ráðstöfun fyrir því að hið litla ársrit hans flytji framveg- is smátt og smátt þætti úr sögu vest- uríslenzku frumbyggjanna, þangað til úr þeim er orðið heilt safn, er nær til allra íslendingabyggðanna hér í Vesturheimi.“ Svo ritaði ólafur S. Thorgeirs- son, stofnandi og ritstjóri ársrits- ins Almanaksins, árið 1897, er hann hóf að birta í því „Land- námsþætti íslendinga í Vestur- heimi“, auk skrár yfir helstu við- burði og mannslát á meðal ís- lensku frumbyggjanna í Kanada. Almanakið hafði hann þá gefið út um þriggja ára skeið í Winnipeg, en útgáfa þess hófst liðlega 15 ár- um eftir að fyrstu fslendingarnir námu land í Kanada. Ólafur kom þangað árið 1887, en hann var fæddur á Akureyri þar sem hann stundaði prentiðn hjá Birni prentsmiðjustjóra Jónssyni og vann hjá honum um tíma. í Vesturheimi tók Ólafur virkan þátt í félagslífi, var einn af stofn- endum Goodtemplarastúkunnar Heklu, blaðsins Lögbergs og klúbbsins Helga magra, auk þess sem hann gaf út ársfjórðungsritið Syrpu og tímaritið Breiðablik. Hann var fyrst prentari Lögbergs þar til hann kom upp eigin prent- smiðju 1905. Almanak Lögbergs mun hann hafa samið og gefið út 1889, þó að nafns hans sé ekki get- ið þar í. Almanakið sem kennt er við Ólaf og hann gaf sjálfur út hóf göngu sína 1894. Ólafur ritstýrði því til dauðadags árið 1937 og tók þá fjölskylda hans við. Fjárhags- örðugleikar steðjuðu að útgáfunni undir lokin, einkum vegna þess að margir þeirra eldri Vestur-fs- lendinga sem studdu Almanakið og keyptu það voru látnir. Ritið naut ekki eins mikilla vinsælda á meðal Vestur-fslendinga af yngri kynslóðinni. En þegar síðasta heftið kom út 1954 var höfuðtak- marki Ólafs með útgáfu þess náð, sagt hafði verið frá öllum helstu íslendingabyggðum í Kanada. Til þess fékk Ólafur valda menn frá öllum svæðunum sem íslensku frumbyggjarnir byggðu, menn sem skráðu sögu samtíðarmanna sinna, þannig að hún yrði sem ábyggilegust. Almanakið er því fjársjóður fróðleiks fyrir þá sem hyggjast kynna sér sögu ísiensku frum- byggjanna i Kanada og mætti kalla það „Landnámabók Vestur- íslendinga". Mörgum hefur þó reynst torvelt að nota ritin þar sem nafnaskrá fylgir ekki og fletta þarf í gegnum heftin til að finna þá menn sem leitað er að. Gísli Guðmundsson, fyrrum kenn- ari, hefur á undanförnum fjórum árum unnið að gerð slíkrar nafna- skrár og sér nú fyrir endann á verkinu. Ráðgert er að skráin verði gefin út síðar á þessu ári. Morgunblaðið átti samtal við Gísla um verkið og þá vinnu sem þar liggur að baki. „Hugmyndin að þessu verki varð til norður á Akureyri haustið ’78“ sagði Gísli, „þá hafði Árni Bjarnason bókaútgefandi tekið sig til og gefið út ljósritaða útgáfu af Almanakinu. Það var þá, sem nú, illfáanlegt og stök hefti sem ein- staka sinnum sáust í fornbóka- verslunum voru mjög dýr. Nú, við Árni vorum að ræða um Almanakið ásamt fleira fólki og þá var einhver sem benti á að vert og reyndar nauðsynlegt væri að gera svona skrá sem fylgirit. Báðir þekktum við Árni Almanakið og vissum að það var næsta lokuð bók fyrir þá sem vildu kynna sér land- námssögu íslendinga í Vestur- heimi, því að það er erfitt verk og tímafrekt að fletta upp á einstakl- ingum og fjölskyldum í því. Eitt og sama nafnið kemur kannski einu sinni fyrir, kannski oftar og jafnvel ekki í sama heftinu. Ég var á þessum tíma hættur störfum vegna aldurs og veikinda og þótt- ist vita að mér yrðu dagarnir langir ef ég hefði ekki eitthvað fyrir stafni." — Var þér ljóst í upphafi hve langan tíma verkið myndi taka? „Nei, ég áttaði mig hreint ekki á því hversu mikið starf þetta var, sérstaklega af því að sjónin hafði nokkuð skerst vegna veikindanna. Ég var lengur að lesa en áður, en gat skrifað. Satt best að segja held ég að enginn sem til þekkti hafi látið sér detta í hug að ég myndi nokkru sinni klára þetta og marg- oft spurði ég sjálfan mig að því hvort ekki væri réttast að hætta við allt saman. En ætli þrjóskan hafi ekki fleytt þessu áfram." — Hvaðan er áhugi þinn á landnámi Íslendinga í Kanada og Almanakinu sprottinn? „Mín fyrstu kynni af Kanada voru árið 1928. Þá hafði ég nýlokið stúdentsprófi hér heima og hélt utan til náms í rafmagnsverk- fræði. Ég var í íslendinganýlend- unni í Winnipeg, sem þá var í hvað mestum blóma. Þar sá ég Alman- akið fyrst og kynntist Ólafi S. Thorgeirssyni lítillega. Tveimur árum eftir að ég hóf námið í Kanada var heimskreppan í al- gleymingi og Winnipeg bauð ekki upp á annað en atvinnuleysi. Ég fór þá til íslendingabyggðarinnar á Siglunesi við Manitoþavatn og vann þar við skógarhögg, flutn- inga á vatninu, fiskveiðar og önn- ur tilfallandi störf. I Kanada var ég um tíu ára skeið, en kom þá aftur til íslands. Eftir heimkomuna ’38 ætlaði ég alltaf að fara aftur utan, en veikt- ist þá af liðagigt sem hefur loðað við mig alla tíð síðan. Stuttu seinna var komið stríð og þá þýddi ekkert að fara vestur aftur. Það hefði ekki verið til annars en að lenda í hernum." — Lauk þar með afskiptum þínum við Kanada? Flest nöfnin voru í árgangi Almanaksins frá 1933, rúmlega 1900 talsins, álíka mörg og nafnaspjöldin sem ber við bókina. Ljósm. Mbl./KÖE ■ Risa-H hlutavelta f Valhöll, Háaleitisbraut 1 7000 vinningar — Engin núll: 1. maí ffrá kl. 14—18.00. • STÓRGLÆSILEGT HÁLSMEN FRÁ JENS GUÐJÓNSSYNI GULLSMIÐ. • ÚR, FATNAÐUR, SNYRTIVÖRUR, HLJÓMPLÖTUR, LEIKFÖNG OG ÞÚSUNDIR ANNARRA EIGULEGRA MUNA. VERÐ MIÐA KR. 25 - Sólarlandaferö meö Útsýn aö verömæti 15 þús. kr. Landsmálafélagið Vörður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.