Morgunblaðið - 29.04.1984, Page 30

Morgunblaðið - 29.04.1984, Page 30
or 78 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 IJK HEIMI KVKMyNDANNA Af Anthony Quinn Það eru til tvenns konar stjörnur á Broadway. í öörum hópnum eru þær sem eru þekktar á götum úti og í hinum þær sem eru þaö ekki. Til dæmis hefur Jeremy Irons náö því aö verða stjarna á Broadway í leikriti Tom Stoppards, the Real Thing, en þaö breytir ekki þeirri staöreynd að fáir New York-búar munu þekkja hann utan sviösins. Í hinum hópnum er Anthony Quinn, orðinn 68 ára gamall, helmingi eldri en Irons og leikur nú Zorba í söngleik gerðum eftir samnefndri bók Nikos Kazantzakis, sama hlutverkið og hann fór með í kvikmyndinni fyrir 20 árum. Jafnvel þeir gagnrýnendur, sem þótti ekki mjög spunniö í söng- leikinn, hældu Quinn á hvert reipi í umsögn sinni. Þó hann sé lítill söngvari lætur hann þaö ekki á sig fá, en leikur í söngnum svolitiö eins og Rex Harrison gerði í My Fair Lady, nokkuö sem aðeins meistari getur komist upp með. Anthony Quinn er undarleg blanda af Mexíkana og frekum Ameríkana og hefur mexíkanska hliöin veriö ráö- andi allt fram á sextugsaldurinn en nú er fariö meira aö gæta írska upp- runans í fari hans. Þaö líður varla sá dagur aö ekki er minnst á Quinn í einhverjum slúöurdálkinum. Ef hann flytur inn á hótel er þvi lýst út í hörgul („Fyrir Anthony Quinn er heimili ein hæð á hóteli, sem þýöir 14.000 doll- ara leiga á mánuöi.") Ef hann skoöar 10 herbergja einbýlishús í Grandview í New Jersey, kemst það í blöðin, sérstaklega ef kvenkyns eigandi hússins lætur hafa þaö eftir sér að henni hafi þótt Quinn „mjög áhrifa- mikill, náttúrulegur, kynþokkafullur náungi" þó hann hafi ekki viljaö hús- iö. Veitingahús í New York fór á ann- an endann nýlega vegna þess að Quinn haföi stigiö þar inn fæti og keypt sér drykk til aö taka meö sér, rétt eins og hundraö manns gera þarna á hverjum degi. Þegar hann tók leigubíl um daginn brosti leigubíl- stjórinn út aö eyrum og sagöi: „Jæja, Tony, okkur tókst það.“ Quinn, sem þykir að of margir Ameríkanar dýrki hinn falska guö velgengninnar „og hiröi ekki um venjulega manninn" Anthony Quinn á yngri árum. brosti á móti. Hann skildi af hverju leigubílstjórinn fann samsvörun í honum. „Þaö má segja aö á vissan hátt sé ég fulltrúi verkamannatýpunnar. Þeir finna samsvörun i mér vegna þess aö þeir þekkja baráttuna í 50 ár. Þeir hafa séö mig tapa og sigra, en ég hef aldrei brugðist þeim. Jafnvel í hinum hörmulegustu myndum hef ég reynt aö finna kjarna þess hvaö maöurinn sé.“ Úr söngleiknum Zorba á Broadway. Þaö var erfitt fyrir Quinn aö kom- ast til metoröa í Hollywood vegna þess aö þá var tímabil Van Johnsons og hans líka, allt þaö sem hinn dökki, útlendingslegi Quinn fékk aö gera var aö leika indjána í vestrum. En hægt og bítandi rataði hann leiðina á toppinn. Hneyksli haföi næstum gert aö engu feril hans þegar hann játaöi aö eiga tvö börn meö ítalskri konu eftir næstum 30 ára hjónaband meö dóttur leikstjórans Cecil B. DeMille’s, Katherine, en einhvern veginn leyst- ist máliö þannig aö Quinn hækkaöi í áliti, sem hinn heiöarlegi, rómantíski karlmaöur. Þegar hann skrifaði sjálfsævisögu sína, The Original Sin eða Frumsynd- in, viöurkenndi hann aö þegar hann var strákur haföi hann viljaö vera „Napóleón, Michaelangelo, Shake- speare, Picasso, Martin Luther og Jack Dempsey, í einu lagi.“ Og strákurinn, sem langaöi svo til aö vera Picasso, hefur nú uppi ráöa- gerðir um aö leika þennan mikla spænska listamann og einnig tvo aöra sem eru hetjur hans, Tolstoy og Hemingway. Quinn hefur gaman aö því að mála og í anddyrinu í leikhús- inu á Broadway þar sem hann leikur Zorba eru sjálfsmyndir hans til sölu. New York-búar eru orönir vanir því að sjá Quinn trimma í Central Park. Það stendur yfir sýning á málverkum hans og skúlptúrum í miðborginni og hótelherbergin hans skarta málverk- um Renoirs, Henry Moores og Miros og Quinns. Gauguin er í geymslu því þaö er ekki pláss fyrir hann sem stendur. Regnboginn Síöasta lestin Ein frægasta mynd Francois Truffaut Áöur