Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
Hér eru á feréinni ungir Garðbsingar, sem efndu til hlutaveltu fyrir nokkru
til ágóða fyrir Rauða kross fslands í heimabæ sínum og söfnuðu rúmlega
1150 kr. Þær heita Eva Hrund, Ingibjörg Lind og Ragna Gunnarsdóttir.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS^gjpg)
Innritun V
næsta skólaár
Verzlunarskóli íslands tekur inn
nemendur af öllu landinu og úr öll-
um hverfum Reykjavíkur, án tillits
til búsetu.
Umsóknir skal senda til VerzJunarskóla íslands, Grundaratíg
24,101, Reykjavík. Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl.
9—12 og 1—4.
VERSLUNARDEILD
Nemendur eru teknir inn í 3. bekk.
Inntökuskilyröi er grunnskólapróf.
Reynist ekki unnt aö taka inn alla sem sækja um skólavlst,
veröur höfö hliösjón af aldri nemenda og árangri þeirra á
grunnskólaprófi.
Umsóknarfrestur er til 6. júní og skulu umsóknir þá hafa
borist skrifstofu skólans ásamt afriti af prófskírteini en ekki
Ijósriti. Æskilegt er að umsóknir berist sem fyrst.
LÆRDÓMSDEILD
Nemendur eru teknir inn í 5. bekk, sem skiptist í hagfræöideild
og máladeild.
Inntökuskilyröi er einkunnin 6,50 á verslunarprófi.
Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu skólans. Umsóknarfrestur
er til 6. júní.
VIKULEGUR FJÖLDI KENNSLUSTUNDA í VERSLUNARDEILD
3. bekkur 4. bekkur 5. bekkur 6 bekkur
íslenska 4 4 5
Enska 5 5 5 Nám i
Danska 5 3 þessum
Þýska 4 4 bekk
Stærðfræði 4 4 4 verður í
Bókfærsla 4 3 4 fyrsta
Hagfræði 3 3 6 sinn
Verslunar- veturinn
réttur 3 1984-5
Verslunar-
fræði 6
Saga 3
Vélritun 3 3
Tölvufræði 3 3 4
Leikfimi 2 2 2
Valgrein 3 —
Samtals 40 ' 40 36 i 36
VIKULEGUR FJÖLDI KENNSLUSTUNDA í LÆRDÓMSDEILD
Hagfræöideild Máladeild
5. bekkur 6. bekkur 5. bekkur 6. bekkur
íslenska 4 4 4 4 .
Enska 5 5 5 5
Þýska 4 3 4 3
Franska V V 4 6
Latína 6 6
Stærðfræði 8(7) 7(6) 4 3
Bókfærsla 3
Hagfræði 5 5(4)
Saga 2 2 2 2
Efnafræði 5(3) 5
Líffræði 5(4) 5
Eðlisfræði 0(4) 0(3)
Leikfimí 2 2 2 2
Valgrein 3—4 3-4 3-4 3-4
Samtals J38 39 39 39
FULLORÐINSFRÆÐSLA
Haldin veröa námskeiö í hagnýtum verslunargreinum fyrir fólk
eldra en 18 ára mánuöina sept. — nóvember 1984. Hvert
námskeiö stendur yfir í 60 tíma og veröur kennt tvo tíma í einu
annan hvern dag kl. 17—18:30 eöa kl. 18:30—20.
Innritunarfrestur og fjöldi námskeiöa veröur auglýst síöar.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
„Svo læra börnin málið
að það er fyrir þeim haft“
þig stuttfótur minn. Margra kosta
er völ á þeim tíma meðan beðið er
frétta. Auk fjölda söngva er
nafnkunnir söngvarar hafa sung-
ið; einsöngvarar, kvartettar og
kórar, þá eru einleikarar og
hljómsveitir. Skáld og rithöfundar
hafa lesið ljóð sín, ritgerðir og
sögur. Að ógleymdu almúgafólki,
til sjávar og sveita, sem geymir
tungu sína „í tímans straumi".
