Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 5

Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984 53 Byggingarþjónustan kynnir leiðir til orkusparnaðar Hjá Byggingarþjónustunni er nú hafin sýning á vöruflokkum sem tengjast orkusparandi endurbótum á húsnæöi og breytingu í innlenda orkugjafa. Á sýningunni kynna framleiöendur og seljendur hina ýmsu vöruflokka sem að gagni mættu koma við aö endurbæta hús- næöi þannig aö það mætti leiða til orkusparnaöar. I»á liggja frammi á sýningunni upplýsingar frá Húsnæö- isstofnun ríkisins, Orkustofnun og Rannsóknastofnun byggingariönað- arins. Sýningin er sett upp í því skyni aö örva fólk til umhugsunar um orkusparnaö og verður farið meö hana út um landsbyggðina þegar henni lýkur í Reykjavík. ig hægt væri að bæta úr þessu. Bæði skoðunin og ráðleggingarnar eru eigendum húsa alveg að kostn- aðarlausu en þeim verður síðan veitt aðstoð við að sækja um lán til að standa straum af þeim kostnaði sem hugsanlegar lagfær- ingar gætu haft í för með sér. Karl sagði að þeir reiknuðu með að geta veitt um 250 húseigendum lán miðað við lánsfjárveitingu þessa árs. Lán til þessara framkvæmda verða veitt úr Byggingarsjóði ríkisins og er stefnt að því að þau verði veitt til allt að 16 ára og verði afborgunarlaus fyrstu tvö til þrjú árin. Sýningin í Reykjavík verður opin almenningi til 15. maí og verður hún opin frá kl. 10—18 alla virka daga og frá kl. 14—18 um helgina. Síðan er í bígerð að fara með sýninguna út á land og verður fyrst farið í þéttbýlisstaði á Snæ- fellsnesi og síðan til Vestfjarða. Þar sem sýningin verður sett upp úti á landsbyggðinni er fyrirhugað að halda stutt námskeið fyrir iðn- aðarmenn í tengslum viö hana. Áður en sýningin var sett upp var haldið námskeið fyrir skoðun- armenn, sem komu víðs vegar að af landsbyggðinni, þar sem áhersl- an var lögð á að kynna raunhæfar orkusparandi aðgerðir á einstök- um byggingarhlutum. Þá var ennfremur farið yfir kostnaðar- og hagkvæmnisútreikninga, skoð- un húsa og hvernig endanleg ráðgjöf til húseigandans er unnin með hjálp tölvu. Karl Ómar Jónsson, formaður Verkefnisstjórnar, sagði í samtali við blm. Mbl. að bæði sýningin og námskeiðið væri hluti af orku- sparnaðarátaki sem væri verið að fara í gang með. Sagði hann að aðaltilgangurinn með þessu orkusparnaðarátaki væri að reyna að lækka orkunotkun og jafna orkukostnaðinn. Hann sagði að í þessu skyni hefði námskeiðið verið haldið og að þeir sem það hefðu sótt, þ.e. skoðunarmennirnir, myndu síðan starfa víðs vegar um landið þar sem þeir önnuðust tæknilega ráðgjöf. Karl sagði að fyrst í stað yrðu valin hús samkvæmt sérstakri áætlun þar sem í fyrstu atrennu yrðu valin íbúðarhús með óeðli- lega mikinn orkukostnað. Skoðun- armennirnir kæmu til með að skoða þessi hús og síðan myndu þeir veita ráðleggingar um hvern- COROLLA Það þarf hugrekki til að endurhanna bíl sem nýtur jafn mikilla vinsælda ogToyota Corolla, - bíl sem í mörg ár hefur verið mest selda bifreið í heimi Nú er komin ný Corolla sem sannar að enn má bæta það sem best hefur verið talið. Viðhönnun hennar hefur þess verið gætt, að húnhafitilaðberaalla þá kosti sem öfluðu eldri gerðum vinsælda, en aðaláherslan hefur verið lögð á að auka innanrými,draga úr eldsneytis- eyðslu og bæta aksturseiginleika. Til þess að ná þessum árangri hefur Corolla verið búin þverstæðri vél og framhjóladrifi, hjólabil hefur verið aukið, gólf ækkað, sætum breytt og dregið hefur verið úr loft- mótstöðu (0.34 Cd á Corolla Liftbackj.Corolla-Breyttur og Betri Bíll. Hár og fegurð — nýtt tölublað UT ER komiö 1. tbl. 4. árg. af tímarit- inu Hár & fegurö. Mikið er af islensku efni í þessu blaöi. Allt aö 50 íslenskir hárgreiöslu- og hárskerameistarar sýna snilli sína í hártízkunni. Einnig er tízkufatnaður frá tízkuvöruverzlunun- um Gullfoss, Assa, Bazar, Leður & rú- skinn, myndefni frá keppni snyrtifræð- inga, sem haldin var á Broadway, efni frá snillingunum í París, eins og Alex- andre de Paris, Bruno, S.T.A.R. og einnig er kynnt sumartízkan frá Herm- es. Frá London er Toni Guy, Jingles Pierre Alexandre. Simon ívarsson fjallar um flamengo-tónlist. Forsíðan er unnin frá áhrifum reggae-tónlistar. Metsölubhdá hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.