Morgunblaðið - 02.06.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JUNÍ 1984
27
Kjaramálin rædd á
fulltrúaþingi Kennara-
sambands Islands
I’KIÐJA fulltrúaþing Kennara-
sambands íslands hófst í gær í
Korgartúni 6. Meðal þeirra mála
sem þar verða rædd eru kjör
kennara. Fyrir þinginu liggur bréf
frá Bandalagi starfsmanna ríkis
og bæja þar sem því er beint til
aðildarfélaga handalagsins að þau
efni til umræðu um kjaramálin og
uppsögn á kauplið kjarasamninga
1. september næstkomandi, með
fundum nú í maímánuði og júní.
í framhaldi af þessu liggur
fyrir þinginu tillaga til sam-
þykktar um kjaramálaályktun.
Þar er mótmælt harðlega hinni
gífurlegu kjaraskerðingu sem
átt hefur sér stað á síðustu
misserum. „Reynslan af síðustu
samningum sýnir að enn hefur
ekki tekist að stöðva þá
ógnvænlegu kjaraskerðingu er
hófst með bráðabirgðalögum
þeim um efnahagsmál sem sett
voru í mai 1983.
Byrjunarlaun kennara með
þriggja ára háskólanám eru nú
svipuð þeirri kröfu sem sett var
fram í síðustu kjarasamningum
um launalágmörk. Þessi staða
kennara í launakerfinu er gjör-
samlega óviðunandi miðað við
menntun þeirra, ábyrgð og þær
©
kröfur er gerðar eru til kennara-
starfsins.
Fulltrúaþingið telur óhjá-
kvæmilegt að núgildandi kjara-
samningum verði sagt upp frá 1.
september nk. og verkfall boðað
til að knýja fram verulegar
kjarabætur til handa ríkis-
starfsmönnum. Hvetur þingið
alla ríkisstarfsmenn til að sýna
órofa samstöðu í þeirri baráttu
sem framundan er.“
Fulltrúaþing KÍ:
l.josmvnd Mbl./ Kristján Kinarsson.
Frá blaðamannafundi Kennarasambands íslands. Annar frá vinstri er Valgeir Gestsson formaður KÍ, Svanhildur
Kaaber, formaður skólamálaráðs (3. t.v.), Kristín H. Tryggvadóttir, blaðafulltrúi á þinginu, og loks Hanna Kristín
Stefánsdóttir (lengst til hægri), sem situr í stjórn Kennarasambandsins og er ritstjóri Fréttabréfs kennara.
Janfréttisfræðsla og könnunarpróf
FYRIR Fulltrúaþingi Kennarasambands Islands liggja fjölmargar
tillögur til samþykktar. Eru þær flestar komnar frá skólamálaráði,
ráði sem hefur það meginverkefni að fjalla um þau málefni er lúta
að innra starfi skóla og faglegum málefnum kennarastéttarinnar. í
því sitja fulltrúar flestra þeirra skólagerða sem Kennarasambandið
spannar. Með því er reynt að tryggja að sem flest sjónarmið komi
fram.
INNLENT
Meðal þeirra ályktana sem
liggja fyrir þinginu er ein um
jafnréttisfræðslu. í henni er vakin
athygli á að þrátt fyrir allnokkra
umræðu í þjóðfélaginu um jafn-
rétti kynjanna í námi, starfi og
launum sé ennþá ríkjandi hróplegt
misrétti og fordómar um hlutverk
og lífsviðhorf karla og kvenna. Á
þetta jafnt við um atvinnulíf,
heimilis- og fjölskyldulíf og skól-
ann og starfsemi hans. Þetta stað-
festa ýmsar kannanir sem gerðar
hafa verið. „Það liggur því í aug-
um uppi að hér hefur skólinn
skyldur að rækja sem hann hefur
ekki sinnt. KÍ leggur áherslu á að
tafarlaust sé útbúið námsefni um
jafnréttismál til notkunar í skól-
um.“ Þá beinir þingið þeirri hug-
mynd til skólanna að þeir gangist
fyrir sérstökum „jafnréttisvikum"
í skólunum þar sem fjallað væri
um þessi mál á sem flestum svið-
um og reynt að fá foreldra til að
taka þátt í ýmsum þeim verkefn-
um sem þar væri fjallað um.
