Morgunblaðið - 09.05.1984, Síða 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984
10 keppendur valdir
á Ól-leika fatlaóra
Eins og áður hefur komið
fram verða Ólympíuleikar
fatlaðra haldnir í USA nú í
sumar. Þó hefur sú breyting
orðið á að leikarnir fyrir
mænuskaöaöa hafa verið
fluttir til Stoke Mandeville í
Bretlandi. Þar munu þeir fara
fram dagana 21. júli til 1. ág-
úst.
Leikarnir fyrir ampúteraða,
CP og blinda munu hins vegar
fara fram í New York dagana
16.—29. júní. Ólympíunefnd
iþróttasambands fatlaðra hefur
nú valið þá keppendur sem
keppa munu á Ólympíuleikunum
fyrir islands hönd. Þeir eru:
Frjálsar íþróttir:
Reynir Kristófersson, Baldur
Guðnason og Haukur Gunnars-
son.
Sund:
Oddný Óttarsdóttir, Sigrún Pét-
ursdóttir, Jónas Óskarsson,
Snæbjörn Þórðarson og Ey-
steinn Guðmundsson.
Borðtennis:
Hafdís Ásgeirsdóttir og Hafdís
Gunnarsdóttir.
Eurocard • desember • Eurocard janúar • Eurocard ■ febrúar Eu
UTVEGSBANKINN SPARISIODUR VELSTIORA VÉRZIUNARBPNKINN
• Það er engin smákerra
sem þeir Niki Lauda og Alain
Prost keppa á fyrir McLaren.
Alain Prost, sem stendur viö
bílinn, sigraði í Imola Grand
Prix Formulu 1-kappakstrin-
um á Ítalíu um síðustu helgi.
Meðalhraði hans í keppninni
var 187,254 km á klst.
Prost
sigraði
Frakkinn Alain Prost sem ekur
á McLaren-bíl sigraði í Imola
Grand Prix-kappaksturskeppn-
inni á Ítalíu um síöustu helgi.
Rene Arnoux Frakklandi varð
annar, Elio De Angelis Ítalíu þriöji
og Derek Warwick Bretlandi
fjóröi.
Sigurtími Prost var 1:36.53,67,
og var hann 13 sek. á undan
næsta manni i mark. Var þetta
annar sigur Prost á keppnistíma-
bilinu og hans 11 sigur i 61 keppni
sem hann hefur tekiö þátt í. Hann
þótti aka sérlega vel á Ítalíu um
síöustu helgi og vera líklegur til
þess aö hreppa heimsmeistaratitil-
inn í kappakstri „Formul 1“ í ár.
Prost hefur nú gott forskot á
næsta mann í stigakeppninni.
Hann hefur hlotiö 24 stig, Derek
Warwick hefur hlotiö 13, síöan
koma þrír ökumenn jafnir meö 10
stig. Næsta keppni fer fram í Dijon
í Frakklandi 20 maí.
Grete Waitz
tapar fyrir
landa sínum
NORSKA hlaupadrottningin
Grete Waitz tapaöi ööru sinni á
einni viku fyrir löndu sinni og
upprennandi stórstjörnu I lang-
hlaupum, Ingrid Kristiansen, í
miklu götuhlaupi í Osló á sunnu-
dag. Er þetta ( fyrsta sinn sem
Waitz tapar fyrir norskri konu í 14
ár.
Kristiansen þykir líklegust til aö
velgja Waitz undir uggum í mara-
þonhlaupinu á Ólympíuleikunum í
sumar, enda náöi hún nýverið
fjóröa bezta árangri frá upphafi í
þeirri grein, aöeins fimm mánuöum
eftir aö hafa fætt son. Kristiansen
keppir í Lundúnamaraþoninu um
næstu helgi.
Kristiansen var þremur sekúnd-
um á undan Waitz á sunnudag,
hljóp 10 km á 31:25 mínútum, og í
þriöja sæti varö nýja hlaupastirniö
Zola Budd á 31:42.
Finninn Martti Vainio haföi for-
ystu í karlaflokki frá upphafi til loka
og hljóp á 28:28 minútum, átta
sekúndum á undan Bretanum Juli-
an Goater og 13 á undan Hollend-
ingnum Cor Lambregts.