Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 31

Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984 79 • Gunnlaugur Jónasson og Jón Ólafur Pétursson á 470-bát sínum. Á honum unnu þeir félagar siglingamót um síðustu helgi. Þessi mynd er tekin í marsmánuði síðastliðnum en þá voru þeir félagar við æfingar í kulda og trekki á Skerjafirðinum. Gunnlaugur og Jón sigldu vel á Spáni GUNNLAUGUR Jónasson og Jón Ólafur Pétursson tóku þátt í tveim siglingamótum á 470-bát í apríl. Fyrra mótiö var á Mallorka og höfnuóu þeir félagarnir í 26. sæti af 52 keppendum. Var mótið 6 umferöir og höfnuöu þeir í 22., 24., 22., 25., 26. og 29. sæti í ein- stökum siglingum. Var fremur hvasst framan af vikunni en lægði svo þegar á mótió leiö. Not- uðu þeir félagar tímann til aö stilla nýtt mastur sem þeir not- uðu í keppninni. Frá Mallorka var haldiö til Hyer- es í Frakklandi þar sem þeir félag- ar tóku þátt í Ólympíu-viku. Var þar keppt í öllum Ólympíuflokkum, þar af 81 bátur í 470-flokki. Margir þeirra hafa þegar veriö valdir til aö keppa á Ólympíuleikum fyrir sína þjóö. Þeir lentu í 54. sæti saman- lagt en á ýmsu gekk áöur en yfir lauk. ( fyrstu keppninni var start þeirra dæmt ógilt en í hinum lentu þeir í 52., 27., 47. og 60. sætum. Bilaði belgsegls upphaliö í tveim síöustu siglingunum þannig aö þeir uröu aö sigla ári belgsegls í mest- allri fjóröu keppninni og allri síö- ustu. Dró þaö aö sjálfsögöu mjög úr hraöa þeirra og þeir telja þaö hafa dregið sig niöur um aö minnsta kosti 10 sæti í heildarúr- slitum mótsins. í einni keppni voru þeir félagar í 30. sæti þegar keppnisstjóri aflýsti skyndilega án nokkurrar sýnilegrar ástæöu. Eru þeir nokkuö ánægöir meö útkomu þessara móta en telja þó að örlaganornirnar eigi þeim nokkra skuld aö gjalda sem þeir hyggjast taka út í Kiel í Þýskalandi í júní. Hanni Wenzel hættir Þriöjungur allra Liechten- stein-búa, sem eru alls 26.500 eru útlendingar. Margir þeirra hafa búiö þar í mörg ár, jafnvel kynslóðir, en hafa ekki fengiö ríkisborgararétt. íbúar kantón- unnar sem fólk vill setjast aö í, þurfa að greiða atkvæöi um nýja ríkisborgara, og margir veigra sér þess vegna við að sækja um. Enginn vill komast aö því í atkvæðagreiðslu aó hann sé óvelkominn. Fjölskylda Hanni Wenzel, skíðakonunnar miklu, fékk þó ríkisborgararétt fyrr en margir aörir. Hún kom til landsins á 6. áratugnum, og skíðaunnendur í Ármann sigraði SVEIT Ármanns sigraði í sveitakeppni í svigi á MUII- ersmótinu. Tími sveitarinnar var 257,22 sek. Fimm sveitir tóku þátt í keppninni. Fram varö í ööru sæti og Víkingar í þríðja sæti. Sigursveit Ár- manns skipuöu: Einar Úlfsson, Ríkharður Sigurösson, Árni Þór Árnason og Tryggvi Þor- steinsson. kantónunni, þar sem fjölskyldan býr, hjálpuðu henni aö fá ríkis- borgararétt eftir aö krökkunum, Hanni og Andreas Wenzel, fór að ganga vel á skíðum. Þau eru nú meðal örfárra heimsfrægra Liechtenstein-búa og hafa verið góð landkynning fyrir smáþjóð- ina. Hanni Wenzel er 27 ára og aetlar ekki að keppa framar á skíöum. Hún hefur unniö flestar keppnir sem eru þess virði aö vinna. Hún vann gullverðlaunm í svigi og stórsvigi á Ólympíuleik- unum í Lake Placid 1980 og hlaut silfurverðlaunin í bruni sama ár. Hún fékk ekki að taka þátt í vetrarólympíuleikunum í ár af sömu ástæðum og Svíinn Ingemar Stenmark og var afar vonsvikin. Minnstu munaði að hún ynni heimsbikarinn á skíð- um í þriöja sinn í ár, en svo fór þó ekki. Dagblöðin tvö í Liechtenstein gerðu mikið úr því að hún er að hætta þegar skíðakeppnunum lauk í lok mars. Þar kom í Ijós að öfund í litlu landi er mikil, en henni var þökkuð góð landkynn- ing. Margir hefðu þó kosið aö hún væri „sannur“ Liechten- stein-búi en ekki aöfluttur út- lendingur frá Þýskalandi. ab. Knattspyrnuvöllur ÍR-inga vígður Knattspyrnudeild ÍR hefur tekió í notkun nýjan malarvöll sinn sem staösettur er í mjóddinni í Breiðholti. Fyrsti leikurinn á vellin- um var ó milli ÍR og Vals í 1. flokki karla. Og þrátt fyrir að Valsmenn væru meö marga þekkta knattspyrnumenn í sínum rööum þá biöu þeir lægri hlut, töpuöu leiknum fyrir ÍR 2—5. Sem sagt, góð byrjun hjá ÍR-ingum í fyrsta leik sínum á nýja vellinum. Æfingar og kappleikir eru nú svo til daglega á vellinum sem er staðsettur á framtíöarsvæði ÍR-inga. Meöfylgjandí myndír voru teknar á vígsluleiknum. Morgunblaöiö/KÖE • Það er mikill fengur fyrir ÍR að knattspyrnuvöllur þeirra skuli vera kominn í notkun. Æft og keppt er á honum daglega. Liverpool til ísrael Ákveóiö hefur verið aö lið Liverpool haldi til ísrael þann 18. maí og leika þar gegn landsliði ísrael. Síöan mun Liverpool dvelja í ísrael fram aö úrslitaleiknum í Evr- ópukeppni meistaralióa þann 30. maí. Þetta er gert í þeim tilgangi aö leikmenn venjist hitanum sem verður í Róm. líprðnirl m • Frá fyrsta knattspyrnuleiknum sem fram fór á nýjum velli ÍR-inga í Seljahverfinu í Breiöholti. Þá sigruðu ÍR-ingar Valsmenn, 5—2, í 1. flokki karla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.