Samræmd próf verða einnig til
umræðu á þinginu. í tillögu um
þau mál leggur KÍ áherslu á að nú
þegar verði hafinn undirbúningur
að niðurfellingu samræmdra
prófa í 9. bekk grunnskóla. Hins
vegar verði lögð fyrir samræmd
könnunarpróf sem yrðu til leið-
beiningar kennurum og skólum.
Yrði fyrirkomulag þeirra þannig
að menntamálaráð semdi próf sem
tekin yrðu í öllum grunnskólum
landsins, með mjög stuttum fyrir-
vara, líkt og almennt er um
skyndipróf nú. Yrðu þessar æf-
ingar teknar á sama tíma á öllum
stöðum. Neminn skrifar ekki nafn
á verkefnið, og sérstök prófanefnd
getur því metið einstaka bekki og
skólastarfið í viðkomandi skóla.
Þannig væru þessi próf eingöngu
fyrir yfirvöld skólans, en ekki til
að leggja mat á einstaka nema. 1
greinargerð með tillögunni segir
m.a: „Samræmd próf í 9. bekk
hafa í æ ríkara mæli haft stýrandi
áhrif á nám og kennslu í efstu
bekkjum grunnskóla. Gera verður
þá kröfu að skólum sé treyst til að
meta nám og starf nemenda sinna
við lok skólaskyldu."
Enn er rætt um lög um fram-
haidsskóla og fyrir liggur tillaga
þar sem fulltrúaþingið minnir á
mikilvægi þess að til sé löggjöf um
skólastarfið í landinu og skorar á
Alþingi að afgreiða sem fyrst
samræmda löggjöf um framhalds-
skóla til þess að starfsemi þeirra
hangi ekki lengur i lausu lofti
heldur styðjist við löggjöf frá Al-
þingi. Jafnframt er varað við
þeirri tilhneigingu að sérhæfa um
of menntaskólanám í skólakerfinu
eða gefa því meira gildi og forgang
til fjár, umfram t.d. list- og tækni-
menntun eða aðra mikilvæga
þætti menntunar.
Líkams- og heilsuræktin
Borgartúni 29,
sími 28449
__ Hin geysivinsæla
Lisser Frost-Larsen
er komin aftur
Lisser sem talin er ein af sex bestu vaxtarræktarkonum heims mun vera til
staöar í Líkams- og heilsuræktinni, Borgartúni 29, dagana 3. til 7. júní nk. og
leiöbeina meölimum stöðvarinnar í líkams- og heilsurækt.
Einnig mun Lisser veita aöstoö í sambandi viö megrunarfæöi, þeim sem á því
þurfa aö halda, og eru aö hugsa um línurnar fyrir komandi sumarfrí, en á því
sviöi er hún talin meö þeim bestu sem völ er á.
Lisser var hér á landi í febrúar sl. og sannaöi þá óumdeilanlega hæfni sína og
naut um leiö mikilla vinsælda fyrir alúölega framkomu. Þeir sem hún hjálpaöi
þá, hafa lýst því yfir, aö færari leiöbeinanda, hvort heldur í æfingum eöa
samsetningu mataræðis, hafi þeir aldrei kynnst.
Þá daga sem Lisser veröur hér, mun hún, ef næg þátttaka fæst halda fyrirlestra
og svara fyrirspurnum um líkams- og heilsurækt.
Þessir fyrirlestrar veröa kl. 10.30 á morgnana og kl. 19.30 á kvöldin. Jafnframt
mun hún sýna vaxtarræktar-stellingar (pósur.) ef tækifæri gefst til.
Lisser mun koma fram á Broadway laugardaginn 2. júní og sýna vaxtarræktar-stellingar.
Muniö stærstu Ijósabaöstofu bæjarins, sem jafnframt er sú ódýrasta
Líkams- og heilsuræktin, Borgartúni 29, sími 28449. Stööin sem lætur sér annt um viöskiptavini sína.