Morgunblaðið - 29.04.1984, Síða 34

Morgunblaðið - 29.04.1984, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 82 Frá tónleikum Kukls í Ambulance Station um áramótin. Einar Melax lengst t.v., þá Sigtryggur og í forgrunni má sjá Guðlaug Óttarsson ef myndin prentast vel. „íslenskir tónlistarmenn latt og sjálfumglatt pakk“ „Vió erum aö fara aó gefa út plötu og ætlum aó efna til tónleika hér heima á næstunni. Nota tæki- færiö á meóan við erum öll saman. Við erum nefnilega ekki saman nema í stuttan tíma í einu — aöal- lega vegna þess aó ég bý erlend- is,“ sagói Einar Örn Benediktsson, annar söngvara hljómsveitarinnar Kukls, í spjalli vió Járnsíóuna fyrir nokkrum dögum. Einar Örn ætti að vera óþarti aö kynna fyrir þjóóinni, verk hans segja alla söguna. Sem forsprakki Purrks Pillnikks, höfuöpaur iss! og fleiri verkefna hefur hann iöulega verió á allra vörum þótt ekki hafi menn endilega veriö sammála um framlag hans. Athygli hefur hann þó ætíö vakið og þaö er meira en hægt er aö segja um stóran hluta íslenskra poppara. Eins og kemur fram aó ofan hefur Einar Örn dvalist erlendis í allan vet- ur, nánar tiltekiö í London, þar sem hann hefur lagt stund á nám í fjöl- miðlun. Sækist þaö aö vonum vel, en starfsemi Kukls hefur veriö meö minna móti af þeim sökum. Fyrir þá, sem ekki vita, er rótt að geta þess, aö Kukl er sex manna (og kvenna) sveit. Sigtryggur Baldurs- son lemur húöir, Guólaugur Óttars- son leikur á gítar, Birgir Mogensen á bassa, Einar Melax á hljómborö og þau Björk Guömundsdóttir og Einar Örn sjá um sönghliö málanna. Þetta fólk er meira og minna þekkt innan „poppbransans." Sigtryggur og Guölaugur báöir úr Þey sáluga, Birgir úr Spilafíflum og síöar Killing Joke um tíma og Björk var í framlínu Tappa tíkarrass. „Já, eins og ég sagöi reynum viö að koma saman eins oft og viö get- um, á X-mánaöa fresti skulum viö segja, og vinnum þá aö plötugerð og tónleikahaldi," sagói Einar örn og lagói á þaö áherslu, aó Kukl myndi efna til tónleika hér heima áóur en langt um liöi og þá tveggja fremur en einna. Ambulance Station Síðast hittist allur hópurinn um áramótin þegar hljómsveitin kom út til Bretlands og tók þá upp efni á plötuna og efndi til tónleika í Ambul- ance Station, sem frægir urðu. Breska tímaritiö Sounds fjallaöi um þessa tónleika, en auk Kukls voru þar a.m.k. tvær aörar sveitir. Fékk Kukl langsamlega bestu dómana og var þó önnur hinna Flux of Pink Indians. Þaó er útgáfufyrirtæki Crass, sem gefur þessa nýju plötu Kukls út. Ætl- unin er að hún komi út í maí. Um er aö ræöa svokallaöa EP-plötu, vænt- anlega átta laga. Reyndar er þetta fyrsta platan, sem Crass gefur út án þess aö nefna til sérstakan „pródús- er“. Kukl sá aö öllu leyti um upp- tökustjórn, en Tony Cook var alltaf nálægur. Þaö eru ekki margar plöt- ur, utan sinna eigin, sem Crass hef- ur gefiö út, en Kukl eru þau fyrstu sem hafa algera sjálfsstjórn. — Hver sér um dreifingu plöt- unnar? „Þeir Crass-arar gera þaö. Þaö er fullt af fólki, sem kaupir allt sem Crass gefur út bara af því aö það eru þeir sem gefa þaö út, en það er okkar vandamál aö ná til allra hinna. Crass er meö öflugt dreifingarfyrir- tæki í Bandaríkjunum og Evrópu og Gramm mun t.d. flytja hana inn hér á landi." Augaö — Crass gefur út — Hvaö kom til aö Crass gaf þessa plötu ykkar út? „Þeir treystu okkur einfaldlega. Þeir höföu enga reynslu af okkur og höföu lítið heyrt til okkar, en treystu okkur. Ég held aó þeir hafi ekki orö- iö fyrir vonbrigóum. Ég man aö Penny Rimbaud kom inn í Southern Studios og hlustaöi á öll lögin í einni striklotu án þess svo mikiö aö segja eitt aukatekiö orö. Auövitaö vorum við á nálum um aö hann yröi fyrir vonbrigöum en síöan sagöi hann bara „excellent" þegar allt var bú- ið.“ — Hvað á platan aö heita? „Hún mun bera nafniö Augaö, The Eye á ensku." — Af hverju þessi nafngift? „Viö lentum í því um áramótin, nafnarnir, ég og Einar Melax, aö vera lamdir. Lamdir er ekki rétta oröiö, skallaöir öllu heldur. Viö hitt- um nokkra náunga á förnum vegi og gáfum okkur eitthvað aö þeim. Áöur en ég vissi af lá Einar í götunni, steinrotaöur. Ég gekk þá aö þeim, sem haföi rotaö hann og spuröi hvers vegna hann heföi veriö aö þessu. „Af því," svaraöi hann og skallaöi mig af alefli í andlitið. Ég rotaöist ekki, en hneig í götuna. Þeir voru fleiri saman og byrjuöu aó sparka í mig og ég held ég hafi aldr- ei oröiö eins hræddur á ævinni. Tók aö öskra á hjálp á íslensku og viö þaó hlupu þeir á brott. Ég fékk feiki- legar bólgur í andlitiö og tvö væn glóöaraugu eftir þetta og Einar lá rotaöur í nokkrar mínútur. Var svo eftir sig, aó hann sagöi nánast ekki orö næstu daga. Eftir þetta varö mér þaö fyrst fyllilega Ijóst, aö ég vil ekki vera beittur ofbeldi og gæti ekki hugsaö mér aö beita nokkurn mann ofbeldi. Ofbeldi er vióbjóóur. Nafngiftin á plötunni stafar af þessu ævintýri ef hægt er aö kalla það svo." Friöarins fólk — Er eitthvert „þema" á þlöt- unni? „Nei, þaö held ég ekki. Þaö er erfitt aö finna „þema" sem nær því sem viö viljum koma á framfæri. Viö látum okkur allt skipta, en látum allra flokka pólitík í textum lönd og leið. Þó munum viö í framtíöinni taka þaö sem viö segjum og gerum mun fastari tökum. Ég og viö öll í Kukli höldum aó allir veröi bara aö gera sér grein fyrir því aó þaö er ekki hægt aö fara með alþýöu þessa lands eins og hunda öllu lengur. Ef ég hugsa meira út í „þema" plötunn- ar þá myndi ég sennilega sætta mig best viö þau orð, sem finnast á ein- um staö á plötunni: „Opnaðu glugg- ann svo sálin geti flogiö frjáls." Viö erum frjáls að eölisfari og þannig vil ég vera, engin höft." — Eru meðlimir Crass hálfgeröir „gúrúar" ykkar eins og Bubbi sagói i viðtali um daginn? „Nei, þaö er af og frá. Þetta er aðeins fólk, sem við metum mikils en höfum reyndar ekki hitt svo ýkja oft, ekki nema kannski ég. Aöeins einu sinni öll saman. Þetta er fólk, sem berst fyrir friöi og þaö gerum vió líka." — Eru Kuklarar friöarsinnar? „Já, hver er ekki á móti stríði. Þaö hljóta allir aö vilja foröast styrjöld. Vió erum þeirrar skoöunar, aö þaö eigi ekki aö þurfa aö beita vopnum, yfirgangi og ofbeldi til þess aö halda uppi lögum og reglu i heiminum. Hins vegar vil ég koma því á fram- færi hér, aö mér finnst lítiö til þess- ara friöarhópa um allt land koma. Þetta fólk er bara aö stofna ein- hverjar friöarhreyfingar til þess aö friöa eigin samvisku. Hvaö hafa þessir hópar svo gert til þess aö fylgja eftir málum sínum? Ekkert. Þaö er nefnilega máliö. Hóparnir eru