Morgunblaðið - 29.06.1984, Side 14
HVAÐ ER AD GERAST UHIHELGINA?
46
LEIKLIST
Stúdentaleikhúsið:
„Láttu ekki
deigan síga,
Guðmundur“
Stúdentaleikhúsið sýnir leikrit
þeirra Eddu Björgvinsdóttur og
Hlín Agnarsdóttur „Láttu ekki
deigan síga, Guðmundur“, í kvöld
og annaö kvöld.
TÓNLIST
Sauðárkrókur:
Rokktónleikar
Á morgun kl. 14 veröa rokktón-
leikar í félagsheimilinu á Sauöár-
króki. Þrjár heimahljómsveitir
leika, en um kvöldið skemmtir
hljómsveit Ingimars Eydal ásamt
Hallbirni Hjartarsyni. Sunnu-
dagskvöld skemmta Jóhann Már
Jóhannsson, Svavar Jóhannsson
og Örn Birgisson meö söng.
Dómkirkjan:
Orgeltónleikar
Á sunnudag leikur Marteinn H.
Friöriksson á orgel Dómkirkjunnar
verk eftir Bach, Mendelssohn og
Pál ísólfsson. Tónleikarnir hefjast
kl.17.
MYNDLIST
Akureyri:
Listkynning
Listkynning á verkum málarans
Kristins G. Jóhannssonar stendur
nú yfir í Alþýðubankanum á Akur-
eyri. Þar eru sýnd olíumálverk,
sem Kristinn hefur unniö meö
gömlum munstrum. Listkynningin
er haldin á vegum Menningarsam-
bands Norölendinga og Alþýöu-
bankans.
Gallerí Portið:
Myndir Stefáns
frá Möðrudal
Stefán Jónsson, myndlistar-
maöur frá Möörudal, heldur um
þessar mundir sýningu á verkum
sínum i Gallerí Portinu, aö Lauga-
vegi 1. Á sýningunni eru um 500
verk, olíumálverk og vatnslita-
myndir, sem Stefán hefur málaö á
undanförnum þremur árum. Sýn-
ingin er opin alla daga vikunnar frá
kl. 15—20.
Listasafn íslands:
Karel Appel
í Listasafni islands stendur nú
yfir sýning á verkum hollenska
listmálarans Karel Appel, en sýn-
ingin er framlag safnsins til Lista-
hátíðar. Verkin á sýningunni
spanna tímabiliö 1959—83. Eru
þau 48 talsins, olíumálverk,
akrýl-myndir, grafík og myndir
unnar meö blandaðri tækni. Sýn-
ingin veröur opin daglega frá kl.
13.30—22, en henni lýkur á
sunnudag.
JL-húsið:
Verk Ellenar
Birgis
Ellen Birgis, myndlistarmaöur,
hefur nú opnaö sýningu í kaffiteríu
JL-hússins við Hringbraut. Sýning-
in er önnur einkasýning Ellenar, en
hún hefur áöur sýnt verk sín í Eden
í Hverageröi.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1984
Ásgrímssafn:
Sumarsýning
Árleg sumarsýning Ásgríms-
safns viö Bergstaðastræti stendur
nú yfir. Á sýningunni eru olíu- og
vatnslitamyndir, m.a. nokkur stór
málverk frá Húsafelli og olíumál-
verk frá Vestmannaeyjum frá árinu
1903, en þaö er eitt af elstu verk-
um safnsins.
Sýningin er opin alla daga,
nema laugardaga, frá kl.
13.30—16, fram í lok ágústmán-
aðar.
Mosfellssveit:
Litir og form
„Litir og form“ er yfirskrift
myndlistarsýningar sem nú stend-
ur yfir í Héraðsbókasafninu í Mos-
fellssveit. Þar sýnir Rut Rebekka
Sigurjónsdóttir verk sem hún hefur
unniö meö akrýl-litum og í silki-
þrykk. Sýningin stendur til 4. júlí,
opin um helgar frá kl. 14—19 og
aöra daga frá kl. 13—20.
