Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 21

Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984 21 Hamingjuóskir. stúdenta frá Verzlunarskólanum, en afmælisárgangar munu færa skólanum framlög í byggingarsjóð og minningarsjóð dr. Jóns Gísla- sonar. Fyrir hönd nýstúdenta tal- aði Þórunn Egilsdóttir. Þorvarður Elíasson tók við gjöf af henni fyrir hönd skólans, en gjöfin var frá ný- stúdentum. Athöfninni lauk svo með því að Þorvarður Elíasson sagði 79. starfsári Verzlunarskóla íslands lokið og óskaði nýstúdent- um alls velfarnaðar í framtíðinni. og sennilega verð ég bara orðin hundleið á því að vinna eftir eitt ár!“ segir hún hlæjandi og bætir því við að hún ætli í lögfræði í Háskól- anum haustið ’85. Hvaða augum líturðu skólann þegar þú horfir yfir undanfarin fjögur ár? „Mér finnst skólinn mjög góður, en að mörgu leyti einhæfur. Það er fyrst og fremst miðað við að fólk sem útskrifast fari út í eitthvað sem tengist verslun og viðskiptum. Það eru of fáir valkostir, en eins og ég segi, finnst mér Versló góður skóli og einnig skemmtilegur. Fé- lagslífið er ákaflega blómlegt, en það hefur mikið að segja fyrir and- rúmsloftið í skólanum. Sjálf tók ég virkan þátt í félagslífinu fyrstu tvö árin sem ég var í Versló, en síðari tvö árin hætti ég því að mestu leyti.“ Hvers vegna valdirðu frekar máladeild en hagfræðideild? Nú hlær María. „Ég gat bara ekki hugsað mér að læra bókfærslu. I máladeild er engin bókfærslu- kennsla og þess vegna varð hún fyrir valinu." Svarið var stutt og laggott og þetta var síðasta spurn- ingin á listanum og því var ekki annað eftir en þakka fyrir sig og óska Maríu til hamingju með stúd- entsprófið og frábæran námsárang- ur. # ____^______ Fer inn á lang flest heimili landsins! Jón Karl Helgason stúdent frá Verzluiiarskóia íslands: Langar að vinna á samyrkjubúi í ísrael eða læra grísku í Grikklandi Ljósm. Mbl. Júlíus. Þorvarður Elíasson, skólastjóri, afhendir Jóni Karli prófskírteinið síðastlið- inn fimmtudag. Jón Karl Helgason var forseti Nemendafélags Verzlunarskóla íslands á síðastliðnum vetri og hann útskrifaðist frá skólanum fimmtudaginn 31. maí síðastlið- inn með einkunnina 8,67. Jón Karl fékk við útskriftina afhent- ar viðurkenningar fyrir frábær- an árangur í íslensku og raun- greinum, auk þess sem hann fékk sérstaka viðurkenningu fyrir háa einkunn á stúdents- prófi. Einnig fékk Jón Karl við- urkenningu fyrir unnin félags- störf og heiðursskjal fyrir vel unnin störf í þágu félagslífsins síðastliðin fjögur ár. „Nú á næstu dögum fer ég með útskriftarhópnum til Ibiza og í framhaldi af þeirri dvöl ætla ég í inter-rail ferð um Evrópu með kunningja mínum,“ sagði Jón Karl er hann var inntur eftir því hvað hann hygðist gera í framhaldi af stúdentsprófinu, en blm. hitti hann að máli að lokinni útskrift- inni. Með spurningunni átti blm. nú reyndar við hvort Jón Karl hefði hug á að setjast á skólabekk, jafnvel í Háskóla íslands, næsta haust og því var spurninginunni aftur varpað fram, á örlítið ná- kvæmari hátt. „Framtíðin er mjög óljós," segir Jón Karl. „Ég hef vissa kenningu um að þeir sem segjast vita vel hvað þeir vilji í framtíðinni, fari með fleipur. Mannshugurinn er það reikandi að raunveruleg við- horf okkar breytast dag frá degi. Hinsvegar getum við talið okkur trú um hvað sem er og á þann hátt ákveðið hvað við viljum. Persónu- lega er ég ekki tilbúinn til að taka slíka ákvörðun, ég fer örugglega ekki í Háskólann næsta vetur. Þessa stundina hef ég áhuga á að fara til Grikklands og læra þar grísku eða þá að vinna á sam- yrkjubúi í Israel. En eins og ég sagði áðan er þetta mjög óljóst enn sem komið er. Ef ég fer í Há- skólann seinna meir, gæti ís- lenskunám komið til greina." Þetta leiðir af sér þá sígildu spurningu um hvaða fög hafi verið í mestu uppáhaldi hjá Jóni Karli, og blm. stenst ekki freistinguna að varpa þeirri spurningu fram. Svarið er stutt og einfalt: „Bók- menntir og íslenska." En hvaða námsgreinar skyldi honum hafa líkað verst við? „Ætli það séu ekki au fög sem manni gengur verst í. mínu tilfelli skrifleg enska." Nú fékkst þú sérstakt heiðurs- skjal fyrir félagsstörf öll árin sem þú hefur verið í skólanum og þar að auki aðra viðurkenningu fyrir að hafa gegnt embætti forseta nemendafélagsins. Segðu mér nú, hvernig gekk þér að samræma námið og félagslífið? „Ég held að maður læri alltaf jafn mikið og mann langar til að læra, þrátt fyrir að maður hafi mikið að gera og sé önnum kafinn við annað en námið. Mér gekk ágætlega að samræma þetta tvennt og ég tel að þegar fólk seg- ist ekki geta lært vegna þess að félagslífið sé svo tímafrekt, sé það í mörgum tilfellum fyrirsláttur. Annars er félagslífið að sjáifsögðu skóli útaf fyrir sig, og það mjög góður skóli.“ Er ekki óbeint ætlast til þess að stúdentar sem ná svo góðum námsárangri fari beint í fram- haldsnám? „Það er mjög ríkjandi meðal fólks að mæla nám í krónum, það er að segja, hve háu kaupi það skilar í launaumslagið þegar út á vinnumarkaðinn kemur. Að mínu mati er nám í sjálfu sér mjög af- stætt hugtak. Sá maður er vel menntaður, sem þekkir sjálfan sig og takmörk sín og slíka menntun má öðlast með ýmsum öðrum hætti en einhliða skólabókalestri." Að svo búnu slitum við tali okkkar, því eftir nokkrar mínútur átti að fara fram hópmyndataka af nýstúdentum og hélt Jón Karl á braut út í lífið, sem beið eftir hon- um utan veggja Verzlunarskólans. Listahátíó fyriralla! Flugleiðir bjóða listunnendum af landsbyggðinni á Listahátíð í Reykjavík Ef þú ætlar að hlusta á Stefán Ashkenazy, Luciu Valentini Terrany eða Norrokk Sjá sýningu hjá Erró, Jóhanni Eyfells eða Karel Appel, - sýna þig og sjá aðra. Listahátíðarafsláttur Flugleiða ætti að henta þér. Gegn kaupum á 500 kr. kvittun fyrir miða á Listahátíð færðu 35% afslátt á flugfargjaldi fram og til baka. Síðan framvísar þú kvittuninni gegn miða á eftirlætisatriðið. Flugleiðir bjóða þér aðstoð við miðapantanir og gistingu, á meðan á hátíðinni stendur. Listahátíð er viðburður, sem þú mátt ekki missa af. Hafðu samband við Flugleiðir áður en miðarnir seljast upp -og tryggðu þér góða skemmtun. FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.