Morgunblaðið - 02.06.1984, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984
Til íslands að verja
doktorsritgerð
í DAG, laugardaginn 2. maí fer fram doktorsvörn viA Háskóla
íslands. Hans Jacob Debes mun verja rit sitt „Nú er tann
stundin“. Það fjallar um sjálfstæðisbaráttu Færeyinga til 1906 í
sögulegu Ijósi. A móti Jacobi munu mæla Gunnar Karlsson cand.
mag. og John F. West, prófessor frá Nottingham. Sá er mjög
kunnugur Færeyingum og hefur skrifað sögu þeirra.
„Þessi ritgerð er um margt
merkileg," sagði Hans Jacob,
þegar Mbl. ræddi við hann. „Hún
er fyrsta færeyska doktorsrit-
gerðin í sögu og fyrsta rann-
sóknin í færeyskri sögu. Ég er
líka fyrsti Færeyingurinn sem
ver doktorsritgerð við HÍ. Ég
veit ekki til þess að doktorsvörn
hafi heldur áður farið fram á
þremur tungumálum. Ég mun
tala færeysku, Gunnar íslensku
og John West ensku."
— En titill verksins?
„Hann er byrjun á kvæði eftir
Jóhannes Patursson. Hann orti
það á fundi annan jóladag 1888.
Sá dagur er talinn formlegt upp-
haf mesta umrótatímabils í fær-
eyskri sjálfstæðisbaráttu. Lok
þessa tímabils eru miðuð við
1906 þegar myndast höfðu
vinstri og hægri armur í stjórn-
málum eyjanna.
Titillinn vísar til þess að nú sé
kominn tími til að Færeyingar
veiti tungumáli sínu mikilvæg-
ari sess í þjóðfélaginu. Frá alda-
mótum 1400 og fram tii 1850 var
ekki til færeyskt ritmál og
danska var opinbert mál og
kennd í skólum. Frá 1850 var
vaxandi hreyfing fyrir því að
gera færeysku að opinberu máli
eyjanna. Færeyingar beittu síð-
an tungumálinu sem vopni í
sjálfstæðisbaráttunni á sama
hátt og íslendingar. Við vildum
sýna fram á að Færeyingar
hefðu sína eigin menningu og
sögu og notuðum tungu okkar."
— Hvers vegna er ritið varið
við íslenskan háskóla?
„í fyrsta lagi er verkið skrifað
á færeysku og íslenskan er mjög
lík henni. Ef ég hefði lagt það
fram við danskan háskóla hefði
ég orðið að þýða það yfir á
dönsku. Slíkt samræmist ekki
mínum hugmyndum að rit um
baráttu þjóðar til sjálfstæðis sé
ritað á annarri tungu en móð-
urmálinu. í annan stað er ís-
lensk sjálfstæðisbarátta fyrir-
mynd þeirrar færeysku og marg-
ar sjálfstæðishetjur okkar
dvöldu hér við nám og störf. ís-
lenskir sagnfræðingar hafa því
Hans Jacob Debes
Ljósmynd: Mbl. Júlíus.
óvenju góða innsýn í þessa grein
færeyskrar sögu. í raun mætti
segja að færeysk saga sé sú ís-
lenska nema hvað hún gerist 50
árum seinna en á íslandi."
— Hvað tekur við þegar þess-
ari vörn er lokið?
»Ég vann í 16 ár að þessari
ritgerð jafnframt því að vera
menntaskólakennari. Ætli ég
hverfi ekki aftur til kennslunn-
ar. Annars veit maður aldrei
hvað framtíðin ber í skauti sér.“
ísarn hf. 30 ára
Flugleiðir:
Fargjöld lækk-
uð innanlands
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið enn
frekari breytingar á innanlands-
fargjöldum í átt til lækkunar. Frá 1.
júní er veittur umtalsverður afslátt-
ur á fargjöldum þeirra er fljúga með
Flugleiðum milli landshluta um
Reykjavík. Þannig lækkar tii dæmis
fargjald milli Hornafjarðar og Sauð-
árkróks fram og til baka um eitt
þúsund krónur frá því verði sem ver-
ið hefur. Sambærilegur afsláttur
gildir frá öllum 10 áfangastöðum
Flugleiða út um land. Þessu til við-
bótar má síðan veita alla gildandi
afslætti ofan á þennan afslátt, svo
sem fjölskylduafslátt þar sem for-
svarsmaður greiðir fullt fargjald,
maki hálft fargjald en börn innan 12
ára aðeins 25% af verði farseðils.
Gildistími farseðils milli staða
innanlands um Reykjavík er eitt
ár og farþegar mega hafa ótak-
markaða viðdvöl í Reykjavík upp
að þeim tíma.