bara stofnaóir og síöan ekki söguna meir. Þetta er hræsni og ekkert annað. Ef barátta fyrir friöi á aö bera árangur þarf aö vera miklu haröari gagnvart þeim, sem standa fyrir því aö aörir eru drepnir." — Hvað hafið þiö í Kuklinu gert til aö leggja áherslu á skoöanir ykk- ar? „Viö höfum reyndar ekki haft ýkja mikil tækifæri til slíks þar sem hóp- urinn hefur veriö sundraóur svo lengi. En áöur en ég fór út tókum viö þátt í 4.000 manna samkomu i Laugardalshöll undir nafninu „Viö krefjumst framtíöar". Ég held að þaö hafi verið einhver best heppn- aöa skemmtun, sem sögur fara af lengi vel." Evrópuferðalag — Víkjum aöeins frá þessari um- ræöu og aftur aö því sem Kukl er aó fást viö. Nú stendur til aö þiö fariö í tónleikaferöalag um Evrópu, ekki satt? Nokkrir molar um stórstirni rokksins * Aódáendur Ronnie James Dio geta fariö aó hlakka til því von er nýrrar breiöskífu frá sveit hans, Dio, í júní. Fyrsta breiðskífa sveit- arinnar, Holy Diver, fékk feikigóðar viðtökur. ★ Marilyn, sá er Bretar vilja stund- um halda fram aö veröi arftaki Boy George, fékk heldur betur fyrir feröina er hann var í Sydney í Ástr- alíu fyrir nokkrum dögum. Vissi hann ekki fyrr til, þar sem hann var aö dansa viö yngismey, aö maður nokkur vatt sér aö honum og rétti honum kjaftshögg. ★ Styx lifir enn og til þess aö und- irstrika þaö sendi sveitin í vikunni frá sér tvöfalda tónleikaplötu undir því frumlega nafni „Caught in the Act". ♦ Stevie Wonder fer í tónieika- feröalag um Bretland i júní. Upp- haflega ætlaói hann aö efna til fjögurra tónleika en sökum feiki- legrar eftirspurnar hefur hann ákveöiö aö bæta 6 tónleikum viö. Hafi einhverjir íslendingar áhuga á aö fara og sjá kappann er þetta tilvalið tækifæri. Ný umboðsskrifstofa opnar Umboðsfyrirtækiö Sóló sf. hef- ur tekið til starfa. Hefur þaö opnaö skrifstofu aö Hverfiagötu 50, 2. hæö. Forstöðumaður þess er Viðar Arnarson. Síminn hjá Sóló er 19620. Aö sögn Viöars er tilgangur fyrirtækisins sá, aó auövelda hljómsveitum og skemmtikröftum aö koma sér á framfæri, skipu- leggja hljómleika sem víðast og sem oftast. Sérstaka áherslu sagöi Viöar fyrirtækiö leggja á aöstoö viö þá er flyttu frumsamiö efni. Þá tekur Sóló sf. aö sér dreifingu á hljómplötum og kassettum. Þá hefur fyrirtækiö áhuga á aö skipu- leggja feröir fyrir danshópa út á landsbyggöina. Skrifstofan hjá Sóló verður fyrst um sinn opin frá kl. 8—12 alla virka daga og frá 10—16 um helg- ar. Óreglulega utan þess. Seafunkiö í upptökum LÍTIO hefur heyrst af högum hljómsveitarinnar lcelandic Sea- funk Corporation aó undanförnu. Lag sveitarinnar, Dansaöu, kom út á safnplötunni Tvær í takt fyrir skemmstu og vakti mikla athygli og fékk veröskuldaða spilun í út- varpi. Umsjónarmaöur Járnsióunnar hitti einn meölima sveitarinnar, Styrmi Sigurösson, aö máli á förn- um vegi fyrir skemmstu og sagöi hann sveitina þá nýveriö komna úr Grettisgati, þar sem hljóðrituö hefðu veriö tvö lög. Styrmir sagöist allsendis óviss um hvort þau uröu gefin út, slíkt yröi allt aö koma i Ijós. Mel Brooka hefur gert það gott að undanförnu með lag sitt To Be Or Not To Be. Hann er hér í gervi þekkta foringja. Myndin er úr myndbandi, aem gert var við lagið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.