Fjöldi er til fyrirmyndar um mál-
far og tungutak. Þá má nefna sí-
gild lög, erlend sem íslensk, leikin
á ýmis hljóðfæri, eða létt hljóm-
sveitarlög. Sem sagt, flest annað
en það sem nú hefir forgang.
Er ekki kominn tími til að
breyta um stefnu hjá íslensku
sjónvarpi? Svo læra börnin málið
að það er fyrir þeim haft.
Pétur Pétursson þulur
Tveggja binda verk um
ljósmæður á íslandi
í TILEFNI af 60 ára afmæli Ljós-
mæðrafélags íslands, 2. maí 1979,
var ráðist í að gefa út stéttartal
Ijósmæðra og láta skrá sögu starfs-
greinarinnar hér á landi. Nú er kom-
ið út ritverkið „Ljósmæður á ís-
landi“, tveggja binda verk, á 12.
hundruð síður.
í fyrra bindinu er auk formála
útgáfustjórans, Steinunnar
Finnbogadóttur, æviágrip 1626
ljósmæðra frá árinu 1761, að
skipuleg ljósmæðrafræðsla hófst
hér á landi, og til ársins 1982.
í síðara bindi verksins er saga
Ljósmæðrafélags íslands
1919—1979, skráð af Helgu Þórar-
insdóttur og ritgerð eftir Önnu
Sigurðardóttur, forstöðumann
Kvennasögusafns íslands, sem
hún nefnir „(ir veröld kvenna —
Barnsburður". Þar er að finna
sögulegan fróðleik um ljósmóð-
urstarfið og barnsfæðingar frá
upphafi íslandsbyggðar og fram á
okkar daga.
í öðru bindinu eru einnig ýmsar
skrár, svo sem áhaldasfcrá ljós-
mæðra, umdæmaskrá frá 1875 og
prófaskrár ljósmæðra 1761—1982,
ennfremur heimilda- og skamm-
stafanaskrár. Að lokum er eftir-
máli sem ritstjórinn, Björg Ein-
arsdóttir, ritar, þar sem hún með-
al annars gerir grein fyrir vinnu
við ritið. Björg tók að vinna að
verkinu þegar árið 1977 og frá
sumrinu 1981 hefur Valgerður
Kristjónsdóttir starfað sem með-
ritstjóri hennar.
Ásamt útgáfustjóranum hefur
sérstök ritnefnd starfað frá árinu
1975 og haft með höndum allar
framkvæmdir viðvíkjandi útgáf-
unni. Formaður þeirrar nefndar
er Sólveig Matthíasdóttir, Sigur-
björg Guðmundsdóttir er ritari, og
gjaldkeri er Guðrún Lilja Magn-
úsdóttir, svo og Halldóra As-
Steinunn Finnbogadóttir, formaður Ljósmæðrafélags íslands (t.v.), ásamt
Guðrúnu Valdimarsdóttir (t.h.) elsta núlifandi heiðursfélaga samtakanna.
Henni var afhent 1. eintak Ijósmæðratalsins. Ljósmynd: Mbi. Július.
grímsdóttir og Soffía Valdimars-
dóttir.
Innan ljósmæðrafélagsins kom
snemma í ljós áhugi fyrir því að
gera stéttartal, en af framkvæmd-
um varð ekki fyrr en árið 1975, er
Haraldur Pétursson afhenti þá-
verandi formanni handrit að
ljósmæðratali því, sem hann hafði
unnið að, með því fororði að það
yrði gefið út. Gjöf Haralds réð úr-
slitum um að ráðist var í útgáfu
stéttartalsins og er safn hans
raunar hornsteinn verksins. Har-
aldur handskrifaði þær upplýs-
ingar er hann safnaði á þjóð-
skjalasafni um ljósmæður frá
1761 til 1954 á sérstakt eyðublað
og eru sýnishorn af handritum
hans í fyrra bindinu.
Prentsmiðjan Oddi hf. hefur
annast alla vinnu við gerð bókar-
innar, frá setningu til bókbands.
Friðrika Geirsdóttir teiknari sá
um útlit bókbands.
— eftir Pétur
Pétursson þul
Undarleg þjóö, íslendingar.
