Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 48

Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 48
OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍMI 11630 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Stangaveiðitíminn hafinn: Einstök byrj- un í Norðurá STANGAVEIÐIN byrjar vel. f gærmorgun var Norðurá í Borgar- firði opnuð fyrst áa að venju. Veiddist 21 lax í gær en fyrsti lax- inn veiddist klukkan 7.15 eftir opnun árinnar. Ólöf Stefánsdóttir veiddi þá fyrsta lax sumarsins, 10 punda hrygnu á maðk, í Stokkshyls- broti. Eiginmaður Ólafar, Karl Ómar Jónsson, fyrrverandi for- maður Stangaveiðifélags Reykja- víkur, veiddi fyrsta flugulaxinn skömmu síðar, einnig í Stokks- hylsbroti. Það var 11 punda hrygna veidd á „Blue Charm" nr. 6. Að sögn laxveiðimanna við Norðurá var þar frábært veður í gær, logn og 18 stiga hiti um miðjan dag. Létu þeir afar vel af byrjuninni, sögðu hana einstaka. Sömu sögu er að segja af neta- laxveiðinni í Hvítá í Borgarfirði. Láta netabændur afar vel af veiðinni í maí, en laxveiðitíma- bilið þar hófst að þessu sinni 22. maí, segja hana eina þá bestu í áraraðir. Árið í fyrra var neta- bændum mjög hagstætt og lofar byrjunin nú einnig góðu, þó of snemmt sé að fullyrða um sumarið enn sem komið er. Drengur lést í umferðarslysi Banaslys varð á Stekkjarbakka í Breiðholti um hálftíuleytið í gær- morgun, er bifreið ók þar á Ijósa- staur með þeim afleiðingum að 12 ára gamall drengur, sem var farþegi í bílnum, lést. tíkumaðurinn, sem var rúmlega tvítug stúlka, slapp án teljandi meiðsla, en þau voru tvö í bifreiðinni. Þau voru ekki í öryggis- hægt að yfirheyra ökumann. Bif- reiðin, sem er af Vauxhall Viva- gerð, var á leið norður Stekkjar- bakka í áttina frá Álfabakka. Þar sem slysið varð eru hlykkir á göt- unni og hefur bifreiðin lent þar útaf og með framendann á ljósa- staur. Morfunbladid/KEE. Listahátíð 1984 sett Listahátíð 1984 var sett með pomp og prakt í Laugardalshöll í gærkvöldi. Mikið fjölmenni var á opnunarhátíðinni. Myndin sýnir Whoope-hljómsveit Bob Kerr skemmta gestum. Sjá frásögn og myndir af opnunarhátíðinni á miðopnu. 6—10% hækkun á algengustu landbúnaðarvörum: beltum. Óljóst er með hvaða hætti slysið varð, þar sem ekki hefur enn verið Þetta er fyrsta banaslysið sem verður í umferðinni í Reykjavík í ár. Frá slysstað í Stekkjarbakka í gærmorgun. Morminbia«i«/Jóii sv»v.ra»on. 40 % frá áramótum Söngvakeppnin í Bratislava: Jóhann og Björgvin hlutu silfurverðlaun Frá Om.ri V.ldim.rssyni, bladam.nni Mbl. í Br.tÍHl.v., TókkÖHlóvakíu. I. júní 1984. Lagið „Sail On“ eftir Jóhann Helgason hlaut silfurverðlaun á al- þjóðlegu söngvakeppninni „Brati- slavska Lyra“, sem lauk hér í kvöld. Áheyrendur völdu lagið sem sitt eftirlætislag í keppninni, en dómnefndin veitti gullverðlaun lagi sem flutt var af austur-þýsku hljómsveitinni „Smokings". Tékk- ar lentu í þriðja sæti. Þeim Jóhanni Helgasyni og Björgvini Halldórssyni var gríð- arlega vel fagnað er þeir fluttu lagið að kvöldi annars dags keppninnar og voru þeir hinir einu, á meðal um 40 keppenda, sem kallaðir voru fram á sviðið aftur. Lagasmiðurinn Jóhann