Morgunblaðið - 02.06.1984, Síða 11
tfököfftteMflifl CXúeaftriÁetM £'mvm
U
Hann
lofi
rödd
og mál
Tónlist
Egill Friöleifsson
Fyrir stuttu kom út hljómplata
er ber heitid „Hann lofi rödd og
mál“ og hefur að geyma söng
Skólakórs Garöabæjar, en platan
er gefin út í tilefni 25 ára afmæli
Flataskóla í Garöabæ.
Skólakór Garðabæjar var
formlega stofnaður árið 1976 og
hefur starfað óslitið síðan.
Stjórnandi frá upphafi hefur
verið Guðfinna Dóra Ólafsdóttir
og hefur hún af mikilli elju og
dugnaði haldið uppi öflugu
kórstarfi þessi ár. Kórinn hefur
tekið sér mjög gott orð fyrir fág-
aðan og vandaðan söng enda
jafnan vel tekið er hann kemur
fram, jafnt innanlands sem
utan. Þessi plata ber vönduðum
vinnubrögðum stjórnandans
fagurt vitni. Hljómur kórsins er
hreinn og tær, samræmi yfirleitt
gott milli radda en einkum er
blærinn á fyrsta sópran aðlað-
andi. Hins vegar hefði í mörgum
tilvikum mátt vinna meira með
dynamik, sem hefði gert túlkun-
ina blæbrigðaríkari, t.d. í lögum
Skólakór Garöabæjar.
eins og „Maístjarnan" eftir Jón
Ásgeirsson svo að dæmi sé nefnt.
En kórnum tekst víða vel upp og
sums staðar mjög vel. Má þar
nefna t.d. fallegt lag eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem heitir „Til
þín drottinn". „Kisa fór í
lyngmó" eftir Ríkarð örn Páls-
son er sérlega létt og líflega
sungið og þá ekki síður ung-
verska þjóðlagið „Draumurinn
um Adam“ í bráðsnjallri útsetn-
ingu L. Bardos, en það er í fyrsta
sinn sem ég heyri þetta marg-
sungna lag flutt á íslensku. Text-
ann gerði Rúnar Einarsson og er
ekki annað að heyra en hann
falli ágæta vel að laginu.
Eitt lag plötunnar er öðrum
fremur vandmeðfarið, en það er
ísl. þjóðlagið „Móðir mín í kví
kví“. Útsetning Jóns Ásgeirsson-
ar á þessu lagi er mjög góð, en
gerir um leið óvægnar kröfur til
kórsins, þar sem raddsvið barn-
anna er þanið til hins ítrasta.
Þegar „jaðartónarnir" eru not-
aðir má ekkert út af bera, en
kórinn kemst allvel frá þessari
erfiðu þraut.
Veigamesta verk plötunnar er
hins vegar „Missa Brevis" eftir
Benjamin Britten í fimm þáttum
og gerir kórinn og sömuleiðis
einsöngvararnir og organistinn,
Gústaf Jóhannesson, þessu
velskrifaða verki góð skil.
Stærsti hluti plötunnar er tek-
inn upp í Skálholtskirkju, sem er
frábært hús fyrir kórtónlist,
enda er upptakan ágæt. Þegar á
heildina er litið er óhætt að full-
yrða að þessi plata er Skólakór
Garðabæjar og stiórnanda hans,
Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur, til
mikils sóms. Sé hún borin saman
við fyrri plötu kórsins leyna
framfarirnar sér ekki. Kórinn
mun nú á förum í söngför til
Þýskalands. Héðan fylgja hon-
um bestu óskir um gæfu og
gengi.
Dagskrá 47. Sjómannadagsins í Reykjavík, 3. júní 1984.
Klukkan:
08.00 Fánar dregnir að húni á skipum i
Reykjavíkurhöfn.
10.00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt
sjómannalög viö Hrafnistu, Reykja-
vík. Stjórnandi er: Stefán Þ. Step-
hensen.
11.00 Minningarguösþjónusta í Dómkirkj-
unni. Biskupinn yfir islandi herra
Pétur Sigurgeirsson, minnist
drukknaðra sjómanna. Séra Hjalti
Guömundsson, þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur undir stjórn Mar-
teins H. Friörikssonar, dómorgan-
ista. Einsöngvari veröur Guömundur
Jónsson, óperusöngvari.
Skemmtisigling um
sundin blá
13.00 Skemmtisiglingar meö hvalbátum
um sundin viö Reykjavík. Fariö verö-
ur frá Faxagarði í Reykjavíkurhöfn.
Börn yngri en 12 ára verða aö vera í
fylgd meö fullorðnum.
Utihátíðarhöld við
Reykjavíkurhöfn
13.30 Lúörasveit Reykjavíkur leikur sjó-
mannalög. Stjórnandi er: Stefán Þ.
Stephensen.
14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir
dagsins er Anton Nikulásson.
Ávörp:
A: Fulltrúi ríkisstjórnarinnar
Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráöherra.
B: Fulltrúi Útgerðarmanna, Eiríkur
Tómasson, útgeröarmaöur
í Grindavík.
C: Fulltrúi sjómanna, Guömundur
Kjærnested, skipherra.
D: Pétur Sigurösson, formaöur Sjó-
mannadagsráös heiörar aldraöa
sjómenn með heiðursmerki Sjó-
mannadagsins.
Skemmtanir dagsins
14.45 Kappróöur í Reykjavíkurhöfn. Keppt
bæöi í karla- og kvenasveitum.
Félagar úr sportbátafélaginu Snar-
fara sýna sýna listir á sjóskíöum og
sigla í skrautsiglingu um ytri og innri
höfn.
Björgunarsýningar:
16.00 Björgunarsveitin Ingólfur í Reykjavík.
Þyrla björgunarsveitar varnarliösins
á Keflavíkurflugvelli.
Atriði frá Listahátíð
16.30 Þau atriöi sem Listahátíö auglýsti á
Lækjartorgi kl. 14.00 og 16.30 flytj-
ast aö Reykjavíkurhöfn. Látbragös-
leikur og grínhljómsveit. Veitingar
veröa tii sölu á hafnarsvæöinu.
Einnig fer fram sala á merki dagsíns og
Sjómannadagsblaöinu 1984.
Hrafnista Hafnarfirði
10.00 Lúörasveit Hafnarfjarðar leikur létt
sjómannalög viö Hrafnistu Hafnar-
firöi.
11.00 Sjómannamessa í kapellu Hrafnistu,
Hafnarfirði. Prestur séra Siguröur H.
Guömundsson.
15.00 — 17.00
Kaffisala í borö- og samkomusal.
Jafnframt veröur sýning og sala á
handavinnu vistmanna Hrafnistu. All-
ur ágóöi rennur í skemmti- og feröa-
sjóö vistmanna Hrafnistu, Hafnar-
firöi.
Verndaöar þjónustuíbúöir aldraöra í
Garöabæ, er rétt viö Hrafnistu, Hafn-
arfiröi, veröa til sýnis frá kl.
15.00—17.00.
Eigendur og forráðamenn „Tommaham-
borgara" í Reykjavík og Hafnarfirði hafa
tiikynnt Sjómannadagsráði í Reykjavík og
Hafnarfirði aö öll innkoma af sölu
„Tommahamborgara" þennan dag renni
til Sjómannadagsins, enda verði þessum
fjármunum varið til málefna aldraöra.
Athugið:
Sjómannadagshóf veröur haldiö aö Hótel
Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 3. júní og
hefst kl. 19.30.
Miöasala og boröapantanir veröa aö Hótel
Sögu, laugardaginn 2. júní frá kl.
17.00—19.00.