en langt um líöur mun Regnboginn taka til sýn- ingar eina frægari kvikmynd Frakka hin síöari ár, Le Dernier Métro (Síöasta lestin) eftir Francois Truffaut. Myndin var gerð 1981 og var allra vinsælasta myndin í Frakklandi þaö ár. Ekki nóg meö þaö, myndin hlaut hvorki færri né fleiri en tíu Cesar-verðlaun, sem er merkasta viöurkenning sem franskir listamenn geta hlotiö (sambærileg Óskarsverölaununum vestanhafs). myndinni leiöa saman hesta sina Francois Trauffaut, Catherine Deneuve og Gérard Depardieu og kvikmyndatökumaðurinn Nestor Allmendros, en hann filmaöi m.a. „Apocalypse Now“ og „Rauðliöa" Warren Beattys. Truffaut segir að myndin sam- anstandi af þremur gömlum draumum: aö sýna líf og list aö tjaldarbaki, aö endurskapa and- rúmsloftiö sem skapaöist viö her- nám Þjóðverja í heimsstyrjöldinni síöari, og aö gefa Catherine De- neuve tækifæri til aö leika ábyrga konu. Rauði þráöurinn í myndinni esr lif listahjónanna Lucas og Marion Steiner (Catherine Deneuve og Heinz Bennett). Þau reka leikhús í París, en þegar nasistar taka völdin neyöist Lucas til aö fela sig þar sem hann er gyöingur. Hann felur sig í kjallara leikhússins og stjórnar leiklistinni þaóan. Inn í þennan litla heim hjónanna kemur leikarinn Bernard (Gérard Depardieu). Hann reynist dularfullur í meira lagi. Hann tengist andspyrnuhreyfing- unni og lifir því í stööugum ótta. Ennfremur spilar gagnrýnandinn Daxiat (Jean-Louis Richard) stórt hlutverk. Hann er hlynntur nasist- um og hefur örlög allra leikhúsa í hendi sér. Francois Truffaut „Þegar þú ferö í bió nú á dögum heyrir þú fólk kjafta saman gegn um alla myndina. Þaö kjaftar og kjaftar. Þaö er vant aö tala meöan þaö horfir á sjónvarpiö heima hjá sér, en gleymir aö þaö er í bió. Þetta dregur úr áhrifum myndar- innar og truflar aöra í salnum." Þetta segir franski kvikmynda- leikstjórinn Francois Truffaut. Hann ætti aö vita hvaó hann syngur, bú- inn aó starfa í bransanum í þrjátíu ár. Hann segir: „Kvikmyndin er lif- andi, en aö horfa á sjónvarpsmynd- ir er eins og aö lesa símaskrána." Truffaut er heldur ekki hrifinn af myndbandabyltingunni, eöa kass- ettuæöinu, eins og hann kallar þaö. „Mínar myndir myndu hreinlega týnast í þessari nýju tækni. Ég lít myndbandskassettuna sömu aug- um og hljómplötu sem þú hlustar á eftir konsertinn. Ég get vel hugsaö mér aö horfar á myndir á mynd- bandi aöeins til aó endurnýja kynn- Hjónin Lucas og Marion Steiner (Deneuve og rýna í texta fyrir nýja leikritiö sem þau sviösetja. Af ótta vió nasista felur Lucas sig I kjallaranum. Heinz Bennett) Gérard Depardieu og Catherine Deneuve í „Le Dernier Métro“ sem Regnboginn mun sýna. in af gamalli mynd sem mér likaöi, eöa sannreyna gæöi hennar og áhrif. En mynd á myndbandi getur engan veginn haft sömu áhrif og á hvíta tjaldinu." Ferill Truffaut er ein löng sigur- ganga, en hvernig úskýrir hann velgengni sína? „Þaö eru tveir meistarar kvik- myndanna sem höföu ómæld áhrif á mig: Alfred Hitchcock, áhrifa hans mun ávallt gæta, og Jean Renoir, sem er meistari persónu- sköpunarinnar. Þá hefur leikaraval- iö í myndum mínum oft gert útslag- ið.“ Truffaut, sem nú er kominn á sextugsaldur, getur ekki lengur tal- ist til hinna ungu leikstjóra. Flestir félaga hans frá tilraunatímabllinum kringum 1960 hafa reynt fyrir sér í Bandaríkjunum. En Truffaut heldur sínu striki og er ekkert á þeim bux- unum aö feta í fótspor þeirra. Hann segir aö kvikmyndahandritin sem samin eru í Bandaríkjunum séu spennitreyjur. Hann hefur gert fá mistök á löngum ferli, og þau mis- tök sem hann geröi kenndu honum lexíu. Hann starfaöi í nokkur ár sem gagnrýnandi og sú reynsla geröi honum kleift aö skoöa kvikmyndir í nýju Ijósi. Fyrir mörgum árum tók hann sér þriggja ára frí frá erli kvikmyndanna og samdi bækur. Sú frægasta nefnist „Conversations with Alfred Hitchcock” og er talin klassísk. Þess má geta aö önnur mynd eftir Francois Truffaut veröur sýnd i Regnboganum. Nefnist hún „The Woman Next Door“ og vakti hún ' álíka athygll og Síöasta lestin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.