Kjarvalsstaðir:
Verk íslendinga
erlendis frá
Á Kjarvalsstööum stendur nú yf-
ir sýning á verkum tíu íslenskra
listamanna, sem búsettir eru er-
lendis, en sýningin er liður í Lista-
hátíö. Þeir sem eiga verk þar eru
Erró, sem sendi 5 stór olíumálverk
frá París, Loulsa Matthíasdóttir,
sem kom frá New York meö um 50
olíumálverk, Kristín og Jóhann
Eyfells, sem komu frá Flórída með
skúlptúra og málverk, Tryggvi
Ólafsson, sem kom með málverk
frá Kaupmannahöfn, Steinunn
Bjarnadóttir, sem kom meö
myndbönd frá Mexíkó og fjór-
menningarnir Hreinn Friöfinnsson,
Amsterdam, Þórður Ben. Sveins-
son, Díisseldorf, Siguröur Guö-
Hlégarður:
Wmm
i||»
„Ragnarokk“
Danskur áhugaleikhópur ungs fóiks, „Musikteatergruppen Ragna-
rock“, sýnir í Hlégarði í Mosfellssveit sunnudags- og mánudagskvöld
kl. 20.30. Um 30 leikarar á aldrinum 14—24 ára taka þátt í sýningunni,
sem nefnist „I morgen er solen gr«n“. Þar er túlkuð framtíðarsýn,
fjallað um hvað gerist eftir elda kjarnorkubáls. Leikhópurinn fléttar
saman nýjum leikaðferðum og tónlist, þannig að hluti sýningarinnar er
í kabarett- og rokkóperustíl. Sérstök áhersla er lögð á skýra framsögn
Dananna hér á landi. Sýningarkvöldin fer áætlunarbifreið kl. 19.45 frá
pósthúsinu í Kópavogi að Hlégarði, með viðkomu í Lækjargötu.
mundsson, Amsterdam, og Krist-
ján Guömundsson, Amsterdam,
en verk þeirra fylla vestursal húss-
ins.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14—22. Hún stendur út júlímánuð.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Sýning í Safna-
húsi og högg-
myndagarði
Listasafn Einars Jónssonar hef-
ur nú veriö opnaö eftir endurbæt-
ur. Safnahúsiö er opiö daglega,
nema á mánudögum, frá kl.
13.30—16 og höggmyndagaröur-
inn, sem í eru 24 eirafsteypur af
verkum listamannsins, er opinn frá
kl. 10—18.
Listmunahúsið:
Gler og
steinsteypa
Sýning á verkum Steinunnar
Þórarinsdóttur stendur nú yfir í
Listmunahúsinu viö Lækjartorg. Á
sýningunni, sem er 4. einkasýning
Steinunnar, eru 17 skúlptúrverk,
unnin í gler og steinsteypu. Sýn-
ingin er opin í dag kl. 10—18 og
um helgina frá kl. 14—18. Henni
lýkur á sunnudag.
Gallerí Borg:
Grafík, keramik,
gler
j Gallerí Borg viö Austurvöll
stendur nú yfir sýning á grafíkverk-
um 10 listamanna, en einnig eru á
sýningunni verk unnin í keramik og
gler. Sýningin er opin virka daga
kl. 10—18 og um helgar kl.
14—18. Sýningunni lýkur næstu
helgi.
Félag harmonikkuunnenda heldur útitónleika við Bernhöftstorfuna
á sunnudag kl. 15. Á tónleikunum mun 20 manna hljómsveit félagsins
leika, ásamt kvintett og smærri hópum. Með tónleikunum vill Félag
harmonikkuunnenda kynna nýútkomna hljómplötu sína.
Félag harmonikkuunnenda:
Útitónleikar í miðbænum