Morgunblaðið - 09.05.1984, Side 1
Miðvikudagur 9. maí
Víða eru bátar á barnaleikvöllum, en hvergi eiga þeir líklega betur heima en í Grímsey.
Flugvélin komin á staðinn og maturinn og hljómflutningstækin sett á vagna og flutt inn í
félagsheimilið.
Að loknum vinnudegi er rétt að þrífa farkostinn.
Þó dráttarvélin sé aðalfarartækið í Grímsey, enda hentugast, getur þar að líta fleiri farartæki
eins og bifhjól.
GRIMSEY
FISKAR — FUGLAR — FÉLAGSLÍF
„Sól og blíða framundan hjá
sjómönnum og fiskvinnsiu“
— kvótinn búinn
I>AÐ VAR sól og blíða í Grímsey, er
Morgunblaðsmenn komu þar í byrjun apr-
flmánaðar, en skuggi leyndist þó á lofti.
Fiskikvóti eyjarskeggja var að mestu upp-
urinn í upphafi fjórða mánaðar ársins og
því atvinnuskortur framundan. Einn eyj-
arskeggja orðaði það þannig, að vissulega
væri sól og blíða þann daginn, en það væri
líka það eina, sem væri framundan hjá
sjómönnum og fiskverkendum. Um 110
manns búa í Grímsey og þaðan eru gerðir
út fjórir dekkbátar og 7 trillur. Vinna í
landi byggist ijær eingöngu á fiski og eru
þar tvær verkunarstöðvar, önnur í einka-
eign en hin í eigu Kaupfélags Eyfirðinga.
Aflinn er eingöngu verkaður í skreið og
salt. Verulegur samdráttur er því fyrir-
sjáanlegur það sem eftir er ársins og
vinna fyrir skólafólk nær úr sögunni
gagnstætt því, sem verið hefur.
Þrátt fyrir þetta og erfiða hafnar-
aðstöðu var þó glatt á hjalla í eynni því
góðir gestir voru komnir úr landi til að
skemmta eyjarskeggjum á árshátíð
Kiwanisklúbbsins. Voru það Jóhann
Már Jóhannsson, söngvari, Guðjón
Pálsson, píanóleikari, og hljómsveitin
Rokkbandið. Hátíðina sótti nær hver
einasti maður, sem til þess hafði aldur,
alls 69, eða rúmlega helmingur Gríms-
eyinga. Hátíðin hófst með veizlukosti
úr Sjallanum, en síðan flutti Bjarni
Magnússon gamanmál, Jóhann Már
söng við undirleik .Guðjóns og Rokk-
bandið lék fyrir dansi. Var ekki annað
að sjá en eyjarskeggjum gengi vel að
gleyma amstri dagsins og blikum á lofti
atvinnulífsins og dunaði dansinn fram
eftir nóttu.
SJÁ BLAÐSÍÐU 64 OG 65
Séð inn höfnina
„Brói“ er að koma úr
róðri á Kristínu.