Helga- son sagðist, eftir verðlaunaveit- inguna hér í kvöld, vera mjög ánægður með árangurinn. Það hefði verið ljóst frá upphafi að einhver Austur-Evrópuþjóðanna myndi hreppa gullverðlaunin og því mættu þeir Björgvin vel við una. Þeir létu mjög vel að öllum að- búnaði og sögðu að aðstaða til Ljósm. Mbl./ Frióþjófur. Jóhann Helgason og Björgvin Halldórsson, skömmu áóur en þeir fóru utan til Tékkóslóvakíu. tónleikahaldsins í nýju tónlist- arhöllinni í Bratislava væri með því besta sem þeir hefðu reynt. Þeir koma til íslands annað kvöld. LANDBÚNAÐARVÖRUR hækk- uðu í verði í gær. Hækkun á verði varanna til bænda nam 6,75% en smásöluverð hækkaði yfirleitt um 6 til 10%. Smásöluverð landbúnað- arvara hefur hækkað á þessu ári um 20 til 40%eftir vörutegundum. í dag kostar mjólkurlítrinn í eins lítra fernum 22,30 kr., hækkaði nú um 8,2%, en hefur hækkað um 30,4% frá áramót- um. Hálfur lítri af rjóma kostar nú 70,60 kr., hækkaði um 7,7% og hefur hækkað um 28,7% á árinu. 1 kg af smjöri kostar nú 239,70 kr., hækkaði um 9,2% en hefur hækkað um 19,6% frá ára- mótum. 1 kg af skyri kostar 37,40 kr., hækkaði um 10,4% og hefur hækkað um 38,5% á árinu. 1 kg af 45% osti kostar 215,10 kr., hækkaði um 6% en hefur hækkað um 24,6% frá áramót- um. 1 kg af nautgripakjöti af 1. verðflokki, í heilum eða hálfum skrokki, kostar 174,50 kr., hækk- aði um 17,2% og hefur hækkað um 25,1% frá áramótum. Kílóið af dilkakjöti af 1. verðflokki, skipt að ósk kaupanda, kostar 139,10 kr., hækkaði um 7,9% og hefur hækkað um 19,5% það sem af er árinu. Verð landbúnaðarvara til bænda hækkaði um 6,75%. Staf- ar hækkunin aðallega af hækk- unum áburðar, kjarnfóðurs og launa bænda. Áburðarliður verðlagsgrundvallarins hækkaði um 19,9% og hækkaði það grundvöllinn um 1,77%, kjarn- fóðurliðurinn hækkaði um 17,2% sem olli 2,96% hækkun til bænda og laun bænda hækkuðu um 4,03%, sem hækkaði verð landbúnaðarafurða til þeirra um 1,53%. Hækkanir á öðrum liðum leiddu af sér 0,49% hækk- un verðlagsgrundvallarins og þar með verði landbúnaðaraf- urða til bænda. Smásöluverð hækkar í flestum tilvikum meira en verð til bænda og staf- ar það aðallega af því að niður- greiðslur breytast ekki við verð- hækkunina, þær eru föst krón- utaia. Hin mikla hækkun smá- söluverðs landbúnaðarafurða það sem af er árinu stafar einn- ig að stórum hluta af lækkandi niðurgreiðslum en einnig hefur verð þeirra til bænda hækkað verulega. Enn ósam- ið um nýtt fiskverð SAMNINGAR hafa ekki tekist um nýtt fiskverð, sem taka átti gildi 1. júní. Yfirnefnd Verðlags- ráðs sjávarútvegsins sat á fundi í gær in þess að niðurstaða fengist og hefur nýr fundur verið boðaður um hádegisbilið í dag. Að sögn Jóns Sigurðssonar, oddamanns í yfirnefndinni, hafa komið til ný óvissuatriði sem torveldað hafa samninga. Nefndi hann áform um ótiltekna olíuverðshækkun og breytingu á afurðalánakerfinu í þessu sam- bandi. Ágreiningurinn sagði hann að stæði þó fyrst og fremst um sjálft fiskverðið þar sem seljendur færu fram á mun meiri hækkun en kaupendur hefðu treyst sér til að greiða. Hafa hækkað um 20-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.