Þessi nýi afsláttur kemur til
viðbótar þeim lækkunum sem
Flugleiðir hafa innleitt fyrr á
þessu ári fyrir farþega utan af
landi á leið til útlanda. Sama aðal-
fargjald gildir nú í millilandaflugi
Flugleiða frá öllum áfangastöðum
félagsins hérlendis. Farþegar utan
af landi sem eru á leið til útlanda
á sérfargjaldi fá 35% afslátt af
fargjaldi innanlands. Með þessum
breytingum hafa Flugleiðir kapp-
kostað að leggja sitt af mörkum til
að jafna ferðakostnað lands-
manna.
(Fréttatilkynning)
Sýning á meðferð
seglbáta og -bretta
SIGLINGAFÉLAGIÐ Sigurfari á
Seltjarnarnesi gengst nú um helgina
fyrir myndbandasýningu um með-
ferð seglbáta og seglbretta. Verður
sýningin haldin í húsnæði Gróttu í
íþróttahúsinu og hefst kl. 17.00 í dag
og á morgun, sunnudag.
Innritun á siglinganámskeið fé-
lagsins fer einnig fram í dag og á
morgun, frá kl. 13—15 báða dag-
ana. Þá hefur félagið hafið sölu á
merki sínu, sem verður framhald-
ið í sumar.
I r rréttatilkynningu.
Torfærutröll á
afmælissýningu
„Við höfum haldið okkur við það,
að vera með umboð fyrir þessa einu
tegund sl. þrjátíu ár, þvi að við höf-
um frekar viljað gera eitt vel heldur
en margt sæmilega," sagði Ágúst
Hafberg, framkvæmdastjóri ísarns
hf. sem heldur um þessar mundir
upp á 30 ára afmæli sitt, en blaða-
mönnum var boðið að skoða björt og
snyrtileg húsakynni fyrirtækisins og
fræðast um starfsemina sl. föstudag.
í tilefni afmælisins hafa að-
standendur ísarns ákveðið að gefa
almenningi kost á því að kynnast
starfseminni innan frá og verða
því skrifstofur, véla- og sýningar-
salir opin öllum, sem áhuga hafa,
um helgina. Á bílastæðinu fyrir
utan Landleiðahúsið mun gefa að
líta mikinn flota langferðabíla,
steypubíla, virkjunar- og gáma-
bíla, að ógleymdum a.m.k. einum
vörubíl, sem gengur fyrir lýsi, svo
eitthvað sé nefnt. En ísarn er ís-
lenskur umboðsaðili Scania-
Saab-bifreiðaverksmiðjanna
sænsku og mun sem næst þriðj-
ungur allra vörubifreiða á íslandi
í þungavinnuflokki vera frá þeim
kominn.
fsarn hf. var stofnað árið 1954 í
þeim tilgangi að flytja inn og selja
bifreiðir og veita þjónustu er að
slíku lýtur. Samtímis tók fyrir-
tækið- að sér sölu á framleiðslu
Scania-Vabis-verksmiðjanna, en
þær sameinuðust seinna Saab-
verksmiðjunum, heita nú Scania-
Saab, sem áður sagði, og eru mikið
stórveldi í bílaiðnaðinum; stærri
en Volvo-verksmiðjurnar á heima-
Skoðanakönnun DV:
Fyrsti Scania-bíllinn, sem seldur var á íslandi, er sérstakur heiðursgestur á
afmælissýningunni, enda þykir hann hafa staðiA sig vel. Á myndinni eru f.v.:
Helgi Helgason, viAskiptafræAingur, Claes Thorén frá SvíþjóA, svæAisstjóri
Scania í Evrópu, Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri ísarns hf„ og HörAur
ÞormóAsson, sölustjóri.
velli og velta árlega sem svarar 75
milljörðum íslenskra króna.
Nær allir hluthafar hins nýja
fyrirtækis, fsarns, voru við stofn-
un þess einnig hluthafar í Land-
leiðum, sem þá höfðu rekið stræt-
isvagna í tæp fjögur ár. Síðan hef-
ur samvinna þessara tveggja
fyrirtækja verið mjög náin og þau
deila nú húsi við Reykjanesbraut-
ina, sem þau komu sér upp í sam-
einingu og fluttu inn í vorið 1981.
Forráðamenn fsarns sögðu síð-
ustu tvö árin hafa verið erfið. Fólk
hefði ekki lagt í kaup á jafn stór-
um atvinnutækjum og þeirra bílar
væru, en nú væri að rofa til í
markaðsmálum. Markaðshlutdeild
Scania á fslandi sögðu þeir hafa
verið um 30% frá upphafi.
Á sýningunni í Landleiðahúsinu
gefur m.a. að líta fyrsta bílinn,
sem ísarn hf. flutti inn vorið 1954.
