Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984
51
Skagaströnd:
Vormót Bridgeklúbbs
Skaga-strönd, 29. apríl.
LAUGARDAGINN 28. aprfl var
haldið Bridgemót á Skagaströnd.
Á mótinu spiluöu 30 pör eftir Baro-
meter fyrirkomulagi 29 umferðir.
Keppendur komu frá Borgarnesi,
Hólmavík, Hvammstanga, Blöndu-
ósi, Fljótum, Siglufirði og Akureyri
auk keppenda frá Skagaströnd.
Eitt par var í nokkrum sér-
flokki á mótinu, en það voru þeir
Stefán Jóhannesson og Jakob
Kristinsson frá Akureyri. Sig-
ruðu þeir félagar á mótinu með
251 stigi og var sigur þeirra
verðskuldaður, því næsta par,
sem varð í öðru sæti, þeir Sig-
urður Hafliðason og Sigfús
Steingrímsson frá Siglufirði
hlutu 127 stig. Þriðja sæti með
125 stig hrepptu þeir Valtýr Jón-
asson og Viðar Jónsson frá
Sigurvegararnir, Stefán og Jakob. Á milli þeirra sést í Guðmund keppnis-
stjóra.
Skagastrandar
Siglufirði.
Skipulag og undirbúningur
mótsins var með mikllum ágæt-
um og lét Eðvarð Hallgrímsson,
formaður Bridgeklúbbs Skaga-
strandar, þess getið, er hann
sleit mótinu, að Bridgeklúbbur-
inn stefndi að því að halda slík
vormót á hverju ári framvegis.
Mótið fór vel fram undir
styrkri stjórn hinnar öldnu
kempu, Guðmundar Kr. Sigurðs-
sonar, keppnisstjóra.
ÓB.