Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984
54
Lífskjör
renna
til sjávar
Verðstýring sem kostaði sitt
Vegna mistaka vid uppsetn-
ingu þingbréfs sl. sunnudag, þ.e.
rugling í upplímingu dálka, þann
veg að erfítt var að lesa í efnið,
er bréfíð endurbirt hér á eftir í
heild.
• Húst'turo.skun á Norðurlandi
vestra 1981—1983 svarar til þess ad
kauptúnið Hofsós tæmdist af íbúum.
• Búseturöskun á Noröurlandi
cystra á sama tíma svarar til þess að
Raufarhöfn félli úr byggð.
• Norðlendinga skorti 146 m.kr.
1982 til að ná meðaltekjum í landinu
það ár og norðlenzk sveitarfélög 44
m.kr. til að ná meðalútsvari á íbúa
1983.
• Auk þess veldur mjög hár hitun-
arkostnaður því, einkum þar sem
olía eða rafmagn er nýtt til húshitun-
ar, en einnig þar sem dýrar hitaveit-
ur koma við sögu, að fólk rennir
hýru auga til búsetu á höfuðborg-
arsvæðinu.
Húshitun og kaupmátt-
ur ráðstöfunartekna
Sverrir Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra, lagði fyrir skömmu
fram stjórnarfrumvarp um jöfnun
húshitunarkostnaðar. í greinar-
gerð kennir ýmissa grasa. Þar
kemur m.a. fram að óniðurgreitt
orkuverð til húshitunar í febrú-
armánuði sl. var frá kr. 0,38 pr.
kWh til kr. 1,46. Miðað við þetta
verð er hitunarkostnaður 400
rúmmetra íbúðarhúsnæðis á ári
sem hér segir:
• Ódýrar hitaveitur kr. 12.400.
• Meðaldýrar hitaveitur kr.
21.800.
• Dýrar hitaveitur kr. 32.500.
• Bæjarrafveitur, án niður-
greiðslu, kr. 31.200.
• RARIK, Orkubú Vestfjarða og
Bæjarveitur (með niðurgreiðslu)
kr. 28.800.
• Olíuhitun án niðurgreiðslu kr.
47.900.
• Olíuhitun með niðurgreiðslu kr.
33.000.
Þegar gluggað er í framan-
greindar tölur gefur augaleið að
„sömu laun fyrir sömu vinnu"
gagnast mismunandi, eftir búsetu
eða orkuverði í húshaldi fólks. Það
er því ekki óeðlilegt að stjórnvöld
grípi inn í framvindu máia með
því að „jafna“ að nokkru þennan
óhjákvæmilega fastakostnað í
húshaldi á „ísa köldu landi“.
Ekki eru allar
ferðir til fjár
Ekki hafa öll opinber afskipti
verið „ferðir til fjár“ fyrir kaup-
endur orku í landinu. Minna má á
ummæli Halldórs Jónatanssonar,
forstjóra Landsvirkjunar, á ný-
lega afstöðnum ársfundi stofnun-
arinnar. Honum fórust svo orð um
opinbera verðstýringu raforku á
liðnum áratug:
„Glöggt dæmi um hve óhagstæð
áhrif verðlagseftirlitið hafði á
fjárhag Landsvirkjunar árin
1971—1982 er sú staðreynd, að
hefði gjaldskrá Landsvirkjunar
fengið að hækka í réttu hlutfalli
við hækkun byggingarvísitölu á
þessum árum hefðu skuldir
Landsvirkjunar í lok ársins 1982
orðið 100 milljónum Bandaríkja-
dala lægri en raun varð á, en það
er um 60% af stofnkostnaði
Hrauneyjafossvirkjunar. Ef slíkri
stefnu hefði verið fylgt væri bæði
fjárhagur Landsvirkjunar betri en
hann er í dag og verð til notenda
lægra."
Sömu sögu má segja um mörg
önnur orkufyrirtæki, ekki sízt
Hitaveitu og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, sem urðu ilia fyrir
barðinu á „verðstýringu" og „vísi-
töluleik" stjórnvalda, ekki sízt
1978—1983. Fjárhagur þeirra
VIRKJANALEÐ/AUKNING STORIÐJU
DÆMI 2
TWh/ari
SULTARTANGI
NY VIRKJUN
FUOTSDALUR
VATNSFELL OG
VJJNGANES
BLANDA OG
STÆKKUN BÚRFELLS
KVISLAVEITA OG
STÆKKUN ÞÓRISVATNS
EYJAFJORÐUR 2. AFANGI
EYJAFJÖRÐUR 1. AFANGI
ISAL KERSKÁLI 4
ISAL KERSKÁU 3
KÍSLMÁLMUR
■<
z
o
Hæfilegt markmið að keppa að
Skýringarmyndir þessar fylgdu erindi Jóhanns Más Maríussonar um rannsóknarstarfsemi og virkjanaáætlanir
Landsvirkjunar, sem hann flutti á ársfundi þeirrar stofnunar. Þær sýna annarsvegar hugmyndir um viðbót orkufreks
iðnaðar og hinsvegar um raforkukerfið fram til aldamóta. Þessar hugmyndir gera ráö fyrir því að fram verði haldið
frekari nýtingu orkulinda til að fjölga störfum í þjóðarbúskapnum, auka umtalsvert útflutningsverðmæti og þjóðar-
tekjur og þar með almenna hagsæld í landinu. „Bent hefur verið á,“ sagði Jóhann Már, „að raforkunýting um næstu
aldamót sem svarar til um 10 TWh/ár, sem er um 20% af því raforkumargni sem íslenzkar orkulindir eru nú taldar
búa yfir, sé að ýmsu leyti hæfilegt markmið til að stefna að.“
LAXA
'blandaIÍI □ l
150 MW VILLINGANHS I
30 MW I
FLJOTSDALUR
252 MW
STÆKKUN N
BURFELLS 140 MW
NEÐRÍ ÞJORS
RAFORKUKERFIÐ ARIÐ 2000
HUGMYND
26" standard
Verd kr. 35.760.- stgr.