Það er vörubíll, sem er enn í góðu
lagi og í fullri notkun. Alls mun
Línur féllu niður
ÞAU MISTÖK urðu í Morgunblað-
inu fimmtudaginn 31. maí sl. að í
viðtali blaðsins við Steingrím Sig-
urðsson listmálara, féllu tvær
neðstu línur hvers dálks niður.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum, en hér á eftir
fer það sem niður féll við birtingu.
Neðst í fyrsta dálki átti að
standa: „Ég hef orðið að gera
kyrfilega úttekt á sjálfum mér
undanfarin fjögur ár og vinn að
því uppgjöri án þess að gefa sjálf-
um mér grið sem ábyrg mann-
eskja.“ Neðst í öðrum dálki átti að
standa: Að sjálfsögðu er hætta á
því og það er ábyrgðarhluti að
gefa sig út fyrir að vera atvinnu-
listmálari." Neðst í þriðja dálki
átti að standa: Sýningu Steín-
gríms lýkur 11. júní nk. kl 23.30.
bílnum hafa verið ekið u.þ.b.
900.000 km. og er hann enn í eigu
fyrsta kaupandans, Haralds
Georgssonar, bónda í Haga í
Gnúpverjahreppi, sem notar hann
til búrekstrar og flutninga í sinni
sveit.
67,7 % fylgjandi
ríkisstjórninni
í skoðanakönnun sem Dagblaðið
og Vísir gerði nýlega á afstöðu
fólks til ríkisstjórnarinnar kom
fram að 67,7% þeirra sem spurður
voru og afstöðu tóku voru fylgj-
andi ríkisstjórninni, en 32,3%
voru henni andvígir.
Fylgi ríkisstjórnarinnar er
heldur minna skv. þessari
skoðanakönnun, en það var i síð-
ustu skoðanakönnun blaðsins í
mars sl„ en heidur meira en það
var í október sl. Fylgjandi ríkis-
stjórninni sögðust 297 manns vera
eða 49,5%, andvígir 142 eða 23,7%,
óákveðnir sögðust 115 vera eða
19,2% og 46 manns eða 7,7% vildu
ekki svara spurningu blaðsins.
Kökusala og
flóamarkaöur
KVENNADEILD Rangæingafé-
lagsins verður með kökusölu og
flóamarkað á Hallveigarstöðum í
dag, laugardaginn 2. júní, kl. 14.
Allur ágóði samkomunnar rennur
til styrktar kór félagsins.
Fréttatilkynning.
Tvíhöfða lamb lifði
á þriðja sólarhring
„ÞAÐ er ekki mjög algengt að
lömb fæðist með þann vanskapnað
að vera tvíhöfða, en sjaldgæft að
þau fæðist lifandi og hægt sé að
halda lífi í þeim,“ sagði Sigurður
Sigurðarson, dýralæknir á Keld-
um, í samtali við Mbl. Sigurður
fékk, sl. fimmtudag, sent tvíhöfða
lamb frá Gjögri, en það var frá
Felli í Trékyllisvík í Arneshreppi.
Lambið lifði á 3. sólarhring og dó á
(ostudag.
Lambið var fyrst um sinn á
heimili Sigurðar og Halldóru
Einarsdóttur, konu hans, en var
í gær flutt að Keidum til krufn-
ingar. Það var gimbur og hafði
einn heila, tvö eyru, fjögur augu
og tvær snoppur og gat það
jarmað og sogið með báðum
snoppunum. Var jarmurinn tví-
hljóða því að raddböndin voru
tvenn. Efri skolturinn á annarri
snoppunni var óeðlilega stuttur.
Sökum vanskapnaðar hélt lamb-
ið ekki höfði og vantaði jafnvæg-
isskyn.
Sameiginlegt kok var með
báðum höfðunum og opinn gang-
ur á milli. Kvað Sigurður lambið
hafa dáið vegna þess að fóstur-
vatn og síðar mjólk hefði lent
ofan í lungun, vegna vansköpun-
ar á kokinu.
Sigurður sagði það töluverðan
feng fyrir rannsóknarstöðina á
Keldum að fá jafn merkilegt
rannsóknarefni. Kunni hann
Elísabetu Guðmundsdóttur á
Felli þakkir fyrir að láta vita af
lambinu og Guðmundi P. Val-
geirssyni á Bæ sem sá um að
senda það suður, bestu þakkir
fyrir áhuga hans fyrr og síðar í
þágu rannsóknarstöðvarinnar.
Sölvi Sigurðarson heldur á lamb-
inu á heimili Sigurður Sigurðars-
sonar, dýralæknis, þar sem lambið
var geymt. Ljósm.Mbl./Július.