Morgunblaðið - 09.05.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984
55
MNGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
NT-umboðið á Akureyri mótmælir
notkun Nútímans á NT:
Aðeins skammstöf-
un á nafni félagsins
— segja þeir hjá Hlutafélagaskrá
versnaði og verðhækkunarþörf óx,
vegna skuldakostnaðar, langt um-
fram það sem orðið hefði með
verðþróun í samræmi við almenn-
ar verðlagsbreytingar í landinu.
Niðurstaða miðstýringar (of-
stjórnunar) varð verri fjárhags-
staða fyrirtækjanna og hærra
verð en ella til notendanna, enda
þótt afskiptasemin væri réttlætt
með meintri verðstýringu og
meintu verðlagseftirliti.
Efnisatriði frumvarpsins
Sverrir Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra, sagði m.a., er hann
mælti fyrir frumvarpi sínu um
jöfnun húshitunar:
„Kostnaður við olíuhitun með
olíustyrk er nú talinn nema um
69% af óniðurgreiddri olíuhitun,
en niðurgreidd rafhitun kostar um
58% af verði oliu án niðurgreiðslu.
Verð hitaveitna er mjög mismun-
andi. Hinar dýrari og nýrri veitur
eru á svipuðu verði og niðurgreidd
rafhitun eða olíuhitun en t.d.
Hitaveita Reykjavíkur kostar um
26% af óniðurgreiddri olíu.“
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að raforka og varmaorka sé greidd
niður þannig að hlutfall raforku-
verðs og vegið meðalverð allra
hitaveitna sé 1:1,8. Þessu hlutfalli
hefur eins og áður segir þegar ver-
ið náð.“
Áætlað er að niðurgreiðsla inn-
lendra orkugjafa, samkvæmt
frumvarpinu, nemi um 190 m.kr.,
en niðurgreiðsla olíu um 60 m.kr.,
en til annarra framkvæmda, sam-
kvæmt því, verði varið um 90
m.kr. Samtals er kostnaður í ár
áætlaður um 340 m.kr.
Meginmarkmið frumvarpsins
eru: 1) jöfnun hitunarkostnaðar,
2) lækkun kostnaðar við hitun
húsnæðis, 3) aukin notkun inn-
lendra orkugjafa. Framkvæmdin
felst i niðurgreiðslu raf- og
varmaorku, olíustyrkjum, aðstoð
við illa staddar hitaveitur og að-
gerðir (bætt einangrun) sem leiða
til orkusparnaðar.
í athugun sem Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins
gerði á 300 húsum í 4 sveitarfélög-
um 1979—1980 kemur i ljós allt að
fimm- til sjöfaldur mismunur i
orkunotkun einstakra notenda.
Þessi munur vegur ekki sizt þungt
hjá þeim sem búa við hátt orku-
verð. Helzta nýmæli frumvarpsins
er skipulegt átak til endurbóta á
húsum (s.s. einangrun) sem leiða
til orkusparnaðar. Kemur þar
bæði til fagleg ráðgjöf og hagstæð
lánsfjárútvegun. Iðnaðarráðu-
neytið mun skipa þriggja manna
verkefnisstjórn, sem ber ábyrgð á
framkvæmd þessa verkefnis. Gert
er ráð fyrir að lán verði veitt í
samræmi við lög um Húsnæðis-
stofnun ríkisins.
Lífskjör sem renna
til sjávar
Ein af þeim leiðum sem fara
þarf til að tryggja framtíðarat-
vinnuöryggi og framtíðarlífskjör
þjóðarinnar er að beizla vatnsaflið
og breyta orku fallvatna í störf og
útflutningsverðmæti. Þegar hafa
glatazt dýrmæt ár á altari aðgerð-
arleysis. Lífskjaraskerðing, sem
rætur á í samdrætti sjávarfangs
og sjávarvöruframleiðslu, hefur í
litlu verið bætt upp með nýrri
verðmætasköpun. Lífskjör renna í
raun til sjávar í óbeizluðum
vatnsföllum — og fara forgörðum
í vannýttum tækifærifærum líf-
efnaiðnaðar, sem kallaður hefur
verið auðlind nýrrar aldar.