Afsegir aldraðan konung á ör-
lagatíð. Krefst fullveldis og
sjálfstæðis. Heimtar og heimtir
handritin heim sem þjóðardýr-
gripi og gersemi gullaldar.
Lýsir lögsögu og einhliða út-
færslu fiskveiðimarka og hefir
vernd að yfirvarpi.
Hrekur eigin þjóðsöng úr loft-
helgi hvern virkan dag, en lætur
viðgangast að þjóðsöngur erlends
heimsveldis og sambýlisþjóðar
hljómi tvisvar á tvídægru hverri,
á „öldum ljósvakans".
Ræður málfarsráðunaut til
starfa hjá ríkisfjölmiðlum, að
kenna moðurmálið kynslóð sem er
að týna þjóðtungu sinni á Bullöld.
Hafnar jafnframt íslenskum
söngvum, ljóðum og lögum, milli
táknmáls og frétta í sjónvarpi
sínu. Leiðir til öndvegis í biðstofu
kvöldfrétta klofmælta kúreka,
gapripla og gaddavírshó ... að
engjast í kríkajórtri og skrum-
skælum í viðurvist alþjóðar, í
hverri baðstofu og tröllríða sér-
hverri bæjarburst.
Páll ísólfsson, tónskáld og tón-
listarstjóri Ríkisútvarpsins, hefði
naumast látið slíkt viðgangast
meðan hann varðaði veginn. Það
voru ekki þesskonar söngvar, sem
hann átti við er hann mælti við
þjóð sína:
Takid undir.
Við þá „tæknimenn" er valið
hefðu slíka forsöngva hefði hann
trúlega sagt: Ekki get ég stigið við
Umhverfisfræösla á Þingvöllum
TJALDSVÆÐI og hjólhýsastæði í
Þjóðgarðinum á Þingvöllum verða
opnuð þriðjudaginn 12. júní næst-
komandi.
Sama dag verður tekin upp
reglubundin umhverfisfræðsla
með gönguferðum og segir orðrétt
í fréttatilkynningu að fræðslan
muni fara fram með eftirfarandi
hætti: „Alla daga vikunnar er einn
af starfsmönnum Þjóðgarðsins
staddur við hringsjá á vestri brún
Almannagjár klukkan 8.45. að
morgni. Þaðan gengur starfsmað-
ur með gestum norður eftir gjánni
og á Lögberg. Klukkan 9.00. verð-
ur fáni dreginn að húni á Lög-
bergi, en samtímis er klukku
hringt í Þingvallakirkju. Eftir
nokkra viðdvöl á þingstaðnum,
verður gengið norður að „Köstul-
um“ og þaðan suður með Öxará
austanverðri heim á Þingvalla-
stað. Klukkan 9.30. verða sungnar
miðmorguntíðir í Þingvallakirkju,
en klukkan 9.45. hefst frekari
fræðsla í kirkju, á Skáldareit
og/eða á Spönginni, eftir veðri og
aðstæðum. Stendur það „Þing-
vallaspjall“ til kl. 10.30.
Á föstudögum og laugardögum
kl. 14.00. er í boði gönguferð frá
„Köstulum" að Skógarkoti og það-
an inn á Leirur. Gengið verður
undir leiðsögn starfsmanns Þjóð-
garðsins eftir þeim stígum, sem
þarna er að finna.
Á föstudögum og laugardögum
kl. 16.00. verður einnig gengið frá
Vellandkötlu austur eftir „Kon-
ungsveginum" upp Hrafnagjár-
hallann að Klukkustíg. Sams kon-
ar leiðsögn verður veitt og í fyrri
tilvikum.
Á laugardagskvöldum kl. 20.30.
verður kvöldvaka í Þingvalla-
kirkju eða í nágrenni hennar. Sagt
verður frá Þingvöllum og ýmiss
konar efni flutt, er varðar sögu
þeirra og náttúru. Kvöldvöku lýk-
ur með náttsöng í Þingvallakirkju
kl. 21.30.“
Ennfremur segir að guðsþjón-
usta fari fram í Þingvallakirkju á
sunnudögum klukkan 14.00.