Byggðaröskun nyrðra, sem frá
er greint í upphafi þessa bréfs,
verður vart stöðvuð nema með
bættum alhliða möguleikum fólks
í fjórðungnum, ekki sízt í starfs-
tækifærum og betri efnalegri af-
komu; þó muna verði vel, að mað-
urinn lifir ekki á brauðinu einu
saman.
Samkvæmt áætlun orkuspár-
nefndar verður raforkueftirspurn
núverandi markaðar, þ.e. almenn-
ingsveitna og núverandi stóriðju,
tæplega 6 TWH/ár um næstu
aldamót. Þetta þýðir í stuttu máli
að Blönduvirkjun, sem væntan-
lega verður næsta virkjun hér á
landi, endist fram á árið 1994, ef
ekki kemur til nýr orkufrekur iðn-
aður. Nú er hinsvegar, gagnstætt
þvf sem var á gengnum árum,
unnið ötullega að því af hálfu
stjórnvalda að finna leiðir til upp-
byggingar orkufreks iðnaðar hér á
landi.
Myndin breytist hinsvegar ef
horft er til nýrrar stóriðju, s.s.
helmingsstækkunar álversins við
Straumsvík, kísilmálmverksmiðju
á Austurlandi og nýrrar álbræðslu
við Eyjafjörð, svo nokkur lfkleg
dæmi séu tíunduð. Upptalningin
er þó ekki tæmandi.
Auk Blönduvirkjunar, fram-
kvæmda við Kvfslaveitu og Sult-
artangastiflu og stækkunar Þór-
isvatnsmiðlunar, sem eru fram-
kvæmdir á byggingarstigi, eru
verkhannaðar virkjanir þessar,
samkvæmt upplýsingum sem fram
komu í erindi Jóhanns Más Marí-
ussonar, aðstoðarforstjóra Lands-
virkjunar, á ársfundi stofnunar-
innar: 1) Fljótsdalsvirkjun, 2)
Sultartangavirkjun, 3) stækkun
Búrfellsvirkjunar og 4) Villinga-
nesvirkjun. Þá er Vatns-
fellsvirkjun (milli Þórisvatns og
Krókslóns ofan Sigöldu) talin
mjög hagkvæmur virkjunarkost-
ur. Röðun þessara virkjunar-
framkvæmda hlýtur að vera í
stöðugri endurskoðun. Fram-
kvæmdaákvörðun á að miðast við
það eitt, hvern veg framkvæmda-
röð kemur bezt út fyrir þjóðarbúið
í heild. Fjárfestingarmistök eru of
skammt að baki sem stórtækur
lífskjaraskerðir til að vera ekki
vfti til varnaðar. Síðar á þessu ári
lýkur hringtengingu byggðalínú-
kerfisins (Suðurlína) sem eykur
mjög á afhendingaröryggi raforku
hvar sem er á landinu.
Ef rétt er að staðið og hag-
kvæmur orkumarkaður helzt í
hendur við nývirkjanir mun niður-
staðan verða betra orkuverð til
alls almennings í landinu.
íslendingar hafa yfir að ráða
þeirri menntun, fagþekkingu og
starfsþjálfun, að ráða við þau
verkefni, sem í sjónmáli eru á
sviði stórvirkjana. Hinsvegar er
óhjákvæmilegt að til komi sam-
starf við erlenda aðila á sviði fjár-
magns, hráefnis og markaðsmála.
Það er beinlínis æskilegt að erlent
fjármagn beri höfuðþunga áhættu
meðan orkufrek fyrirtæki eru að
komast yfir byrjpnarörðugleika,
festa rætur og vinna sér stöðu á
markaðnum.
Við þurfum að lifa í sátt við
land okkar og umhverfi, umgang-
ast hvort tveggja með virðingu og
hlýhug. Það þarf að vernda við-
kvæma náttúru landsins, græða
þau sár, sem hún hefur orðið fyrir
í timans rás og skila landinu betra
til næstu kynslóðar en við tókum
við því. En við þurfum jafnframt
að lifa í landinu, á gögnum þess og
gæðum, þeim auðlindum láðs og
lagar sem forsjónin hefur lagt
okkur upp f hendur til framfærslu.
Án þess að nýta þau tækifæri, sem
bíða framtaks, hugvits og þekk-
ingar fólksins i landinu, verður is-
lenzk velferð og hagsæld ekki sá
veruleiki sem hún getur orðið.
Lífskjörin f landinu felast f
framtaki, menntun og þekkingu
þjóðarinnar sjálfrar. Það kann að
vera nauðsynlegt að kortleggja
vandamál á svartar skýrslur
skrifræðis. En þau einföldu sann-
indi mega þó aldrei gleymast að
Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér
sjálfir.
FYRIRTÆKIÐ NT-umboðið á Akur
eyri hefur sent Hlutafélagaskrá bréf
þar sem því er mótmælt að Nútím-
inn hf. skuli nota stafina NT í haus
blaðsins og víðar.
Hjá Hlutafélagaskrá fékk
Morgunblaðið þær upplýsingar í
gær að bréf með ofangreindum
mótmælum hefði borist skránni,
en engin afstaða yrði tekin til þess
bréfs af hálfu Hlutafélagaskrár,
enda sögðust þeir hjá Hlutafé-
lagaskrá ekki reikna með því að
félagið sem slíkt yrði skráð með
þessu nafni heldur undir nafninu
Nútfminn hf. og það nafn væri
laust og NT væri náttúrlega ein-
ungis skammstöfun á því nafni,
þannig að hér væri ekki á ferðinni
neitt sem heyrði undir Hlutafélag-
askrána. Magnús ólafsson, rit-
stjóri NT, staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið í gær, en hann"
sagði þá: „NT hefur nú þegar verið
skráð sem vörumerki, en þegar við
höfum gengið frá reikningum
núna næstu daga, þá munum við
láta skrá félagið sem heitir Nú-
tíminn hf.“
Magnús sagði að mótmæli
NT-umboðsins á Akureyri væru
komin inn á borð til þeirra hjá NT,
en ekki hefði gefist neinn tími til
þess að kanna nánar hvað þarna
væri á ferðinni.
Meðal fyrstu vistmanna langlegudeildarinnar voru hjonin Liuðni Þorsteins-
son og Þorbjörg Einarsdóttir, sem eru á þessari mynd ásamt yflrlækni og
deildarstjóra. MorpiBbuaM/iiuiknr.
Langlegudeild
opnuð á Selfossi
Selíossi í aprfl.
LANGLEGUDEILD Sjúkrahúss
Suðurlands á Selfossi var formlega
tekin I notkun laugardaginn 24.
marz sfðastliðinn.
Þá komu fjórir fyrstu sjúkl-
ingarnir á deildina, en rúm eru
fyrir 26 sjúklinga i 10 tveggja
manna herbergjum og 6 einbýlum.
Einnig eru 3—4 rúm til tímabund-
innar vistunar fyrir öldrunar-
sjúklinga til að létta á heimilum
og á annatfmum.
Búið er að ráða allt starfslið, en
deildarstjóri er Drífa Eysteins-
dóttir og yfirlæknir Brynleifur H.
Steingrímsson. — Haukur
Philips er stærsti sjónvarpstækjaframleiðandi í Evrópu. Það er því óhætt að treysta framleiðslunni,
hún er 1. flokks og litirnir eru svo eðlilegir ao það er eins og þú sért á staðnum.
Breyttar reglur um afnotagjöld, þar sem aðeins skal greiða af einu tæki á hverju heimili,
og stóraukin videó- og tölvuvæðing heimila kalla á fleiri sjónvörp, - nýjar gerðir.
Við eigum lítil tæki og stór, með og án fjarstýringar, stereó og mónó, fyrir 220 volt og rafhlöður,
frá 8 upp í 90 rása og þannig má áfram telja.
Við erum sveigjanlegir í samningum!
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
20" standard
Verð kr. 24.480.- stgr.
16" standard
Verð kr. 21.390.- stgr.
16" fjarstýrt, stereó
Verð kr. 44.950.- stgr.
14" standard
Verð kr.19.900.-stgr
).- stgr.